Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Earnings Release 2022

Apr 27, 2023

2196_rns_2023-04-27_5b98a4b8-f2cd-4f9f-beca-458679a204e1.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

STERKUR REKSTUR Í KREFJANDI UMHVERFI

Ársuppgjör Haga hf. og uppgjör 4. ársfjórðungs 2022/23

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2022/23 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. apríl 2023. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2022 til 28. febrúar 2023. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 4F nam 40.160 m.kr. (13,8% vöxtur frá 4F 2021/22). Vörusala 12M nam 161.992 m.kr. (19,3% vöxtur frá 12M 2021/22). [4F 2021/22: 35.288 m.kr., 12M 2021/22: 135.758 m.kr.]
  • Framlegð 4F nam 7.739 m.kr. (19,3%) og 30.987 m.kr. (19,1%) fyrir 12M. [4F 2021/22: 7.292 m.kr. (20,7%), 12M 2021/22: 28.441 m.kr. (20,9%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 2.406 m.kr. eða 6,0% af veltu. EBITDA 12M nam 12.041 m.kr. eða 7,4% af veltu. [4F 2021/22: 2.442 m.kr. (6,9%), 12M 2021/22: 10.518 m.kr. (7,7%)]
  • Hagnaður 4F nam 735 m.kr. eða 1,8% af veltu. Hagnaður 12M nam 4.949 m.kr. eða 3,1% af veltu. [4F 2021/22: 724 m.kr. (2,1%), 12M 2021/22: 4.001 m.kr. (2,9%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 4F var 0,66 kr. og 4,40 kr. fyrir 12M. [4F 2021/22: 0,63 kr., 12M 2021/22: 3,47 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 4F var 0,65 kr. og 4,32 kr. fyrir 12M. [4F 2021/22: 0,61 kr., 12M 2021/22: 3,43 kr.]
  • Eigið fé nam 27.931 m.kr. í lok rekstrarárs og eiginfjárhlutfall 38,8%. [Árslok 2021/22: 26.726 m.kr. og 41,0%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerði ráð fyrir að EBITDA yrði 10.200-10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa og endurgreiðslu flutningsjöfnunarsjóðs. Áhrif einskiptisliða á EBITDA félagsins námu um 1.417 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Töluverð veltuaukning (13,8%) á 4F miðað við sama tímabil í fyrra. Jólaverslun gekk vel, þrátt fyrir mikla aukningu í utanlandsferðum landans.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum á 4F fjölgar milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgar mikið í samanburði við fyrra ár. Seldum eldsneytislítrum á 4F fækkar töluvert vegna samdráttar í sölu til stórnotenda. Seldum lítrum í smásölu fjölgar hins vegar á milli ára.
  • Framlegð 4F í krónum eykst um 6,1% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 1,4%-stig. Lækkað framlegðarhlutfall til komið vegna hærra heimsmarkaðsverðs á olíu og lægra framlegðarhlutfalls í dagvörusölu.
  • Verð aðfanga hækkaði töluvert á fjórðungnum, líkt og þróunin hefur verið undanfarin misseri. Sérstök áhersla á að sporna við hækkandi vöruverði til viðskiptavina, m.a. með aukinni hagkvæmni í rekstri og innkaupum. Framlegðarhlutfall í dagvöru hefur lækkað og eru lágvöruverðsverslanir Bónus fremstar í baráttu gegin verðbólgu í matvöru á Íslandi.
  • Í janúar 2023 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Dista ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Dista. Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og sambykki Samkeppnis-eftirlitsins.
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 11.000-11.500 m.kr. sem er að teknu tilliti til einskiptisliða 2022/23 nokkuð umfram afkomu síðastliðins rekstrarárs.
  • Fjárfestingaráætlun 2023/24 nemur 5.000-5.500 m.kr. en stærsta einstaka fjárfestingin er kaup á fasteign við Norðlingabraut 2 í Reykjavík sem mun hýsa nýja Bónusverslun, ásamt annarri starfsemi.

