Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Earnings Release 2022

Jun 22, 2022

2196_rns_2022-06-22_9787cc14-4e3d-4b3a-891a-24110b80d3d1.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2022/23

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2022/23

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs Haga hf., þ.e. tímabilið 1. mars til 31. maí 2022, verður birt þann 30. júní nk. Samkvæmt drögum að uppgjörinu verður EBITDA afkoma félagsins umfram áætlanir, sem fyrst og fremst má rekja til betri afkomu hjá Olís. Gera má ráð fyrir að EBITDA afkoma á fyrsta ársfjórðungi verði um 2.600-2.700 millj. kr. en til samanburðar var EBITDA afkoma á fyrsta ársfjórðungi í fyrra 2.278 millj. kr.

Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins það sem eftir lifir rekstrarárs þá hefur EBITDA afkomuspá verið hækkuð um 300 millj. kr. Gert er ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2022/23 verði á bilinu 10.200-10.700 millj. kr.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, [email protected]