Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Earnings Release 2023

Dec 22, 2023

2196_rns_2023-12-22_6ed53179-ba8d-4ec5-9d4b-30dbeb6fcf76.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2023/24

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2023/24

Uppgjör þriðja ársfjórðungs Haga hf., þ.e. tímabilið 1. september til 30. nóvember 2023, verður birt þann 11. janúar nk. Samkvæmt drögum að uppgjörinu verður EBITDA afkoma félagsins umfram áætlanir en gert er ráð fyrir að EBITDA afkoma á þriðja ársfjórðungi verði á bilinu 3.200-3.300 millj. kr. Afkomu umfram áætlanir á þriðja ársfjórðungi má annars vegar rekja til aukinnar aðsóknar í verslanir Haga, og þá einkum í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem bæði seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgar. Hins vegar hefur áfram verið sterk eftirspurn í eldsneytishluta samstæðunnar.

Í ljósi þessa og samkvæmt endurskoðaðri áætlun stjórnenda á afkomu félagsins það sem eftir lifir rekstrarárs þá er uppfærð EBITDA afkomuspá ársins 2023/24 á bilinu 12.900-13.400 millj. kr.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, [email protected]