Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Annual Report 2024

Apr 23, 2024

2196_rns_2024-04-23_9f944c07-2689-418a-bf00-e7eef205e70a.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

ÁRSREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR

  1. FEBRÚAR 2024

SALZBÆG BANNAR BÔNUS ELDUM RÉTT HAGKAUP olis STÓRKAUP ZNA

Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500


Samstæðursreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

EFNISYFIRLIT

bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Áritun óháðs endurskoðanda ... 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 11
Efnahagsreikningur ... 12
Eiginfjáryfirlit ... 13
Sjóðstreymisyflit ... 14
Skýringar ... 15

Skýr. bls. Skýr. bls.
1. Félagíð 15 19. Aðrar langtímaeignir 24
2. Grundvöllur reikningsskilanna 15 20. Vörubirgðir 24
3. Mat og ákvarðanir 15 21. Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 24
4. Starfsþáttayfirlit 15 22. Handbært fé 24
5. Vörusala 17 23. Eigið fé 25
6. Aðrar rekstrartekjur 17 24. Vaxtaberandi skuldir 27
7. Laun og launatengd gjöld 17 25. Leiguskuldir 28
8. Annar rekstrarkostnaður 17 26. Tekjuskattsskuldbinding 28
9. Þóknun til endurskoðenda 17 27. Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 29
10. Afskriftir 17 28. Stýring fjármálalegrar áhættu 29
11. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 18 29. Tengdir aðilar 33
12. Tekjuskattur 18 30. Dótturfélög 34
13. Hagnaður á hlut 18 31. Önnur mál 35
14. Rekstrarfjármunir 19 32. Kennitölur 35
15. Fjárfestingarfasteignir 20 33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir 36
16. Öefnislegar eignir 21
17. Leigueignir 22
18. Hlutdeildarfélög 23

Víðaukar - óendurskoðuð fylgiskjöl:

  • Ársfjörðungayfirlit ... 44
  • Stjórnarháttayfirlýsing ... 45
  • Ófjárhagsleg upplýsingagjóf ... 55

SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum dagvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok rekstrarársins starfrækti félagið 40 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓBstöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvoruverslun. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Ársreikningur 29. febrúar 2024 samanstendur af samstæðuársreikningi Haga hf. og dótturfélaga, sem vísað er til sem samstæðunnar.

Rekstur ársins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 5.044 millj. kr. (2022/23: 4.949 millj. kr.). Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 13.063 millj. kr. (2022/23: 12.041 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 77.214 millj. kr. (2022/23: 72.007 millj. kr.). Eigið fé í lok reikningsársins nam 28.188 millj. kr. (2022/23: 27.931 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 36,5% (2022/23: 38,8%). Fjöldi ársverka á árinu voru 1.501 (2022/23: 1.454) og kynjahltfall starfsmanna var 56% karlar og 44% konur (2022/23: 58% karlar, 42%, konur).

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú er liðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði á bilinu 12.900–13.400 millj. kr. og er rekstrarhagnaður fyrir afskriftir því innan útgefinnar afkomuspár. Afkomuspáin var hækkuð í desember 2023 og var það í annað skipti frá því að upphaffleg afkomuspá var gefin út samhliða birtingu ársuppgjørs 2022/23. Rekstur ársins gekk heilt yfir vel og má rekja afkomu umfram upphafflegar spár til aukinna umsvifa hjá öllum rekstrareiningum Haga auk sterkari afkomu hjá Olís en upphafflega var gert ráð fyrir. Góð aðsókn var í allar verslanir samstæðunnar á árinu, og þá einkum í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem bæði seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði nokkuð. Þá var einnig sterk eftirspurn í eldsneytishluta samstæðunnar.

Á öðrum og þriðja ársfjörðungi samanburðarárs 2022/23 voru áhrif einskiptistekna á EBITDA samstæðunnar að fjárhæð 1.417 millj. kr.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 sem nú var að hefjast gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 13.800–14.300 millj. kr. Forsendur afkomuspár gerðu ráð fyrir 6,7% hækkuð verðlags og að áhrif kjarasamninga næmu um 5% hækkuð launa milli ára. Gert var ráð fyrir styrkingu stærstu innkaupamynta þegar líður á árið.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og félagið vel í stakk búið til að takast á við þær aðstæður sem upp geta komið í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.

Fjárhagsleg áhættustýring

Í skýringu 28 er fjallað um helstu fjárhagslegu áhættur sem samstæðan býr við og þá áhættustýringu sem samstæðan beitir.

Breyting á framkvæmdastjórn

Í september og október 2023 var tilkynnt um breytingar á framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. janúar 2024. Þá tók Björgvin Víkingsson við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni og Ingunn Svala Leifsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Olís af Frosta Ólafssyni. Í mars 2024 tók svo Magnús Magnússon við stöðu aðstoðarforstjóra Haga en um nýtt hlutverk er að ræða innan samstæðunnar. Magnús hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra stefnumótunar og rekstrar frá því snemma árs 2021 og mun sinna því hlutverki áfram, ásamt hlutverki aðstoðarforstjóra.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Undirbúningur sölumeðferðar á eignarhlut Olís í Olíudreifingu, EAK og EBK

Undanfarin misseri hefur átt sér stað stefnumarkandi vinna um framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti Olís, dótturfélags Haga, og meðeiganda í Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. (EAK) og EBK ehf. Tekin hefur verið ákvörðun um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutunum. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 31.

Hluthafar

Hluthafar voru 1.055 í byrjun rekstrarársins og 968 í lok þess. Tíu stærstu hluthafar í árslok eru eftirfarandi:

Fjöldi hluta í þúsundum króna Fjöldi hluta Fjöldi hluta
29.2.2024 Fjöldi hluta % 28.2.2023 Fjöldi hluta %
Gildi - lífeyrissjóður 205.075 18,53% 219.359 19,37%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) 147.592 13,34% 154.062 13,60%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 112.743 10,19% 118.718 10,48%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga 97.323 8,80% 88.761 7,84%
Kaldbakur ehf. 86.000 7,77% 51.212 4,52%
Birta lífeyrissjóður 85.398 7,72% 93.141 8,22%
Festa lífeyrissjóður 50.249 4,54% 47.339 4,18%
Söfnunarsjóður lífeyrísréttinda 32.857 2,97% 33.357 2,94%
Stapi lífeyrissjóður 31.350 2,83% 46.296 4,09%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 22.738 2,06% 22.238 1,96%
10 stærstu hluthafar samtals 871.325 78,75% 874.483 77,21%
Aðrir hluthafar 212.984 19,25% 244.256 21,56%
Hagar - eigin hlutir 22.120 2,00% 13.937 1,23%
Samtals 1.106.429 100,00% 1.132.676 100,00%

Hlutafé og sambykktir

Skráð hlutafé félagsins nam í lok reikningsárs 1.106 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eigin hlutir í upphafi árs námu 13,9 millj. kr. að nafnverði en í lok árs á félagið 22,1 millj. kr. eigin hluti að nafnverði. Nánari upplýsingar um eigin hluti, endurkaup, kaupréttarkerfi starfsmanna o.fl. má finna í skýringu 23.

Samkvæmt 8. gr. í sambykktum félagsins kemur fram að sambykktum verður einungis breytt, umfram það sem hlutafélagalög leyfa, á lögmætum hluthafafundi. Ákvörðun um breytingar á sambykktum verður því aðeins gild að hún hljóti sambykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og sambykki hluthafa sem ráða yfir a.m.k. 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundinum.

Þann 1. júní 2023 sambykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023. Aðalfundur sambykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.133 millj. kr. að nafnverði í 1.106 millj. kr. að nafnverði.

Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2023 sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins, samtals 2.522 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár. Nánari upplýsingar má finna í eiginfjáryfirliti og skýringu 23.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir Haga hf. mótast af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Hagar hf. fylgja, án greindra frávika, leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu frá árinu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulífsins.

Stjórn Haga hf. hefur útbúið ítarlega yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins, sem útbúin er í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, og er hana að finna í sérstökum viðauka á bls. 45, auk þess sem hún er birt í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.

Í stjórn Haga hf. sitja þrjár konur og tveir karlar.

Ófjárhagsleg upplýsingagjóf

Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, samfélags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum o.fl., eru birtar í sérstökum viðauka á bls. 55. Einnig má þar finna upplýsingagjóf í samræmi við kröfur Flokkunarreglugerðarinnar (e. EU Taxonomy) sem tók gildi árið 2023.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningur félagsins gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir reikningsárið sem lauk 29. febrúar 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 29. febrúar 2024 og breytingum á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn með skráarheitið 635400TICHH43JJTNP54-2024-02-29-is hafi verið gerður í samræmi við kröfur laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið og reglugerð Evrópusambandsins nr. 2019/815 (ESEF reglur).

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir samstæðuársreikning félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja samstæðuársreikninginn.

Ársreikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.

Reykjavík, 23. apríl 2024

Stjórn:

Davið Harðarson, formaður

Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður

Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi

Sigriður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÁRITUN ÓHÁÐS ENDURSKOÐANDA

Til stjórnar og hluthafa Haga hf.

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi samstæðuársreikning Haga hf. og dótturfélaga (samstæðan) fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, að undanskilinni skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðunnar á reikningsárinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, efnahag hennar 29. febrúar 2024 og breytingu á handbæru fé á reikningsárinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga.

Álit okkar er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar.

Samstæðuársreikningurinn innifelur

  • Skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.
  • Rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
  • Efnahagsreikning 29. febrúar 2024.
  • Eiginfjáryfirlit 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
  • Sjóðstreymisyflrit 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
  • Skýringar, sem innifela mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Skýrsla stjórnar og yfirlýsing stjórnar og forstjóra er undanskilin endurskoðun, sbr. kafla um aðrar upplýsingar.

Grundvöllur álits

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda.

Óhæði

Við erum óháð samstæðunni samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur og endurskoðun og síðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði síðareglna.

Samkvæmt okkar bestu vissu, lýsum við yfir að önnur þjónusta sem við höfum veitt samstæðunni og félögum innan hennar er í samræmi við ákvæði íslenskra laga og reglna og að við höfum ekki veitt þjónustu sem óheimilt er að veita samkvæmt ákvæðum 5.1. gr. Evrópureglugerðar nr. 537/2014.

Gerð er grein fyrir annarri þjónustu sem við höfum veitt samstæðunni og félögum innan hennar, á tímabilinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, í skýringu nr. 9.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Lykilatriði endurskoðunarinnar

Lykilatriði endurskoðunarinnar eru þau atriði sem að okkar faglega mati höfðu mesta þýðingu í endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024. Sem hluti af endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum voru þessi lykilatriði skoðuð sérstaklega. Við látum ekki í ljós sérstakt álit varðandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á samstæðuársreikningnum í heild.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

7

Lykilatriði endurskoðunarinnar

Endurskoðunaraðgerðir

Mat viðskiptavildar

Viðskiptavild samstæðunnar nemur kr. 11.089
milljónum í lok febrúar 2024 og er um 14% af
heildareignum samstæðunnar og um 39% af eigin fé
samstæðunnar.

Mat á virðisrýrnun er háð faglegu mati og byggir m.a. á áætlinum stjórnenda um afkomu og framtíðarvöxt.

Sjá nánar umfjöllun í skýringum nr. 33k um reikningsskilaaðferðir gagnvart viðskiptavild og virðisrýrnun og skýringu nr. 16 um óefnislegar eignir.

Viðskiptavild er verulegur liður í reikningsskilum samstæðunnar og vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum sem virðisrýrnunarpróf byggja á er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar.

Endurskoðun á mati á viðskiptavild fólst m.a. í eftirfarandi þáttum:

  • Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar samstæðunnar var yfirfarið og virðisrýrnunarpróf endurreiknað.
  • Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrakostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið m.a. á grundvelli sögulegra upplýsinga og áætlana.
  • Forsendur um framtíðarvöxt voru yfirfarnar.
  • Ávöxtunarkrafa (WACC) sem notuð er við núvírðingu fyrir einstaka fjárskapandi einingar var borin saman við fjármagnskostnað samstæðunnar og aðrar markaðsforsendur.

Verðmatssérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun viðskiptavildar.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar.

Lykilatriði endurskoðunarinnar

Endurskoðunaraðgerðir

Mat vörubirgða

Vörubirgðir nema kr. 13.068 milljónum í lok febrúar 2024 og nema um 17% af heildareignum og um 46% af eigin fé samstæðunnar.

Vörubirgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluverði, hvort sem lægra reynist. Á hverjum reikningsskiladegi leggja stjórnendur mat á vörubirgðir. Við mat á vörubrigðum horfa stjórnendur m.a. til söluhæfis birgðanna og vænts söluverðs.

Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 33n um reikningsskilaaðferðir gagnvart vörubirgðum og skýringu nr. 20 um vörubirgðir.

Vegna óvissu um endanlega niðurstöðu er mat vörubirgða lykilatriði í endurskoðun okkar.

Endurskoðun á mati vörubirgða fólst m.a. í eftirfarandi þáttum:

  • Birgðafærlinn var yfirfarinn.
  • Afstemmingar á bókfærðri stöðu vörubirgða við viðeigandi undirkerfi.
  • Við vorum viðstödd talningar á völdum staðsetningum og yfirfóru úrvinnslu þeirra.
  • Aðferðafræði og forsendur stjórnenda við mat vörubirgða voru yfirfarnar.
  • Rétmæti kostnaðarverðs vörubirgða var sannreynt með úrtaksprófunum.
  • Úrtaksprófunum á söluverði með samanburði við kostnaðarverð.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Aðrar upplýsingar, þ.m.t. skýrsla og yfirlýsing stjórnar

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra og viðaukar við ársreikning samstæðunnar, ársfjórðungayfirlit, stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjóf, sem lágu fyrir við áritun okkar.

Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga, þ.m.t. skýrslu stjórnar og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.

Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar ber okkur að yfirfara aðrar upplýsingar, sem tilgreindar eru hér að ofan, þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær eru í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina eða ef svo virðist að verulegar rangfærslur séu í þeim. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.

Hvað varðar skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra höfum við, í samræmi við ákvæði 104. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, yfirfarið að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í samstæðuársreikningnum.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórnendum samstæðunnar að meta hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning samstæðunnar á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa samstæðuna upp eða hætta rekstri hennar, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi samstæðunnar. Stjórnendum samstæðunnar ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.

Stjórn og endurskoðunarnefnd skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að samstæðuársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á samstæðuársreikningnum.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreikningsins, frh.:

Endurskoðun í samræmi við alpjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu samstæðuársreiknings, að mikilvægum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.

  • Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.

  • Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.

  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi samstæðunnar eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemduðum um rekstrarhæfi hennar. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í samstæðuársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni leitt til þess að samstæðan verði ekki lengur rekstrarhæf.

  • Metum framsetningu, gerð og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álit okkar.

  • Öflum nægjanlegra endurskoðunargagna vegna fjárhagspupplýsinga félaga og eininga innan samstæðunnar og gefum út álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, umsjón og framgangi endurskoðunar samstæðunnar. Við berum ábyrgð á áliti okkar.

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp geta komið í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.

Við höfum lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við uppfyllum nauðsynleg síðferðis- og óhæðisskilyrði og við munum láta þeim í té allar upplýsingar um hugsanleg tengsl og önnur atriði sem gætu haft áhrif á óhæði okkar og trúnað.

Við höfum lagt mat á hvaða atriði, af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, höfðu mesta þýðingu á yfirstandandi ári og eru það lykilatriði endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum lykilatriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undantekningartilfellum þegar mat okkar er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:

Önnur atriði samkvæmt ákvæðum laga og reglna

Áritun vegna rafræns skýrslusniðs (e. European Single Electronic Format - ESEF reglur)

Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Haga hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta gefið álit á það hvort samstæðuársreikningur Haga hf. fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024 með skráarheitið 635400TICHH43JJTNP54-2024-02-29-is hafi í meginatriðum verið gerður í samræmi við kröfur laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format) og reglugerð Evrópusambandsins nr. 2019/815 (ESEF reglur) sem innihalda skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreiknings á XHTML formi og iXBRL merkingum samstæðuársreikningsins.

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Í þeirri ábyrgð felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikning á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format).

Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu um hvort samstæðuársreikningurinn, byggt á þeim gögnum sem við höfum aflað, sé í öllum meginatriðum í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli, tímasetning og umfang aðgerða sem valdar eru byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á áhættunni að vikið sé í verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Haga hf. fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024 með skráarheitið 635400TICHH43JJTNP54-2024-02-29-is hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format).

Kosning endurskoðanda

Við vorum kosin endurskoðendur á aðalfundi Haga hf. þann 7. júní 2017. Kosning okkar hefur verið endurnýjuð árlega á aðalfundi félagsins og höfum við því verið endurskoðendur félagsins samfellt í sjö ár.

Reykjavík, 23. apríl 2024.

PricewaterhouseCoopers ehf.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir
löggiltur endurskoðandi

Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir
löggiltur endurskoðandi

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU

1. MARS 2023 TIL 29. FEBRÚAR 2024

Skýr. 2023/24 2022/23
Vörusala 5 173.270 161.992
Kostnaðarverð seldra vara ( 137.281) ( 131.005)
Framlegð 35.989 30.987
Aðrar rekstrartekjur 6 682 1.997
Laun og launatengd gjöld 7 ( 16.229) ( 14.345)
Annar rekstarkostnaður 8 ( 7.379) ( 6.598)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 13.063 12.041
Afskriftir 10 ( 5.028) ( 4.453)
Rekstrarhagnaður 8.035 7.588
Hrein fjármagnsgjöld 11 ( 2.621) ( 1.887)
Áhrif hlutdeildarfélaga 18 697 392
Hagnaður fyrir tekjuskatt 6.111 6.093
Tekjuskattur 12 ( 1.067) ( 1.144)
Heildarhagnaður ársins 5.044 4.949
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður á hlut 13 4,59 4,40
Þynntur hagnaður á hlut 13 4,51 4,32

Skýringar á blaðsíðum 15 til 43 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EFNAHAGSREIKNINGUR 29. FEBRÚAR 2024

Skýr. 29.2.2024 28.2.2023
Eignir
Rekstrarfjármunir 14 22.410 21.236
Fjárfestingarfasteignir 15 3.841 3.402
Óefnislegar eignir 16 12.835 12.430
Leigueignir 17 11.252 8.287
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 18 5.517 5.064
Aðrar langtímaeignir 19 230 83
Fastafjármunir samtals 56.085 50.502
Vörubirgðir 20 13.068 12.717
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 21 6.234 5.919
Handbært fé 22 1.827 2.869
Veltufjármunir samtals 21.129 21.505
Eignir samtals 77.214 72.007
Eigið fé
Hlutafé 1.084 1.119
Bundið eigið fé 8.928 7.290
Óráðstafað eigið fé 18.176 19.522
Eigið fé samtals 23 28.188 27.931
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 24 11.286 11.829
Leiguskuldir 25 9.660 7.056
Tekjuskattsskuldbinding 26 2.193 2.216
Langtímaskuldir samtals 23.139 21.101
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 24 5.818 3.325
Leiguskuldir 25 2.579 2.012
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 27 17.490 17.638
Skammtímaskuldir samtals 25.887 22.975
Skuldir samtals 49.026 44.076
Eigið fé og skuldir samtals 77.214 72.007

Skýringar á blaðsíðum 15 til 43 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 29. február 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EIGINFJÁRYFIRLIT

1. MARS 2023 TIL 29. FEBRÚAR 2024

Skýr. Hlutafé Yfirverös-reikningur hlutafjár Bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 2022/23
Eigið fé 1. mars 2022 1.139 1.147 5.571 18.869 26.726
Endurkaup á eigin bréfum ( 14 ) ( 653 ) ( 333 ) ( 1.000 )
Endurkaup á eigin bréfum - ógild ( 6 ) ( 494 ) ( 500 )
Breyting á varasjóð ( 2 ) 2 0
Breyting á hlutdeildarreikning 1.700 ( 1.700 ) 0
Kaupréttarsamningar 21 21
Greiddur arður, 2,00 kr. á hlut ( 2.265 ) ( 2.265 )
Heildarhagnaður ársins 4.949 4.949
Eigið fé 28. febrúar 2023 23 1.119 0 7.290 19.522 27.931
Breytingar á eigin fé 2023/24
Eigið fé 1. mars 2023 1.119 0 7.290 19.522 27.931
Endurkaup á eigin bréfum ( 22 ) ( 1.478 ) ( 1.500 )
Endurkaup á eigin bréfum - ógild ( 13 ) ( 820 ) ( 833 )
Breyting á varasjóð ( 6 ) 6 0
Breyting á hlutdeildarreikning 1.623 ( 1.623 ) 0
Kaupréttarsamningar 21 21
Greiddur arður, 2,24 kr. á hlut ( 2.475 ) ( 2.475 )
Heildarhagnaður ársins 5.044 5.044
Eigið fé 29. febrúar 2024 23 1.084 0 8.928 18.176 28.188

Skýringar á blaðsíðum 15 til 43 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓÐSTREYMISYFIRLIT

1. MARS 2023 TIL 29. FEBRÚAR 2024

Skýr. 2023/24 2022/23
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður ársins 5.044 4.949
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður ( 157) ( 1.010)
Afskriftir 10 5.028 4.453
Hrein fjármagnsgjöld 11 2.621 1.887
Áhrif hlutdeildarfélaga 18 ( 697) ( 392)
Tekjuskattur 12 1.067 1.144
Aðrir liðir 35 21
Veltufé frá rekstri 12.941 11.052
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 648) ( 1.796)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 25 2.253
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 12.318 11.509
Innheimtar vaxtatekjur 164 46
Greidd vaxtagjöld ( 2.419) ( 1.499)
Greiddur tekjuskattur ( 1.373) ( 918)
Handbært fé frá rekstri 8.690 9.138
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 14 ( 3.900) ( 2.301)
Söluverð rekstrarfjármuna 324 143
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum 15 ( 523) ( 6)
Fjárfesting í óefnislegum eignum 16 ( 762) ( 709)
Móttekinn arður frá hlutdeildarfélögum 244 174
Fjárfesting í dótturfélagi að frádregnu yfirteknu handbæru fé ( 30) ( 1.275)
Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 0 50
Langtímakröfur, breyting ( 178) ( 38)
Fjárfestingarhreyfingar ( 4.825) ( 3.962)
Fjármögnunarhreyfingar
Keypt eigin bréf 23 ( 2.333) ( 1.500)
Greiddur arður ( 2.475) ( 2.265)
Nýjar vaxtaberandi langtímaskuldir 24 2.000 0
Afborganir langtímaskulda 24 ( 443) ( 492)
Leiguskuld afborganir 25 ( 1.656) ( 1.713)
Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting 24 0 2.880
Fjármögnunarhreyfingar ( 4.907) ( 3.090)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 1.042) 2.086
Handbært fé í ársbyrjun 2.869 783
Handbært fé í lok árs 22 1.827 2.869
Fjárfestingarhreyfingar án greiðsluáhrifa
Söluverð fasteigna 0 3.403
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum 0 ( 3.403)

Skýringar á blaðsiðum 15 til 43 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR

1. Félagið

Hagar hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga nr. 3/2006.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 23. apríl 2024.

b. Rekstrarhæfi

Stjórnendur hafa metið rekstrarhæfi samstæðunnar. Það er mat þeirra að áframhaldandi rekstur hennar sé tryggður og að fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. sé sterk og að félagið sé vel í stakk búið að takast á við þær aðstæður sem upp geta komið í íslensku efnahagslífi.

c. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.

d. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að afleiðusamningar eru færðir á gangvírði. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur gangvírðis eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir. Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvírðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda.

3. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir um mat er að finna í eftirfarandi skýringum:

Skýring 33i og 33j …………………… Mat á áætluðum nýtingartíma rekstrarfjármuna og fjárfestingarfasteigna
Skýring 16 og 33k …………………… Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar og annarra óefnislegra eigna
Skýring 33n …………………… Forsendur fyrir mati vörubirgða
Skýring 28b og 33o …………………… Skýringar og aðferðafræði um niðurfærslu viðskiptakrafna
Skýring 33p …………………… Ákvörðun leigutíma og mat á núvírðingarvöxtum

4. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur leggja mat á smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvoru er överulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

4. Starfspåttayfirlit, frh.:

Rekstrarárið 2023/24 Verslanir og vöruhús Olís Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 121.718 52.527 ( 975) 173.270
Aðrar rekstrartekjur 756 185 ( 259) 682
Heildartekjur starfspátta 122.474 52.712 ( 1.234) 173.952
Heildarrekstrargjöld starfspátta ( 112.471) ( 49.652) 1.234 ( 160.889)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 10.003 3.060 0 13.063
Afskriftir starfspátta ( 3.849) ( 1.179) 0 ( 5.028)
Áhrif hlutdeildarfélaga 492 205 0 697
Rekstrarafkoma starfspátta 6.646 2.086 0 8.732
Hrein fjármagnsgjöld ( 2.193) ( 428) 0 ( 2.621)
Tekjuskattur ( 1.067)
Hagnaður ársins 5.044
29. febrúar 2024
Eignir starfspátta 55.520 21.694 0 77.214
Eignir samtals 77.214
Skuldir starfspátta 39.836 9.190 0 49.026
Skuldir samtals 49.026
Fjárfestingar starfspátta 3.974 887 0 4.861

Rekstrarárið 2022/23

Vörusala 105.724 57.519 ( 1.251) 161.992
Aðrar rekstrartekjur 976 1.253 ( 232) 1.997
Heildartekjur starfspátta 106.700 58.772 ( 1.483) 163.989
Heildarrekstrargjöld starfspátta ( 98.395 ) ( 55.036 ) 1.483 ( 151.948 )
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 8.305 3.736 0 12.041
Afskriftir starfspátta ( 3.546) ( 907) 0 ( 4.453)
Áhrif hlutdeildarfélaga 147 245 0 392
Rekstrarafkoma starfspátta 4.906 3.074 0 7.980
Hrein fjármagnsgjöld ( 1.641) ( 246) 0 ( 1.887)
Tekjuskattur ( 1.144)
Hagnaður ársins 4.949
28. febrúar 2023
Eignir starfspátta 49.219 22.788 0 72.007
Eignir samtals 72.007
Skuldir starfspátta 32.890 11.186 0 44.076
Skuldir samtals 44.076
Fjárfestingar starfspátta 1.959 914 0 2.873

Samstæðuárseikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

5. Vörusala

Vörusala greinist pannig: 2023/24 2022/23

Dagvara 113.463 97.549
Sérvara 15.448 15.042
Eldsneyti 44.359 49.401
Vörusala samtals 173.270 161.992

6. Aðrar rekstrartekjur

Aðrar rekstrartekjur greinast pannig:

Aðstöðu- og húsalegutekjur 395 425
Hagnaður af sölu eigna til Klasa 0 966
Ýmsar aðrar rekstrartekjur 287 606
Aðrar rekstrartekjur samtals 682 1.997

7. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast pannig:

Laun 13.435 11.914
Mótframlag í lífeyrissjóð 1.582 1.416
Önnur launatengd gjöld 1.191 994
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga, sbr. skýringu 23 21 21
Laun og launatengd gjöld samtals 16.229 14.345
Fjöldi ársverka 1.501 1.454
--- --- ---
Fjöldi starfsmanna í árslok 2.699 2.613
Kynjahlutfall starfsmanna í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) 56/44 58/42

8. Annar rekstrarkostnaður

Annar rekstrarkostnaður greinist pannig:

Rekstrarkostnaður fasteigna 2.911 2.704
Sölu- og markaðskostnaður 1.067 919
Skrifstofu- og stjörnunarkostnaður 2.127 1.758
Ýmis annar rekstrarkostnaður 1.274 1.217
Annar rekstrarkostnaður samtals 7.379 6.598

9. Póknun til endurskoðenda

Póknun til endurskoðenda vegna endurskoðunar á samstæðuársreikningi og ársreikningum dótturfélaga greinist pannig:

Endurskoðun og staðfestingarvinna 47 43
Önnur þjónusta 1 6
Samtals póknun til endurskoðenda samstæðunnar 48 49

10. Afskriftir

Afskriftir greinast pannig:

Afskrift rekstrarfjármuna, sjá skýringu 14 2.560 2.247
Afskrift fjárfestingarfasteigna, sjá skýringu 15 84 78
Afskrift óefnislegra eigna, sjá skýringu 16 386 234
Afskrift leigueigna, sjá skýringu 17 1.862 1.761
Hlutdeild í afskriftum Olíudreifingar ehf. 136 133
Afskriftir samtals 5.028 4.453

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: 2023/24 2022/23
Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 164 44
Gengishagnaður 44 139
Fjármunatekjur samtals 208 183
Vaxtagjöld og verðbætur ( 1.971) ( 1.570)
Vaxtagjöld leiguskuldar, sjá skýringu 25 ( 858) ( 500)
Fjármagnsgjöld samtals ( 2.829) ( 2.070)
Hrein fjármagnsgjöld ( 2.621) ( 1.887)
  1. Tekjuskattur
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist pannig: 2023/24 2022/23
Tekjuskattur til greiðslu 1.090 1.298
Breyting tekjuskattsskuldbindingar ( 23) ( 154)
Tekjuskattur færður í rekstrarreikning 1.067 1.144
Virkur tekjuskattur greinist pannig:
Hagnaður ársins 5.044 4.949
Tekjuskattur ársins 1.067 1.144
Hagnaður fyrir tekjuskatt 6.111 6.093
Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall 20,0% 1.222 20,0%
Ófrádráttarbær kostnaður 0,0% 2 0,3%
Óskattskyldar tekjur ( 2,3%) ( 139) ( 1,3%)
Aðrar breytingar ( 0,3%) ( 18) ( 0,2%)
Virkur tekjuskattur 17,4% 1.067 19,6%
  1. Hagnaður á hlut

Grunnhagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna.

2023/24 2022/23
Hagnaður ársins til hluthafa móðurfélagsins 5.044 4.949
Vegið meðaltal útistandandi hlutafjár:
Hlutafé í ársbyrjun 1.133 1.154
Áhrif endurkaupa og ógildingar á eigin bréfum ( 35) ( 29)
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta 1.098 1.125
Áhrif kaupréttasamninga 21 21
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað 1.119 1.146
Grunnhagnaður á hlut 4,59 4,40
Þynntur hagnaður á hlut 4,51 4,32

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir greinast pannig: Fasteignir Áhöld og innréttingar Samtals
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2022 14.248 22.740 36.988
Endurflokkað sem hugbúnaður 0 ( 9) ( 9)
Yfirtekíð vegna kaupa á dótturfélagi 97 13 110
Fjárfesting á árinu 92 2.209 2.301
Selt og aflagt ( 6) ( 661) ( 667)
Staða 28.2.2023 14.431 24.292 38.723
Fjárfesting á árinu 1.026 2.874 3.900
Selt og aflagt ( 321) ( 1.704) ( 2.025)
Staða 29.2.2024 15.136 25.462 40.598
Afskriftir
Staða 1.3.2022 1.337 14.435 15.772
Afskriftir 387 1.860 2.247
Selt og aflagt 0 ( 533) ( 533)
Staða 28.2.2023 1.724 15.762 17.486
Afskriftir 392 2.168 2.560
Selt og aflagt ( 190) ( 1.668) ( 1.858)
Staða 29.2.2024 1.926 16.262 18.188
Bókfært verð
Staða 1.3.2022 12.911 8.304 21.215
Staða 28.2.2023 12.707 8.529 21.236
Staða 29.2.2024 13.210 9.200 22.410

Fjárfestingarfasteignir eru flokkaðar sérstaklega. Greiningu á þeim má sjá í skýringu 15.

Fasteignamat og vátryggingaverð

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum:

29.2.2024 28.2.2023
Fasteignamat 9.467 9.013
Vátryggingaverð fasteigna 19.731 18.700
Bókfært verð fasteigna 13.210 12.707
Vátryggingaverð innréttinga og áhalda 19.819 17.628
Bókfært verð innréttinga og áhalda 9.200 8.529

Veðsetningar

Á fasteignum og fjárfestingarfasteignum samstæðunnar, sem eru á bókfærðu verði 13.344 millj. kr., hvila þinglýst veð og skuldbindingar að fjárhæð 23.657 millj. kr. til tryggingar á skuldum samstæðunnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

15. Fjárfestingarfasteignir Verslunar-húsnæði Skrifstofu-húsnæði Samtals
Fjárfestingarfasteignir greinast þannig:
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2022 3.831 55 3.886
Fjárfesting á árinu 5 1 6
Staða 28.2.2023 3.836 56 3.892
Fjárfesting á árinu 523 0 523
Staða 29.2.2024 4.359 56 4.415
Afskriftir
Staða 1.3.2022 393 19 412
Afskriftir 77 1 78
Staða 28.2.2023 470 20 490
Afskriftir 83 1 84
Staða 29.2.2024 553 21 574
Bókfært verð
Staða 1.3.2022 3.438 36 3.474
Staða 28.2.2023 3.366 36 3.402
Staða 29.2.2024 3.806 35 3.841
Fasteignamat og vátryggingaverð
Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fjárfestingarfasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum:
29.2.2024 28.2.2023
Fasteignamat fjárfestingarfasteigna 2.480 2.058
Vátryggingaverð fjárfestingarfasteigna 4.215 3.695
Bókfært verð fjárfestingarfasteigna 3.841 3.402
Fjárhæðir færðar í rekstrarreikning vegna fjárfestingarfasteigna: 2023/24 2022/23
Leigutekjur 358 371
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum í útleigu 143 132
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum sem ekki eru í útleigu 4 4
Fjárfestingarfasteignir eru ýmist í skammtíma- eða langtimaleigu. Framtíðarleigugreiðslur leigusamninga eru að lágmarki sem hér segir:
29.2.2024 28.2.2023
Innan eins árs 313 311
Eftir eitt til fimm ár 1.027 968
Eftir meira en fimm ár 660 784
Rekstrarleigusamningar samtals 2.000 2.063

Samstæðan hefur ekki áreiðanlegar upplýsingar um gangvirði fjárfestingarfasteigna í lok tímabilsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir greinast þannig: Viðskiptavild Hugbúnaður Langtíma-kostnaður Samtals
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2022 10.632 1.531 189 12.352
Endurflokkað af rekstrarfjármunum 0 9 0 9
Yfirtekið vegna kaupa á dótturfélagi 1.264 49 0 1.313
Fjárfesting á árinu 0 709 0 709
Selt og aflagt ( 90) 0 0 ( 90)
Staða 28.2.2023 11.806 2.298 189 14.293
Yfirtekið vegna kaupa á dótturfélagi 30 0 0 30
Fjárfesting á árinu 0 762 0 762
Selt og aflagt 0 ( 135) 0 ( 135)
Staða 29.2.2024 11.836 2.925 189 14.950
Afskriftir og virðisrýrnun
Staða 1.3.2022 738 719 172 1.629
Afskriftir 8 209 17 234
Staða 28.2.2023 746 928 189 1.863
Afskriftir 0 386 0 386
Selt og aflagt 0 ( 135) 0 ( 135)
Staða 29.2.2024 746 1.179 189 2.114
Bókfært verð
Staða 1.3.2022 9.894 812 17 10.723
Staða 28.2.2023 11.060 1.370 0 12.430
Staða 29.2.2024 11.089 1.746 0 12.835

Virðisrýrnunarpróf

Viðskiptavild sem verður til við yfirtöku á rekstrareiningum eða kaupum á dótturfélögum er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýrnunarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort virðisrýrnun sé til staðar. Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur eða kaup er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.

Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir tekjuskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Í virðisrýrnunarprófinu eru fjórar fjárskapandi einingar prófaðar.

Viðskiptavild greinist þannig niður á starfsþætti: 29.2.2024 28.2.2023
Verslanir og vöruhús (Bónus, Bananar og Eldum rétt) 8.853 8.824
Olís 2.236 2.236
Viðskiptavild samtals 11.089 11.060

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna
21


SKYRINGAR, FRH.:

16. Óefnislegar eignir, frh.:

Virðisrýrnunarpróf

Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innihalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg ytri og innri gögn. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón af fjárhæðum í samþykktum rekstraráætlunum ársins 2024/25 og næstu fimm ára ásamt föstum framtíðarnafnvexti eftir spátímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarþróun og spár greiningaraðila um verðbólgu og hagvöxt næstu árin. Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri- og innri gögnum. Forsendur eru eftirfarandi:

29.2.2024 28.2.2023
Framtíðarvöxtur 2,0-4,5% 2,0-5,0%
Tekjuvöxtur næstu 2-5 ára 2,5-11,5% 2,5-15,0%
EBITDA hlutfall næstu 2-5 ára 4,5-15,0% 4,3-15,0%
Veginn fjármagnskostnaður (WACC) 10,2-10,9% 10,8-11,1%
Skuldsetningarhlutfall 28,5-42,1% 24,1-40,5%
Áhættulausir vextir 6,19% 6,72%

Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýrnun færð hjá samstæðunni.

Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýrnunarprófi. Slíkt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar samstæðunnar eru mis viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýrnunarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykilforsendum samt sem áður ekki leiða til virðisrýrnunar.

17. Leigueignir

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 25, upplýsingar um greiðsluflæði í skýringu 28c og reikningsskilaðferðir í skýringu 33p.

Leigueignir greinast þannig: 29.2.2024 28.2.2023
Leigueignir 1. mars 8.287 8.151
Nýir leigusamningar 1.722 974
Breytingar á leigusamningum 2.166 37
Verðbætur 939 886
Afskriftir ( 1.862) ( 1.761)
Leigueignir samtals 11.252 8.287

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna 22


SKYRINGAR, FRH.:

18. Hlutdeildarfélög

Eignarhlutir samstæðunnar í hlutdeildarfélögum greinast þannig:

Eignarhlutur 29.2.2024 28.2.2023
Klasi ehf., RVK 33% 4.037 3.549
Olíudreifing ehf., RVK 40% 969 1.046
Djús ehf., RVK 49% 167 162
EBK ehf., RVK 25% 166 163
EAK ehf., RVK 33% 160 126
Fjölver ehf., RVK 33% 9 9
Abena Ísland ehf., RVK 45% 9 9
Eignarhlutir samtals 5.517 5.064

Breyting á bókfærðu verði hlutdeildarfélaga á árinu greinist þannig:

Bókfært verð 1. mars 5.064 1.443
Keypt á árinu 0 3.403
Hlutdeild í afkomu 697 392
Arður ( 244) ( 174)
Eignarhlutur samtals 5.517 5.064

Eignarhlutur í Klasa ehf.

Hagar eru eigandi að 33,3% hlut í Klasa ehf., Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Eignarhlutur Haga í Klasa er 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Reikningsskil Klasa ehf. eru gerð í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur og samkvæmt ársreikningi Klasa fyrir reikningsárið sem lauk 31. desember 2023 greinast helstu fjárhæðir þannig:

31.12.2023
Tekjur (100%) 449
Hagnaður (100%) 1.501
Fastafjármunir 15.373
Veltufjármunir 238
Langtímaskuldir ( 1.558)
Skammtímaskuldir ( 416)
Eigið fé (100%) 13.637
Hlutdeild í eigin fé 4.546
Frestaður sölühagnaður ( 509)
Eignarhlutur í árslok (33,3%) 4.037

Eignarhlutur í Olíudreifingu ehf.

Samstæðan er eigandi að 40% hlut í Olíudreifingu ehf. sem annast birgðahald og dreifingu eldsneytis fyrir dótturfélag samstæðunnar, Olís ehf. Með vísan til hluthafasamkomulags í Olíudreifingu ehf. og til að gefa sem gleggstar upplýsingar um skiptingu rekstrarkostnaðar á einstaka gjaldaliði er hlutdeild samstæðunnar í rekstrarkostnaði Olíudreifingar ehf. færð á gjaldaliði, eins og sölu- og dreifingarkostnað, afskriftir og fjármagnskostnað í rekstrarreikningi samstæðunnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Aðrar langtímaeignir
Aðrar langtímaeignir greinast þannig: 29.2.2024 28.2.2023
Eignarhlutir í öðrum félögum 41 42
Skuldabréfaeign 189 41
Aðrar langtímaeignir samtals 230 83
  1. Vörubirgðir

Vörubirgðir greinast þannig:

Dagvara 6.126 5.637
Sérvara 2.520 1.922
Eldsneyti 4.039 4.999
Vörur í flutningi 383 159
Vörubirgðir samtals 13.068 12.717
Niðurfærsla birgða í lok reikningsárs 228 222
--- --- ---
Vátryggingaverð birgða 10.770 9.815

Hluti eldsneytisbirgða samstæðunnar eru í geymslurými í birgðastöð Olíudreifingar ehf., sem er hlutdeildarfélag samstæðunnar. Þessar eldsneytisbirgðir eru vátryggðar með birgðatryggingu Olíudreifingar.

Allar vörubirgðir samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.

  1. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
29.2.2024 28.2.2023
Viðskiptakröfur 5.189 5.187
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 239) ( 200)
Gjaldmiðlaskiptasamningur 69 0
Aðrar skammtímakröfur 437 267
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 5.456 5.254
Greiðslukortakröfur 778 665
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 6.234 5.919

Allar viðskiptakröfur samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.

  1. Handbært fé

Handbært fé greinist þannig:

Óbundnar bankainnstæður 706 2.808
Sjóður 71 61
Markaðsverðbréf 1.050 0
Handbært fé samtals 1.827 2.869

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

23. Eigio fé

Hlutafé

29.2.2024 28.2.2023
Hlutafé í ársbyrjun 1.133 1.154
Eigin bréf í ársbyrjun ( 14) ( 15)
Útistandandi hlutir í ársbyrjun 1.119 1.139
Endurkaup á eigin bréfum - ógild ( 13) ( 6)
Endurkaup á eigin bréfum ( 22) ( 14)
Útistandandi hlutir í árslok 1.084 1.119

Pann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði útgefið hlutafé Haga því úr 1.133 millj. kr. að nafnverði í 1.106 millj. kr. að nafnverði. Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er því 1.106 millj. kr. í lok reikningsársins. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun sem samþykkt er á aðalfundi félagsins. Félagín á eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. kr. í lok reikningsárs eða samtals 2,0% af útgefnu hlutafé.

Á aðalfundi Haga sem haldinn var þann 1. júní 2023 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Settar voru í framkvæmd tvær endurkaupaáætlannir á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar. Endurkaup á rekstrarárinu námu 35,3 millj. hluta fyrir samtals 2.333 millj. kr.

Yfirverðsreikningur hlutafjár

Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagín hefur selt.

Lögbundinn varasjóður

Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagín binda 10% af hagnaði ársins og allt að 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem má ekki nota til að greiða hluthöfum arð.

Bundið eigið fé

Samkvæmt lögum nr. 3/2006 ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár. Á bundinn eiginfjárreikning er jafnframt færður áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga.

Bundið eigið fé greinist þannig:

Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildarreikningur Bundinn eiginfjárreikningur Bundið eigið fé samtals
Bundið eigið fé 1. mars 2022 285 5.274 12 5.571
Breyting á varasjóð ( 2) 0 0 ( 2)
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga 0 0 21 21
Breyting á hlutdeildarreikningi 0 1.700 0 1.700
Bundið eigið fé 28. febrúar 2023 283 6.974 33 7.290
Bundið eigið fé 1. mars 2023 283 6.974 33 7.290
Breyting á varasjóð ( 6) 0 0 ( 6)
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga 0 0 21 21
Breyting á hlutdeildarreikningi 0 1.623 0 1.623
Bundið eigið fé 29. febrúar 2024 277 8.597 54 8.928

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

23. Eigið fé, frh.:

Arðgreiðslur

Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2024 sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins, samtals 2.522 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár (2023: 2,2 kr. á hlut).

Kaupréttarsamningar

Í samræmi við samþykkt aðalfundar þann 3. júní 2021 var þann 6. júli sama ár gengið frá samningum um kauprétti sem ná til tiltekinna lykilstarfsmanna félagsins. Alls voru veittir 11.806.246 hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu, þar af 6.800.398 til framkvæmdastjórnar.

Nýtingarverð kaupréttanna er 60,4 kr. á hlut, þ.e. dagslokagengi hluta í Högum eins og það var skráð á Nasdaq Iceland degi fyrir úthlutun á aðalfundi þann 3. júní 2021. Nýtingarverð skal leiðrétt, til lækkunar, fyrir framtíðar arðgreiðslum og leiðrétt, til hækkunar, með 3% árlegum vöxtum ofan á áhættulausa vexti frá úthlutunardegi og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil. Ávinnsludagur er þremur árum frá úthlutun og hefst þá nýtingartímabil. Unnt verður að nýta 1/3 af kaupréttum á 1. tímabili, 1/3 á 2. tímabili og svo 1/3 á 3. tímabili en hvert tímabil spannar eitt ár.

Samkvæmt heimild stjórnar, hefur kaupréttum sem fallið hafa úr gildi verið endurúthlutað. Heildarfjöldi útistandandi kauprétta er óbreyttur, 11.806.246 hlutir en þar af hefur 6.784.000 hlutum verið úthlutað til framkvæmdastjórnar.

Heildarkostnaður félagsins, skv. reiknilikani Black&Scholes vegna kaupréttarsamninganna er áætlaður um 81,8 millj. kr. á ávinnslutímanum en þar af er gjaldfærður áfallinn kostnaður vegna þeirra 21,0 millj. kr. á rekstrarárinu 2023/24 (2022/23: 21,0 millj. kr.).

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna 26


SKÝRINGAR, FRH.:

24. Vaxtaberandi skuldir

Vaxtaberandi skuldir greinast þannig:
Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
29.2.2024 28.2.2023 29.2.2024 28.2.2023
Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar 8,42% 6,17% 8.125 6.336
Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 6.099 5.938
Víxlskuldir í ISK 10,32% 7,25% 2.880 1.080
Lánalína í ISK - 8,10% 0 1.800
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 17.104 15.154
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda (5.818) (3.325)
Langtímaskuldir samtals 11.286 11.829
Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 5.818 3.325
Afborganir eftir 1 til 2 ár 445 2.940
Afborganir eftir 2 til 3 ár 2.456 446
Afborganir eftir 3 til 4 ár 468 456
Afborganir eftir 4 til 5 ár 481 466
Afborganir síðar 7.436 7.521
Samtals 17.104 15.154
Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig:
Vaxtaberandi skuldir 1. mars 15.154 12.171
Ný lántaka langtímalána 2.000 0
Afborganir ársins (443) (492)
Breyting á víxlskuldum 1.800 1.080
Breyting á lánalínu (1.800) 1.800
Verðbætur 393 595
Vaxtaberandi skuldir samtals 17.104 15.154

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Í lánaskilmálum eru kvaðir um ákveðin fjárhagsleg skilyrði sem stóðust prófun í lok rekstrarárs.

Stjórn Haga hf. samþykkti þann 23. nóvember 2022 útgáfuramma um útgáfu skuldabréfa og vixla að fjárhæð 10.000 millj. kr. Undanfarið hefur samstæðan nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu, í samræmi við útgáfurammann. Gera má ráð fyrir að félagrið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum en til marks um það var gefinn út nýr skuldabréfaflokkur HAGA120926 1 í september síðastliðnum að fjárhæð 2.000 millj. kr.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

25. Leiguskuldir

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðalegusamninga eru ekki færðar. Upplýsingar um leigueignir má finna í skýringu 17, upplýsingar um greiðsluflæði í skýringu 28c og reikningsskilaðferðir í skýringu 33p.

Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 29.2.2024 28.2.2023
Leiguskuldir 1. mars 9.068 8.884
Nýir samningar 1.722 974
Breytingar á leigusamningum 2.166 37
Afborgunarþáttur leigugreiðslna ( 1.656) ( 1.713)
Verðbætur 939 886
Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 12.239 9.068
Næsta árs afborganir leiguskulda ( 2.579) ( 2.012)
Leiguskuldir til langtíma samtals 9.660 7.056

Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 2.579 2.012
Afborganir eftir 1 til 2 ár 2.189 1.712
Afborganir eftir 2 til 3 ár 1.697 1.537
Afborganir eftir 3 til 4 ár 1.210 1.238
Afborganir eftir 4 til 5 ár 890 877
Afborganir síðar 3.674 1.692
Samtals 12.239 9.068
Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig: 2023/24 2022/23
--- --- ---
Vaxtagjöld á leiguskuldir 858 500
Afskrift leigueignar 1.862 1.761

Veltutengdar leigugreiðslur sem tengjast ekki leigusamningum sem færðir eru samkvæmt IFRS 16 námu 340 millj. kr. (2022/23: 334 millj. kr.) og eru færðar sem hluti af öðrum rekstrarkostnaði í skýringu 8.

Áhrif leigusamninga í sjóðstreymi greinast þannig:

Greitt vegna leigusamninga, afborganir og vextir 1.656 1.713

26. Tekjuskattsskuldbinding

Tekjuskattsskuldbinding greinist þannig á einstaka liði:

29.2.2024 28.2.2023
Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir ( 2.258) ( 2.196)
Leigueignir ( 2.250) ( 1.657)
Birgðir ( 91) ( 120)
Viðskipta- og aðrar skammtímakröfur ( 42) ( 43)
Leiguskuldir 2.448 1.814
Gengismunur ( 15) ( 15)
Aðrir liðir 15 1
Tekjuskattsskuldbinding samtals ( 2.193) ( 2.216)

Tekjuskattur til greiðslu greinist þannig:

Tekjuskattur ársins til greiðslu 1.090 1.298
Fyrirframgreiddir skattar ( 226) ( 148)
Tekjuskattur ársins til greiðslu samtals 864 1.150

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

27. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 29.2.2024 28.2.2023
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Tekjuskattur til greiðslu 864 1.150
Gjaldmiðlaskiptasamningur 0 14
Viðskiptaskuldir 13.095 13.141
Aðrar skammtímaskuldir 3.531 3.333
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 17.490 17.638

28. Stýring fjármálalegrar áhættu

a. Yfirlit

Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:

  • Lánsáhætta
  • Lausafjáráhætta
  • Markaðsáhætta
  • Rekstraráhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu þess. Jafnframt eru veittar tölulegar upplýsingar víðar í ársreikningnum.

Stjórn félagsins ber ábyrgð á innleiðingu og eftirliti með fjármálalegri áhættu samstæðunnar.

Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring samstæðunnar og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi samstæðunnar. Með starfsmannapjálfun og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta félagsins er einkum vegna viðskiptakrafna og annarra krafna.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af aldri viðskiptakrafna, fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptavina, auk stöðu þeirra atvinnugreina sem stærstu viðskiptavinir samstæðunnar starfa í. Að baki viðskiptakrafna samstæðunnar stendur fjölmennur hópur viðskiptavina sem er dreifður meðal einstaklinga og fyrirtækja í einstökum atvinnugreinum, sjávarútvegur þar stærstur. Að mati samstæðunnar stendur hún ekki frammi fyrir verulegri lánsáhættu vegna viðskiptavina á smásölustigi. Samstæðan myndar hins vegar niðurfærslu vegna áætaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna. Um 38,7% (2022/23: 46,0%) af stöðu viðskiptakrafna þann 29. febrúar 2024 er vegna 30 stærstu viðskiptavina samstæðunnar. Þar af nam staða stærsta viðskiptavinar 3,9% (2022/23: 4,4%).

Félagið hefur sett sér reglur um lánsviðskipti, þar sem leitast er við að lágmarka áhættu þar sem horft er til fjárhagsstöðu, lánshæfismats og starfsemi einstakra viðskiptavina auk stöðu atvinnugreina stærstu viðskiptavina. Allir viðskiptavinir félagsins sem eru í lánsviðskiptum eru með lánamörk á viðskiptareikningi sem þeir geta ekki farið yfir. Auk þess er algengt að farið sé fram á tryggingar gegin lánsviðskiptum.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

28. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

b. Lánsáhætta, frh.:

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:

Skýring 29.2.2024 28.2.2023
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 21 5.387 5.254
Greiðslukortakröfur 21 778 665
Mesta mögulega tap vegna viðskiptakrafna 6.165 5.919
Handbært fé 22 1.827 2.869
Mesta mögulega tap vegna fjáreigna 7.992 8.788

Allar viðskiptakröfur samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.

Aldursgreining viðskiptakrafna og niðurfærsla

Aldur viðskiptakrafna, niðurfærsla og niðurfærsluhlutfall var eftirfarandi í árslok:

29. febrúar 2024

Nafnverð Niðurfærsla Bókfært verð Niðurfærslu- hlutfall
Ógjaldfallið 3.773 (94) 3.679 2,5%
Gjaldfallið innan 30 daga 885 (41) 844 4,6%
Gjaldfallið fyrir 31-120 dögum 246 (24) 222 9,8%
Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum 285 (80) 205 28,1%
Viðskiptakröfur samtals 5.189 (239) 4.950 4,6%

28. febrúar 2023

Ógjaldfallið 3.563 (35) 3.528 1,0%
Gjaldfallið innan 30 daga 475 (34) 441 7,2%
Gjaldfallið fyrir 31-120 dögum 600 (55) 545 9,2%
Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum 549 (76) 473 13,8%
Viðskiptakröfur samtals 5.187 (200) 4.987 3,9%

Auk niðurfærslu viðskiptakrafna eru til staðar greiðslutryggingar frá viðskiptamönnum sem nema um 1,2% af nafnverði viðskiptakrafna (2022/23: 7,8%).

c. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Samstæðan veitir viðskiptamönnum sínum greiðslufrest til að fjármagna kaup sín, t.d. með reikningsviðskiptum og móttöku greiðslukorta, en þarf að greiða skammtímaskuldbindingar sínar gagnvart birgjum og öðrum kröfuhöfum innan tiltekins greiðslufrests. Af þeim sökum fylgir henni lausafjáráhætta.

Til þess að mæta skammtímasveiflum í rekstri samstæðunnar og standa við skuldbindingar sínar gagnvart birgjum og öðrum kröfuhöfum hefur samstæðan veltufjármögnun hjá viðskiptabanka sínum, bæði í íslenskum krónum og Bandaríkjadollar (USD). Félagið er einnig útgefandi 5-6 mánaða vixlaflokka sem skráðir hafa verið í Kauphöll og eykur það enn frekar lausafjárstöðu félagsins til skamms tíma. Veltufjármögnun er samstæðunni mjög mikilvæg, sérstaklega fyrir jólavertiðina þegar tímabundin birgðasöfnun á sér stað. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að hún hafi ávallt nægt lausafé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla, hvort heldur sem er við venjulegar eða óvenjulegar aðstæður, og forðast þannig að samstæðan verði fyrir óásættanlegu tapi eða að orðspor þess skaðist. Þá er uppgjör á færsluhirðingu kreditkorta daglegt (T+1).

