Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Annual Report 2024

May 6, 2025

2196_rns_2025-05-06_2fa99534-62eb-4aa8-9147-817df32ac5c4.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

ÁRSREIKNINGUR MÓDURFÉLAGS

  1. FEBRÚAR 2025

digitalia Bananar BÓNUS ELDUM RÉTT HAGKAUP olis SOM STÓRKAUP

Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500


EFFNISYFIRLIT

bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 10
Efnahagsreikningur 11
Eiginfjáryfirlit 12
Sjóðstreymisyflit 13
Skýringar 14

Skýr. bls. Skýr. bls.
1. Félagið 14 17. Hlutdeildarfélög 24
2. Grundvöllur reikningsskilanna 14 18. Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 24
3. Mat og ákvarðanir 14 19. Handbært fé 24
4. Breyting á reikningsskilaaðferð 14 20. Eigið fé 25
5. Rekstrartekjur 15 21. Vaxtaberandi skuldir 26
6. Laun og launatengd gjöld 15 22. Leiguskuldir 27
7. Þóknun til endurskoðenda 15 23. Tekjuskattsskuldbinding 28
8. Afskriftir 15 24. Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 28
9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 15 25. Stýring fjármálalegrar áhættu 28
10. Tekjuskattur 16 26. Tengdir aðilar 31
11. Hagnaður á hlut 16 27. Önnur mál 33
12. Rekstrarfjármunir 17 28. Kennitölur 33
13. Fjárfestingarfasteignir 18 29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir 34
14. Öefnislegar eignir 20
15. Leigueignir 21
16. Dótturfélög 21

Viðaukar - óendurskoðuð fylgiskjöl:

Stjórnarháttayfirlýsing 41
Ófjárhagsleg upplýsingagjóf 51

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrjar 2025


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi.

Ársreikningur Haga er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga.

Breyting á reikningsskilaaðferð

Félagið hefur breytt um reikningsskilaaðferð vegna fjárfestingarfasteigna sinna. Fjárfestingarfasteignir eru nú færðar á gangvírði en voru áður færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Það er mat stjórnenda félagsins að gangvírði þessara fasteigna gefi gleggri mynd af fjárhagsstöðu félagsins í árslok 28.2.2025 en afskrifað kostnaðarverð hefði gert. Samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 29.2.2024 hefur verið breytt til samræmis. Nánari upplýsingar má finna í skýringum 4 og 13.

Rekstur ársins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri félagsins að fjárhæð 6.485 millj. kr. (2023/24: 5.044 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 62.131 millj. kr. (2023/24: 53.168 millj. kr.). Eigið fé í lok reikningsársins nam 37.769 millj. kr. (2023/24: 32.391 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 60,8% (2023/24: 60,9%). Fjöldi ársverka á árinu voru 35 (2023/24: 29) og kynjahlutfall starfsmanna var 55% karlar og 45% konur (2023/24: 55% karlar, 45%, konur).

Rekstur ársins gekk heilt yfir vel, þá einkum vegna sterkari afkomu en upphaflæga var gert ráð fyrir hjá dótturfélagi Olís, þar sem meðal annars hagfelldar hreyfingar á heimsmarkaðsverði olíu, í samanburði við fyrra ár, styðja við afkomu.

Fjárhagsleg staða Haga hf. er sterk og er fjármögnun tryggð. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. er tryggður en einnig hefur félagið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu. Útgáfa vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið nýtt sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.

Fjárhagsleg áhættustýring

Í skýringu 25 er fjallað um helstu fjárhagslegu áhættur sem félagið býr við og þá áhættustýringu sem félagið beitir.

Kaup á öllu hlutafé P/F SMS í Færeyjum

Þann 22. október 2024 var greint frá því að Hagar hf. og eigendur P/F SMS í Færeyjum hefðu undirritað skilyrt samkomulag um kaup og sölu á öllu hlutafé í SMS. Þann 27. nóvember 2024 var endanlegur kaupsamningur vegna viðskiptanna undirritaður en yfirtökudagur var mánudagurinn 2. desember 2024. SMS varð því hluti af samstæðuuppgjóri Haga á síðasta fjörðungi rekstrarársins 2024/25. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 16.

Söluferli Olíudreifingar ehf.

Í tilkynningu frá Högum, þann 3. desember 2024, var greint frá því að óskuldbindandi tilboð hefðu borist í eignarhlut Olís, dótturfélags Haga, í Olíudreifingu ehf. (ODR). Í kjölfarið var þremur aðilum veittur frekari aðgangur að gögnum og boðið að skila inn uppfærðum óskuldbindandi tilboðum. Allir þrír aðilar skiluðu uppfærðum tilboðum í 40% eignarhlut Olís í ODR. Tilboðin reyndust vera undir væntingum Haga um virði félagsins og var því tilkynnt þann 30. apríl 2025 að ákveðið hafi verið að hætta söluferli á eignarhlutunum.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Hluthafar

Hluthafar voru 968 í byrjun rekstrarársins og 923 í lok þess. Tíu stærstu hluthafar í árslok eru eftirfarandi:

Hluthafar Fjöldi hluta Fjöldi hluta
28.2.2025 Fjöldi hluta % 29.2.2024 Fjöldi hluta %
Gildi - lífeyrissjóður 193.328 17,5% 205.075 18,5%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) 147.642 13,3% 147.592 13,3%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 120.843 10,9% 112.743 10,2%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga 132.691 12,0% 122.046 11,0%
Kaldbakur ehf. 90.000 8,1% 86.000 7,8%
Birta lífeyrissjóður 74.556 6,7% 85.398 7,7%
Festa lífeyrissjóður 47.147 4,3% 50.249 4,5%
Stapi lífeyrissjóður 38.710 3,5% 31.350 2,8%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 31.357 2,8% 32.857 3,0%
Almenni lífeyrissjóðurinn 15.204 1,4% 10.454 0,9%
10 stærstu hluthafar samtals 891.478 80,6% 883.764 79,9%
Aðrir hluthafar 206.817 18,7% 200.545 18,1%
Hagar - eigin hlutir 8.134 0,7% 22.120 2,0%
Samtals 1.106.429 100,0% 1.106.429 100,0%
  • Fjöldi hluta í þúsundum króna.

Hlutafé og sambykktir

Skráð hlutafé félagsins nam í lok reikningsárs 1.106 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eigin hlutir í upphafi árs námu 22,1 millj. kr. að nafnverði en í lok árs á félagið 8,1 millj. kr. eigin hluti að nafnverði. Nánari upplýsingar um eigin hluti, endurkaup, kaupréttarkerfi starfsmanna o.fl. má finna í skýringu 20.

Þann 30. maí 2024 sambykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.522 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 7. júní 2024. Nánari upplýsingar má finna í eiginfjáryfirliti og skýringu 20.

Á hluthafafundi Haga þann 30. ágúst 2024 var sambykkt tillaga stjórnar um kaupréttarkerfi til handa lykilstarfsfólki í félaginu. Stjórn Haga hefur, á grundvelli hins nýja kaupréttarkerfis, veitt kauprétti fyrir samtals 16.568.615 hlutum í félaginu. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 20.

Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 27. maí 2025 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2025 sem nemur 50,0% af hagnaði ársins eftir skatta, án áhrifa af matsbreytingum og afkomu hlutdeildarfélaga. Arðgreiðslutillagan nemur samtals 2.504 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár. Nánari upplýsingar má finna í eiginfjáryfirliti og skýringu 20.

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir Haga hf. mótast af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, sambykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Hagar hf. fylgja, án greindra frávika, leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu frá árinu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulifsins.

Stjórn Haga hf. hefur útbúið ítarlega yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins, sem útbúin er í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, og er hana að finna í sérstökum viðauka á bls. 41, auk þess sem hún er birt í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.

Í stjórn Haga hf. sitja þrjár konur og tveir karlar.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Ófjárhagsleg upplýsingagjóf

Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, samfélags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum o.fl., eru birtar í sérstökum viðauka á bls. 51. Einnig má finna upplýsingar í samræmi við kröfur Flokkunarreglugerðarinnar (e. EU Taxonomy) sem tók gildi árið 2023 í samstæðuársreikningi Haga hf.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að ársreikningur félagsins gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins fyrir reikningsárið sem lauk 28. febrúar 2025, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess þann 28. febrúar 2025 og breytingum á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins, stöðu þess, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem félagið býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir ársreikning félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.

Ársreikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.

Reykjavík, 5. maí 2025

Stjórn:

Eiríkur S. Jóhannsson, formaður

Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður

Davíð Harðarson, meðstjórnandi

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi

Sigriður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÁRITUN ÓHÁÐS ENDURSKODANDA

Til stjórnar og hluthafa Haga hf.

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Haga hf. fyrir reikningsárið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025, að undanskilinni skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á reikningsárinu 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025, efnahag þess 28. febrúar 2025 og breytingu á handbæru fé á reikningsárinu 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga.

Álit okkar er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar.

Ársreikningurinn innifelur

  • Skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.
  • Rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025.
  • Efnahagsreikning 28. febrúar 2025.
  • Eiginfjáryfirlit 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025.
  • Sjóðstreymisyflrit 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025.
  • Skýringar, sem innifela mikilvægar reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar.

Skýrsla stjórnar og yfirlýsing stjórnar og forstjóra er undanskilin endurskoðun, sbr. kafla um aðrar upplýsingar.

Grundvöllur álits

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda.

Óhæði

Við erum óháð félaginu samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur og endurskoðun og síðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði síðareglna.

Samkvæmt okkar bestu vissu, lýsum við yfir að önnur þjónusta sem við höfum veitt félaginu er í samræmi við ákvæði íslenskra laga og reglna og að við höfum ekki veitt þjónustu sem óheimilt er að veita samkvæmt ákvæðum 5.1. gr. Evrópureglugerðar nr. 537/2014.

Gerð er grein fyrir annarri þjónustu sem við höfum veitt félaginu, á tímabilinu 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025, í skýringu 7.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Lykilatriði endurskoðunarinnar

Lykilatriði endurskoðunarinnar eru þau atriði sem að okkar faglega mati höfðu mesta þýðingu í endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins reikningsárið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025. Sem hluti af endurskoðun okkar á ársreikningnum voru þessi lykilatriði skoðuð sérstaklega. Við látum ekki í ljós sérstakt álit varandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á ársreikningnum í heild.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Lykilatriði endurskoðunarinnar Endurskoðunaraðgerðir
Mat á eignarhlutum í dótturfélögum

Eignarhlutir í dótturfélögum nema kr. 37.050 milljónum í lok febrúar 2025 og eru um 60% af heildareignum félagsins.

Starfsemi dótturfélaga felst í heildsölu á smásölumarkaði, rekstri smásöluverslana og olíuverslunar. Eignarhlutirnir eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð. Mat á virðisrýrnun er háð faglegu mati og byggir m.a. á áætlunum stjórnenda um afkomu og framtiðarvöxt.

Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 29k um reikningsskilaðferðir gagnvart dótturfélögum, nr. 29j um virðisrýrnun og nr. 16 um dótturfélög.

Eignarhlutir í dótturfélögum eru verulegur liður í reikningsskilum félagsins og vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar. | Endurskoðun á mati á eignarhlutum í dótturfélögum fólst m.a. í eftirfarandi þáttum:
- Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar vegna dótturfélaga var yfirfarið og virðisrýrnunarpróf endurreiknað.
- Reikningsleg meðhöndlun m.t.t. hlutdeildaraðferðar var yfirfarin og sannreynd með útaksprófunum.
- Færsla og staða á bundnum hlutdeildarreikningi meðal eigin fjár var yfirfarin og sannreynd með úrtaksprófunum.

Verðmatssérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun viðskiptavildar.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar.

Mat vörubirgða er umfangsmiðill matskenndur liður í reikningsskilum dótturfélaga. Nánar er vísað í áritun okkar á samstæðuársreikning félagsins. |
| Lykilatriði endurskoðunarinnar | Endurskoðunaraðgerðir |
| Mat fjárfestingarfasteigna

Fjárfestingarfasteignir nema kr. 16.832 milljónum í lok febrúar 2025 og nema um 27% af heildareignum félagsins.

Fjárfestingarfasteignir eru sá hluti fasteigna sem er til útleigu og eru færðar á gangvirði í gegnum rekstur.

Mat fjárfestingarfasteigna er háð mati stjórnenda á forsendum í áættuðu framtiðarsjóðstreymi og öðrum forsendum sem notaðar eru við núvirðingu á áættuðu sjóðstreymi.

Fjárfestingarfasteignir félagsins voru áður færðar á afskrifuðu kostnaðarverði.

Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 4 um breytingu á reikningsskilaðferð, skýringu nr. 29i um reikningsskilaðferðir gagnvart mati fjárfestingarfasteigna og skýringu nr. 13 um fjárfestingarfasteignir.

Fjárfestingarfasteignir eru verulegur liður í reikningsskilum félagsins og vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum sem sjóðstreymislikan byggir á er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar. | Endurskoðun á reikningslegri meðhöndlun, forsendum og mati fasteigna fólst m.a. í eftirfarandi þáttum:
- Mat á fasteignum félagsins var yfirfarið og virðislikan endurreiknað.
- Forsendur rekstraráætlana voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um leigutekjur og rekstrarkostnað fyrir spätimabilið m.a. á grundvelli sögulegra upplýsinga og áætlana. Auk þess voru forsendur bornar saman við almennar markaðsforsendur.
- Ávöxtunarkrafa (WACC) sem notuð er við verðmatið var borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.

Sérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun á mati og framsetningu.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar. |

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Aðrar upplýsingar, þ.m.t. skýrsla og yfirlýsing stjórnar

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra og viðaukar við ársreikning félagsins, stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjöf, sem lágu fyrir við áritun okkar.

Álit okkar á ársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga, þ.m.t. skýrslu stjórnar og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.

Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins ber okkur að yfirfara aðrar upplýsingar, sem tilgreindar eru hér að ofan, þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær eru í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina eða ef svo virðist að verulegar rangfærslur séu í þeim. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.

Hvað varðar skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra höfum við, í samræmi við ákvæði 104. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, yfirfarið að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á ársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð ársreikningsins ber stjórnendum félagsins að meta hæfi þess til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning félagsins á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa félagið upp eða hætta rekstri þess, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi félagsins. Stjórnendum félagsins ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi þess til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu ársreikningsins.

Stjórn og endurskoðunarnefnd skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á ársreikningnum.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins, frh.:

Endurskoðun í samræmi við alpjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu ársreiknings, að mikilvægum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.

  • Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits félagsins.

  • Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.

  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi félagsins eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi þess. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í ársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni leitt til þess að félagið verði ekki lengur rekstrarhæft.

  • Metum framsetningu, gerð og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álit okkar.

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp geta komið í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.

Við höfum lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við uppfyllum nauðsynleg síðferðis- og óhæðisskilyrði og við munum láta þeim í té allar upplýsingar um hugsanleg tengsl og önnur atriði sem gætu haft áhrif á óhæði okkar og trúnað.

Við höfum lagt mat á hvaða atriði, af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, höfðu mesta þýðingu á yfirstandandi ári og eru það lykilatriði endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum lykilatriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undantekningartilfellum þegar mat okkar er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna.

Önnur atriði samkvæmt ákvæðum laga og regina

Kosning endurskoðanda

Við vorum kosin endurskoðendur á aðalfundi Haga hf. þann 7. júní 2017. Kosning okkar hefur verið endurnýjuð árlega á aðalfundi félagsins og höfum við því verið endurskoðendur félagsins samfellt í átta ár.

Reykjavík, 5. maí 2025.

PricewaterhouseCoopers ehf.

Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir

löggiltur endurskoðandi

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU

1. MARS 2024 TIL 28. FEBRÚAR 2025

Skýr. 2024/25 2023/24
Rekstrartekjur 5 2.268 2.076
Laun og launatengd gjöld 6 ( 925) ( 766)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.362) ( 1.085)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) ( 19) 225
Afskriftir 8 ( 124) ( 347)
Matsbreyting fjárfestingarfasteigna 13 420 0
Rekstrarhagnaður 277 ( 122)
Hrein fjármagnsgjöld 9 ( 994) ( 1.146)
Áhrif dótturfélaga 16 6.300 5.532
Áhrif hlutdeildarfélaga 17 698 492
Hagnaður fyrir tekjuskatt 6.281 4.756
Tekjuskattur 10 204 288
Heildarhagnaður ársins 6.485 5.044
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður á hlut 11 5,97 4,59
Þynntur hagnaður á hlut 11 5,81 4,51

Skýringar á blaðsíðum 14 til 40 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EFNAHAGSREIKNINGUR 28. FEBRÚAR 2025

Skýr. 28.2.2025 29.2.2024*
Eignir
Rekstrarfjármunir 12 478 164
Fjárfestingarfasteignir 13 16.832 16.219
Óefnislegar eignir 14 2.039 1.846
Leigueignir 15 49 78
Eignarhlutir í dótturfélögum 16 37.050 29.462
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 17 4.903 4.204
Eignarhlutir í öðrum félögum 2 2
Fastafjármunir samtals 61.353 51.975
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 18 196 111
Handbært fé 19 582 1.082
Veltufjármunir samtals 778 1.193
Eignir samtals 62.131 53.168
Eigið fé
Hlutafé 1.098 1.084
Bundið eigið fé 10.184 8.928
Óráðstafað eigið fé 26.487 22.379
Eigið fé samtals 20 37.769 32.391
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 21 10.994 8.434
Leiguskuldir 22 21 48
Tekjuskattsskuldbinding 23 1.445 1.323
Langtímaskuldir samtals 12.460 9.805
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 21 5.619 5.639
Leiguskuldir 22 32 34
Skuldir við tengda aðila 26 4.251 3.847
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 24 2.000 1.452
Skammtímaskuldir samtals 11.902 10.972
Skuldir samtals 24.362 20.777
Eigið fé og skuldir samtals 62.131 53.168

Skýringar á blaðsíðum 14 til 40 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.

*Samanburðarfjárhæðum breytt vegna nýrrar reikningsskilaðferðar. Sjá skýringu 4.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EIGINFJÁRYFIRLIT

1. MARS 2024 TIL 28. FEBRÚAR 2025

Skýr. Hlutafé Bundlö eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 2023/24*
Eigið fé 1. mars 2023 1.119 7.290 19.522 27.931
Endurkaup á eigin bréfum ( 22) ( 1.478 ) ( 1.500 )
Endurkaup á eigin bréfum - ógild ( 13) ( 820 ) ( 833 )
Breyting á varasjóð ( 6 ) 6 0
Breyting á hlutdeildarreikning 1.623 ( 1.623 ) 0
Kaupréttarsamningar 21 21
Greiddur arður, 2,24 kr. á hlut ( 2.475 ) ( 2.475 )
Heildarhagnaður ársins 5.044 5.044
Eigið fé 29. febrúar 2024 20 1.084 8.928 18.176 28.188
Breytingar vegna nýrrar reikningsskilaaðferðar 4.203 4.203
Uppfært eigið fé 29. febrúar 2024 20 1.084 8.928 22.379 32.391
Breytingar á eigin fé 2024/25
Eigið fé 1. mars 2024 1.084 8.928 22.379 32.391
Afhending á eigin bréfum í viðskiptum Haga með SMS 14 1.371 1.385
Breyting á hlutdeildarreikning 1.236 ( 1.236 ) 0
Kaupréttarsamningar 29 29
Uppgjör kaupréttarsamninga 0 10 10
Greiddur arður, 2,33 kr. á hlut ( 2.522 ) ( 2.522 )
Heildarhagnaður ársins 6.485 6.485
Þýðingarmunur ársins ( 9 ) ( 9 )
Eigið fé 28. febrúar 2025 20 1.098 10.184 26.487 37.769

Skýringar á blaðsíðum 14 til 40 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.

*Samanburðarfjárhæðum breytt vegna nýrrar reikningsskilaaðferðar. Sjá skýringu 4.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓÐSTREYMISYFIRLIT

1. MARS 2024 TIL 28. FEBRÚAR 2025

Skýr. 2024/25 2023/24
Rekstrarhreýfingar
Hagnaður ársins 6.485 5.044
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður ( 4) ( 2)
Afskriftir 8 124 347
Matsbreyting fjárfestingarfasteigna 13 ( 420) 0
Hrein fjármagnsgjöld 9 994 1.146
Áhrif dótturfélaga 16 ( 6.300) ( 5.532)
Áhrif hlutdeildarfélaga 17 ( 698) ( 492)
Tekjuskattur 10 ( 204) ( 288)
Aðrir liðir 29 21
Veltufé frá rekstri 6 244
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 85) ( 35)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 1.191 4.076
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.112 4.285
Innheimtar vaxtatekjur 197 62
Greidd vaxtagjöld ( 882) ( 805)
Greiddur tekjuskattur ( 1.100) ( 1.326)
Handbært fé (til) frá rekstri ( 673) 2.216
Fjárfestingarhreýfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 12 ( 352) ( 40)
Söluverð rekstrarfjármuna 10 9
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum 13 ( 192) ( 1.391)
Fjárfesting í óefnislegum eignum 14 ( 252) ( 138)
Móttekinn arður frá dótturfélögum 16 5.457 4.154
Fjárfesting í dótturfélagi 16 ( 5.327) ( 30)
Fjárfestingarhreýfingar ( 656) 2.564
Fjármögnunarhreýfingar
Keypt eigin bréf 20 0 ( 2.333)
Greiddur arður ( 2.522) ( 2.475)
Nýjar vaxtaberandi langtímaskuldir 21 2.560 2.000
Afborganir langtímaskulda 21 ( 2.768) ( 266)
Leiguskuld afborganir 22 ( 33) ( 29)
Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting 2.450 0
Tengdir aðilar, breyting 1.142 ( 1.055)
Fjármögnunarhreýfingar 829 ( 4.158)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 500) 622
Handbært fé í ársbyrjun 1.082 460
Handbært fé í lok árs 19 582 1.082
Fjárfestingar- og fjármögnunarhreýfingar án greiðsluáhrifa
Fjárfesting í dótturfélagi ( 1.385) 0
Afhent eigin bréf 1.385 0

Skýringar á blaðsíðum 14 til 40 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR

1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Ársreikningur félagsins er fyrir reikningsárið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025. Félagið er móðurfélag í samstæðu Haga þar sem aðalstarfsemi samstæðunnar er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga nr. 3/2006. Samhliða þessum ársreikningi móðurfélagsins gerir félagið samstæðureikning félagsins og dótturfélaga. Í skýringum 16 og 26 má finna yfirlit yfir dótturfélög Haga.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 5. maí 2025.

b. Rekstrarhaffi

Stjórnendur hafa metið rekstrarhaffi félagsins. Það er mat þeirra að áframhaldandi rekstur þess sé tryggður og fjárhagsleg staða Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við þær aðstæður sem upp geta komið í íslensku efnahagslífi.

c. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.

d. Grundvöllur matsaðferða

Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að fjárfestingarfasteignir eru færðir á gangvirði. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur gangvirðis eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir. Að svo miklu leyti sem hægt er, notar félagið markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda.

3. Mat og ákvarðanir

Gerð ársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera fráþrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir um mat er að finna í eftirfarandi skýringum:

  • Skýrning 29h ... Mat á áætlúðum nýtingartíma rekstrarfjármuna
  • Skýring 13 og 29i ... Mat á gangvirði á fjárfestingarfasteignum
  • Skýring 14 og 29j ... Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar og annarra óefnislegra eigna
  • Skýring 29o ... Ákvörðun leigutíma og mat á núvirðingarvóxtum

4. Breyting á reikningsskilaaðferð

Félagið hefur breytt um reikningsskilaaðferð vegna fjárfestingarfasteigna sinna. Fjárfestingarfasteignir eru nú færðar á gangvirði en voru áður færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Það er mat stjórnenda félagsins að gangvirði þessara fasteigna gefi gleggri mynd af fjárhagsstöðu félagsins í árslok 28.2.2025 en afskrifað kostnaðarverð hefði gert. Samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 29.2.2024 hefur verið breytt til samræmis. Félagið hefur ekki áreiðanlegar upplýsingar um gangvirðisbreytingu fjárfestingarfasteigna 1.3.2023 og þar af leiðandi hafa samanburðarfjárhæðir í rekstrarreikningi ekki verið uppfærðar fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 13.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

5. Rekstrartekjur

Rekstrartekjur greinast pannig: 2024/25 2023/24
Húsaleigutekjur 1.432 1.331
Ýmsar aðrar rekstrartekjur 836 745
Aðrar rekstrartekjur samtals 2.268 2.076

6. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast pannig: 2024/25 2023/24
Laun 753 616
Mótframlag í lífeyrissjóð 106 89
Önnur launatengd gjöld 43 54
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga, sbr. skýringu 20 23 7
Laun og launatengd gjöld samtals 925 766
Fjöldi ársverka 35 29
Fjöldi starfsmanna í árslok 38 30
Kynjahlutfall starfsmanna í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) 55/45 55/45

7. Póknun til endurskoðenda

Póknun til endurskoðenda greinist pannig: 2024/25 2023/24
Endurskoðun 15 16
Staðfestingarvinna og önnur pjónusta 0 1
Samtals póknun til endurskoðenda 15 17

8. Afskriftir

Afskriftir greinast pannig: 2024/25 2023/24
Afskrift rekstrarfjármuna, sjá skýringu 12 32 28
Afskrift fjárfestingarfasteigna, sjá skýringu 13 0 239
Afskrift óefnislegra eigna, sjá skýringu 14 60 50
Afskrift leigueigna, sjá skýringu 15 32 30
Afskriftir samtals 124 347

9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: 2024/25 2023/24
Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 197 62
Gengishagnaður 0 1
Fjármunatekjur samtals 197 63
Vaxtagjöld og verðbætur ( 1.187) ( 1.205)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 3) ( 4)
Gengistap ( 1) 0
Fjármagnsgjöld samtals ( 1.191) ( 1.209)
Hrein fjármagnsgjöld ( 994) ( 1.146)

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Tekjuskattur
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist pannig: 2024/25 2023/24
Tekjuskattur til greiðslu 1.444 1.082
Áhrif samsköttunar ( 1.770) ( 1.382)
Breyting tekjuskattsskuldbindingar 122 12
Tekjuskattur færður í rekstrarreikning ( 204) ( 288)
Virkur tekjuskattur greinist pannig:
Hagnaður ársins 6.485 5.044
Tekjuskattur ársins ( 204) ( 288)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 6.281 4.756
Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall 21,0% 1.319 20,0%
Áhrif dótturfélaga ( 23,4%) ( 1.470) ( 26,2%)
Áðrar breytingar ( 0,8%) ( 52) 0,1%
Virkur tekjuskattur ( 3,2%) ( 203) ( 6,1%)

Félagið er samskattað með dótturfélögum sínum.

  1. Hagnaður á hlut

Grunnhagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna.

2024/25 2023/24
Hagnaður ársins til hluthafa móðurfélagsins 6.485 5.044
Vegið meðaltal útistandandi hlutafjár:
Hlutafé í ársbyrjun 1.106 1.133
Áhrif endurkaupa og ógildingar á eigin bréfum 0 ( 35)
Áhrif afhendingar á eigin bréfum ( 19) 0
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta 1.087 1.098
Áhrif kaupréttasamninga 29 21
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað 1.116 1.119
Grunnhagnaður á hlut 5,97 4,59
Þynntur hagnaður á hlut 5,81 4,51

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

12. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir greinast pannig:

Áhöld og
Fasteignir innréttingar Samtals
Kostnadarverð
Staða 1.3.2023 0 298 298
Fjárfesting á árinu 0 40 40
Selt og aflagt 0 ( 12) ( 12)
Staða 29.2.2024 0 326 326
Endurflokkað af fjárfestingarfasteignum 75 0 75
Uppfærd staða 29.2.2024 75 326 401
Fjárfesting á árinu 309 43 352
Selt og aflagt 0 ( 21) ( 21)
Staða 28.2.2025 384 348 732
Afskriftir
Staða 1.3.2023 0 209 209
Afskriftir 0 28 28
Selt og aflagt 0 ( 5) ( 5)
Staða 29.2.2024 0 232 232
Endurflokkað af fjárfestingarfasteignum 4 0 4
Uppfærd staða 29.2.2024 4 232 236
Afskriftir 1 31 32
Selt og aflagt 0 ( 15) ( 15)
Staða 28.2.2025 5 248 253
Bókfært verð
Staða 1.3.2023 0 89 89
Staða 29.2.2024 71 94 164
Staða 28.2.2025 379 99 478

Fasteignamat og vátryggingaverð

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum:

28.2.2025 29.2.2024
Fasteignamat 54 24
Vátryggingaverð fasteigna 182 178
Bókfært verð fasteigna 379 71
Vátryggingaverð innréttinga og áhalda 474 443
Bókfært verð innréttinga og áhalda 99 94

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

13. Fjárfestingarfasteignir

Fjárfestingarfasteignir greinast pannig: Fasteignir
Bókfært verð 1.3.2023 9.775
Fjárfesting á árinu 1.391
Afskriftir ( 239)
Bókfært verð 29.2.2024 10.927
Endurflokkað á fasteignir til eigin nota ( 71)
Matsbreyting 29.2.2024 5.363
Uppfærð staða 29.2.2024 16.219
Fjárfesting á árinu 192
Gangvirðisbreyting 420
Staða 28.2.2025 16.832

Fasteignamat og vátryggingaverð

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum:

28.2.2025 29.2.2024
Fasteignamat 9.815 8.832
Vátryggingaverð fjárfestingarfasteigna 15.714 15.305
Bókfært verð fjárfestingarfasteigna 16.832 16.219
Fjárhæðir færðar í rekstrarreikning vegna fjárfestingarfasteigna: 2024/25 2023/24
Leigutekjur 1.432 1.331
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum í útleigu 256 232
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum sem ekki eru í útleigu 5 4

Fjárfestingarfasteignir eru ýmist í skammtíma- eða langtimaleigu. Framtíðarleigugreiðslur leigusamninga eru að lágmarki sem hér segir:

28.2.2025 29.2.2024
Innan eins árs 1.466 1.233
Eftir eitt til fimm ár 5.185 3.637
Eftir meira en fimm ár 3.609 3.993
Leigusamningar samtals 10.260 8.863

Veðsetningar

Á fjárfestingarfasteignum félagsins, sem eru á bókfærðu verði 12.225 millj. kr., hvila þinglýst veð og skuldbindingar að fjárhæð 9.465 millj. kr. til tryggingar skuldum félagsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

13. Fjárfestingarfasteignir, frh.:

Ákvörðun gangvirðis fjárfestingarfasteigna

Gangvirðismöt félagsins í árslok 2024/2025 og 2023/2024 voru unnin með aðstoð óháðra sérfræðinga. Við mat á fjárfestingarfasteignum er stuðst við núvirt framtíðarsjóðstregmi einstakra eigna. Sjóðstregmislikanið byggir á frjálsu sjóðstregmi til félagsins sem núvirt er með veginni ávöxtunarkröfu hverrar eignar (WACC). Ávöxtunarkrafa eigin fjár er metin út frá CAPM líkaninu (Capital Asset Pricing Model) þar sem byggt er á áhættulausum verðtryggðum vöxtum að viðbættu álagi til að mæta þeirri áhættu sem fylgir undirliggjandi rekstri. Lánsfjárvextir byggja á áætlúðum vaxtakjörum sem bjóðast á markaði við endurfjármögnun eignanna.

Áætlað sjóðsflæði tekur mið af leigutekjum af fyrirliggjandi leigusamningum og væntri þróun þeirra. Lagt er mat á sérhvern leigusamning og tillit tekið til þeirra áhættupátta sem máli skipta. Frá áætlúðum leigutekjum er dreginn áætlaður rekstrarkostnaður. Með þessum hætti er hver eign félagsins metin sem sjálfstæð eining. Forsendur virðislikansins byggja á reynslutölum úr rekstri félagsins ásamt spá um þróun lykilpátta til framtíðar.

Niðurstaða matsins í árslok 2024/25 var hækkun á mati fjárfestingarfasteigna að fjárhæð 419,8 millj. kr.

Helstu forsendur gangvirðismats: 28.2.2025 29.2.2024
Skuldsetningarhlutfall 65% 65%
Veginn fjármagnskostnaður (WACC) 6,51-7,26% 6,44-7,19%
Nýtingarhlutfall 90,0-95,0% 90,0-95,0%

Næmnigreining gangvirðismats fasteigna í árslok 2024/25

Gangvirðismat fjárfestingarfasteigna fellur undir stig þrjú í gangvirðislikani alþjóðlegra reikningsskilastaða enda byggir það að verulegu leyti á öðrum upplýsingum en markaðsupplýsingum. Væri lykilforsendum gangvirðismatsins breytt, þ.e. forsendum um fjármagnskostnað og leiguverð, yrðu breytingar á gangvirði sem fært er í rekstrarreikning í samræmi við eftirfarandi töflu:

Hækkun Lækkun
Hækkun / (lækkun) markaðsleigu pr. m2 um 100 kr. 471 ( 471)
(Hækkun) / lækkun á vegnum fjármagnskostnaði um 0,1%-stig ( 242) 250

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir greinast þannig: Viðskiptavild Hugbúnaður Langtíma-kostnaður Samtals
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2023 1.783 365 122 2.270
Fjárfesting á árinu 0 138 0 138
Staða 29.2.2024 1.783 503 122 2.408
Fjárfesting á árinu 0 252 0 252
Staða 28.2.2025 1.783 755 122 2.660
Afskriftir og virðisrýrnun
Staða 1.3.2023 281 109 122 512
Afskriftir 0 50 0 50
Staða 29.2.2024 281 159 122 562
Afskriftir 0 60 0 60
Staða 28.2.2025 281 219 122 622
Bókfært verð
Staða 1.3.2023 1.502 256 0 1.758
Staða 29.2.2024 1.502 344 0 1.846
Staða 28.2.2025 1.502 536 0 2.039

Virðisrýrnuarpróf

Viðskiptavild sem verður til við yfirtöku á rekstrareiningum eða kaupum á dótturfélögum er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýrnuarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort virðisrýrnun sé til staðar. Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur eða kaup er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins. Sjá nánari umfjöllun um dótturfélög í skýringu 16, 26 og 29k.

Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innihalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg ytri og innri gögn. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón af fjárhæðum í samþykktum rekstraráætlunum ársins 2025/26 og næstu fimm ára ásamt föstum framtíðarnafnvexti eftir spátímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarpróun og spár greiningaraðila um verðbölgu og hagvöxt næstu árin. Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri- og innri gögnum. Forsendur eru eftirfarandi:

28.2.2025 29.2.2024
Langtímavöxtur 2,0-3,0% 2,0-3,0%
Tekjuvöxtur á næstu 2-5 árum 2,5-7,3% 2,5-10,3%
EBITDA hlutfall næstu 2-5 ára 4,5-10,3% 4,5-11,0%
Veginn fjármagnskostnaður (WACC) 10,2-11,2% 10,2-10,9%
Skuldsetningarhlutfall 35,5-45,3% 28,5-42,1%
Áhættulausir vextir 6,63% 6,19%

Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýrnun færð hjá félaginu.

Við framkvæmd virðisrýrnuarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýrnuarprófi. Síkt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar eru mis viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýrnuarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykelforsendum samt sem áður ekki leiða til virðisrýrnuar.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

15. Leigueignir

Leigueignir og leiguskuldir félagsins sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 22, upplýsingar um greiðsluflæði í skýringu 25c og reikningsskilaðferðir í skýringu 29o.

Leigueignir greinast þannig: 28.2.2025 29.2.2024
Leigueignir 1. mars 78 93
Nýir leigusamningar 0 8
Verðbætur 3 7
Afskriftir ( 32) ( 30)
Leigueignir samtals 49 78

16. Dótturfélög

Eignarhlutir í dótturfélögum greinast þannig:

28. febrúar 2025 Bananar Eldum Rét Hagar verslanir Hagar Wine Noron
Eignarhlutur 1.3.2024 1.947 1.728 11.201 0 201
Hlutdeild í afkomu 862 222 3.264 ( 25) 14
Hlutdeild færð til lækkunar á kröfu ... 0 0 0 25 0
Móttekinn arður ( 607) ( 300) ( 3.790) 0 0
Eignarhlutur 28.2.2025 2.202 1.650 10.675 0 215
Olis SMS Stórkaup Samtals dótturfélög
--- --- --- --- ---
Eignarhlutur 1.3.2024 14.448 0 ( 62) 29.462
Keypt félag 0 6.592 0 6.592
Hækkun hlutafjár 0 0 120 120
Hlutdeild í afkomu 1.853 184 ( 74) 6.300
Hlutdeild færð til lækkunar á kröfu ... 0 0 16 41
Móttekinn arður ( 760) 0 0 ( 5.457)
Þýðingarmunur 0 ( 9) 0 ( 9)
Eignarhlutur 28.2.2025 15.541 6.767 0 37.050

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milijónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

16. Dótturfélög, frh.:

29. febrúar 2024
Bananar Eldum Rét Hagar verslanir Hagar Wine Noron
Eignarhlutur 1.3.2023 1.917 1.689 10.726 0 182
Keypt félag 0 30 0 0 0
Hlutdeild í afkomu 830 289 3.079 0 19
Móttekinn arður ( 800) ( 280) ( 2.604) 0 0
Eignarhlutur 29.2.2024 1.947 1.728 11.201 0 201
Olís SMS Stórkaup Samtals dótturfélög
Eignarhlutur 1.3.2023 13.651 0 ( 23) 28.141
Keypt félag 0 0 0 30
Hlutdeild í afkomu 1.354 0 ( 39) 5.532
Móttekinn arður ( 470) 0 0 ( 4.154)
Eignarhlutur 29.2.2024 14.535 0 ( 62) 29.549
Matsbreyting 29.2.2024 ( 87) 0 0 ( 87)
Uppfærður eignarhlutur 29.2.2024 ... 14.448 0 ( 62) 29.462

Pann 27. nóvember 2024 undirrituðu Hagar og páverandi eigendur P/F SMS í Færeyjum kaupsamning vegna kaupa Haga á öllu hlutafé í SMS, en pá höfðu öll skilyrði vegna kaupanna verið uppfyllt, p.m.t. áreiðanleikakönnun og sambykki eftirlitsaðila í Færeyjum. Yfirtökudagur var mánudagurinn 2. desember 2024 og varð SMS pví hluti af samstæðuuppgjóri Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2024/25.

Kaupverð (e. enterprise value) í viðskiptunum nam tæplega 467 mDKK og virði hlutafjár (e. equity value) tæplega 327 mDKK. Kaupverð byggði m.a. á rekstri og áætlunum samstæðu SMS fyrir rekstrarárið 2024, en tekjur fyrir árið voru áætláðar um 730 mDKK og hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) um 63 mDKK. Kaupverð byggði einnig á mati á fasteignasafni SMS. Endanlegt uppgjör vegna kaupanna gæti breyst litillega tengt rekstrarafkomu SMS á næstu 2-3 árum. Vert er að benda á að áhrifa leigustaðals IFRS 16 gætir ekki í uppgefnum afkomutölum SMS vegna ársins 2024. Hagar greiddu kaupverð með reiðufé að upphæð um 267 mDKK og afhendingu 13.867.495 hluta eigin bréfa á meðalgenginu 85,24 eða að virði 60 mDKK í viðskiptunum. Þó ber að taka fram að skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðlum reiknast virði hinna afhentu hluta í bókum félagsins m.v. verðmæti á afhendingardegi, sem var að meðaltali 99,84 á hlut. Hagar fjármögnuðu hluta kaupverðs með nýju 200 mDKK láni til 12 mánaða en unnið verður að langtímafjármögnun á næstu misserum.

SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum og rekur m.a. átta Bónus lágvöruverðsverslanir viða í Færeyjum, fjórar smærri dagvöruverslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn. SMS er einnig umsvifamikið í annarri starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja, fjölda veitingastaða, småvöruverslana, brauð- og kökugerðar, kjötvinnslu og líkamsræktarstöðva. Að auki á félagið fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 11.000 m2 sem er að mestu nytt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila. Markmið kaupanna er að renna frekari stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslana og auka skilvirkni rekstrar og vörurval SMS í Færeyjum.

Yfirteknar aðgreinanlegar eignir og skuldir

Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðum skal yfirtökufélag framkvæma kaupverðsútdeilingu á yfirtökudegi með pví að meta aðgreinanlegar yfirteknar eignir og skuldir yfirtekins félags til gangvírðis. Kaupverðsútdeilingu er að mestu lokið, en þó með þeim fyrirvara að ef nýjar upplýsingar um stöðu eigna og / eða skulda á yfirtökudegi koma fram innan eins árs frá yfirtöku getur kaupverðsútdeiling breyst.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

16. Dótturfélög, frh.:

Taflan hér að neðan sýnir gangvirði yfirtekinna eigna og skulda SMS samkvæmt kaupverðsútdeilingu.

Virði í DKK Virði í ISK
Rekstrarfjármunir 390 7.632
Langtímakröfur 2 34
Vörubirgðir 71 1.386
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 19 372
Handbært fé 24 463
Vaxtaberandi skuldir ( 184) ( 3.597)
Tekjuskattsskuldbinding ( 32) ( 635)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir ( 78) ( 1.532)
Gangvirði aðgreinanlegra yfirtekinna eigna
að frádregnum yfirteknum skuldum 212 4.123
Hlutdeild minnihluta 2 48
Viðskiptavild í samstæðu 113 2.218
Kaupverð skv. kaupsamningi 327 6.389
Umframverðmæti afhentra hluta í Högum á
afhendingardegi - fært á viðskiptavild - 203
Kaupverð - 6.592
Greiðsla kaupverðs var innt af hendi með eftirfarandi hætti:
Verðmæti afhentra hluta í Högum 1.385
Greitt með handbæru fé 5.207
Samtals 6.592

Gangvirði yfirtekinna eigna og skulda er í samræmi við bókfært verð hjá SMS að undanskildum fasteignum en þær hafa verið endurmetnar í reikningsskilum Haga. Að öðru leyti er stuðst við bókfært verð sem talið var endurspegla gangvirði á yfirtökudegi.

Viðskiptavild

Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur eða kaup er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins. Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir tekjuskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýrnunarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort virðisrýrnun sé til staðar.

Kostnaður vegna samruna

Heildarkostnaður vegna samrunans nam 142,1 millj. kr. Kostnaðurinn hefur allur verið gjaldfærður á fjárhagsárinu til hækkunar á öðrum rekstrarkostnaði.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

17. Hlutdeildarfélög

Hlutdeild félagsins í hlutdeildarfélögum greinist pannig:

Eignar-hlutur Bókfært í ársbyrjun Afkoma færð í rekstur Bókfært verð í árslok
Djús ehf., RVK 49% 167 14 181
Klasi ehf., RVK 33% 4.037 685 4.722
Eignarhlutur samtals 4.204 698 4.903

Eignarhlutur í Klasa ehf.

Hagar eru eigandi að 33,3% hlut í Klasa ehf. Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Eignarhlutur Haga í Klasa er 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Heima og KLS eignarhaldsfélags. Reikningskil Klasa ehf. eru gerð í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur og samkvæmt ársreikningi Klasa fyrir reikningsárið sem lauk 31. desember 2024 greinast helstu fjárhæðir pannig:

31.12.2024
Tekjur (100%) 444
Hagnaður (100%) 2.054
Fastafjármunir 18.745
Veltufjármunir 92
Langtímaskuldir ( 2.857)
Skammtímaskuldir ( 288)
Eigið fé (100%) 15.692
Hlutdeild í eigin fé 5.231
Frestaður sölühagnaður ( 509)
Eignarhlutur í árslok (33,3%) 4.722

18. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig: 28.2.2025 29.2.2024
Viðskiptakröfur 18 4
Fyrirframgreiddur kostnaður 0 15
Aðrar skammtímakröfur 178 92
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 196 111

Allar viðskiptakröfur félagsins eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda félagsins.

19. Handbært fé

Handbært fé greinist pannig: 28.2.2025 29.2.2024
Óbundnar bankainnstæður í ISK 232 32
Óbundnar bankainnistæður í erlendri mynt 0 0
Markaðsverðbréf 350 1.050
Handbært fé samtals 582 1.082

Allt handbært fé félagsins er veðsett vegna vaxtaberandi skulda félagsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milijónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

| 20. Eigïð fé
Hlutafé | 28.2.2025 | 29.2.2024 |
| --- | --- | --- |
| Hlutafé í ársbyrjun | 1.106 | 1.133 |
| Eigin bréf í ársbyrjun | ( 22) | ( 14) |
| Útistandandi hlutir í ársbyrjun | 1.084 | 1.119 |
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | 0 | ( 13) |
| Endurkaup á eigin bréfum | 0 | ( 22) |
| Afhending á eigin bréfum vegna samruna | 14 | 0 |
| Útistandandi hlutir í árslok | 1.098 | 1.084 |

Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 1.106 millj. kr. í upphafi og lok reikningsársins. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun sem samþykkt er á aðalfundi félagsins. Félagið á eigin hluti að nafnverði 8,1 millj. kr. í lok reikningsárs eða samtals 0,74% af útgefnu hlutafé.

Á aðalfundi Haga sem haldinn var þann 30. maí 2024 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Ekki voru keypt eigin bréf á árinu.

Lögbundinn varasjóður

Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 10% af hagnaði ársins og allt að 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem má ekki nota til að greiða hluthöfum arð.

Bundið eigið fé

Samkvæmt lögum nr. 3/2006 ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveði hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár. Á bundinn eiginfjárreikning er jafnframt færður áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga og þýðingarmunur sem samanstendur af gengismun sem verður til vegna umreiknings reikningsskila erlands dótturfélags í íslenskar krónur.

Bundið eigið fé greinist þannig: Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Bundinn eiginfjár-reikningur Bundið eigið fé samtals
Bundið eigið fé 1. mars 2023 283 6.974 33 7.290
Breyting á varasjóð ( 6) 0 0 ( 6)
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga 0 0 21 21
Breyting á hlutdeildarreikningi 0 1.623 0 1.623
Bundið eigið fé 29. febrúar 2024 277 8.597 54 8.928
Bundið eigið fé 1. mars 2024 277 8.597 54 8.928
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga 48 48
Uppgjör kaupréttarsamninga ( 19) ( 19)
Breyting á hlutdeildarreikningi 1.236 1.236
Þýðingarmunur ársins ( 9) ( 9)
Bundið eigið fé 28. febrúar 2025 277 9.824 83 10.184

Arðgreiðslur

Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 27. maí 2025 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2025 sem nemur 50,0% af hagnaði ársins eftir skatta, án áhrifa af matsbreytingum og afkomu hlutdeildarfélaga. Arðgreiðslutillagan nemur samtals 2.504 millj. kr. (2024: 2.475 millj. kr.) eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár (2024: 2,3 kr. á hlut).

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

20. Eigið fé, frh.:

Kaupréttarsamningar

Á hluthafafundi Haga þann 30. ágúst 2024 var samþykkt tillaga stjórnar um kaupréttarkerfi til handa lykilstarfsfólki í félaginu. Heimilt er að úthluta allt að 17.702.862 hlutum eða sem samsvarar 1,6% af hlutafé Haga þegar kaupréttarkerfið var samþykkt. Þátttakendur í kerfinu geta að hámarki átt rétt á kaupréttarsamningum sem nema 0,18% af hlutafé Haga við samþykkt kerfisins. Kaupréttarhafi ávinnur sér 1/3 hluta kaupréttarins í hvert sinn þegar 12, 24 eða 36 mánuðir eru liðnir frá úthlutun. Nýtingarverð skal samsvara dagslokagengi hlutabréfa í Högum, degi fyrir úthlutun, og skal það leiðrétt með 5,5% árlegum vöxtum (til hækkunar) og fyrir arðqreiðslum (til lækkunar).

Stjórn Haga hefur veitt kauprétti, á grundvelli hins nýja kaupréttarkerfis, fyrir samtals 16.568.615 hlutum í félaginu eða sem samsvarar 1,5% af hlutafé Haga en þar af hefur 11.037.686 hlutum verið úthlutað til framkvæmdastjórnar. Áfallinn og gjaldfærður kostnaður vegna nýju kaupréttarsamninganna á fjárhagsárinu nemur 31,5 millj. kr. og þar af 18,1 millj. kr. hjá móðurfélaginu en heildarkostnaður skv. reiknilikani Black&Scholes er áætlaður um 173 millj. kr. yfir líftíma samninganna.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Hagar hafa veitt starfsmönnum sínum, samkvæmt kaupréttarkerfum frá 2021 og 2024, nemur 27.524.861 hlutum eða um 2,5% hlutafjár í félaginu. Heildar áfallinn og gjaldfærður kostnaður vegna kaupréttarsamninga á fjárhagsárinu nemur 47,8 millj. kr. og þar af 23 millj. kr. hjá móðurfélaginu.

21. Vaxtaberandi skuldir

Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
28.2.2025 29.2.2024 28.2.2025 29.2.2024
Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar 9,10% 7,25% 5.132 5.094
Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 6.134 6.099
Skammtímaskuldir í DKK, óverðtryggðar 4,77% - 3.907 0
Vixilskuldir í ISK 8,64% 10,32% 1.440 2.880
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 16.613 14.073
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda (5.619) (5.639)
Langtímaskuldir samtals 10.994 8.434

Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 5.619 5.639
Afborganir eftir 1 til 2 ár 3.274 258
Afborganir eftir 2 til 3 ár 1.837 2.261
Afborganir eftir 3 til 4 ár 279 263
Afborganir eftir 4 til 5 ár 5.177 266
Afborganir síðar 427 5.386
Samtals 16.613 14.073

Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig:

Vaxtaberandi skuldir 1. mars 14.073 11.947
Ný lántaka langtímalána 2.560 2.000
Ný lántaka skammtímalána 3.890 0
Afborganir ársins (2.768) (266)
Breyting á vixilskuldum (1.440) 1.800
Breyting á lánalínu 0 (1.800)
Verðbætur 280 392
Gengismunur 18 0
Vaxtaberandi skuldir samtals 16.613 14.073

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

21. Vaxtaberandi skuldir, frh.:

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Stjórn Haga hf. samþykkti þann 23. nóvember 2022 útgáfuramma um útgáfu skuldabréfa og vívla að fjárhæð 10.000 millj. kr. Undanfarið hefur samstæðan nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vívlaútgáfu, í samræmi við útgáfurammann, auk útgáfu skuldabréfa.

Lánaskilmálar

Í lánaskilmálum félagins eru kvaðir um eftirfarandi fjárhagsleg skilyrði sem félagið þarf að uppfylla tvisvar sinnum á ári, eða strax í kjólfar birtingu ársreiknings og hálfsársuppgjørs.

Neðangreind skilyrði stóðust prófun í lok rekstrarárs.

Fjárhagslegir skilmálar langtímaskulda Verðtryggð Óverðtryggð
Bókfært verð 28.02.2025 6.134 4.560
Eiginfjárhlutfall að lágmarki 25% 25%
Vaxtapekja, ekki lægri en 2,0 -

22. Leiguskuldir

Leigueignir og leiguskuldir félagsins sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplýsingar um leigueignir má finna í skýringu 15, upplýsingar um greiðsluflæði í skýringu 25c og reikningsskilaðferðir í skýringu 29o.

Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 28.2.2025 28.2.2024
Leiguskuldir 1. mars 82 97
Nýir samningar 0 8
Afborgunarþáttur leigugreiðslna ( 33) ( 29)
Verðbætur 3 7
Aðrar breytingar samninga 1 ( 1)
Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 53 82
Næsta árs afborganir leiguskulda ( 32) ( 34)
Leiguskuldir til langtíma samtals 21 48

Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 32 34
Afborganir eftir 1 til 2 ár 21 29
Afborganir eftir 2 til 3 ár 0 19
Samtals 53 82
Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig: 2024/25 2023/24
--- --- ---
Vaxtagjöld á leiguskuldir 3 4
Afskrift leigueignar 32 30

Áhrif leigusamninga í sjóðstreymi greinast þannig:

Greitt vegna leigusamninga, afborganir og vextir 33 29

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

23. Tekjuskattsskuldbinding

Tekjuskattsskuldbinding greinist pannig á einstaka liði:

28.2.2025 29.2.2024
Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir ( 1.709) ( 1.534)
Leiguskuldbinding 255 198
Aðrir liðir 9 13
Tekjuskattsskuldbinding samtals ( 1.445) ( 1.323)

Tekjuskattur til greiðslu greinist pannig:

Tekjuskattur ársins til greiðslu 1.444 1.082
Fyrirframgreiddir skattar ( 202) ( 226)
Tekjuskattur ársins til greiðslu samtals 1.242 856

24. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig:

28.2.2025 29.2.2024
Tekjuskattur til greiðslu 1.242 856
Viðskiptaskuldir 335 181
Aðrar skammtímaskuldir 423 415
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 2.000 1.452

25. Stýring fjármálalegrar áhættu

a. Yfirlit

Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum félagsins:

  • Lánsáhætta
  • Lausafjáráhætta
  • Markaðsáhætta
  • Rekstraráhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu þess. Jafnframt eru veittar tölulegar upplýsingar viðar í ársreikningnum.

Stjórn félagsins ber ábyrgð á innleiðingu og eftirliti með fjármálalegri áhættu félagsins.

Markmið félagsins með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring félagsins og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi félagsins. Með starfsmannapjálfun og starfsreglum stefnir félagið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta félagsins ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Sambjöppunaráhætta félagsins er óveruleg og tengist að mestu öðrum fyrirtækjum í samstæðu Haga.

Félagið myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.

Í lok reikningsársins var lánsáhætta félagsins óveruleg.

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap félagsins vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:

Skýring 28.2.2025 29.2.2024
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 18 196 111
Handbært fé 19 582 1.082
Mesta mögulega tap vegna fjáreigna 778 1.193

c. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagsins.

Samningsbundnar greiðslur vegna fjárskulda, þar með taldar væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:

28. febrúar 2025 Bókfært verð Samnings-bundið sjóðsflæði Innan árs Eftir 1-5 ár Eftir meira en 5 ár
Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 10.479 11.878 5.990 5.289 599
Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 6.134 6.868 417 6.451 0
Leiguskuldir 53 55 33 22 0
Skuldir við tengda aðila 4.251 4.251 4.251 0 0
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 758 758 758 0 0
21.675 23.810 11.449 11.762 599
  1. febrúar 2024
Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 7.974 9.456 6.068 2.662 726
Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 6.099 7.274 409 1.589 5.276
Leiguskuldir 82 88 35 53 0
Skuldir við tengda aðila 3.847 3.847 3.847 0 0
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 596 596 596 0 0
18.598 21.261 10.955 4.304 6.002

Til viðbótar við samningsbundið sjóðsflæði þá nemur tekjuskattur til greiðslu 1.242 millj. kr. (2023/24: 856 millj. kr.).

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

25. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjármálagerninga. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlaáhætta vegna fjármálagerninga

Félagið býr við gengisáhættu vegna lántöku í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum (ISK). Sá gjaldmiðill sem einkum skapa gengisáhættu eru danskar krónur (DKK).

28. febrúar 2025

Vaxtaberandi skuldir 3.907
Áhætta í efnahagsreikningi 3.907

29. febrúar 2024

Vaxtaberandi skuldir 0
Áhætta í efnahagsreikningi 0

Næmnigreining

10% veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í febrúarlok hefði aukið (minnkað) eigið fé og afkomu eftir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir:

28.2.2025 29.2.2024
DKK 309 0
Samtals 309 0

10% styrking krónunnar gagnvart þessum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt.

Gjaldmiðlaáhætta vegna fjárfestinga í dótturfélagi

Félagið býr við gengisáhættu vegna fjárfestinga í dótturfélögum þar sem starfræksluggaldmiðill er annar en hjá móðurfélaginu. Gengismunur sem verður til vegna umreiknings reikningsskila erlenda dótturfélagsins P/F SMS í Færeyjum myndar þýðingarmun sem færður er beint á eigið fé, þar sem starfræksluggaldmiðill SMS er dónsk króna.

28.2.2025 29.2.2024
Eignahlutur í P/F SMS í Færeyjum - fjárfesting í DKK 6.767 0

Næmnigreining

10% veiking íslensku krónunnar gagnvart dónsku krónunni í febrúarlok hefði hækkað þýðingarmun (e. heildarhagnað) félagsins fyrir tekjuskatt um 0,9 millj. kr., að því gefnu að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. 10% styrking íslensku krónunnar gagnvart dónsku krónunni hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt.

Vaxtaáhætta

Í lok árs eru 31,7% langtímalána félagsins með breytilegum vöxtum (2023/24: 23,2%). Breyting í vöxtum skulda með breytilega vexti um 1% í lok reikningsárs myndu hækka (lækka) eigið fé og afkomu um 28 millj. kr. (2023/24: 21 millj. kr.) eftir tekjuskatt.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

25. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

e. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni af völdum margra þátta í starfseminní en þar ber helst að nefna ranga viðskiptastefnu, vinnu starfsfólks, tækni, ófullnægjandi eða gallaða innri ferla eða ytri atburða.

Til að draga úr rekstraráhættu hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar ber helst að nefna vinnu við stefnumótun og ítarlega greiningu á rekstrar- og samkeppnisumhverfi Haga, lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og samkeppnishæf laun, áhersla er á kostnaðargreiningar, áæltlanagerð, frávikagreiningar og uppgjör. Innleiddir hafa verið verkferlar á mórgum sviðum starfseminnar ásamt því að gerðar hafa verið umtalsverðar breytingar til hins betra í rekstri upplýsingatækni í félaginu, með traustari rekstri grunnkerfa, bættum og skjalfestum verkferlum og framþróun í stafrænum lausnum. Unnið hefur verið markvisst að netóryggismálum og hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í því samhengi.

1. Eiginfjárstýring

Það er stefna stjórnar að eiginfjárstaða félagsins sé sterk til að viðhalda trausti fjárfesta, lánastofnana og annarra markaðsaðila ásamt því að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins.

Stefna stjórnar félagsins er að greiða hluthöfum þess árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar síðasta rekstrarárs eftir skatta án áhrifa matsbreytinga og hlutdeildarfélaga. Forsendur fjárhæðar arðgreiðslu er að félagið viðhaldi fjárhagslegum styrk sínum og að arðgreiðslan taki mið af handbæru fé frá rekstri. Að auki mun félagið kaupa eigin bréf samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins. Þá stefnir stjórn Haga að því að eiginfjárhlutfall samstæðunnar verði um 35%.

26. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, dótturfélög, hlutdeildarfélög, lykilstjórnendur og stjórnarmenn.

Stjórn og lykilstjórnendur

Laun, hlunnindi og árangurstengd laun stjórnar og lykilstjórnenda og eignarhlutur í árslok að nafnverði greinast þannig:

2024/25
Laun Hlunnindi Árangurstengd laun Framlag í lífeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarform. .. 9,4 0,0 0,0 1,3 90,00
Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... 8,1 0,0 0,0 0,9 0,00
Davíð Harðarson, meðstj. ... 7,0 0,0 0,0 0,8 0,36
Jensína K. Böðvarsdóttir, meðstj. ... 6,9 0,0 0,0 0,8 0,06
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... 5,8 0,0 0,0 0,8 0,04
Finnur Oddsson, forstjóri ... 61,6 4,2 20,0 17,4 0,26

Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Tengdir aðilar, frh.: 2023/24
Laun Hlunnindi Árangurs-tengd laun Framlag í lifeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Davíð Harðarson, stjórnarformaður ... 10,2 0,0 0,0 1,2 0,36
Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... 7,8 0,0 0,0 0,9 0,00
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstj. ... 5,7 0,0 0,0 0,8 86,00
Jensína K. Böðvarsdóttir, meðstj. ... 6,7 0,0 0,0 0,8 0,06
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... 5,7 0,0 0,0 0,8 0,04
Finnur Oddsson, forstjóri ... 56,8 3,2 18,0 15,6 0,26

Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

2024/25 2023/24
Kynjahlutfall lykilstjórnenda í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) ... 75/25 75/25

Dótturfélög

Dótturfélög Haga hf. voru sex í upphafi reikningsárs en átta í lok reikningsárs. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
28.2.2025 29.2.2024
Hagar verslanir ehf. ... Ísland 100% 100%
Olís ehf. ... Ísland 100% 100%
Bananar ehf. ... Ísland 100% 100%
Noron ehf. ... Ísland 100% 100%
Stórkaup ehf. ... Ísland 100% 100%
Eldum rétt ehf. ... Ísland 100% 100%
Hagar Wine B.V. ... Holland 100% 0%
P/F SMS ... Færeyjar 100% 0%

Félagið á í viðskiptum við félög innan samstæðu Haga og eru þau viðskipti gerð á armslengdar kjörum.

Viðskipti við dótturfélög

Viðskipti við tengda aðila greinast þannig: 2024/25 2023/24

Í rekstrarreikningi eru eftirfarandi rekstrartekjur frá dótturfélögum ... 1.882 1.706
Í efnahagsreikningi eru eftirfarandi viðskiptastöður við dótturfélög ... ( 4.251) 3.847)
Í sjóðstreymisyfirli eru eftirfarandi arðstekjur frá dótturfélögum ... 5.457 4.154

Viðskipti við hlutdeildarfélög

Viðskipti við hlutdeildarfélög eru óveruleg.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrjar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

27. Önnur mál

Í tilkynningu frá Högum, þann 3. desember 2024, var greint frá því að óskuldbindandi tilboð hefðu borist í eignarhlut Olís, dótturfélags Haga, í Olíudreifingu ehf. (ODR). Í kjölfarið var þremur aðilum veittur frekari aðgangur að gögnum og boðið að skila inn uppfærðum óskuldbindandi tilboðum. Allir þrír aðilar skiluðu uppfærðum tilboðum í 40% eignarhlut Olís í ODR. Tilboðin reyndust vera undir væntingum Haga um virði félagsins og var því tilkynnt þann 30. apríl 2025 að ákveðið hafi verið að hætta söluferli á eignarhlutunum.

Með bréfi, dagsett 20. mars 2025, tilkynnti Samkeppniseftirlitið Högum um ákvörðun sína um að hefja rannsókn sem miðar að því að ganga úr skugga um hvort skilyrðum sáttar sem Hagar gerðu við Samkeppniseftirlitið árið 2018, í tilefni af kaupum félagsins á Olís, hafi verið fylgt. Samkeppniseftirlitið óskaði með bréfinu eftir nánari upplýsingum og gögnum frá félaginu sem nú er unnið að því að svara. Hagar munu mótmæla því að verklagi við innleiðingu sáttarskilyrða hafi verið ábótavant en rík áhersla hefur verið lögð á rétta innleiðingu sáttarinnar frá samruna Haga og Olís í lok árs 2018. Óvissa er um mögulega niðurstöðu rannsóknarinnar á þessari stundu.

28. Kennitölur

Helstu kennitölur félagsins eru eftirfarandi:

28.2.2025 29.2.2024
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,07 0,11
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 60,8% 58,9%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 34,40 26,00

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna 33


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum. Þeir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2024 hafa ekki veruleg áhrif á reikningsskil félagsins, sjá nánar í skýringu 29r.

Til að auka upplýsingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

a. Tekjur

Veitt þjónusta/aðrar tekjur

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning samkvæmt samningi þegar þjónustan hefur verið veitt. Aðrar rekstrartekjur félagsins eru leigutekjur fasteigna, aðstöðuleiga, hagnaður af sölu eigna o.fl. Langstærstur hluti rekstrartekna félagsins kemur frá öðrum fyrirtækjum í samstæðu Haga. Greiðsluskilmálar eru hefðbundnir.

b. Skilgreining á lykilkennitölum og hugtökum

EBITDA ... Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði, áhrif hlutdeildarfélaga og tekjuskatt.

Ávöxtunarkrafa ... Vegið meðaltal reiknaðra vaxta af lánsfé og eigin fé.

c. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi. Aðrar eignir og skuldir, sem metnar eru á gangvirði í erlendri mynt, eru færðar á því gengi sem var í gildi þegar gangvirði þeirra var ákvarðað.

d. Hlunnindi starfsmanna

Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði

Félagið greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Félagið ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikningi meðal launa og launatengdra gjalda eftir því sem þau falla til.

e. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjárfestingum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar á skuldbindingum, virðisrýrnun fjáreigna og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Lántökukostnaður er færður í rekstrarreikning miðað við virka vexti. Félagið eignfærir ekki vaxtagjöld af lánum.

Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman og fært sem annað hvort fjármunatekjur eða fjármagnsgjöld sem fer eftir hvort gengismunahreyfingar skila sér í hagnaði eða tapi.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna 34


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

f. Tekjuskattur

Tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.

Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókéfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna skattalegs tímabundins mismunar sem er tilkominn vegna upphaflegrar skráningar á viðskiptavild.

Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Skatteign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.

Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteignin er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

g. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila hagnaði ársins, sem úthlutað er til hluthafa félagsins, með vegnu meðaltali útistandandi hlutafjár yfir árið. Þynntur hagnaður á hlut er ákvarðaður með því að leiðréttig fjölda virkra hluta fyrir mögulegri þynningu vegna hluta sem gæti þurft að gefa út vegna kaupréttta starfsmanna.

h. Rekstrarfjármunir

Færsla og mat

Rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Keyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur til að unnt sé að nýta vélbúnað er eignfærður sem hluti af þeim tækjabúnaði.

Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bókéfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekná og sölutap meðal annars rekstrarkostnaðar.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milijónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

h. Rekstrarfjármunir, frh.:

Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna og færðar í rekstrarreikning.

Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir ... 50 ár
Áhöld og innréttingar ... 3-14 ár

Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjørsdegi.

i. Fjárfestingarfasteignir

Færsla og mat

Félagið leigir út fasteignir eða hluta fasteigna með tilheyrandi innréttingum og tækjum til lengri eða skemmri tíma þegar slík notkun á húsnæði er hagkvæm eða fellur vel að öðrum rekstri hennar. Fasteignir til leigu geta verið nýjar eða verið endurflokkaðar af fasta fjármunum til eigin nota. Endurflokkun á sér stað yfir á fjárfestingarfasteignir þegar leiga hefur verið samþykkt og er færð til baka ef eignirnar eru aftur teknar til eigin nota.

Fjárfestingarfasteignir félagsins eru bókfærðar á gangvirði á reikningsskiladegi. Matsbreyting fjárfestingarfasteigna er færð í rekstrarreikning á því tímabili sem matsbreytingin á sér stað. Fjárfestingarfasteignir eru ekki afskrifaðar. Gangvirðisbreytingar eru sérgreindar í rekstrarreikningi en leigutekjur færðar sem aðrar rekstrartekjur. Endurflokkun af eða á fasta fjármuni til eigin nota er á bókfærðu kostnaðarverði á þeim tíma.

Hagnaður eða tap af sölu fjárfestingarfasteigna er munurinn á sölverði og bókfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekna og sölutap fært meðal annars rekstrarkosntaðar.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta fjárfestinga er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

j. Öefnislegar eignir

Viðskiptavild

Viðskiptavild verður til við yfirtöku á rekstrareiningum og er færð á meðal óefnislegra eigna. Viðskiptavild vegna kaupa á dótturfélögum er innifalin í bókfærðu verði dótturfélaga.

Viðskiptavild er mismunur á kostnaði við yfirtöku eða kaupum félags og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda.

Síðara mat

Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.

Aðrar óefnislegar eignir

Aðrar óefnislegar eignir eru hugbúnaður með takmarkaðan líftíma og eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður sem fellur til síðar er aðeins eignfærður ef hann eykur væntan framtiðarávinning þeirrar eignar sem hann tengist. Allur annar kostnaður, að meðtöldum þeim sem myndar viðskiptavild og vörumerki innan fyrirtækisins, er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann fellur til.

Afskriftir

Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áætlæðan nýtingartíma þeirra. Áætlæður nýtingartími greinist þannig:

Hugbúnaður ... 5-12 ár

k. Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem félagið fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni.

Eignarhlutir í dótturfélögum eru færðir til eignar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Samkvæmt hlutdeildaraðferð er hlutdeild í hagnaði og tapi dótturfélaga eftir kaup færð í rekstrarreikning. Uppsöfnuð áhrif eftir kaup koma fram í bókfærðu verði eignarhluta í dótturfélögum. Hætt er að taka tillit til hlutdeildar í tapi dótturfélags þegar bókfært verð er núll. Móttekinn arður frá dótturfélögum er færður til lækkunar á fjárfestingu í dótturfélagi. Innafalið í bókfærðu verði eignarhlutanna er viðskiptavild sem myndáðist við upphaffleg kaup viðkomandi dótturfélags.

Kaup á dótturfélögum

Kaupaðferð í reikningshaldi er notuð við færslu kaupa samstæðunnar á dótturfélögum. Kaupverð er metið sem gangvirði tilgreindra eigna sem látnar eru af hendi, útgefinna eiginfjárgerninga og skulda sem stofnað er til eða teknar eru yfir á viðskiptadegi, auk kostnaðar sem rekja má beint til yfirtökunnar. Aðgreinanlegar eignir og skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á yfirtökudegi, án tillits til hversu mikil hlutdeild minnihluta er. Sú fjárhæð kaupverð sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í yfirteknum aðgreinanlegum hreinum eignum er skráð sem viðskiptavild.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

I. Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Ársreikningurinn inniheldur hlutdeild félagsins í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga frá upphafi áhrifa til loka þeirra. Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins er bókfærða verðið fært í nüll og færslu frekara taps hætt, nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir hlutdeildarfélagið eða fjármagnað það.

Eignarhlutir í hludeildarfélögum eru eignfærðir á verði sem svarar til hlutdeildar félagsins í bókfærðu eigin fé þeirra.

m. Önnur félög

Eignahlutir í öðrum félögum, þar sem félagið á minna en 20% hlutafjár, eru færðir á kostnaðarverði sem talið er að endurspegli gangvirði. Arður frá þessum félögum er færður til tekna meðal fjármagnstekna þegar honum er úthlutað.

n. Fjármálagerningar

Fjáreignir

Skuldabréf, viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanalegum greiðslum sem eru ekki skráðar á virkum markaði. Slikar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.

Markaðverðbréf, sjóður og óbundnar bankainnstæður teljast til handbærs fjár.

Virðisrýrnun fjáreigna

Á hverjum uppgjørsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign telst vera virðisrýrð ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem átt hafa sér stað benda til þess að vænt framtiðarsjóðstreymi eignarinnar verði lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunur á bókfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtiðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar.

Fjárskuldir

Fjárskuldir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Fjáreignum og fjárskuldum er jafnað saman og nettó fjárhæð sýnd í efnahagsreikningi þegar lagalegur réttur er til staðar um jöfnun og fyrirhugað er að gera upp með jöfnun fjáreigna og fjárskulda eða innleysa eignina og greiða skuldina á sama tíma.

o. Leigusamningar

Við upphaf samnings leggur félagið mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér rétt til yfirráða tiltekinnar eignar á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér yfirráð tiltekinnar eignar notar félagið skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.

Félagið sem leigutaki

Allir leigusamningar félagsins eru um fasteignir og þá hefur félagið kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milijónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

29. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

o. Leigusamningar, frh.:

Félagið færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leigueignarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir að á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguivilnunum sem félagið hefur fengið.

Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til félagsins í lok leigutímabilins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að félagið muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastaðjármuni félagsins. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.

Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar félagið þá vexti sem það fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar félagið vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.

Leigugreiðslur sem eru innifaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér fastar leigugreiðslur og breytilegar leigugreiðslur tengdar vísitölu.

Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati félagsins á fjárhæð sem hún væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef félagið breytir mati sínu á því hvort hún muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.

Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókéfærðu verði leigueignarinnar, eða leiðrétting færð í rekstrarreikning félagsins ef bókéfærð virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núl.

Leigueignir eru sérgreindar í efnahagsreikningi meðal fastaðjármuna. Leiguskuldir eru sérgreindar í efnahagsreikningi og skipt í langtíma- og skammtímahluta skulda. Afskriftir af leigueignum eru í rekstrarreikningi undir afskriftum og vaxtagjöld af leiguskuldum eru í rekstrarreikningi undir fjármagnsgjöldum.

Félagið sem leigusali

Félagið leigir fasteignir og færir leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga línulega yfir leigutímabilið meðal annarra tekna í rekstrarreikningi.

p. Hlutafé

Almennt hlutafé

Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður við útgáfu hlutafjár, að frádregnum skattaáhrifum, og beinn kostnaður við útgáfu kaupréttarsamninga er færður til lækkunar á eigin fé.

Kaup á eigin hlutum

Þegar eigin hlutir eru keyptir er fjárhæð kaupverðsins, að meðtöldum beinum kostnaði að frádregnum skattaáhrifum, færð sem lækkun á eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir eða gefnir út aftur er fjárhæð söluverðsins færð til hækkunar á eigin fé. Hagnaði eða tapi sem fellur til við sölna er bætt við eða dregið frá yfirverðsreikningi hlutafjár. Á reikningskilaárinu 2022/2023 var yfirverðsreikningur færður niður í 0 eftir viðskipti félagsins með eigin hluti og því er hagnaður sem fellur til við sölu á eigin hlutum færður á óráðstafað eigið fé upp að því marki sem áður var fært til lækkunar.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milljónum króna
39


SKÝRINGAR, FRH.:

27. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

q. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar félagið ber lagalega eða ætlaða skyldu vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstregmi með vöxtum fyrir tekjuskatt sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.

r. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir

Endurbætur sem tóku gildi þann 1. janúar 2024:

Félagið hefur innleitt alþjóðlega reikningsskilastaðla, (IFRS, IAS) eins og þeir eru samþykktir af Evrópusambandinu í lok árs 2024, breytingar á þeim og nýjar túlkanir. Innleiðing þessara breytinga hafa ekki veruleg áhrif á ársreikninginn. Eftirfarandi endurbætur tóku gildi þann 1. janúar 2024:

Breyting á IAS 1 Flokkun skulda sem skammtímaskuldir eða langtímaskuldir og langtímaskuldir með lánaskilmálum.
Breyting á IAS 7 og IFRS 7 Fjármögnun í gegnum birgja.
Breyting á IFRS 16 Breyting á meðferð á leiguskuld í gjörningi sem innifelur sölu eigna samhliða leigu á sömu eign.

Nokkrar breytingar á reikningsskilastöðlum hafa verið gerðar sem hafa ekki tekið gildi fyrir reikningsskil 31. desember 2024 og hafa ekki verið innleidd fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila. Samstæðan hefur ekki innleitt nýja eða endurbætta staðla sem hafa verið gefnir út en ekki tekið gildi. Það er mat stjórnenda að innleiðing þeirra muni ekki hafa veruleg áhrif á samstæðuársreikninginn.

Það er mat stjórnenda að innleiðing IFRS 18 Framsetning og skýringar í reikningsskilum sem tekur gildi 1. janúar 2027 muni hafa áhrif á framsetningu upplýsinga í reikningsskilunum án þess að hafa áhrif á reikningshaldslegt mat eigna og skulda. Unnið er að undirbúningi við innleiðingu staðalsins en endanleg áhrif liggja ekki fyrir. Evrópusambandið hefur ekki staðfest innleiðingu á IFRS 18 að svo stöddu, en búist er við staðfestingu fyrir gildistökudag staðalsins. Þá er það jafnframt mat stjórnenda að innleiðing annarra staðla eða endurbóta á stöðlum í útgáfu sem ekki hafa tekið gildi muni hafa engin eða óveruleg áhrif á reikningsskilín.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING (ÓENDURSKODAB)

1. Hlutafélagið Hagar hf.

Hagar eru fjölskylda af fyrirtækjum með starfsemi á Íslandi, Hollandi og í Færeyjum en félagið starfar einkum á matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Öll fyrirtæki Haga hafa það markmið að veita framúrskarandi þjónustu, selja gæða vörur á sanngjörnu verði og hafa um leið eins jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mögulegt er. Gildi Haga endurspegla þessi leiðarljós í rekstrinum en þau eru þjónustulund, samvinna, hagkvæmni og framsækni.

1.1 Fylgni við leiðbeiningar um stjórnarhætti, lög og reglur

Stjórnarhættir Haga eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru samþykktar af stjórn þann 22. mars 2024, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru samþykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í samþykktum. Gildandi starfskjarastefna Haga var staðfest á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024, en hún nær til allra helstu þátta í starfs- og launakjörum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 27. maí 2025.

Helstu lög sem gilda um starfsemi Haga eru lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um ársreikninga nr. 3/2006, samkeppnislög nr. 44/2005, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, lög um aðgerðir gegin markaðssvikum nr. 60/2021 og lög um tekjuskatt nr. 90/2003. Þá tryggja Hagar öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með í starfseminni, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lögin eru aðgengileg á vef Alþingis, www.althingi.is.

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulifsins, sem félaginu ber að fylgja sem útgefanda skráðra verðbréfa. Leiðbeiningarnar má finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is og á www.leidbeiningar.is.

Hagar birta reglur og annað efni sem Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja gera ráð fyrir að félög birti á vefsíðu sinni á sérstöku svæði fyrir fjárfesta á vef félagsins, www.hagar.is. Þar má meðal annars finna starfsreglur stjórnar og undirnefnda, starfskjarastefnu og arðgreiðslustefnu. Yfirlýsing þessi er einnig aðgengileg á vef félagsins, auk þess sem hún er birt í ársreikningi og í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess, sem hittast á hluthafafundum að minnsta kosti einu sinni á ári. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq CSD, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins. Fundargerðir hluthafafunda, sem haldnir hafa verið eftir að hlutir félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins innan sjö daga frá hluthafafundi.

1.2 Frávik frá leiðbeiningum um stjórnarhætti

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera að fullu leyti í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, og telur stjórn félagsins að hvergi sé vikið frá leiðbeiningunum.

1.3 Tilvisanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir

Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is.

Arðgreiðslustefna

Stjórn Haga hefur markað félaginu þá stefnu að skila til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins. Arðgreiðslustefnan er endurskoðuð árlega og var síðast breytt þann 21. mars 2025.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

1.3 Tilvisanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:

Jafnréttis- og mannréttindastefna

Í mars 2024 endurskoðaði stjórn Haga jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins og sambykkti hana með breytingum en stefnan byggir á lögum nr. 150/2020. Markmið stefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan félagsins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kyni, uppruna, þjóðerni, litarhætti o.s.frv. Stefnuna skal endurskoða minnst á þriggja ára fresti.

Öll dótturfélög Haga á Íslandi hafa lokið jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem lögfest var í júní 2017, og hafa þau innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun. Móðurfélag Haga hefur lokið jafnlauinastaðfestingu.

Persónuverndarstefna

Hagar hafa einsett sér að vinna með persónuupplýsingar í hvívetna í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og hafa því til staðfestingar sett félaginu persónuverndarstefnu sem síðast var breytt og sambykkt á stjórnarfundi þann 24. mars 2023.

Reglur um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda

Markmið reglna um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda er að tryggja örugga meðferð innherjaupplysinga og hindra að innherjaupplysingar berist til annarra en þeirra sem þarfnast þeirra starfs síns vegna. Reglunum er ætlað að stuðla að því að viðskipti stjórnenda séu í samræmi við lög og reglur sem um málaflokkinn gilda og að slík viðskipti séu trúverðug. Reglurnar hafa einnig það að markmiði að stuðla að auknu jafnræði meðal fjárfesta þannig að þeir hafi jafnan aðgang að nýjustu upplýsingum, er máli skipta, á hverjum tíma. Stjórn sambykkti reglurnar þann 7. september 2023 og skulu þær endurskoðaðar að lágmarki á tveggja ára fresti.

Reglur um vernd uppljóstrara

Markmið laga um vernd uppljóstrara, nr. 40/2020, er að stuðla að því upplýst verði um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi og þannig dregið úr slíku hátterni. Reglum um vernd uppljóstrara er ætlað að koma á skilvirku úræði til að koma upplýsingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í fór með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila. Stjórn Haga sambykkti reglurnar þann 22. mars 2024.

Samkeppnisstefna

Samkeppnisstefna Haga var sambykkt á aðalfundi félagsins í júní 2019. Í stefnunni er kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sátt Haga við Samkeppniseftirlitið frá 2018 og skyldur samkvæmt samkeppnislögum. Jafnframt felur stefnan í sér hátternisreglur fyrir hluthafa Haga.

Síðareglur

Stjórn Haga hefur sett félaginu síðareglur en þær gilda um stjórn Haga og allt starfsfólk félagsins og dótturfélaga þess. Síðareglurnar eru endurskoðaðar árlega og var þeim síðast breytt á stjórnarfundi þann 7. apríl 2022.

Sjálfbærni- og umhverfisstefna

Stjórn Haga hefur sett félaginu sjálfbærnistefnu sem endurskoðað var á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Hagar hafa alla tíð lagt metnað sinn í að þjóna íslenskum neytendum með ábyrgum hætti. Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara samfélags og umhverfis, samhliða heilbrigðum rekstri. Sjálfbærnistefnan byggir á fjórum meginstöðum; umhverfi, mannaður, neytendur og stjórnarhættir. Þá hafa Hagar valið sjö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í framkvæmdaráætlun stefnunnar.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

1.3 Tilvisanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:

Stjórn Haga hefur einnig sett félaginu umhverfisstefnu en stefnan var endurskoðuð á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Umhverfisstefna Haga og dótturfélaga er sett fram með það að leiðarljósi að leggja áherslu á mikilvægi umhverfissjónarmiða í daglegri starfsemi félagsins. Meginmarkmiðið er að félagið leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og styðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Umhverfisstefnan byggir á fjórum meginstoðum; loftslagsmál, hringrásarhagkerfi, mengun og líffræðileg fjölbreytni.

Hagar og rekstrareiningar þess hafa frá árinu 2019 birt sjálfbærniupplýsingar í samræmi við viðurkennda staðla. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um sjálfbærni og bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulifs um loftslagsmál og grænar lausnir.

Starfsemi Haga fellur undir ákvæði ársreikningalaga um ófjárhagslega upplýsingagjóf en þar eru settar fram upplýsingar til að hægt sé að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfismál, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum. Starfsemi Haga fellur einnig undir gildissvið flokkunarreglugerðar ESB en reglugerðin skilgreinir viðmið sem ákvarða hvort atvinnustarfsemi uppfylli skilyrði þess að teljast umhverfislega sjálfbær. Þá hefur CSRD tilskipunin um skýrslugjóf á sviði sjálfbærni tekið gildi innan Evrópusambandsins. Tilskipuninni fylgja efnismiklir uppgjörstaðlar (ESRS), sem segja til um hvernig fyrirtæki eiga að haga birtingu á sjálfbærniupplýsingum. Ekki er orðið fulljóst hvenær tilskipunin tekur gildi hér á landi, en undirbúningur fyrir birtingu sjálfbærniupplýsinga í samræmi við umrædda ESRS staðla er þegar hafin innan Haga. Ófjárhagslegar upplýsingar Haga má finna í sérstökum viðauka í ársreikningi samstæðu Haga.

Skattastefna

Stjórn Haga hefur sett félaginu skattastefnu sem endurskoðuð var þann 21. mars 2025. Tilgangur skattastefnu er að marka stefnu og miðla því hvernig félagið hagar skattamálum samstæðunnar í samræmdu og samkeppnishæfu skattaumhverfi. Skattastefnan veitir leiðbeiningar um stjórnun skattamála og skattaáhættu sem tengjast rekstri samstæðunnar, reglufylgni og samskipti við skattayfirvöld.

Stefna um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka

Í janúar 2024 lauk félagið uppfærslu á áhættumati samstæðunnar vegna aðgerða gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Í kjölfarið samþykkti stjórn, þann 11. janúar 2024, stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútuþægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í för með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.

Upplýsingastefna

Stjórn Haga hefur mótað sér stefnu um birtingu upplýsinga. Markmið upplýsingastefnunnar er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum, tímanlegum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi félagsins á hverjum tíma, í samræmi við lög og reglur sem félaginu ber að fylgja sem útgefandi skráðra verðbréfa. Upplýsingastefnan var síðast endurskoðuð þann 21. mars 2025.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

2. Innra eftirlit og áhættustjórnun

2.1 Innra eftirlit og áhættustýring

Félagið kappkostar að hafa fullnægjandi innra eftirlit á hinum ýmsu sviðum. Innra eftirlit Haga felst í eftirliti með starfsemi félagsins í því skyni að fyrirbyggja og greina hugsanleg mistök og sviksemi birgja, starfsmanna og viðskiptavina félagsins. Félagið hefur lagt áherslu á að efla eftirlit og auka öryggisráðstafanir. Hjá Högum er m.a. í þessu skyni starfrækt sérstök öryggisdeild sem hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki í eftirliti með öllu sem viðkemur rekstri verslana félagsins. Einnig er starfandi á aðalskrifstofu Haga starfsmaður sem hefur innra eftirlit að sínu aðalstarfi og heyrir hann undir forstjóra félagsins. Hlutverk innra eftirlits og öryggisdeildar Haga er að hafa eftirlit með því að viðeigandi verklagsreglum sé fylgt í daglegum rekstri félagsins. Í því skyni er m.a. beitt sérhæfðum upplýsingakerfum. Stjórn Haga hefur falið endurskoðunarnefnd að hafa vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Þá hefur stjórn félagsins skilgreint áhættupætti í rekstri Haga og miðast áhættustýringin að því að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Markvisst er unnið að netöryggismálum og verkefnum sem tryggja rekstraröryggi í samstæðunni til framtíðar, með traustari rekstri grunnkerfa, bættum og skjalfestum verkferlum ásamt framþróun í stafrænum lausnum.

2.2 Ytri endurskoðun

Endurskoðendur félagsins eru kosnir til eins árs í senn á aðalfundi. Endurskoðendur Haga eða aðilar þeim tengdir mega ekki eiga hlutabréf í félaginu. Endurskoðendur skulu endurskoða reikningsskil félagsins á grundvelli alþjóðlegra endurskoðunarstaðla. Þeir gera ýmsar kannanir á bókhaldi félagsins og hafa ávallt óhindraðan aðgang að bókhaldi og öllum gögnum félaga í samstæðu Haga. Stjórn félagsins og endurskoðunarnefnd fær árlega í hendur sérstaka endurskoðunarskýrslu frá endurskoðendum þess þar sem fram koma helstu athugasemdir þeirra við reikningsskilín.

Endurskoðandi Haga er PricewaterhouseCoopers ehf. Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi, ber ábyrgð á endurskoðun félagsins fyrir hönd PricewaterhouseCoopers ehf.

2.3 Regluvarsla

Stjórn félagsins hefur skipað regluvörð þess. Hlutverk regluvarðar er m.a. að hafa umsjón með því að lögum um aðgerðir gegn markaðsvikum og reglugerð MAR sé fylgt í starfsemi félagsins. Regluvörður félagsins er Guðrún Eva Gunnarsdóttir og staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.

3. Stefna um fjölbreytileika

Stefnu um fjölbreytileika er lýst í gildandi jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins, sbr. umfjöllun í gr. 1.3. hér að framan en tilgangur stefnunnar er m.a. sá að stuðla að því að hlutur kynjanna verði eins jafn og unnt er í stjórnunar- og áhrifastöðum, auk þess sem stefnan miðar að jöfnum réttindum og sömu tækifærum einstaklinga í starfi. Þá er viðar í stjórnarháttum Haga tekið á málaflokknum en í samþykktum félagsins er m.a. kveðið á um að tryggja beri að hlutfall hvors kyns í stjórn félagsins sé ekki lægra en 40%, í samræmi við lög um kynjakvóta í stjórnum. Tilnefningarnefnd hefur verið skipuð af hluthöfum félagsins og ber henni skv. starfsreglum m.a. að huga vel að samsetningu stjórnar, fjölbreytni og kynjahlutföllum og starfar hún auk þess eftir leiðbeiningum um stjórnarhætti. Nánar er fjallað um tilnefningarnefnd Haga í 7. gr. leiðbeininga þessara.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

4. Stjórn Haga

4.1 Samsetning og starfsemi stjórnar

Stjórn Haga hf. fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórnin var kjörin á aðalfundi þann 30. maí 2024. Stjórnina skipa Eiríkur S. Jóhannsson (formaður), Eva Bryndís Helgadóttir (varaformaður), Davíð Harðarson, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Sigríður Olgeirsdóttir. Stjórnarmenn hafa lagt fram persónulegar upplýsingar, svo sem um trúnaðarstörf fyrir aðra aðila, stjórnarsetu í öðrum félögum og möguleg hagsmunatengsl til að auðvelda mat á hæfi þeirra. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess. Samsetning stjórnar uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta sem tóku gildi 1. september 2013. Nánari upplýsingar um stjórn félagsins má finna í gr. 4.2. í yfirlýsinqu þessari.

Stjórn félagsins hefur sett sér særstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega og voru gildandi starfsreglur samþykktar af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar taka mið af fyrirmælum sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá 11. september 2018. Í starfsreglunum er meðal annars kveðið á um störf stjórnarinnar, ábyrgð hennar og verkaskiptingu. Sérstaklega er fjallað um skyldur formanns stjórnar í reglunum, en þar er hvorki getið um að stjórn útbúi sérstaka starfslysingu fyrir formann né aðra stjórnarmenn. Samkvæmt starfsreglunum kýs stjórn sér formann og varaformann á fyrsta fundi. Ekki er kjörö til annarra embætta. Samkvæmt starfsreglunum ber stjórn að hittast a.m.k. einu sinni á ári án formanns til að meta frammistöðu hans. Henni ber einnig að meta árlega sín eigin störf, störf forstjóra og undirnefnda. Árangursmat stjórnar (sjálfsmatíð) er lagt til grundvallar til að bæta störf stjórnar enn frekar á komandi starfsári. Hvorki stjórnarmenn né forstjóri mega taka þátt í ákvörðunum þar sem þeir sjálfir hafa verulegra hagsmuna að gæta.

Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á aðalskrifstofu Haga hf., mánaðarlega hið minnsta. Árlega er samþykkt fundaáætlun ár fram í tímann. Fundina sitja, auk stjórnarmanna, forstjóri, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar, og framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjör í stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn skal atkvæði formanns ráða. Fundargerðir stjórnarfunda ritar framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Fundargerðir eru afhentar stjórnarmönnum á stjórnarvef innan nokkurra daga frá fundi og eru þær staðfestar á næsta stjórnarfundi á eftir.

Starfsárið 2024-2025, þ.e. tímabilið milli aðalfunda, hafa verið haldnir 16 stjórnarfundir og eru áætláðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Meirihluti stjórnar var mættur í öllum tilfellum. Stjórnarmenn voru í einhverjum tilvikum viðstaddir fund í gegnum fjarskiptabúnað.

4.2 Stjórn Haga

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur er forstjóri Kaldbaks ehf. Þar áður var Eiríkur forstjóri Slíppsins á Akureyri 2015 til loka árs 2021 ásamt því að sinna starfi stjórnarformanns Samherja, en því starfi sinnti hann 2005-2023. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og vann fyrir skilanefnd bankans til 2014. Þar áður var hann forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur á að baki stjórnarsetu í ýmsum félögum á Íslandi sem og erlendis. Eiríkur er í dag stjórnarformaður Optimar AS og Knattspyrnufélags Akureyrar auk félaga innan samstæðu Kaldbaks, einnig er hann varaformaður stjórnar Jarðborana. Hann er í stjórn Hrólfsskers ehf., auk fjölskyldutengdra félaga. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Kaldbaki ehf. sem á 90.000.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisáðila.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

4.2 Stjórn Haga, frh.:

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva er varaformaður stjórnar. Hún var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMG slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvislegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. auk þess sem hún hefur setið í stjórn Víðskiptaráðs Íslands frá árinu 2022. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc- gráðu í fjármálum frá University of Florida, Cand.Oecon- gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem aðstoðar forstjóri Travel Connect hf. Hann var fjármálastjóri Travel Connect frá 2017-2024 og forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016, fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016 og verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland 2009-2013. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Nordic Visitor ehf., Travel Connect hf., Terra Nova ehf., Iceland Travel ehf., Corivo ehf., Iceland Unlimited ehf., WAYWF ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 356.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína hefur verið framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf. frá 2020. Áður var hún Associate Partner hjá Valcon consulting frá 2019 – 2020. Jensína var framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannaðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sölu á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (síðar Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og Vinnvinn ehf. og er auk þess stjórnarformaður hjá Sunnuvegi 13 ehf. Jensína er formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Jensína á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengd Sunnuvegi 13 ehf. sem á 60.000 hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960)

Sigríður var kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. júní 2022. Hún er með AMP gráðu frá Harvard Business School, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, rekstar- og viðskiptanám hjá Endurmenntun HÍ og kerfisfræði frá EDB-skolen í Danmörku. Sigríður hefur verið stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum og Íslandsbanka. Var sviðsstjóri þjónustu hjá Völku ehf. 2019-2021, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka 2010-2019, sjálfstætt starfandi og í stjórnarstörfum 2008-2010, forstjóri Humac ehf. (Apple umboðið á Íslandi auk 4 dótturfélaga á Norðurlöndunum) 2007-2008, framkvæmdastjóri Skipta/Símans 2006-2007 og áður framkvæmdastjóri hjá Ax hugbúnaðarhúsi, Ax Business Intelligence AS og Tæknival hf. Sigríður er stjórnarformaður Nova og DTE ehf., stjórnarmaður og meðeigandi Magnavita ehf. og situr í tilnefningarnefnd Sjóvá. Sigríður á 35.000 hluti í Högum hf. Engir aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

4.3 Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar

Bein samskipti hluthafa við stjórn skulu vera við formann stjórnar. Stjórn félagsins skal upplýst um tillögur, spurningar eða athugasemdir hluthafa utan hluthafafunda til stjórnar og stjórn félagsins skal hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim. Hluthafar geta komið tillögum, fyrirspurnum og athugasemdum á framfæri við stjórn félagsins í gegnum netfangið stjó[email protected]. Allir stjórnarmenn fá sjálfkrafa afrit af tölvupóstum sem berast á netfang stjórnar.

5. Framkvæmdastjórn Haga

5.1 Forstjóri Haga

Forstjóri er ráðinn af stjórn og ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar, lög, sambykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Starfslýsing forstjóra kemur fram í ráðningarsamningi hans.

Forstjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Forstjóri kemur fram fyrir hönd félagsins í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.

Forstjóri Haga hf. er Finnur Oddsson. Staðgengill forstjóra er Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum hf.

Finnur Oddsson (f. 1970)

Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D. gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Víðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbýggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Víðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., Eldum rétt ehf., Stórkaup ehf., P/F SMS, Klasi ehf., Effectus ehf. og Norðurver ehf. Auk þess er Finnur formaður í stjórn Vinnudeílusjóð SA. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Finnur á kauprétt að 2.841.572 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

5.2 Framkvæmdastjórn Haga

Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af forstjóra auk þriggja framkvæmdastjóra hjá móðurfélagi og fimm framkvæmdastjórum stærstu rekstrareininga Haga. Að jafnaði eru haldnir 10 framkvæmdastjórnarfundir á ári hverju. Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af eftirtöldum aðilum, í stafrófsröð:

Björgvin Víkingsson (f. 1983)

Björgvin er framkvæmdastjóri Bónus. Hann hóf störf hjá Bónus 1. maí 2023 og tók við starfi framkvæmdastjóra þann 1. janúar 2024. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin starfaði sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020 en hann hefur auk þess viðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. Björgvin er stjórnarmaður í Vinna Minna ehf. og Michelsen ehf. Hann er varamaður í stjórn Frjálslpróttasambands Íslands, Dýralaknamiðstöðvarinnar Grafarholti ehf. og Sáms ehf. Hvorki Björgvin né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Björgvin á kauprétt að 1.217.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:

Eiður Eíðsson (f. 1968)

Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafræni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafræni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS. Eiður er stjórnarmaður í Landssambandi sumarhúsáigenda. Eiður á 100.000 hluti í Högum hf. Eiður á kauprétt að 2.067.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)

Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskra kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrífstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvorusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Stórkaup ehf., P/F SMS, Olís ehf. (varamaður), Eldum rétt ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Guðrún Eva á kauprétt að 2.288.358 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Ingunn Svala Leífsdóttir (f. 1976)

Ingunn Svala er framkvæmdastjóri Olís en hún tók við starfinu 1. janúar 2024. Ingunn Svala er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á reikningshald og fjármál, og lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Auk þess lauk Ingunn Svala AMP prógrammi frá IESE Business School í New York árið 2018. Ingunn Svala starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dohop og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík í sjö ár. Ingunn Svala hefur auk þess viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum og hefur t.a.m. starfað fyrir Kaupþing, skilanefnd Kaupþings og Actavis Group PTC. Ingunn Svala er stjórnarmaður í Kviku banka ehf., ÓSAR lífæð heilbrigðis hf., Parlogis ehf. og Stórkari ehf. Hvorki Ingunn Svala né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Ingunn á kauprétt að 1.217.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Jóhanna P. Jónsdóttir (f. 1970)

Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur viðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf., innkaupastjóri Distica hf., sem innkaupa- og birgðastjóri hjá Bláa Lóninu hf. og Össuri hf. Jóhanna situr í stjórn GS1 Ísland ehf., Vörustjórnunarfélags Íslands og Grænlensk-íslenska viðskiptaráðinu. Hvorki Jóhanna né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Jóhanna á kauprétt að 1.217.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Lárus Óskarsson (f. 1960)

Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvoru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988. Lárus á 151.000 hluti í Högum hf. Lárus á kauprétt að 2.067.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:

Magnús Magnússon (f. 1988)

Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og aðstoðarforstjóri. Magnús hóf störf pann 1. febrúar 2021 sem framkvæmdastjóri en tók einnig við stöðu aðstoðarforstjóra í mars 2024. Magnús er með M.Eng. gráðu í íönaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley i Kaliforniu, og B.Sc. gráðu í íönaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rektri, bæði hérlands og erlands. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórnum 2M ehf., Djús ehf., Frumtaks Ventures ehf., Stórkaups ehf. og P/F SMS, auk þess sem hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 2.841.572 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Sigurður Reynaldsson (f. 1966)

Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999. Sigurður situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Múrbúðin ehf. og KS smiði ehf. (varamaður). Hvorki Sigurður né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Sigurður á kauprétt að 2.067.072 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

6. Undirnefndir stjórnar Haga

Stjórn Haga hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn skulu vera þrír í hvorri nefnd fyrir sig. Að minnsta kosti tveir nefndarmenn í undirnefndum stjórnar þurfa að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.

6.1 Endurskoðunarnefnd

Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varðandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Endurskoðunarnefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Endurskoðunarnefnd skipa nú Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi, sem er formaður nefndarinnar, Eva Bryndís Helgadóttir, stjórnarmaður í Högum og Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður í Högum. Allir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga, daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2024/25, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2024, hafa verið haldnir fjórir fundir hjá endurskoðunarnefnd og eru áætlaðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

6.2 Starfskjaranefnd

Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Þá skal starfskjaranefnd hafa eftirlit með framfylgd starfskjarastefnunnar og útbúa skýrslu um framkvæmd hennar. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Starfskjaranefnd skipa nú Jensína Kristín Böðvarsdóttir, stjórnarmaður í Högum, Davíð Harðarson, stjórnarmaður í Högum, og Eirikur S. Jóhannsson, stjórnarmaður í Högum. Jensína er formaður nefndarinnar. Allir nefndarmenn eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2024/25, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2024, hafa verið haldnir tveir fundir hjá starfskjaranefnd og eru áætláðir 1-2 fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

6.3 Starfskjarastefna

Starfskjarastefna Haga var samþykkt á aðalfundi þann 30. maí 2024. Tilgangur starfskjarastefnunnar er að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf um starfsfólk. Starfskjarastefnan er einn liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.

Stjórnarmönnum er greidd föst, mánaðarleg þóknun. Fjárhæð hennar er nú kr. 399.000. Laun formanns stjórnar eru tvöföld sú fjárhæð eða kr. 798.000 og þóknun varaformanns er kr. 587.000. Þóknun til stjórnarmanna er ákveðin á aðalfundi ár hvert.

Starfskjör forstjóra eru tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi við hann. Þar koma fram helstu skyldur hans og ábyrgðarsvið, föst laun, árangurstengdar greiðslur, lífeyrisréttindi, orlof og önnur hlunnindi. Starfskjör annarra æðstu stjórnenda eru á sama hátt tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum. Þá má finna í starfskjarastefnunni upplýsingar um breytileg starfskjör forstjóra og æðstu stjórnenda ásamt upplýsingum um kaupréttarkerfi.

Starfskjarastefnan er tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Gera skal grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins.

7. Tilnefningarnefnd

Hluthafar Haga kusu sér tilnefningarnefnd á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024. Í nefndinni skulu sitja að lágmarki þrír einstaklingar en stjórnarmönnum, stjórnendum og öðrum starfsmönnum Haga er óheimilt að sitja í tilnefningarnefnd.

Hlutverk tilnefningarnefndar er að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu og þekkingu og að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu. Starfsreglur nefndarinnar voru samþykktar á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024. Starfsreglurnar taka m.a. mið af fyrirmælum sáttar Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.

Tilnefningarnefnd skipa nú Björn Ágúst Björnsson, formaður nefndar, Björg Sigurðardóttir og Kristjana Milla Snorradóttir. Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess

8. Helstu úrskurðir og dómar tengdir Högum

Undanfarið ár hafa nokkrir úrskurðir og dómar fallið er varða Haga, eins og eðlilegt er hjá stóru félagi. Ekkert þessara mála hafði áhrif á starfsemi eða rekstrarafkomu félagsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAB)

1. 1.1 Inngangur

Á síðasta rekstrarári var áfram unnið að því að aðlaga upplysingagjöf Haga á sviði sjálfbærni að ESRS upplysingastöðlunum (e. European Sustainability Reporting Standards), sem byggja á ólögfestri CSRD tilskipun Evrópusambandsins (e. Corporate Sustainability Reporting Directive). Ekki er enn orðið ljóst hvenær umrædd tilskipun verður lögfest hér á landi.

Í ársreikningi þessum eru valdir upplysingaliðir birtir í samræmi við ESRS, auk þess sem tryggt er að upplysingagjöfin fullnægi lágmarkskröfum núgildandi laga um ársreikninga. Ítarlegri sjálfbærniupplýsingar verða svo birtar í ársskýrslu félagsins, sem mun liggja fyrir í aðdraganda aðalfundar þann 27. maí 2025.

Þann 26. febrúar 2025 lagði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram svokallaða Omnibus-tillögu, sem hefur það markmið að einfalda regluverk sambandsins á sviði sjálfbærni. Nái tillagan fram að ganga mun gildissvið CSRD tilskipunarinnar brengjast verulega. Tillagan mun þó ekki hafa áhrif á upplysingaskyldu Haga, þar sem félagið er yfir þeim stærðarviðmiðum sem þar eru tilgreind. Hins vegar gæti hún haft áhrif á umfang upplysingagjafar Haga ef hún leiðir til endurskoðunar á efni ESRS staðlanna.

1.2 Viðskiptamódel

Hagar er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi, í Færeyjum og í Hollandi, en félagið er leiðandi á íslenskum dagvöru- og eldsneytismarkaði. Á Íslandi starfrækja Hagar 40 dagvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga á Íslandi er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sex veitingastaði og þrjár sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi. Starfsfólk samstæðunnar í árslok var 3.508 talsins, þar af 2.724 á Íslandi og 784 í Færeyjum. Meðalfjöldi stöðugilda ársins var 1.581. Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift en í lok árs voru hluthafar 923 talsins.

Fyrirtæki Haga voru starfrækt í 8 dótturfélögum á rekstrarárinu. Fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar en Hagar veita aðhald í rekstri og stuðning með miðlægri þjónustu þar sem markmiðið er að ná fram kostnaðarhagræði, bæta þjónustu við viðskiptavini og styrkja þannig tekjumyndun og samkeppnisstöðu. Þannig skapa Hagar virði fyrir hluthafa.

Hagar hafa það að markmiði að starfrækja og þróa leiðandi vörumerki á smásölumarkaði sem standast væntingar viðskiptavina sinna og hafa burði til að vaxa. Markmiðið er einnig að halda einfaldleika í starfsemi allra rekstrareininga sem og að reka hverja einingu sem sjálfstætt og arðbært fyrirtæki með öllum eiginleikum hefðbundins fyrirtækis. Sjálfbærni er hluti af grunnrekstri Haga og er höfð að leiðarljósi við ákvarðanatöku í stórum málefnum.

