AI assistant
Hagar — Earnings Release 2021
Apr 28, 2022
2196_rns_2022-04-28_c94c210f-d096-44e2-be9c-14a51537672a.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
Vörusala á 4F jókst um 15% og hagnaður nam 742 m.kr.
Ársuppgjör Haga hf. og uppgjör 4. ársfjórðungs 2021/22
Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2021/22 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. apríl 2022. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 28. febrúar 2022. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 4F nam 35.288 m.kr. (15,2% vöxtur frá 4F 2020/21). Vörusala 12M nam 135.758 m.kr. (13,5% vöxtur frá 12M 2020/21). [4F 2020/21: 30.630 m.kr., 12M 2020/2021: 119.582 m.kr.]
- Framlegð 4F nam 7.292 m.kr. (20,7%) og 28.441 m.kr. (20,9%) fyrir 12M. [4F 2020/21: 7.024 m.kr. (22,9%), 12M 2020/2021: 26.515 m.kr. (22,2%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 2.442 m.kr. eða 6,9% af veltu. EBITDA 12M nam 10.518 m.kr. eða 7,7% af veltu. [4F 2020/21: 2.542 m.kr. (8,3%), 12M 2020/21: 8.805 m.kr. (7,4%)]
- Hagnaður 4F nam 724 m.kr. eða 2,1% af veltu. Hagnaður 12M nam 4.001 m.kr. eða 2,9% af veltu. [4F 2020/21: 846 m.kr. (2,8%), 12M 2020/21: 2.519 m.kr. (2,1%)]
- Grunnhagnaður á hlut 4F var 0,63 kr. og 3,47 kr. fyrir 12M. [4F 2020/21: 0,73 kr., 12M 2020/21: 2,15 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 4F var 0,61 kr. og 3,43 kr. fyrir 12M. [4F 2020/21: 0,73 kr., 12M 2020/21: 2,15 kr.]
- Eigið fé nam 26.726 m.kr. í lok árs og eiginfjárhlutfall 41,0%. [Árslok 2020/21: 25.187 m.kr. og 40,9%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22, sem uppfærð var í nóvember sl., gerði ráð fyrir að EBITDA yrði 10.000-10.500 m.kr. að meðtöldum hagnaði af sölu rekstrareininga.
Helstu fréttir af starfseminni
- Síðasti ársfjórðungur rekstrarársins 2021/22 gekk vel og jókst velta um 15,2% milli ára. Jólaverslun var umfram væntingar. Afkoma fjórðungs var lítillega undir fyrra ári en heldur hærri að teknu tilliti til einskiptisliða.
- Heimsóknum í verslanir fjölgar áfram á milli ára en seldum stykkjum fjölgaði einnig nokkuð á fjórðungnum. Magnaukning í eldsneytislítrum á 4F er rúm 52%.
- Framlegð í krónum talið hækkar milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar nokkuð, einkum vegna aukinnar sölu eldsneytis til stórnotenda og hækkunar á heimsmarkaðsverði.
- Lenging afgreiðslutíma verslana Bónus hefur skilað sér í fjölgun viðskiptavina og veltuaukningu. Víðskiptavinir eru ánægðir með breytinguna.
- Verð á aðföngum hefur hækkað töløvert undanfarin misseri vegna hnökra í framleiðslu og aðfangakeðju, bæði vegna eftirstöðva COVID-19 faraldursins og vegna afleiðinga stríðsátaka í Úkrainu.
- Í mars 2022 undirrituðu Hagar samning um kaup á öllu hlutafé Eldum rétt ehf. Kaupin eru háð samþykki SE.
- Enn er beðið niðurstöðu SE varðandi kaup Haga á 1/3 hlutafjár í Klasa ehf.
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 9.900-10.400 m.kr. sem er svipað eða heldur umfram afkomu síðastliðins rekstrarárs, að teknu tilliti til söluhagnaðar rekstrareininga fyrra árs.
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
Starfsemi Haga á siðasta fjórðungi rekstrarársins 2021/22 gekk vel og einkenndist af áframhaldandi kröftugri tekjuaukningu og góðri afkomu. Vörusala nam 35,3 ma. kr., sem er aukning um riflega 15% frá fyrra rekstrarári. EBITDA nam 2.442 m.kr og hagnaður var 724 m.kr., sem er nokkuð umfram áætlanir stjórnenda.
Niðurstaða fjórðungsins er ánægjulegur lokahnykkur á gott rekstrarár Haga, þar sem tekjur ársins námu 135,8 ma. kr., EBITDA 10,5 ma. kr. og hagnaður 4,0 ma. kr., sem er umtalsverð aukning frá fyrra rekstrarári. Við erum ánægð með rekstur félagsins á fjórðungnum og á árinu í heild, en afkoma allra stærstu rekstrareiningar Haga, þ.e. Bónus, Hagkaup og Olís, batnaði á milli ára.
Pegar horft er til afkomu rekstrareininga samstæðunnar munar mestu um nauðsynlegar breytingar í rekstri og áherslum hjá Olís, en þar jukust tekjur og framlegð mikið á meðan rekstarkostnaður stöð í stað. Árangur á kostnaðarhliðinni er tilkominn vegna fækkunar stöðugilda og lægri launakostnaðar í kjölfar markvissrar aðlögunar á þjónustuframboði og rekstri þjónustustöðva, hagræðingar í útibúaneti og lokunar á óarðbærum einingum. Framlegð vörusölu hjá Olís hélt áfram að aukast í fjórðungnum í takti við aukið magn, en lækkar þó hlutfallslega vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði oliu og mikillar söluaukningar til stórnotenda.
Í hagræðingarvinnu Olís hefur verið lagður grunnur að frekari umbreytingu smásölusviðs, en hún litur dagsins ljós á næstunni, með uppfærslu á vörumerki, nýrri ásýnd þjónustustöðva og breikkun vöruframboðs. Samhliða þessum breytingum hefur á síðustu mánuðum verið unnið að því að einfalda sölu- og aðfangaskipulag gagnvart stórnotendum sem gert er ráð fyrir að skili sér í frekara rekstrarhagræði og aðlagaðri en um leið betri þjónustu við viðskiptavini á landsbyggðinni. Sala á hreinlætis-, rekstrar- og heilbrigðisvörum verður í næsta mánuði færð úr Olís í nýja söleiningu, Stórkaup, sem mun sækja fram á grunni sterkra innkaupa- og vöruhúsainnviða Haga og breiðara vöruframboði fyrir stórnotendur.
Tekjur af dagvörusölu, í Bónus og Hagkaup, jukust um 6% á fjórðungnum, en fleiri heimsóttu verslanir Haga samanborið við sama tímabil á fyrra ári og seldum stykkjum fjölgaði. Hér munar um mikla jólaverslun og hversu vel viðskiptavinir hafi tekið í lengri opnunartíma hjá Bónus frá því í nóvember, komið oftar og verslað meira. Pessi aukna aðsókn vegur upp væntan samdrátt vegna þess að mun fleiri landsmenn lögðu land undir fót og dvöldu erlendis síðustu mánuði heldur en þegar COVID-19 faraldurinn stöð sem hæst. Hluta tekjuaukningar má rekja til hækkunar á vörverði en verð á aðföngum frá framleiðendum og birgjum hélt áfram að hækka á fjórðungnum, einkum vegna hnökra í framleiðslu og aðfangakeðjum sem rekja má til COVID-19. Gera má ráð fyrir að stríðsátök í Úkrainu komi til með að auka enn frekar á þau vandamál sem valdið hafa verðhækkun á matvöru að undanförnu.
Á fjórðungnum voru stigin frekari skref í að laga starfsemi Haga að breyttum stefnumótandi áherslum, auka fókus á skilgreinda kjarnastarfsemi, efla tengingu við viðskiptavini og treysta sérstöðu vörumerkja Haga. Stafræn vegferð Haga og dótturfélaga, sem hófst á haustmánuðum, skilaði nýrri netverslun Hagkaups með snyrtivöru auk þess sem lokið var við smiði netverslunar fyrir nýja rekstrareiningu Stórkaups. Hvoru tveggja myndar grunn fyrir önnur stafræn verkefni sem munu skila auknu hagræði og bættri þjónustu við viðskiptavini á næstu mánuðum. Hagar undirrituðu samning um kaup á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. en kaupin eru liður í því að bregðast við breyttum neysluvenjum í samfélaginu, þar sem aukin áhersla er á hollar en einfaldar lausnir sem spara spor og tíma í amstri dagsins. Vörur og þjónusta Eldum rétt falla vel að þessum áherslum og er ákjósanleg viðbót við starfsemi Haga. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Heilt yfir þá gekk starfsemi Haga vel á síðastliðnu rekstrarári. Skilvirkni rekstrar hefur aukist jafnt og þétt og allar helstu kennitölur hafa styrkst í síðustu uppgjörum. Pessa styrkingu má að hluta rekja til aukinnar innlendrar eftirspurnar en ekki síður er hún merki um að fjölmörg umbótaverkefni frá haustmánuðum 2020 skila nú beinum rekstrarlegum ávinningi.
Á síðasta ári voru stigin mikilvæg stefnumótandi skref sem munu hafa áhrif á rekstur og afkomu Haga til lengri tíma. Þar má nefna aðgerðir til að auka áherslu stjórnenda á kjarnastarfsemi Haga, þ.e. rekstri á dagvöru- og eldsneytismarkaði, eins og sölu á Útilif og Reykjavíkur Apóteki. Hagar keyptu svo hlutafé í Klasa ehf. til að hraða uppbyggingu þróunareigna Haga og gera hagkvæmari. Stafrænar áherslur munu til framtíðar bæta skilvirkni í rekstri og efla þjónustu gagnvart viðskiptavinum, m.a. með aukna framboði og bættu aðgengi að vörum og
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
pjónustu. Vinna við að skerpa á og aðlaga vörumerki dótturfélaga Haga á neytendamarkaði skilar sér yfir lengri tíma í aukinni eftirspurn, og stofnun Stórkaups og aukin pjónusta við rekstraraðila, hótel og veitingageira er mikilvægt skref inn á vaxandi markað sem Hagar munu nú sinna enn betur. Við höfum þessu til viðbótar styrkt jákvætt samfélagsspor okkar, t.a.m. með bættri frammistöðu í umhverfis- og sjálfbærnimálum, stuðningi við frumkvöðlastarf í matvæla framleiðslu og aðstoð við góð málefni.
Síðastliðið rekstrarár var um margt sögulegt hjá Högum. Vörusala í Bónus hefur ekki áður verið meiri, nú umfram 64 ma. kr., Hagkaup skilaði bestu rekstrarniðurstöðu í sögu félagsins og Olís átti gott rekstrarár á sama tíma og félagið gekk í gegnum afgerandi breytingar, bæði í mönnun og skipulagi. Pessi árangur verður til fyrir vinnu öflugs hóp starfsfólks þessara félaga, ásamt kollegum í Banönum, Aðföngum og Zara, sem hefur á undanförnum árum staðið vaktina af einstakri fagmennsku og dugnaði. Síðastliðið ár var þar engin undantekning og má miðað við aðstæður telja það nokkuð þrekvirki að tekist hafi að viðhalda fullu vöruframboði og það gert á eins hagkvæman hátt og raun ber vitni.
Hagar búa að sterkri fjárhagsstöðu sem gerir félaginu kleift að fylgja eftir nýjum áherslum í rekstri og tengdum verkefnum til skemmri og lengri tíma. Framundan eru hins vegar óvenjulegir tímar þar sem búast má við frekari hækkunum á aðföngum vegna farsóttar og stríðsátaka, en um leið eru aðrir þættir sem gætu stuðlað að styrkingu gengis, m.a. væntur aukinn ferðamannastraumur. Heilt yfir eru horfur í rekstri Haga í þessum óvenjulegu kringumstæðum góðar, en meginverkefni okkar í verslun verður að tryggja framboð á nauðsynlegri dagvöru, um leið og lögð verður sérstök áhersla á hagkvæmni í innkaupum og rekstri, m.a. til að vega upp á móti verðhækkunum á matvöru sem nú gætir í heiminum öllum. Markmið okkar er áfram það sama og verður sífellt mikilvægara, að efla hag viðskiptavina okkar með því að gera verslun sem hagkvæmasta, en um leið þægilega og skemmtilega.
Spá stjórnenda um afkomu gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar á næsta rekstrarári verði á bilinu 9.900 – 10.400 m.kr. sem er svipað eða heldur umfram afkomu síðastliðins rekstrarárs ef tekið er tillit til hagnaðar af sölu rekstrareininga á því tímabili.
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| Utgilli kr. | 4F 2021/22 | 4F 2020/21 | 12M 2021/22 | 12M 2020/21 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.13.28.03 | 01.13.28.03 | Brygine | % | 01.03.28.03 | 01.03.28.03 | Brygine | % | |
| Vörusala | 35.288 | 30.630 | 4.658 | 15,2% | 135.758 | 119.582 | 16.176 | 13,5% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (27.996) | (23.606) | (4.390) | 18,6% | (107.317) | (93.067) | (14.250) | 15,3% |
| Framlegð | 7.292 | 7.024 | 268 | 3,8% | 28.441 | 26.515 | 1.926 | 7,3% |
| Framlegð % | 20,7% | 22,9% | - | -2,3% | 20,9% | 22,2% | - | -1,2% |
| Aðrar rekstrartekjur | 171 | 130 | 41 | 31,5% | 874 | 409 | 465 | 113,7% |
| Laun og launatengd gjöld | (3.428) | (3.275) | (153) | 4,7% | (12.992) | (12.812) | (180) | 1,4% |
| Annar rekstrarkostnaður | (1.593) | (1.337) | (256) | 19,1% | (5.805) | (5.307) | (498) | 9,4% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.442 | 2.542 | (100) | -3,9% | 10.518 | 8.805 | 1.713 | 19,5% |
| EBITDA % | 6,9% | 8,3% | - | -1,4% | 7,7% | 7,4% | - | 0,4% |
| Afskriftir | (1.234) | (1.128) | (106) | 9,4% | (4.241) | (4.258) | 17 | -0,4% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.208 | 1.414 | (206) | -14,6% | 6.277 | 4.547 | 1.730 | 38,0% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (399) | (322) | (77) | 23,9% | (1.503) | (1.553) | 50 | -3,2% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 65 | (25) | 90 | -360,0% | 209 | 125 | 84 | 67,2% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 874 | 1.067 | (193) | -18,1% | 4.983 | 3.119 | 1.864 | 59,8% |
| Tekjuskattur | (150) | (221) | 71 | -32,1% | (982) | (600) | (382) | 63,7% |
| Heildarhagnaður | 724 | 846 | (122) | -14,4% | 4.001 | 2.519 | 1.482 | 58,8% |
| Skipting hagnaðar | ||||||||
| Hlutdeild móðurfélags | 724 | 846 | (122) | -14,4% | 3.991 | 2.522 | 1.469 | 58,2% |
| Hlutdeild minnihluta | - | - | - | - | 10 | (3) | 13 | - |
| 724 | 846 | (122) | -14,4% | 4.001 | 2.519 | 1.482 | 58,8% |
Rekstur ársins 2021/22
Vörusala ársins nam 135.758 m.kr., samanborið við 119.582 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 13,5%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 4,9% og söluaukning hjá Olís nam 38,1%.
Framlegð samstæðunnar var 28.441 m.kr., samanborið við 26.515 m.kr. árið áður eða 20,9% framlegðarhlutfall í samanburði við 22,2% árið áður.
Meðal annarra rekstrartekna er hagnaður af sölu Reykjavíkur Apóteks ehf. og sölu eigna Útilífs en hann nam samtals 349 m.kr. á árinu.
Launakostnaður hækkaði um 1,4% milli ára en hagræðingaraðgerðir hjá Olís hafa skilað góðum árangri. Ársverkum hjá samstæðunni hefur fækkað um 38 milli ára, ef frá er talin fækkun vegna seldra rekstrareininga. Þá hefur tímanotkun minnkað um 2,3% milli ára.
Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 9,4% milli ára en kostnaðarhlutfallið er 4,3% í samanburði við 4,4% árið áður. Hærri rekstrarkostnaður skýrist m.a. af stefnumótun, vörumerkjavinnu, vísitölutengdum kostnaði o.fl.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 10.518 m.kr., samanborið við 8.805 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,7%,
samanborið við 7,4% árið áður. EBITDA verslana og vöruhúsa hækkar um 14,4% milli ára og EBITDA Olís hækkar um 49,1%.
Heildarhagnaður tímabilsins nam 4.001 m.kr., sem jafngildir 2,9% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 2.519 m.kr. eða 2,1% af veltu.
Lykiltölur á 4. ársfjörðungi
- Vörusala 4F jókst um 15,2% milli ára. Fjöldi seldra stykkja í matvörüverslunum jókst um 2,5% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 6,9%. Meðalkarfa stóð í stað á fjörðungnum. Magnaukning 4F í eldsneytislítrum hjá Olís var rúm 52% milli ára.
- Framlegð 4F í krónum talið jókst um 3,8% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 22,9% í 20,7%. Megin skýringar á lægra framlegðarhlutfalli eru í eldsneytishluta samstæðunnar, vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs og breyttrar samsetningar viðskiptavina, þ.e. hlutfallslega meiri sölu til stórnotenda.
- Launa- og kostnaðarhlutfall 4F var 14,2% en var 15,1% á fyrra ári.
- EBITDA 4F var 2.442 m.kr. og lækkar um 3,9% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall var 6,9% en var 8,3% á fyrra ári.
- Heildarhagnaður 4F lækkar um 14,4% á milli ára.
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
| Fmillj. kr. | 28.02.2022 | 28.02.2021 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 45.064 | 47.816 | (2.752) | -5,8% |
| Veltufjármunir | 17.740 | 13.832 | 3.908 | 28,3% |
| Eignir til sölu | 2.388 | -- | 2.388 | - |
| Eignir samtals | 65.192 | 61.648 | 3.544 | 5,7% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.139 | 1.154 | (15) | -1,3% |
| Annað eigið fé | 25.587 | 24.035 | 1.552 | 6,5% |
| Samtals | 26.726 | 25.189 | 1.537 | 6,1% |
| Hlutdeild minnihluta | -- | (2) | 2 | -100,0% |
| Eigið fé samtals | 26.726 | 25.187 | 1.539 | 6,1% |
| Langtimaskuldir | 20.950 | 18.592 | 2.358 | 12,7% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 451 | 2.957 | (2.506) | -84,7% |
| Skuldir við lánastofnanir | -- | 601 | (601) | -100,0% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 17.065 | 14.311 | 2.754 | 19,2% |
| Skuldir samtals | 38.466 | 36.461 | 2.005 | 5,5% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 65.192 | 61.648 | 3.544 | 5,7% |
Lykiltölur efnahags 28.02.2022
- Heildareignir samstæðunnar í lok árs námu 65.192 m.kr. og hækkuðu um 3.544 m.kr. frá árslokum 2020/21.
- Fastafjármunir voru 45.064 m.kr. og lækkuðu um 2.752 m.kr. frá árslokum, sem skýrist einkum af endurflokkun eigna sem afhentar verða Klasa sem greiðsla fyrir hlutafé í félaginu. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 1.651 m.kr. á árinu.
- Veltufjármunir, að meðtöldum eignum til sölu, voru 20.128 m.kr. og hækkuðu um 6.296 m.kr. frá árslokum 2020/21.
- Birgðir í lok árs voru 10.707 m.kr. og veltuhraði birgða 11,0. Birgðir hafa hækkað um 1.916 m.kr. milli ára en hækkun birgða má að mestu leyti rekja til hærri öryggisbirgða í matvöru og hærri eldsneytisbirgða, sem orsakast af töluvert hærra eldsneytisverði og meiri umsvifum. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 10,8.
- Viðskiptakröfur hækka um 1.597 m.kr. milli ára og er innheimtutími viðskiptakrafna nú 11,7 dagar samanborið við 10,3 daga á fyrra ári. Viðskiptakröfur hækka einkum vegna meiri umsvifa stórnotenda hjá Olís.
- Veltufjárhlutfall er 1,15 og lausafjárhlutfall 0,54 í lok árs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 26.726 m.kr. og eiginfjárhlutfall 41,0%. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 15,9%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 40,9% og arðsemi eigin fjár 10,2%. Félagið átti 14,9 millj. eigin hluti í lok rekstrarárs.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok árs voru 38.466 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.171 m.kr. og leiguskuldir 8.884 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 20.272 m.kr. eða 1,9 x 12 mánaða EBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,1 x 12 mánaða EBITDA.
- Överðtryggður skuldabréfaflokkur, HAGA181024, að upphæð 2.500 m.kr. var gefinn út í október 2021 til endurfjármögnunar á skuldabréfaflokki HAGA181021. Skuldabréfaflokkurinn er til 3ja ára en bréfin eru vaxtagreiðslubréf með gjalddaga tvisvar á ári og bera 3,72% fasta vexti. Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 29. desember 2021.
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
Sjóðstreymisyflit samstæðunnar
| Lmilli kr. | 4F 2021/22
01-15-28 03 | 4F 2020/21
01-15-28 03 | Brexting | 12M 2021/22 12M 2020/21 | | | | |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | | % | 01-05-28 03 | 01-03-28 03 | Brexting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 376 | 696 | (320) | -46,0% | 7.411 | 6.627 | 784 | 11,8% |
| Fjárfestingarhreýfingar | (643) | (657) | 14 | -2,1% | (1.864) | (3.591) | 1.727 | -48,1% |
| Fjármögnunarhreýfingar | (1.006) | (1.024) | 18 | -1,8% | (5.152) | (4.880) | (272) | 5,6% |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | (1.273) | (985) | (288) | 29,2% | 395 | (1.844) | 2.239 | -121,4% |
| Handbært fé í byrjun timabils | 2.056 | 1.373 | 683 | 49,7% | 388 | 2.232 | (1.844) | -82,6% |
| Handbært fé í lok timabils | 783 | 388 | 395 | 101,8% | 783 | 388 | 395 | 101,8% |
Sjóðstreymi rekstrarársins 2021/22
- Handbært fé frá rekstri á árinu nam 7.411 m.kr., samanborið við 6.627 m.kr. á fyrra ári en breytingu á milli ára má fyrst og fremst rekja til betri afkomu samstæðunnar.
- Fjárfestingarhreýfingar ársins voru 1.864 m.kr., samanborið við 3.591 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting ársins í fasteignum nam 129 m.kr. samanborið við 1.835 m.kr. á fyrra ári þegar m.a. nýtt kæli- og frystivöruhús Aðfanga var tekið í notkun. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum á árinu nam 1.651 m.kr. sem var að stærstum hluta vegna endurnýjunar Bónus og Hagkaupsverslana. Á fyrra ári nam fjárfesting í áhöldum og innréttingum 2.040 m.kr.
- Fjármögnunarhreýfingar ársins voru 5.152 m.kr., samanborið við 4.880 m.kr. á fyrra ári. Í júní 2021 var greiddur 1,27 kr. arður á hlut til hluthafa, samtals að fjárhæð 1.466 m.kr. Til samanburðar var enginn arður greiddur á rekstrarárinu 2020/21.
Staðan og framtíðarhorfur
Undanfarin tvö rekstrarár hefur COVID-19 heimsfaraldurinn haft tölverð áhrif á Haga og dótturfélög, en starfsemin hefur litast af aðgerðum til að takmarka neikvæðar afleiðingar faraldursins og tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Áhrif faraldursins hafa frekar verið jákvæð á rekstur dagvöruhluta samstæðunnar þar sem velta og afkoma hafa heldur aukist. Áhrif á rekstur í eldsneytishluta samstæðunnar hafa hins vegar frekar verið neikvæð, þá sér í lagi á fyrsta ársfjörðungi síðasta rekstrarárs, en velta og afkoma er nú farin að nálgast það sem vænta má í eðlilegra árferði. Vegna ýmissa hnökra í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðju þá hefur verð á aðföngum í starfsemi Haga hækkað tölverð á undanförnum misserum. Gert er ráð fyrir áframhaldandi verðhækknun, bæði vegna eftirstöðva COVID-19 faraldursins og einnig vegna afleiðinga stríðsátaka í Úkrainu sem hófust í febrúar 2022.
Í ljósi aðstæðna þá gekk rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2021/22 vel. Samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs var hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomu Olís og Haga. Rekstrarniðurstaða annars ársfjörðungs var umfram áætlanir og nokkuð betri en á síðasta ári sem m.a. má rekja til sölu eigna tengt rekstri Útilifs. Rekstur á þriðja ársfjörðungi gekk vel með heildarveltu og afkomu tölverð umfram áætlanir og síðasta ár. Rekstur á fjörða ársfjörðungi gekk einnig vel með veltu nokkuð umfram veltu síðasta árs en afkoman var aðeins lakari.
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú er líðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði 10.000-10.500 millj. kr., að meðtöldum hagnaði af sölu rekstrareininga. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 10.518 millj. kr. og er því lítillega umfram útgefna áætlun en EBITDA að frádregnum fyrnæfndum söluhagnaði nam 10.169 millj. kr.
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 sem nú var að hefjast gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 9.900-10.400 millj. kr., sem er að teknu tilliti til einskiptisliða vegna sölu rekstrareininga svipuð eða heldur umfram afkomu síðastliðins rekstrarárs. Fjárfestingaráætlun ársins 2022/23 nemur 4,0 ma. kr. en stærstu liðir eru vegna fjárfestinga í fasteignum, stafræni þróun og upplýsingatækni ásamt
6
Fréttatilkynning
- april 2022
hagar
endurnýjun verslana og þjónustustöðva. Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búð til að takast á við krefjandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður.
Í mars 2022 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Eldum rétt ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt. Eldum rétt sérhæfir sig í gerð matarpakka sem viðskiptavinir geta pantað á netinu en í hverri viku geta viðskiptavinir valið á milli nýrra uppskrifta. Eldum rétt var stofnað árið 2013 en stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins hafa skapað sterkt vörumerki á skömmum tíma. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem ekki liggur fyrir við undirritun ársreikningsins.
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 83,1 ma. kr. og lokaverð þann 28. febrúar 2022 var 72,0 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.154 m.kr. Félagið átti 14,9 millj. eigin hluti í lok árs.
- Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 5. júli 2021 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.181 m.kr. að nafnverði í 1.154 m.kr. að nafnverði.
- Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 1,27 krónum á hlut eða 1.466 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní 2021.
- Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 3. júní 2021 sett í gang tvær endurkaupaáætlánir á rekstrarárinu, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Þeim er nú báðum lokið en fjárhæð endurkaupanna nam 1.000 m.kr. eða 14,9 millj. hluta. Þá hefur auk þess ein endurkaupaáætlun verið kláruð frá lokum rekstrarárs, að fjárhæð 500 m.kr. og eiga Hagar nú 21,6 millj. eigin hluti.
- Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 1. júní nk. að greiddur verði 2,00 kr. arður á hlut til hluthafa á árinu 2022, samtals um 2.265 m.kr. eða sem nemur 56,8% af heildarhagnaði ársins.
- Hluthafar voru 784 í byrjun rekstrarárs og 986 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 75,1% eignarhlut í félaginu í lok árs en sömu hluthafar áttu 70,45% í félaginu í lok árs 2020/21.
Kynningarfundur föstudaginn 29. apríl 2022
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólvsegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 29. apríl kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Fundinum verður auk þess varpað í gegnum netið hér: https://www.hagar.is/skraning
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.
Fjárhagsdagatal 2022/23
Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| Aðalfundur 2022 | Miðvikudagur | 1. júní 2022 |
| 1F – 1. mars til 31. maí | Fimmtudagur | 30. júní 2022 |
| 2F – 1. mars til 31. ágúst | Miðvikudagur | 19. október 2022 |
| 3F – 1. mars til 30. nóvember | Miðvikudagur | 11. janúar 2023 |
| 4F – 1. mars til 28. febrúar | Fimmtudagur | 27. apríl 2023 |
| Aðalfundur 2023 | Fimmtudagur | 1. júní 2023 |
Fréttatilkynning
- apríl 2022
hagar
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 2. maí á https://www.hagar.is/en/
Press release and financial statements will be available in English on May 2nd at https://www.hagar.is/en/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.