Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Capital/Financing Update 2023

Aug 31, 2023

2196_rns_2023-08-31_07d74c1d-8ecc-40e7-a9e0-6691bf80bc5a.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Útboð á skuldabréfum 5. september 2023

Hagar hf.: Útboð á skuldabréfum 5. september 2023

Hagar hf. efna til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 5. september 2023. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki HAGA 120926 1.

HAGA 120926 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR með lokagjalddaga þann 12. september 2026. Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 1 mánaða REIBOR.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða og útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 5. september 2023. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 12. september 2023.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., [email protected], s: 522 4000.

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf. [email protected]

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, [email protected]