Stefna Haga er að verslanir félagsins verði ávallt fyrsti valkostur neytenda á grundvelli verðs, gæða, úrvals og þjónustu. Verkefni félagsins er að efla hag neytenda með framúrskarandi verslun og þjónustu og skapa eftirsóknarverðan vinnustað. Þannig ná Hagar markmiðum um að skila hluthöfum sanngjarnri ávöxtun.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAD), FRH.:

1.3 Samskipti við hagaðila

Hagar vilja eiga gott samstarf við hagaðila sína og skapa þeim virði með ákvörðunum sínum. Vinna hefur átt sér stað innan Haga við að leggja mat á mikilvægi sjálfbærniten gdrá áhrifa, fjárhagslegrar áhættu og tækifæra í starfsemi félagsins. Við mat þetta var haft samráð við innri og ytri hagaðila, en helstu hagaðilar félagsins eru starfsfólk, hluthafar, viðskiptavinir, birgjar og fjármögnunaraðilar.

Regluleg samtól hafa átt sér stað við innri hagaðila, p.m.t. voru haldnar fimm vinnustofur með lykilstarfsfólki Haga og dótturfélaga þar sem lögð var áhersla á að þátttakendur hefðu sem fjölbreyttasta reynslu og þekkingu. Þá voru niðurstöður reglubundinnar ánægjukönnunar starfsfólks rýndar og könnun send á ytri hagaðila. Í kjölfarið voru niðurstöður matsins bornar undir stjórn Haga til umræðu.

Áframhaldandi samskipti við helstu hagaðila munu eiga sér stað í tengslum við mat á mikilvægi áhrifa, áhættu og tækifæra. Á þessu ári er fyrirhugað að eiga dýpri samræður við ytri hagaðila um þau sjálfbærnimálefni sem teljast mikilvæg fyrir félagið.

1.4 Sjálfbærniten gd áhrif, áhætta og tækifæri

Árið 2023 framkvæmdu Hagar í fyrsta sinn tvipátta mikilvægismat, þar sem lagt var mat á mikilvægi sjálfbærniten gdrá áhrifa, fjárhagslegrar áhættu og tækifæra í starfsemi félagsins og virðiskeðju þess. Tilgangur matsins er í fyrsta lagi að ákvarða umfang upplýsingaskyldu Haga gagnvart áðurnefndum ESRS upplýsingastöðlum og í öðru lagi að leggja grunn að stefnumótun félagsins í sjálfbærnimálum með það að markmiði að tryggja langtímaafkomu. Um er að ræða lífandi mat sem verður endurskoðað árlega með hliðsjón af aðstæðum og fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma. Fyrsta endurskoðun matsins átti sér stað á árinu 2024 og var Deloitte í kjölfarið fengið til að gera frumathugun á niðurstöðum matsins.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

1.4.4 Niðurstöður tvípátta mikilvægismats

Hér má sjá niðurstöður tvípátta mikilvægismats með tilliti til undirmálaflokka ESRS (e. sub-topics). Undirmálaflokkar sem ná mikilvægispröskuldi geta ýmist verið mikilvægir út frá áhrifum, fjárhagslegri áhættu/tækifærum eða báðum þessum þáttum. Ef engin marktæk áhrif og fjárhagsleg áhætta/tækifæri hafa verið greind fyrir tiltekinn undirmálaflokk er honum úthlutað gildinu 0.

img-0.jpeg

Umhverfi

E1 Loftslagsbreytingar
A Aðlögun að loftlagsbreytingum
B Mildun loftslagsbreytinga
B Orka

E2 Mengun
B Loftmengun
B Vatnsmengun
B Jarðvegsmengun
B Mengun lífvera
B „Substances of concern“
B Örplast

E3 Vatn og sjávarauðlindir
B Vatn
B Sjávarauðlindir

E4 Liffræðileg fjölbreytni
B Beinir áhrifavaldar
B Áhrif á stöðu tegunda
B Áhrif á umfang og ástand vistkerfa
B Áhrif og hæði gagnvart vistkerfisþjónustum

E5 Hringrásarhagkerfi
B Innstreymi hráefna og hráefnanotkun
B Útstreymi hráefna
B Úrgangur

Félagslegir þættir

S1 Eigin mannauður
B Vinnuaðstæður
B Jafnrétti
B Önnur vinnutengd réttindi
B Hæði

S2 Starfsfólk í virðiskeðju
B Vinnuaðstæður
B Jafnrétti
B Önnur vinnutengd réttindi

S3 Áhrif á samfélög
B Efnahags-, félags- og menningarleg réttindi
B Borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi
B Réttindi frumbyggja

S4 Neytendur og endanotendur
B Upplýsingatengd áhrif
B Persönulegt öryggi
B Félagsleg innlimun
B Hæði

O1 Viðskiptasiðferði
B Fyrirtækjamening
B Vernd uppljóstrara
B Velferð dýra
B Stjórnmálaleg þáttaka
B Birgjasamskipti
B Spilling og mútur

Miðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB)

2. Sjálfbærnistefna

Uppfærð sjálfbærnistefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 22. mars 2024. Við uppfærslu á stefnunni var tekið mið af mikilvægismati félagsins á sjálfbærnitengdum áhrifum, áhættu og tækifærum.

Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara umhverfis og samfélags, samhliða heilbrigðum rekstri. Stefnan byggir á fjórum meginstoðum, sem móta áherslur félagsins og þau lykilverkefni sem unnið er að hverju sinni:

Umhverfi

Hagar leggja áherslu á að þekkja þau beinu og óbeinu áhrif sem starfsemi félagsins hefur á umhverfið og leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum eftir fremsta megni. Með neikvæðum áhrifum er einkum átt við losun gróðurhúsalofttegunda, hvers konar mengun, matarsóun og athafnir sem stuðla að hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.

Mannauður

Hagar kappskosta við að tryggja velliðan og öryggi starfsfólks. Jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllum ákvörðunum og skapar félagið virði fyrir atvinnulífið með menntun og þjálfun starfsfólks. Jafnframt leggja Hagar áherslu á að réttindi starfsfólks í virðiskeðju félagsins séu virt.

Neytendur

Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga. Lögð er áhersla á rikulegt framboð af heilsusamlegum valkostum auk þess að bjóða neytendum hagstæðustu kjör hverju sinni óháð staðsetningu. Þá styður félagið ýmis samfélagsleg málefni hvort sem er í formi styrkja eða samstarfsverkefna.

Stjórnarhættir

Hagar starfa eftir þeim lögum og reglum sem félaginu ber að fylgja, sem og leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Auk þess hefur félagið sett sér síða- og samskiptareglur sem fylgt er í hvívetna í starfseminni.

2.1 Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hagar hafa valið sjö af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að styðja enn frekar við stefnustoðir félagsins. Markmiðin eru: 5: Jafnrétti kynjanna, 8: Góð atvinna og hagvöxtur, 9: Nýsköpun og uppbygging, 10: Aukinn jöfnuður, 12: Ábyrg neysla og framleiðsla, 13: Aðgerðir í loftslagsmálum, 15: Líf á landi.

3. Ófjárhagslegar stefnur

Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is, og eru þær auk þess listaðar upp í kafla 1.3 í stjórnarháttaryfirlýsingu félagsins sem finna má á bls. 42.

4. Umhverfi

Hagar og dótturfélög þess hafa um árabil lagt mikla áherslu á umhverfismál í allri sinni starfsemi. Uppfærð umhverfisstefna samstæðunnar var samþykkt af stjórn í mars 2024. Umhverfisstefnan nær til allrar starfsemi Haga og dótturfélaga auk starfsfólks samstæðunnar. Meginmarkmið stefnunnar er að samstæðan leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og styðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Hagar vilja stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum jarðarinnar í þágu íbúa hennar, atvinnulífð og komandi kynslóða, til efnahagslegs og félagslegs ábata.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAD), FRH.:

4. Umhverfi, frh.:

4.1 Loftslagsmál

Hagar leggja áherslu á að þekkja áhrif félagsins á loftslagið og draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá er á sama tíma mikilvægt að tryggja seiglu félagsins gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga. Sérstök áhersla er lögð á að Hagar og dótturfélög:

  • mæli og hafi reglulegt eftirlit með losun gróðurhúsalofttegunda, bæði í eigin rekstri sem og í virðiskeðju sinni.
  • setji sér markmið um samdrátt í losun með hliðsjón af markmiðum íslenskra stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins.
  • innleiði og endurskoði með reglubundnum hætti aðgerðaráætlun sem miðar að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.
  • hugi sérstaklega að orkusparandi aðgerðum í allri starfsemi, hvort sem er á skrifstofum, í verslunum og í framkvæmdum á vegum félagsins.
  • taki mið af sjálfbærnisjónarmiðum við innkaup í þágu starfseminnar.
  • fjárfesti með ábyrgum hætti í verkefnum sem hafa það að markmiði að binda kolefni úr andrúmslofti.
  • vinni markvisst að því að auka seiglu og aðlögunarhæfni gagnvart mögulegum afleiðingum loftslagsbreytinga, s.s. uppskerubrestum í virðiskeðju félagsins.

4.2 Hringrásarhagkerfi

Það er stefna Haga að lágmarka alla sóun og innleiða hringrásarhugsun í starfsemi félagsins. Einkum er lögð áhersla á að:

  • halda úti mælingum á vörusóun og þeim úrgangi sem fellur til í starfseminni.
  • leita stöðugt leiða til að draga úr vörusóun, minnka úrgangsmagn og bæta flokkunar- og endurvinnsluhlutfall.
  • hafa sjálfbærnisjónarmið að leiðarljósi við hönnun og efnisval á umbúðum fyrir eigin framleiðsluvörur.

4.3 Mengun

Hagar leggja ríka áherslu á forvarnir og aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir og lágmarka líkur á hvers konar mengun, hvort sem er á landi, vatni eða andrúmslofti, í eigin rekstri eða í virðiskeðju félagsins.

4.4 Liffræðileg fjölbreytni

Þótt þekking á áhrifum félagsins á líffræðilega fjölbreytni sé enn takmörkuð, er það þekkt að matvælaframleiðsla getur haft neikvæð áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika á sama tíma og slík framleiðsla reiðir sig að miklu leyti á hann. Það er stefna Haga að efla þekkingu sína á slíkum neikvæðum áhrifum, einkum í virðiskeðju félagsins, og kappskosta við að draga úr þeim eftir fremsta megni.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

5. Mannauður

Hjá samstæðu Haga starfa 3.508 starfsmenn sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks með störfum sínum. Starfsemi félagsins er mjög háð þeim mannauði sem hjá því starfar og er kappkostað við að skapa starfsumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að vaxa og dafna að eigin verðleikum. Rík áhersla er lögð á velliðan og öryggi starfsfólks, jafnrétti og fjölbreytni á vinnustað og starfspróun.

Jafnréttis- og mannréttindastefna Haga var endurskoðuð og samþykkt af stjórn félagsins í mars 2024. Stefna Haga er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að allt starfsfólk Haga og dótturfélaga þess sé metið að eigin verðleikum, óháð kyni, aldri, kynhneigð og uppruna. Allt starfsfólk skal njóta sömu virðingar og skulu kynin hafa jafna stöðu innan fyrirtækisins. Hvers konar mismunun er óheimil og verður ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að koma í veg fyrir að slíkt ranglæti eigi sér stað. Jafnréttis- og mannréttindastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is.

Öll dótturfélög Haga hafa lokið vinnu við jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem lögfest var í júní 2017. Hafa þau nú öll innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun.

Starfskjarastefna Haga hefur það að markmiði við gerð samninga um starfskjör, að félagið sé samkeppnishæft um starfsfólk og stjórnendur. Til að svo megi verða skal félagið bjóða samkeppnishæf laun við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum. Hagar telja nauðsynlegt að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins þannig að félagið njóti starfskrafta þeirra og hæfileika sem allra best þannig að hagur þeirra og félagsins fari saman. Við ákvörðun um starfskjör er horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum. Starfskjarastefnan er liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, stjórnenda og annarra hagsmunaaðila, með skipulegum, einföldum og gagnsæjum hætti. Starfskjarastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is en hún var samþykkt á aðalfundi Haga þann 30. maí 2024.

6. Spillinga- og mútumál

Í síðareglum Haga og dótturfélaga er lögð áhersla á að stjórn og starfsfólk skuli ávallt fara að lögum og almennum viðmiðum um síðferði í viðskiptum og að fylgt sé þeim reglum sem félagið setur á hverjum tíma. Kveðið er á um að óheimilt er að misnota aðstöðu sína í starfi, þannig að félagið beri skaða af og eru starfsmenn hvattir til að tilkynna næsta yfirmanni ef þeir verða vitni að spillingu eða óreiðu innan félagsins. Síðareglur þessar leggja einnig áherslu á að forða starfsmönnum frá að taka ákvarðanir sem skapað geta hagsmunaárekstra en meginreglan er sú að hagsmunir starfsmanna og félagsins skuli fara saman. Þá er óheimilt að taka við gjöfum, boðsferðum eða annars konar fríðindum frá viðskiptamönnum félagsins nema með samþykki yfirmanns.

Hjá samstæðunni hefur verið unnið áhættumat vegna aðgerða gegn peningabvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Samhliða áhættumatinu samþykkti stjórn stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningabvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningabvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútupægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í fór með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.

Þá eru til staðar hjá samstæðunni reglur um vernd uppljóstrara, sbr. lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara, en reglunum er ætlað að koma á skilvirku úrræði til að koma upplysingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í fór með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

7. Mannréttindi

Hagar leggja sig alla fram um að virða almenn mannréttindi í allri starfsemi félagsins líkt og kveður á um í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að sama skapi gerir félagið þær kröfur að hagsmunaaðilar virði mannréttindi. Þá er barnaþrælkun, nauðungarvinna, sem og þrælahald, ekki liðin innan félagsins. Þessu til stuðnings er í gildi jafnréttis- og mannréttindastefna Haga og síðareglur sem fjallað er um hér að framan. Þá eru Hagar með í gildi viðauka við alla verksamninga félagsins þar sem aðalverktakar lýsa því yfir að þeir muni ávallt og í hvívetna virða lög- og samningsbundin réttindi þeirra aðila sem þeir ráða til sinna starfa, hvort sem um ræðir launþega, starfsmenn starfsmannaleiga, aðra verktaka og/eða undirverktaka. Aðalverktaki lýsir því yfir að starfsemi hans uppfylli ávallt þær kröfur sem íslensk lög, reglur og venjur á vinnumarkaði gera hverju sinni. Aðalverktaki lýsir því einnig yfir að hann beri svokallaða keðjuábyrgð, þ.e.a.s. hann ábyrgist að aðrir verktakar og/eða undirverktakar sem hann hefur ráðið til sinna starfa uppfylli sömu kröfur þannig að réttindi allra þeirra starfsmanna sem að verki koma séu tryggð.

Hagar og dótturfélög þess hafa sett birgjum sínum síðareglur sem ætlað er að stuðla að því að samstæðan og birgjar hennar verði í sameiningu hreyfiafl til góðra verka. Síðareglurnar ná til allra birgja samstæðunnar og er birgjunum gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.

Móðurfélagsreikningur Haga hf. 28. febrúar 2025