Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Capital/Financing Update 2024

Oct 9, 2024

2196_rns_2024-10-09_b5969175-3bc4-425a-81e9-859a1a175af5.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 9. október 2024

Hagar hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 9. október 2024

Hagar hf. luku í dag útboði í skuldabréfaflokknum HAGA120926 1 ásamt nýjum skuldabréfaflokki HAGA 161127.

HAGA 120926 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR að viðbættu 1,30% álagi með lokagjalddaga þann 12. september 2026. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 2.000 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.280 m.kr. að nafnvirði með álagi á 1 mánaða REIBOR á bilinu 1,09% - 1,30%.

Tilboðum að fjárhæð 1.000 m.kr. var tekið á 1,30% álagi á 1 mánaða REIBOR.

HAGA 161127 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fasta 8,60% vexti með lokagjalddaga þann 16. nóvember 2027.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.220 m.kr. að nafnvirði þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,20% - 8,89%.

Tilboðum að fjárhæð 1.560 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,60%.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 18. október 2024. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, [email protected]

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf., [email protected]

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., [email protected]