Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Board/Management Information 2022

May 30, 2022

2196_rns_2022-05-30_62c0d626-3e54-4dd5-97ef-fff8a4436e6c.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 1. júní 2022

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 1. júní 2022

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn miðvikudaginn 1. júní 2022 og hefst hann kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 27. maí sl. Alls bárust 10 framboð til stjórnar félagsins. Fjórir af fimm núverandi stjórnarmönnum gefa kost á sér en auk þess buðu sex aðrir einstaklingar sig fram til stjórnarstarfa. Fimm þeirra hafa nú dregið framboð sitt til baka.

Eftirtaldir einstaklingar hafa því gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins.

  1. Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Travel Connect
  2. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), stjórnarformaður Samherja hf.
  3. Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMG lögmönnum
  4. Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969), framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf.
  5. Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960), stjórnarmaður í Opnum kerfum og varamaður í bankaráði Landsbankans

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem birt var 10. maí 2022 og er hér einnig meðfylgjandi.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995.

Stjórn Haga hf.

Viðhengi: