Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Capital/Financing Update 2024

Mar 21, 2024

2196_rns_2024-03-21_bd00e351-e7c1-4b4b-8618-92abf7856cf4.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 21. mars 2024

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 21. mars 2024

Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA240925. Þá bauðst eigendum víxilsins HAGA240328 að selja bréf í flokknum til útgefanda samhliða útboðinu.

Heildartilboð í nýja flokkinn HAGA240925 námu samtals 2.840 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 9,90% - 10,29%.

Tilboðum að fjárhæð 1.880 m.kr. að nafnvirði var tekið á 10,20% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. mars 2024. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins HAGA240328 að selja bréf í flokknum til útgefanda. Hreint verð sem fjárfestum bauðst að selja víxilinn á var 100,0. Tilboð bárust að nafnvirði 1.880 m.kr. Uppgjör viðskipta fer fram 27. mars 2024.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, [email protected]

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki., sími 522 4000 [email protected]

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected]