Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Board/Management Information 2020

Jun 12, 2020

2196_rns_2020-06-12_2404eb46-8180-49c4-8c7c-6b88a079c235.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Tilkynning vegna framkvæmdastjórnar Haga

Hagar hf.: Tilkynning vegna framkvæmdastjórnar Haga

Þann 30. apríl sl. var tilkynnt um breytingu á framkvæmdastjórn Haga, m.a. að Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefði óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Í dag hefur náðst samkomulag við Guðmund og mun hann áfram starfa sem framkvæmdastjóri Bónus.

Í ársreikningi félagsins sem birtur var 18. maí sl. var tilkynnt að fjárhagsleg áhrif starfslokanna kæmu fram á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins 2020/21. Í ljósi fyrrgreinds samkomulags mun ekki koma til gjaldfærslu nú, líkt og áður hafði verið áætlað.

Miðað við ofangreint gerir nú mat stjórnenda ráð fyrir því að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir samstæðunnar (EBITDA) á fyrsta ársfjórðungi, þ.e. tímabilið 1. mars til 31. maí 2020, verði 1.100 til 1.250 millj. króna.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Harðarsson, stjórnarformaður Haga, í tölvupósti: [email protected].