Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Earnings Release 2023

Apr 23, 2024

2196_rns_2024-04-23_f3f3e9c9-f95b-4f8a-9c7c-a10640190183.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. april 2024

hagar

HAGAR HF.: ÁRSUPPGJÖR HAGA 2023/24 OG UPPGJÖR 4. ÁRSFJÓRDUNGS

Sterkt rekstrarár með auknum tekjum og bættri afkomu

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstraráríð 2023/24 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 23. apríl 2024. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 4F nam 42.788 m.kr. (6,5% vöxtur frá 4F 2022/23). Vörusala 12M nam 173.270 m.kr. (7,0% vöxtur frá 12M 2022/23). [4F 2022/23: 40.160 m.kr., 12M 2022/23: 161.992 m.kr.]
  • Framlegð 4F nam 8.952 m.kr. (20,9%) og 35.989 m.kr. (20,8%) fyrir 12M. [4F 2022/23: 7.739 m.kr. (19,3%), 12M 2022/23: 30.987 m.kr. (19,1%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 2.840 m.kr. eða 6,6% af veltu. EBITDA 12M nam 13.063 m.kr. eða 7,5% af veltu. [4F 2022/23: 2.406 m.kr. (6,0%), 12M 2022/23: 12.041 m.kr. (7,4%)]
  • Hagnaður 4F nam 1.191 m.kr. eða 2,8% af veltu. Hagnaður 12M nam 5.044 m.kr. eða 2,9% af veltu. [4F 2022/23: 735 m.kr. (1,8%), 12M 2022/23: 4.949 m.kr. (3,1%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 4F var 1,09 kr. og 4,59 kr. fyrir 12M. [4F 2022/23: 0,66 kr., 12M 2022/23: 4,40 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 4F var 1,08 kr. og 4,51 kr. fyrir 12M. [4F 2022/23: 0,65 kr., 12M 2022/23: 4,32 kr.]
  • Eigið fé nam 28.188 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 36,5%. [Árslok 2022/23: 27.931 m.kr. og 38,8%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstraráríð 2023/24 gerði ráð fyrir að EBITDA yriði 12.900-13.400 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á 4F gekk vel með áframhaldandi veltuaukningu og afkomubata. Jólaverslun gekk vonum framar.
  • Vörusala jókst um 6,5% á 4F en seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgaði um 3,3% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis, eða um 10,1% á fjórðungnum. Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 1,4% á fjórðungnum, einkum vegna loðnubrests.
  • Framlegð í krónum talið jókst um 15,7% milli ára og framlegðarhlutfallið nemur 20,9% eða hækkun um 1,7%-stig milli ára. Styrking framlegðar frá fyrra ári tengist starfsemi Olís og sveiflum í heimsmarkaðsverði olíu, en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað á milli ára.
  • Um síðastliðin áramót voru framkvæmda-stjórábreytingar í tveimur stærstu rekstrareiningum Haga, Bónus og Olís.
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstraráríð 2024/25 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 13.800-14.300 m.kr. og fjárfestingaráætlun nemur 4.500-4.800 m.kr.
  • Ávinningur af þróun fasteigna byrjaður að skila sér til hluthafa Haga í gegnum eignarhald í fasteignarþróunarfélaginu Klasa.
  • Í apríl sl. var tilkynnt um að Hagar, ásamt meðeigendum, hefðu tekið ákvörðun um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum í Olíudreifingu, EAK og EBK.

Fréttatilkynning 23. april 2024

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2023/24 gekk vel. Vörusala samstæðu nam 42.788 m.kr. sem er 7% aukning miðað við sama tímabil árið á undan. Framlegð talin í krónum jókst um 16% og styrkist einnig sem hlutfall af tekjum. EBITDA nam 2.840 m.kr. og hagnaður 1.191 m.kr., sem hvoru tveggja er umtalsverð aukning frá fyrra ári, annars vegar vegna bætts rekstrar og hins vegar vegna afkomu hlutdeildarfélaga.

Árangur á fjórðungnum slær botninn í gott ár hjá samstæðu Haga þar sem rekstur allra helstu eininga styrktist. Tekjur jukust um 7% og voru ríflega 173 ma. kr., EBITDA ársins var 13.063 m.kr. eða 7,5% af veltu og hagnaður 5.044 m.kr. Að teknu tilliti til einskiptisliða sem féllu til á fyrra ári, þá hefur afkoma styrkst töluvert. Við erum því ánægð með reksturinn á árinu, sérstaklega þegar horft er til að rekstrarumhverfi hefur verið ögrandi, m.a. vegna stöðugra hækkana á verði aðfanga til dagvöruverslunar og sveiflna á olíumörkuðum.

Tekjur verslana og vöruhúsa jukust um 12% á fjórða ársfjórðungi og voru 32.165 m.kr. Fyrir utan áhrif verðbólgu, þ.e. verðhækkana frá heildsölum og framleiðendum, þá var raunvöxtur tóluverður, afleiðing fjölgunar viðskiptavina og seldra eininga hjá dagvöruverslunum, Stórkaup, Zöru og Eldum rétt. Þessi aukna eftirspurn skilar sér svo aftur í bættri afkomu verslana og vöruhúsa miðað við fyrra ár.

Umsvif hjá Bónus hafa aukist á hverjum fjórðungi undanfarin nokkur ár, með fjölgun viðskiptavina og auknu seldu magni. Þar er ljóst að viðskiptavinir hafa tekið vel í nýjar verslanir sem opnaðar voru á árinu, lengri opnunartíma, endurbætur á eldri verslunum og nýjar þjónustuleiðir á borð við skönnunarlausnina Gripíð & Greitt. Þessar umbætur miða að því að auðvelda viðskiptavinum aðgengi, spara tíma þeirra og auka þægindi í verslunarferðum. Þó þannig að hagkvæmni sé gætt til hins ýtrasta, enda er ljóst að saga af hagkvæmustu matvörukörfu um allt land dregur að, einkum á verðbólgutímum eins og hafa verið. Jólasala í Hagkaup var mikil eins og undanfarin ár og Eldum rétt hefur náð að festa sig í sessi sem einföld og þægileg lausn fyrir æ fleiri fjölskyldur og einstaklinga. Starfsemi vöruhúsa Haga, Aðfanga og Banana, gekk vel á met álagsmánuðum í kringum hátiðirnar, en stækkun vöruhúsa og aukin nýting tækni hafa einfaldað verklag og aukið skilvirkni.

Tekjur hjá Olís námu 11.051 m.kr. á fjórðungnum og drógust saman um ríflega 7% á milli ára. Þessi samdráttur skýrist annars vegar af lækkun á heimsmarkaðsverði olíu frá fyrra ári og hins vegar vegna lítilsháttar fækkunar á heildarfjölda seldra lítra á tímabilinu. Þar munar mestu um samdrátt í sölu til stórnotenda, sem verður vegna loðnubrests í ár í samanburði við ágæta vertið árið á undan. Sala eldsneytis á smásölumarkaði var svipuð á milli ára, en bætt ásýnd og þjónustuframboð stöðva Olís hefur skilað sér í aukinni sölu á þurrvöru og nýjum tekjum, m.a. vegna afhendinga pakkasendinga og af raforkusölu. Afkoma dregst saman miðað við sama fjórðung fyrir ári. Það breytir því hins vegar ekki að nýliðið rekstrarár var í heild með þeim sterkari í sögu Olís.

Verkefni á vegum Klasa fasteignapróunarfélags, þar sem Hagar eiga 1/3 hlut, gengu vel á síðasta ári. Félagið hélt áfram þróun á eftirsóknarverðum byggingarreitum, undirbjó eigin byggingarframkvæmdir og vann að sölu á tilbúnum lóðum til byggingaraðila. Í dag fela þróunarverkefni á vegum Klasa í sér byggingarmagn sem telur ríflega 300.000 m2 en meirihluti þeirra fermetra geta verið tilbúnir fyrir byggingaraðila innan árs eða eru byggingarhæfir í dag. Eins og merkja má af hlutdeild Haga í afkomu Klasa á síðasta ári, þá hafa markmið okkar um að flýta fyrir verðmætasköpun á grunni þróunareigna samstæðunnar þegar gengið eftir. Það er þó aðeins að litlum hluta, enda líklegt að tóluverð spurn verði eftir tilbúnum byggingarreitum frá Klasa á næstu mánuðum og misserum. Við væntum þess því að Klasi muni áfram hafa jákvæð áhrif á afkomu Haga á næstu árum.

Þróun og rekstur samstæðu Haga á fjórðungnum og rekstrarárinu 2023/24 endurspeglar að stefnumótandi áherslur síðustu ára og aðgerðir til að styrkja félagið hafa gefist vel. Til skemmi tíma verður eitt mikilvægasta verkefni okkar að vinna áfram gegir verðhækkunum í dagvöru þar sem enn er tóluverður hækkunarprýstingur á aðfangahlíðinni. Við höfum á undanförnum víkum átt gott samtal við


Fréttatilkynning 23. april 2024

hagar

marga af okkar helstu samstarfsaðilum, heildsala og framleiðendur, sem deila þessu verkefni með okkur og hafa margir hverjir lagt töluvert á sig til að gæta hófs og draga úr boðuðum verðhækkunum. Samstaða um stöðugleika verðs liggur til grundvallar þess að markmið nýgerðra kjarasamninga náist, sem er hagur allra.

Það hefur verið stígandi í rekstri samstæðu Haga og heilt yfir gengið vel á undanförnum árum, með áherslu á að auka skilvirkni rekstrar og styrkja helstu einingar. Við munum ekki kvika frá þessum áherslum á næstu misserum, en sem viðbót þá munum við í auknum mæli horfa til tækifæra í að byggja nýja tekjustrauma, bæði tengt núverandi starfsemi í verslun með matvöru og eldsneyti og nýjum stoðum til viðbótar við okkar kjarnastarfsemi í dag.

Fjárhagsleg staða Haga er góð, helstu rekstrareiningar ganga vel, og félagið hefur á að skipa öflugum hópi starfsfólks sem hefur metnað fyrir því að þjóna viðskiptavinum með því að gera verslun hagkvæma, þægilega og skemmtilega. Heilt yfir er staða félagsins því sterk og horfur ágætar.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 gerir ráð fyrir því að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 13.800-14.300 m.kr.


Fréttatilkynning

  1. april 2024

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

| I mill. kr. | 4F 2023/24
01.12-28.02 | 4F 2022/23
01.12-28.02 | Breyling | 12M 2023/24 | | | 12M 2022/23 | |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | | Breyling % | 01.03-29.02 | 01.03-28.02 | Breyling | Breyling % |
| Vörusala | 42.788 | 40.160 | 2.628 | 6,5% | 173.270 | 161.992 | 11.278 | 7,0% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (33.836) | (32.421) | (1.415) | 4,4% | (137.281) | (131.005) | (6.276) | 4,8% |
| Framlegð | 8.952 | 7.739 | 1.213 | 15,7% | 35.989 | 30.987 | 5.002 | 16,1% |
| Framlegð % | 20,9% | 19,3% | - | 1,7% | 20,8% | 19,1% | - | 1,6% |
| Aðrar rekstrartekjur | 139 | 179 | (40) | -22,3% | 682 | 1.031 | (349) | -33,9% |
| Hagnaður af sölu eigna | -- | -- | -- | - | -- | 966 | (966) | - |
| Laun og launatengd gjöld | (4.322) | (3.886) | (436) | 11,2% | (16.229) | (14.345) | (1.884) | 13,1% |
| Annar rekstrarkostnaður | (1.929) | (1.626) | (303) | 18,6% | (7.379) | (6.598) | (781) | 11,8% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.840 | 2.406 | 434 | 18,0% | 13.063 | 12.041 | 1.022 | 8,5% |
| EBITDA % | 6,6% | 6,0% | - | 0,6% | 7,5% | 7,4% | - | 0,1% |
| Afskriftir | (1.261) | (1.248) | (13) | 1,0% | (5.028) | (4.453) | (575) | 12,9% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.579 | 1.158 | 421 | 36,4% | 8.035 | 7.588 | 447 | 5,9% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (731) | (503) | (228) | 45,3% | (2.621) | (1.887) | (734) | 38,9% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 488 | 220 | 268 | 121,8% | 697 | 392 | 305 | 77,8% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.336 | 875 | 461 | 52,7% | 6.111 | 6.093 | 18 | 0,3% |
| Tekjuskattur | (145) | (140) | (5) | 3,6% | (1.067) | (1.144) | 77 | -6,7% |
| Heildarhagnaður | 1.191 | 735 | 456 | 62,0% | 5.044 | 4.949 | 95 | 1,9% |

Lykiltölur á 4. ársfjörðungi 2023/24

Vörusala á 4F nam 42.788 m.kr. og jökst um 6,5% milli ára. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 12,3% en samdráttur var í sölu hjá Olís sem nemur 7,5% milli ára.

Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgaði um 3,3% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 10,1% á fjörðungnum. Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 1,4% á fjörðungnum, einkum vegna loðnubrests.

Framlegð á 4F nam 8.952 m.kr. og jökst um 15,7% milli ára. Framlegðarhlutfall nam 20,9% og hækkaði um 1,7%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls má rekja til starfsemi Olís og sveiflna í heimsmarkaðsverði olíu, en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað á milli ára, lágt í sögulegu samhengi.

Laun á 4F hækkuðu um 11,2% og launahlutfallið hækkaði úr 9,7% í 10,1% milli ára. Áhrifa nýrra kjarasamninga gætir á fjörðungnum en vegna afturvirkni frá 1. febrúar var færð gjaldfærsla á tímabilinu. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 18,6% en kostnaðarhlutfallið hækkar milli ára úr 4,0% í 4,5%.

EBITDA á 4F nam 2.840 m.kr. og hækkar um 18,0% milli ára. EBITDA hlutfall nam 6,6% í samanburði við 6,0% á fyrra ári.

Áhrif hlutdeildarfélaga á 4F námu 488 m.kr., þar af 418 m.kr. vegna Klasa.

Hagnaður á 4F nam 1.191 m.kr. og hækkar um 62,0% milli ára. Hagnaðarhlutfall var 2,8% í samanburði við 1,8% á fyrra ári.

Rekstur ársins 2023/24

Vörusala ársins nam 173.270 m.kr., samanborið við 161.992 m.kr. árið áður eða 7,0% aukning milli ára. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 15,1% en 8,7% samdráttur var í sölu hjá Olís. Seldum stykkjum í dagvöru fjölgaði á árinu og viðskiptavinir heimsóttu verslanir oftar. Seldir eldsneytislítrar stöðu nánast í stað milli ára.

Framlegð ársins var 35.989 m.kr., samanborið við 30.987 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 16,1%. Framlegðarhlutfall nam 20,8% og hækkaði um 1,6%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls liggur að mestu í eldsneytishluta samstæðunnar, þá einkum á sviði störnotenda, en í dagvöru hefur framlegðarhlutfall hækkað lítillega.

Á samanburðarári 2022/23 voru áhrif af viðskiptum með Klasa, og fleiri einskiptisliðum, að fjárhæð 1.417 m.kr. færð meðal annarra rekstrartekna.

Laun hækkuðu um 13,1% milli ára og launahlutfallið hækkar úr 8,9% í 9,4%. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 11,8% og fer kostnaðarhlutfall úr 4,1% í 4,3%.

EBITDA nam 13.063 m.kr., samanborið við 12.041 m.kr. árið áður eða 8,5% aukning. EBITDA-hlutfall var 7,5%, samanborið við 7,4% á fyrra ári. EBITDA, án einskiptistekna fyrra árs, jökst um 23,0% milli ára.

Heildarhagnaður ársins nam 5.044 m.kr., sem jafngildir 2,9% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 4.949 m.kr. eða 3,1% af veltu (3.815 m.kr. og 2,4% án einskiptisliða).


Fréttatilkynning

  1. april 2024

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

I millj. kr. 29.02.2024 28.02.2023 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 56.085 50.502 5.583 11,1%
Veltufjármunir 21.129 21.505 (376) -1,7%
Eignir samtals 77.214 72.007 5.207 7,2%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.084 1.119 (35) -3,1%
Annað eigið fé 27.104 26.812 292 1,1%
Eigið fé samtals 28.188 27.931 257 0,9%
Langtímaskuldir 23.139 21.101 2.038 9,7%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 5.818 3.325 2.493 75,0%
Aðrar skammtímaskuldir 20.069 19.650 419 2,1%
Skuldir samtals 49.026 44.076 4.950 11,2%
Eigið fé og skuldir samtals 77.214 72.007 5.207 7,2%

Lykiltölur efnahags 29.02.2024

  • Heildareignir samstæðunnar í lok rekstrarárs námu 77.214 m.kr. og hækkuðu um 5.207 m.kr. frá fyrra ári.
  • Fastafjármunir voru 56.085 m.kr. og hækkuðu um 5.583 m.kr. á árinu. Hækkunina má að mestu rekja til hærri rekstrarfjármuna og hækkuð leigueigna vegna nýrra og breyttra leigusamninga.
  • Veltufjármunir námu 21.129 m.kr. og lækkuðu um 376 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Vörubirgðir eru stærsti hluti veltufjármuna og námu 13.068 m.kr. í árslok til samanburðar við 12.717 m.kr. á fyrra ári. Vörubirgðir í dagvöru og sérvoru hafa hækkað milli ára, einkum vegna áhrifa verðbólgu og fjölgunar verslana Bónus. Þá hafa eldsneytisbirgðir lækkað um 960 m.kr. milli ára, bæði vegna lægra einingaverðs og lægri birgðastöðu í lítrum talið. Veltuhraði birgða er nú 10,6 til samanburðar við 11,2 í fyrra.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur námu 6.234 m.kr. og hækkuðu um 315 m.kr. á árinu. Innheimtutími viðskiptakrafna er nú 10,2 dagar samanborið við 11,1 dag á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,82 og lausafjárhlutfall 0,31 í árslok. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður en auk þess fjármagnar félagið sig til skamms tíma með útgáfu vixla.
  • Eigið fé í lok rekstrarárs var 28.188 m.kr. og eiginfjárhlutfall 36,5%. Arðsemi eigin fjár var 18,1%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 38,8% og arðsemi eigin fjár 18,5%. Félagið átti eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. kr. í lok árs.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok árs námu 49.026 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 17.104 m.kr. og leiguskuldir 12.239 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok árs voru 27.517 m.kr. eða 2,1 x 12 mánaða EBITDA.
  • Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 5.818 m.kr. en þar af námu vixilskuldir 2.880 m.kr. Lánalína var óádregin í lok rekstrarárs.

Fréttatilkynning

  1. april 2024

hagar

Sjóostreymisyfirlit samstæðunnar

| I millj. kr. | 4F 2023/24
01.12-29.02 | 4F 2022/23
01.12-28.02 | Breyting | 12M 2023/24 | | | 12M 2022/23 | |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | | Breyting % | 01.03-29.02 | 01.03-28.02 | Breyting | Breyting % |
| Handbært fé frá rekstri | 1.660 | 2.575 | (915) | -35,5% | 8.690 | 9.138 | (448) | -4,9% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (818) | (1.210) | 392 | -32,4% | (4.825) | (3.962) | (863) | 21,8% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (898) | 186 | (1.084) | -582,8% | (4.907) | (3.090) | (1.817) | 58,8% |
| Hækkun á handbæru fé | (56) | 1.551 | (1.607) | -103,6% | (1.042) | 2.086 | (3.128) | -150,0% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 1.883 | 1.318 | 565 | 42,9% | 2.869 | 783 | 2.086 | 266,4% |
| Handbært fé í lok tímabils | 1.827 | 2.869 | (1.042) | -36,3% | 1.827 | 2.869 | (1.042) | -36,3% |

Sjóostreymi rekstrarársins 2023/24

  • Handbært fé frá rekstri á árinu nam 8.690 m.kr., samanborið við 9.138 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreyfingar ársins námu 4.825 m.kr., samanborið við 3.962 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í fasteignum nam 1.549 m.kr. sem er að stærstum hluta í fasteign við Norðlingabraut í Reykjavík. Auk þess var fjárfest í opnun þriggja nýrra verslana Bónus, þ.e. við Norðlingabraut, í Holtagörðum og í Miðhrauni í Garðabæ. Þá var opnuð ný þjónustustöð Olís að Fitjum í Reykjanesbæ auk þess sem fjárfest var í stafrænni þróun, upplýsingatækni og mikilvægum sjálfbærnitengdum verkefnum á borð við kolsýruvæðingu kælikerfa.
  • Fjármögnunarhreyfingar ársins námu 4.907 m.kr., samanborið við 3.090 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa námu 2.333 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2023 nam 2.475 m.kr. Nýr skuldabréfaflokkur var gefinn út í september að fjárhæð 2.000 m.kr.
  • Handbært fé í lok rekstrarárs nam 1.827 m.kr., samanborið við 2.869 m.kr. í lok fyrra árs.

Staðan og framtiðarhorfur

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú er liðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði á bilinu 12.900-13.400 m.kr. og er rekstrarhagnaður fyrir afskriftir því innan útgefinnar afkomuspár. Afkomuspáin var hækkuð í desember 2023 og var það í annað skipti frá því að upphaffleg afkomuspá var gefin út samhliða birtingu ársuppgjørs 2022/23. Rekstur ársins gekk heilt yfir vel og má rekja afkomu umfram upphafflegar spár til aukinna umsvifa hjá öllum rekstrareiningum Haga auk sterkari afkomu hjá Olís en upphafflega var gert ráð fyrir. Góð aðsókn var í allar verslanir samstæðunnar á árinu, og þá einkum í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem bæði seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði nokkuð. Þá var einnig sterk eftirspurn í eldsneytishluta samstæðunnar.

Í september og október 2023 var tilkynnt um breytingar á framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. janúar 2024. Þá tók Björgvin Víkingsson við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni og Ingunn Svala Leifsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Olís af Frosta Ólafssyni. Í mars 2024 tók svo Magnús Magnússon við stöðu aðstoðarforstjóra Haga en um nýtt hlutverk er að ræða innan samstæðunnar. Magnús hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra stefnumótunar og rekstrar frá því snemma árs 2021 og mun sinna því hlutverki áfram, ásamt hlutverki aðstoðarforstjóra.

Þann 1. desember 2023 var tilkynnt að Olís, dótturfélag Haga, og Festi hefðu sameiginlega ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til ráðgjafar um stefnu og framtiðarmöguleika hvað varðar eignarhluti félaganna í Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. (EAK) og EBK ehf. Í framhaldi af þeirri vinnu hafa Olís og Festi komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutunum. Olís á 40% eignarhlut í Olíudreifingu, 33,33% hlut í EAK og 25% hlut í EBK og er bókfært verð þeirra 1.295 m.kr. í árslok.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 sem nú var að hefjast gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 13.800-14.300 m.kr. Forsendur afkomuspár gerðu ráð fyrir 6,7%


Fréttatilkynning 23. april 2024

hagar

hækkun verðlags og að áhrif kjarasamninga næmu um 5% hækkun launa milli ára. Gert var ráð fyrir styrkingu stærstu innkaupamynta þegar líður á árið. Fjárfestingaráætlun ársins 2024/25 nemur 4.500-4.800 m.kr.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og félagið vel í stakk búið til að takast á við þær aðstæður sem upp geta komið í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok rekstrarárs nam 84,1 ma. kr. og lokaverð þann 29. febrúar 2024 var 76,0 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok rekstrarárs nam 1.106 m.kr. og átti félagið eigin hluti að nafnverði 22,1 m.kr. Útistandandi hlutir voru því 1.084 m.kr.
  • Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.133 m.kr. að nafnverði í 1.106 m.kr. að nafnverði, sem er skráð hlutafé í lok rekstrarárs.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,24 krónum á hlut eða 2.475 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023.
  • Heildar endurkaup eigin bréfa á rekstrarárinu námu 35,3 millj. hluta fyrir samtals 2.333 m.kr. Endurkaupin voru framkvæmd með öfugu tilboðsfyrirkomulagi í þremur hlutum. Hluti eigin bréfa sem keypt voru í byrjun rekstrarárs voru ógild til lækkunar á eigin hlutum eftir aðalfund 2023, sbr. umfjöllun að ofan.
  • Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 30. maí nk. að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins, samtals 2.522 m.kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár.
  • Hluthafar voru 1.055 í byrjun rekstrarárs og 968 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 78,8% eignarhlut í félaginu í lok rekstrarárs.

Kynningarfundur miðvikudaginn 24. apríl 2024

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólvsegi 106 í Reykjavík, miðvikudaginn 24. apríl kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2024/25

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
1F – 1. mars – 31. maí Föstudagur 28. júní 2024
2F – 1. mars – 31. ágúst Fimmtudagur 17. október 2024
3F – 1. mars – 30. nóvember Fimmtudagur 9. janúar 2025
4F – 1. mars til 28. febrúar Þriðjudagur 15. apríl 2025
Aðalfundur 2025 Miðvikudagur 21. maí 2025

Fréttatilkynning

  1. april 2024

hagar

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 26. apríl á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on April 26th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.

8