Fréttatilkynning
27. april 2023
hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2022/23 gekk vel, sérstaklega þegar horft er til þess að rekstrarumhverfi í smásölu hefur sjaldan verið meira krefjandi. Fjórðungurinn, eins og reyndar árið í heild, einkenndist af miklum hækkunum á aðfanga- og võruverði, sem aftur má rekja til óróa á heimsmarkaði með hrávöru og eldsneyti vegna stríðs í Úkrainu og eftirstöðva Covid faraldurs. Þessar hækkanir skýra að stórum hluta áframhaldandi tekjuaukningu, en võrusala nam 40,2 ma. kr. og jókst um 14% miðað við sama tímabil á fyrra ári. Framlegð í krónum talið jókst um 6% en framlegðarhlutfall lækkar líkt og síðustu fjórðunga, nú um 1,4%-stig. Afkoma fjórðungsins var svipuð og á sama tímabili í fyrra, en EBITDA nam 2.406 m.kr. og hagnaður 735 m.kr.

Þessi niðurstaða ársfjórðungsins rekur smiðshögg á ágætt rekstrarár Haga þar sem tekjur jukust um ríflega 19% og námu 162 ma. kr. EBITDA ársins, að meðtöldum einskiptisliðum að upphæð 1.417 m.kr., nam rúmum 12 ma. kr. eða 7,4% af veltu og hagnaður 4.949 m.kr. eða 3,1% af veltu. Heilt yfir erum við sátt með rekstur félagsins á síðasta rekstrarári og ekki síður þeim áföngum sem náðst hafa og er ætlað að styrkja rekstur samstæðu Haga til framtíðar.

Þegar horft er til þátta í starfsemi félagsins, þá er áfram tóluverður vöxtur í sölu á dagvöru, ríflega 11% á fjórðungnum. Þessi tekjuaukning skýrist annars vegar af miklum verðhækkunum frá framleiðendum og heildsölum og hins vegar af aukningu í seldu magni og fleiri heimsóknum viðskiptavina, sérstaklega í Bónus. Í starfsemi Bónus er ljóst að bæði nýjar og gamlar áherslur mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum, sem fagna lengri opnunartíma verslana, einfaldleika, góðu aðgengi og ekki síst grunngildi Bónus þar sem ávallt er leitast við að bjóða upp á hagkvæmustu matvörukörfu landsins. Við það loforð hefur verið staðið í meira en 30 ár og á Bónus stóran þátt í að verðbölga í matvöru á Íslandi er ekki hærri en raun ber vitni, en hún var á síðasta fjórðungi ein sú lægsta í Evrópu og sú lægsta á Norðurlöndunum. Hagkaup átti ágætan fjórðung, enda sérstaklega vinsæl jólaverslun og eru viðskiptavinir að taka vel í breytingar á búðum og nýjungar í võruframboði. Tekjur jukust um ríflega 5% en í samanburði við fyrri ár munar um að tóluvert fleiri landsmenn leituðu utan yfir hátiðirnar.

Allt síðasta rekstrarár, ekki síst á fjórða árshluta, hefur dagvöruverslun markast af veikingu gengis krónu og fordæmalausum verðhækkunum frá birgjum. Þannig hefur framlegð verið undir þrýstingi og þó hún aukist í krónum talið vegna hærri veltu, þá hefur framlegðarhlutfall farið lækkandi. Með öðrum orðum, þá hefur kostnaðarverðshækkunum ekki verið fleytt af fullum þunga út í võruverð, sem telja má mikilvægt framlag verslana Haga í baráttu við verðbölgu.

Tekjur Olís jukust áfram á síðasta fjórðungi ársins, um 13%, og námu 11,9 ma. kr., en þar sem selt magn dregst saman má aðallega rekja tekjuaukningu til hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu sem einkennst hefur rekstur félagsins allt frá byrjun rekstrarárs 2022/23. Eldsneytissala á smásölumarkaði jókst í lítrum talið og þurrvörusala sömuleiðis, en talsvert dró úr umsvífum stórnotenda, enda voru þau óvenju mikil á sama tíma í fyrra. Rekstrarafkoma á fjórðungnum var heldur betri en árið á undan og í líni við sterkt ár í rekstri Olís þar sem afkoma var góð. Þessa ánægjulegu niðurstöðu má einkum rekja til fjögurra þátta. Í fyrsta lagi sjáum við nú ápreifanlega afrakstur breyttra áherslna í rekstri og árangursríkrar hagræðingarvinnu síðustu missera. Þar ber hæst hagræðing og vel heppnuð uppfærsla á þjónustustöðvum Olís og einföldun á sölu- og aðfangaskipulagi gagnvart stórnotendum. Hvoru tveggja hafði það að markmiði að búa félagið undir fyrirsjáanlegan samdrátt í olíusölu vegna áhrifa orkuskipta. Í öðru lagi var eftirspurn á líðnu ári sterk, með miklum umsvífum stórnotenda og aukningu í smásölu samhliða fjölgun ferðamanna. Í þriðja lagi hefur virk birgðastýring á stórnotendahlið eldsneytissölu samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði skilað sterkari framlegð á tímabilinu. Í fjórða lagi höfðu einskiptisliðir tóluverð jákvæð áhrif á afkomu á þriðja fjórðungi, m.a. þegar til féll söuhagnaður eigna tengt kaupum Haga á hlut í fasteignapróunarfélaginu Klasa.

Á síðasta rekstrarári höfum við séð ávinning af nýjum áherslum hjá Högum raungerast í starfsemi félagsins og hafa jákvæð áhrif á rekstur, með betri þjónustu við viðskiptavini, nýjum tekjustraumum og áhugaverðum tækifærum til framtíðar. Í þessu sambandi má nefna að stafraen vegferð hjá Högum hefur bæði tryggt betur grunnrekstur upplýsingakerfa og eftt um leið þjónustu við viðskiptavini, m.a. í formi netverslana fyrir Hagkaup og Stórkaup sem þjóna viðskiptavinum hvenær sem er og hvar sem er á landinu. Eldum rétt varð svo hluti af samstæðu Haga í nóvember 2022 en kaupin eru líður í viðleitni Haga til að bregðast við breyttum þörfum


Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

viðskiptavina, með aukinni áherslu á hollar, einfaldar og tímasparandi lausnir þar sem matarsóun er í lágmarki. Eldum rétt hakar í alla þessa reiti og við finnum fyrir síaukinni eftirspurn eftir þjónustu félagsins, fyrst og fremst með áskrift í netverslun og núna nýlega í sölu stakra rétta í Hagkaup. Í dag telst okkur til að Eldum rétt sé ein stærsta netverslun landsins með matvöru.

Á árinu var þróunar- og fasteignaverkefnum Haga komið í farsælan farveg hjá Klasa sem Hagar eiga nú í þriðjungs hlut. Markmiðið er að flýta fyrir verðmætasköpun á grunni þróunareigna samstæðunnar, skapa ný tækifæri sem tengjast öðrum eignum Klasa og gera stjórnendum Haga kleift að einbeita sér fyrst og fremst að kjarnarekstri í dagvöru og eldsneyti. Framundan eru spennandi verkefni við uppbyggingu eigna Klasa þar sem vænt byggingarmagn verður rífllega 300.000 m² og þar af allt að 1.500 íbúðir. Þá hefur töluverð vinna verið lögð í að styrkja innviði Aðfanga og Banana, með umbótum í gæðaferlum, vöruþróun, upplýsingatækni og stækkun vöruhúsa. Þessar einingar Haga myndá mikilvægt bakbein aðfanga- og dreifinets Haga sem hagkvæmur rekstur verslana okkar byggir á. Með stofnun Stórkaups hafa þessir sterku aðfangainnviðir Haga verið nýttir enn betur, nú til að þjóna hótelt- og veitingamarkaði og öðrum stórnotendum fyrir rekstrar- og matvöru. Að lokum má nefna að góður árangur hefur náðst í að styrkja jákvætt samfélagsspor Haga, en þar hefur áhersla verið á að skerpa á frammistöðu í umhverfis og sjálfbærnimálum, m.a. með aukinni flokkun og nýtingu umhverfisvænna kælimiðla í verslunum, stuðningi við frumkvöðlastarf í matvælaframleiðslu og önnur góð málefni.

Á síðasta rekstrarári má segja að hafi skapast aðstæður sem eru bæði óvenjulegar og ögrandi fyrir allan verslunarrekstur. Veiking krónu og mjög miklar hækkanir á verði innlendra og erlendra aðfanga ýttu upp vöruverði á sama tíma og rekstrarkostnaður jókst mikið, bæði vegna launahækkana og almennra kostnaðarhækkana. Þessi blanda er hvorki góð fyrir neytendur né fyrirtæki í verslun því óhjákvæmilegt er að verðlag til neytenda hækki á sama tíma og framlegðarhlutfall í rekstri er undir þrýstingi. Í þessu samhengi getum við ekki annað en verið sátt við rekstur Haga á síðastliðnu ári. Staða félagsins er sterk, bæði fjárhagslega og á markaði. Við búum að reynslumiklu starfsfólki sem stöðugt leitar leiða til að hagræða í innkaupum og rekstri svo draga megi sem mest úr þörf á verðhækkunum til viðskiptavina og þannig vinna gegin hækkandi verðbólgu. Þetta var mikilvægasta verkefni okkar á síðasta ári og verður áfram á því næsta.

Afkomuspá stjórnenda gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar á rekstrarárinu 2023/24 verði á bilinu 11.000–11.500 m.kr.


Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

Rekstrarreikningar samstæðunnar

| Fjöldi, kr. | 4F 2022/23
01.12.-28.02 | 4F 2021/22
01.12.-28.02 | 12M 2022/23
01.03.-28.02 | | 12M 2021/22
01.03.-28.02 | | Breyting | Breyting % |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | Breyting % | Breyting % | 01.03.-28.02 | 01.03.-28.02 | | |
| Vörusala | 40.160 | 35.288 | 4.872 | 13,8% | 161.992 | 135.758 | 26.234 | 18,3% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (32.421) | (27.996) | (4.425) | 15,8% | (131.005) | (107.317) | (23.688) | 22,1% |
| Framlegð | 7.739 | 7.292 | 447 | 6,1% | 30.987 | 28.441 | 2.546 | 9,0% |
| Framlegð % | 19,3% | 20,7% | - | -1,4% | 19,1% | 20,9% | - | -1,8% |
| Aðrar rekstrartekjur | 179 | 171 | 8 | 4,7% | 1.031 | 525 | 506 | 96,4% |
| Hagnaður af sölu eigna | -- | -- | -- | - | 966 | 349 | 617 | 176,8% |
| Laun og launatengd gjöld | (3.886) | (3.428) | (458) | 13,4% | (14.345) | (12.992) | (1.353) | 10,4% |
| Annar rekstarkostnaður | (1.626) | (1.593) | (33) | 2,1% | (6.598) | (5.805) | (793) | 13,7% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.406 | 2.442 | (36) | -1,5% | 12.041 | 10.518 | 1.523 | 14,5% |
| EBITDA % | 6,0% | 6,9% | - | -0,9% | 7,4% | 7,7% | - | -0,3% |
| Afskriftir | (1.248) | (1.234) | (14) | 1,1% | (4.453) | (4.241) | (212) | 5,0% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.158 | 1.208 | (50) | -4,1% | 7.588 | 6.277 | 1.311 | 20,9% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (503) | (399) | (104) | 26,1% | (1.887) | (1.503) | (384) | 25,5% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 220 | 65 | 155 | 238,5% | 392 | 209 | 183 | 87,6% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 875 | 874 | 1 | 0,1% | 6.093 | 4.983 | 1.110 | 22,3% |
| Tekjuskattur | (140) | (150) | 10 | -6,7% | (1.144) | (982) | (162) | 16,5% |
| Heildarhagnaður | 735 | 724 | 11 | 1,5% | 4.949 | 4.001 | 948 | 23,7% |
| Skipting hagnaðar | | | | | | | | |
| Hlutdeild móðurfélags | 735 | 724 | 11 | 1,5% | 4.949 | 3.991 | 958 | 24,0% |
| Hlutdeild minnhluta | -- | -- | -- | -- | -- | 10 | (10) | - |
| | 735 | 724 | 11 | 1,5% | 4.949 | 4.001 | 948 | 23,7% |

Lykiltölur á 4. ársfjörðungi

Vörusala á 4F jókst um 13,8% milli ára. Fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum jókst á fjörðungnum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði mikið. Eldsneytislítrum hjá Olís á 4F fækkaði töluvert milli ára vegna samdráttar í sölu til stórnotenda. Aukning var í seldum lítrum í smásölu.

Framlegð á 4F í krónum talið jókst um 6,1% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 20,7% í 19,3%. Framlegðarhlutfall lækkaði bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar.

Launakostnaður hækkaði töluvert á fjörðungnum í samanburði við fyrra ár eða um 13,4%. Launahlutfallið er 9,7% og stendur í stað frá fyrra ári.

Annar rekstarkostnaður hækkaði um 2,1% milli ára og er kostnaðarhlutfall fjörðungsins 4,0% í samanburði við 4,5% á fyrra ári.

EBITDA 4F var 2.406 m.kr. í samanburði við 2.442 m.kr. á fyrra ári eða 1,5% lækku. EBITDA-hlutfall var 6,0% en var 6,9% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa lækkaði um 4,7% milli ára en EBITDA Olís hækkaði um 28,9%.

Heildarhagnaður 4F nam 735 m.kr. og hækkar um 1,5% á milli ára.

Rekstur ársins 2022/23

Vörusala ársins nam 161.992 m.kr., samanborið við 135.758 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 19,3%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 10,6% og söluaukning hjá Olís nam 37,0%.

Fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum jókst nokkuð á árinu og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis. Lítill samdráttur var í seldum eldsneytislítrum hjá Olís en seldum lítrum til stórnotenda fækkaði á meðan seldum lítrum í smásölu fjölgaði.

Framlegð samstæðunnar var 30.987 m.kr., samanborið við 28.441 m.kr. árið áður, eða aukning um 9,0%. Framlegðarhlutfall lækkaði hins vegar og var 19,1% í samanburði við 20,9% á fyrra ári. Framlegðarhlutfall dagvöru lækkar lítillega en að mestu leyti má rekja lækkunina til eldsneytishluta samstæðunnar.

Einskiptisliðir á árinu námu rúmum 1,4 ma. kr. sem tilkomnir eru vegna viðskipta Haga með Klasa (966 m.kr.) og endurgreiðslu flutningsjöfnunargjalds (451 m.kr.). Til samanburðar námu einskiptisliðir fyrra árs 349 m.kr.

Laun hækkuðu um 10,4% milli ára, bæði vegna meiri umsvifa hjá Bónus en einnig vegna áhrifa kjarasamninga. Ársverkum fjölgaði um 52 hjá samstæðunni á árinu. Annar rekstarkostnaður hækkaði um 13,7% á árinu, einkum vegna áhrifa verðbólgu, hærra eldsneytisverðs o.fl.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 12.041 m.kr., samanborið við 10.518 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,4%, samanborið við 7,7% á fyrra ári. EBITDA án einskiptisliða nam 10.624 m.kr. og 10.169 m.kr. á fyrra ári eða 4,5% hækku milli ára.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 4.949 m.kr., sem jafngildir 3,1% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 4.001 m.kr. eða 2,9% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

i millj. kr. 28.02.2023 28.02.2022 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 50.502 45.064 5.438 12,1%
Veltufjármunir 21.505 17.740 3.765 21,2%
Eignir til sólu -- 2.388 (2.388) -
Eignir samtals 72.007 65.192 6.815 10,5%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.119 1.139 (20) -1,8%
Annað eigið fé 26.812 25.587 1.225 4,8%
Eigið fé samtals 27.931 26.726 1.205 4,5%
Langtímaskuldir 21.101 20.950 151 0,7%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 3.325 451 2.874 637,3%
Aðrar skammtímaskuldir 19.650 17.065 2.585 15,1%
Skuldir samtals 44.076 38.466 5.610 14,6%
Eigið fé og skuldir samtals 72.007 65.192 6.815 10,5%

Lykiltölur efnahags 28.02.2023

  • Heildareignir samstæðunnar í lok rekstrarárs námu 72.007 m.kr. og hækkuðu um 6.815 m.kr. frá árslokum 2021/22 eða um 10,5%.
  • Fastafjármunir voru 50.502 m.kr. og hækkuðu um 5.438 m.kr. frá árslokum 2021/22. Þar telur að mestu eignarhlutur Haga í Klasa sem bókfærður var í lok annars ársfjörðungs og hækkun óefnislegra eigna vegna kaupa Haga á Eldum rétt á þriðja ársfjörðungi.
  • Veltufjármunir voru 21.505 m.kr. og hækkuðu um 1.377 m.kr. frá árslokum 2021/22, að meðtöldum eignum til sólu á fyrra ári.
  • Birgðir í lok febrúar voru 12.717 m.kr. og veltuhraði birgða 11,2. Birgðir hækkuðu um 2.010 m.kr. frá lokum árs 2021/22 en hækkun birgða má að stærstum hluta rekja til hærri eldsneytisbirgða, sem orsakast af meira magni í lítrum talið en aðallega vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði milli ára. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,0.
  • Víðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur lækka um 331 m.kr. á árinu. Innheimtutími víðskiptakrafna var 11,1 dagur samanborið við 11,7 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall var 0,94 og lausafjárhlutfall 0,38 í lok rekstrarárs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá víðskiptabanka er tryggður.
  • Eigið fé í lok rekstrarárs nam 27.931 m.kr. og eiginfjárhlutfall 38,8%. Arðsemi eigin fjár var 18,5%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 41,0% og arðsemi eigin fjár 15,9%. Félagið átti 13,9 millj. eigin hluti í lok rekstrarárs.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok rekstrarárs voru 44.076 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 15.154 m.kr. og leiguskuldir 9.068 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok rekstrarárs voru 21.353 m.kr. eða 1,8 x EBITDA ársins. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,0 x EBITDA.
  • Meðal vaxtaberandi skammtímaskulda eru vixilskuldir að fjárhæð 1.080 m.kr. auk þess sem lánalína var ádregin um 1.800 m.kr. í árslok. Stjórn Haga samþykkti þann 23. nóvember 2022 útgáfurama um útgáfu skuldabréfa og vixla að fjárhæð 10.000 millj. kr. Þann 19. janúar 2023 var efnt til vixlaútboðs á 5 mánaða vixlaflokki og var tekið tilboðum að fjárhæð 1.080 m.kr. Vixlaflokkurinn var tekinn til víðskipta á Nasdaq Iceland þann 27. janúar sl.

Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

Sjóðstreymisyflit samstæðunnar

| I willj. kr. | 4F 2022/23
01.12-28.02 | 4F 2021/22
01.12-28.02 | Brayting | Brayting % | 12M 2022/23
01.03-28.02 | 12M 2021/22
01.03-28.02 | Brayting | Brayting % |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | | | | | | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.575 | 376 | 2.199 | 584,8% | 9.138 | 7.411 | 1.727 | 23,3% |
| Fjárfestingarheyfingar | (1.210) | (643) | (567) | 88,2% | (3.962) | (1.864) | (2.098) | 112,6% |
| Fjármögnunarheyfingar | 186 | (1.006) | 1.192 | -118,5% | (3.090) | (5.152) | 2.062 | -40,0% |
| Hækkun á handbæru fé | 1.551 | (1.273) | 2.824 | -221,8% | 2.086 | 395 | 1.691 | 428,1% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 1.318 | 2.056 | (738) | -35,9% | 783 | 388 | 395 | 101,8% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.869 | 783 | 2.086 | 266,4% | 2.869 | 783 | 2.086 | 266,4% |

Sjóðstreymi rekstrarársins 2022/23

  • Handbært fé frá rekstri á árinu nam 9.138 m.kr., samanborið við 7.411 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarheyfingar ársins voru 3.962 m.kr., samanborið við 1.864 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 2.301 m.kr. á árinu, sem einkum er vegna opnunar nýrrar verslunar Bónus á Norðurtorgi á Akureyri og endurnýjun verslana Bónus og Hagkaups ásamt endurnýjun á þjónustustöðvum Olís. Fjárfesting í óefnislegum eignum nam 709 m.kr. og sjóðstreymisáhrif af fjárfestingu í dótturfélagi nam 1.275 m.kr.
  • Fjármögnunarheyfingar ársins voru 3.090 m.kr., samanborið við 5.152 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa á rekstrarárinu námu 1.500 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2022 nam 2.265 m.kr. Til samanburðar námu endurkaup fyrra árs 1.000 m.kr. og arðgreiðsla 2021 nam 1.466 m.kr.
  • Handbært fé í lok rekstrarárs nam 2.869 m.kr. til samanburðar við 783 m.kr. í lok fyrra árs.

Staðan og framtíðarhorfur

Árið sem nú var að líða einkenndist af miklum hækkunum á hrávörumörkuðum, þá einkum vegna stríðsátaka í Úkrainu. Umrót á mörkuðum síðastliðin þrjú ár, fyrst vegna heimsfaraldurs og nú vegna stríðsátaka, hefur valdið hnökrum í framleiðslu matvöru og í aðfangakveðjunni allri. Hefur þetta leitt til mikilla hækkana á verði aðfanga. Í róstursömu og krefjandi umhverfi hækkandi vaxtakostnaðar, mikilla verðhækkana og verðbölgu hefur velta aukist í krónum talið en á sama tíma hefur framlegðarhlutfall lækkæð nokkuð, einkum í eldsneytishluta samstæðunnar. Hagar hafa lagt mikla áherslu á að sporna við hækkandi vöruverði til neytenda, sem endurspeglast í lækkkuðu framlegðarhlutfalli félagsins, og þannig lagt sitt af mörkum til að tryggja viðskiptavinum sínum vörur og þjónustu á sem hagkvæmasta verði. Um leið hafa Hagar lagt lóð á vogarskálar til að halda aftur af verðbölgu.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú er liðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði á bilinu 10.200-10.700 m.kr., ef frá eru talin áhrif einskiptisliða sem tengjast sölu á eignum til Klasa og endurgreiðsla flutningsjöfnunargjalds. Áhrif einskiptisliða á EBITDA samstæðunnar voru á öðrum ársfjörðungi um 966 m.kr. vegna sölu á eignum til Klasa og á þriðja ársfjörðungi 451 m.kr. vegna endurgreiðslu flutningsjöfnunargjalds. Rekstrarhagnaður ársins fyrir afskriftir (EBITDA) án áhrifa skilgreindra einskiptisliða er 10.624 m.kr. og er innan útgefinna afkomuspár.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 sem nú var að hefjast gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 11.000-11.500 m.kr., sem er að teknu tilliti til einskiptisliða 2022/23 nokkuð umfram afkomu síðastliðins rekstrarárs.

Fjárfestingarætun ársins 2023/24 nemur 5.000-5.500 m.kr. en stærsti einstaki liðurinn er fjárfesting í fasteign við Norðlingabraut 2 í Reykjavík, sem upphaflega var á áætun ársins 2022/23. Þá er á döfinni opnun þriggja nýrra Bónusverslana, stór innleiðingarverkefni í upplýsingatækni og stafræni þróun ásamt endurnýjun þjónustustöðva og matvöruverslana, m.a. í frekari sjálfbærnitengdum verkefnum líkt og kolsýruvæðingu kæli- og frystibúnaðar.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búð til að takast á við krefjandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að


Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlysingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.

Í janúar 2023 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Dista ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Dista. Dista er heildverslun með áfengar og óáfengar drykkjarvörur og var stofnuð árið 2000. Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok rekstrarárs nam 78,2 ma. kr. og lokaverð þann 28. febrúar 2023 var 69,0 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok rekstrarárs nam 1.133 m.kr. Félagið átti 13,9 millj. eigin hluti í lok árs og útistandandi hlutir voru því 1.119 millj.
  • Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 21. júní 2022 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.154 m.kr. að nafnverði í 1.133 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,0 krónum á hlut eða 2.265 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022.
  • Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 1. júní 2022 sett í gang tvær endurkaupaáællanir á tímabilinu í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupunum er lokið en fjárhæð þeirra nam 1.000 m.kr. eða 13,9 millj. hluta. Heildarendurkaup rekstrarársins námu hins vegar 1.500 m.kr.
  • Eftir lok rekstrarárs hafa verið framkvæmd endurkaup með öfugu tilboðsfyrirkomulagi þar sem tekið var tilboðum fyrir 7,3 millj. hluta eða að fjárhæð 500 m.kr.
  • Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 1. júní nk. að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins eða um 2,2 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár.
  • Hluthafar voru 986 í byrjun rekstrarárs og 1.055 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 77,9% eignarhlut í félaginu í lok árs en sömu hluthafar áttu 75,1% í félaginu í lok árs 2021/22.

Kynningarfundur föstudaginn 28. apríl 2023

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólvsegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 28. apríl kl. 8:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess varpað í gegnum netið hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.


Fréttatilkynning

  1. april 2023

hagar

Fjárhagsdagatal 2023/24

Fjárhagsupplýsingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
1F – 1. mars – 31. maí Miðvikudagur 28. júní 2023
2F – 1. mars – 31. ágúst Miðvikudagur 18. október 2023
3F – 1. mars – 30. nóvember Fimmtudagur 11. janúar 2024
4F – 1. mars til 29. febrúar Þriðjudagur 23. apríl 2024
Aðalfundur 2024 Fimmtudagur 30. mái 2024

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 1. maí á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on May 1st at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.