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna
30


SKYRINGAR, FRH.:

28. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

c. Lausafjáráhætta, frh.:

Samningsbundnar greiðslur vegna fjárskulda, þar með taldar væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:

29. febrúar 2024 Bókfært verð Samnings-bundið sjóðsflæði Innan árs Eftir 1-5 ár Eftir meira en 5 ár
Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir . 11.005 14.665 6.552 4.485 3.628
Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 6.099 7.274 409 1.589 5.276
Leiguskuldir 12.239 18.425 2.676 7.471 8.278
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 16.626 16.626 16.626 0 0
45.969 56.990 26.263 13.545 17.182

28. febrúar 2023

Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir . 9.216 11.747 3.565 4.501 3.681
Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... 5.938 6.924 386 1.482 5.057
Leiguskuldir 9.068 10.522 2.061 6.243 2.218
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 16.488 16.488 16.488 0 0
40.710 45.681 22.500 12.226 10.956

Til viðbótar við samningsbundið sjóðsflæði þá nemur tekjuskattur til greiðslu 865 millj. kr. (2022/23: 1.150 millj. kr.).

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á verðsveiflum á fjármálamörkuðum sem hafa slæm áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjármálagerninga, s.s. breyting á gengi gjaldmiðla, vöxtum eða oliuverði. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlaáhætta

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evra (EUR) og bandaríkjadollar (USD).

Í eldsneytishluta samstæðunnar er leitast við að hlutleysa áhættuna með notkun gjaldmiðlaskiptasamninga.

Tapshætta vegna gjaldmiðlaáhættu

Eignir og skuldir í erlendri mynt voru í árslok sem hér segir:

29. febrúar 2024 USD EUR Aðrar myntir Samtals
Viðskiptakröfur 236 36 330 602
Handbært fé 238 4 25 267
Viðskiptaskuldir ( 716) ( 428) ( 38) ( 1.182)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 242) ( 388) 317 ( 313)

28. febrúar 2023

Viðskiptakröfur 243 20 198 461
Handbært fé 768 47 78 893
Viðskiptaskuldir ( 1.753) ( 594) ( 331) ( 2.678)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 742) ( 527) ( 55) ( 1.324)

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

28. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

d. Markaðsáhætta, frh.:

Gjaldmiðlaáhætta, frh.:

Næmningreining

10% veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í febrúarlok hefði aukið (minnkað) eigið fé og afkomu eftir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir:

29.2.2024 28.2.2023
USD ( 19) ( 59)
EUR ( 31) ( 42)
Aðrar myntir 25 ( 4)
Samtals ( 25) ( 105)

10% styrking krónunnar gagnvart þessum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt.

Vaxtaáhætta

Samstæðan býr við vaxtaáhættu vegna vaxtaberandi skulda samstæðunnar. Í lok rekstrarárs báru um 40% af langtímalánum samstæðunnar breytilega vexti (2022/23: 31%), eða að fjárhæð 5.625 millj. kr. (2022/23: 3.835 millj. kr.), og felst áhætta samstæðunnar í mögulegri hækkun vaxta, sem leitt getur til aukins fjármagnskostnaðar og neikvæðra áhrifa á sjóðstreymi.

Breyting í vöxtum skulda með breytilega vexti um 1% í lok reikningsárs myndu hækka (lækka) eigið fé og afkomu um 45 millj. kr. (2022/23: 31 millj. kr.) eftir tekjuskatt.

Gangvirði

Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.

Olíuverðsáhætta

Breyting á heimsmarkaðsverði á olíu getur haft mikil áhrif á rekstur samstæðunnar, þá sér í lagi hjá dótturfélaginu Olís. Áhættan myndast frá þeim tíma sem innkaup á olíu eiga sér stað og þar til hún er seld til viðskiptavinar. Mismunur á innkaups- og söluverði getur haft bein áhrif á framlegð félagsins. Þá getur hátt verð á olíu í einhverjum tilfellum dregið úr eftirspurn og þannig haft áhrif á afkomu félagsins. Stýring olíuverðsáhættu felur í sér að draga úr afkomusveiflum og verjast óhagstæðri þróun með samningum við stærstu viðskiptavini félagsins. Þá er leitast við að stýra birgðum eftir aðstæðum á hverjum tíma og þannig draga úr þeim áhrifum sem verðsveiflur geta valdið. Ekki hefur verið notast við afleiðusamninga til að verjast óhagstæðri þróun olíuverð.

e. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni af völdum margra þátta í starfseminní en þar ber helst að nefna ranga viðskiptastefnu, vinnu starfsfólks, tækni, ófullnægjandi eða gallaða innri ferla eða ytri atburða.

Til að draga úr rekstraráhættu hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar ber helst að nefna vinnu við stefnumótun og ítarlega greiningu á rekstrar- og samkeppnisumhverfi Haga, lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og samkeppnishæf laun, áhersla er á kostnaðargreiningar, áætlanagerð, frávikagreiningar og uppgjör. Innleiddir hafa verið verkferlar á mörgum sviðum starfseminnar ásamt því að gerðar hafa verið umtalsverðar breytingar til hins betra í rekstri upplýsingatækni í samstæðunni, með traustari rekstri grunnkerfa, bættum og skjalfestum verkferlum og framþróun í stafrænum lausnum. Unnið hefur verið markvisst að netóryggismálum og hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í því samhengi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

28. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

f. Eiginfjárstyring

Það er stefna stjórnar að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að viðhalda trausti fjárfesta, lánastofnana og annarra markaðsaðila ásamt því að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að skila til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins.

Stefna stjórnar félagsins er að greiða hluthöfum þess árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar síðasta rekstrarárs eftir skatta. Forsendur fjárhæðar arðgreiðslu er að félagið viðhaldi fjárhagslegum styrk sínum og að arðgreiðslan taki mið af handbæru fé frá rekstri. Að auki mun félagið kaupa eigin bréf samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins. Þá stefnir stjórn Haga að því að eiginfjárhlutfall félagsins verði um 35%.

29. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila

Viðskipti við tengda aðila eru við hlutdeildarfélög og greinast þannig:

2023/24 2022/23
Seldar vörur og þjónusta 371 197
Keyptar vörur og þjónusta ( 2.222) ( 1.550)
Viðskiptakröfur í lok rekstrarárs 9 18
Viðskiptaskuldir í lok rekstrarárs ( 298) ( 7)

Stjórn og lykilstjórnendur

Laun, hlunnindi og árangurstengd laun stjórnar og lykilstjórnenda og eignarhlutur í árslok að nafnverði greinast þannig:

2023/24 Laun Hlunnindi Árangurstengd laun Framlag í lífeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Davið Harðarson, stjórnarformaður ... 10,2 0,0 0,0 1,2 0,36
Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... 7,8 0,0 0,0 0,9 0,00
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstj. ... 5,7 0,0 0,0 0,8 86,00
Jensína K. Böðvarsdóttir, meðstj. ... 6,7 0,0 0,0 0,8 0,06
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... 5,7 0,0 0,0 0,8 0,04
Finnur Oddsson, forstjóri ... 56,8 3,2 18,0 15,6 0,26
Lykilstjórnendur** ... 270,8 20,4 76,1 53,7 0,35

Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Tengdir aðilar, frh.:
    Stjórn og lykilstjórnendur, frh.:
    **Lykilstjórnendur eru: Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar Haga, Eiður Eiðsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni Haga, Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus (frá janúar 2024), Guðmundur Marteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Bónus (til desember 2023), Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís (frá janúar 2024), Frosti Ólafsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Olís (til desember 2023), Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri Aðfanga og Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Banana.

2022/23

Laun Hlunnindi Árangurs-tengd laun Framlag í lífeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Davíð Harðarson, stjórnarformaður ... 9,8 0,0 0,0 1,1 0,36
Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... 7,0 0,0 0,0 0,8 0,00
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstj. ... 5,9 0,0 0,0 0,8 51,29
Jensína K. Böðvarsdóttir, meðstj. ... 6,5 0,0 0,0 0,8 0,00
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... 4,1 0,0 0,0 0,6 0,04
Katrín O. Jóhannesd., fv. meðstj. ... 1,3 0,0 0,0 0,2 0,00
Finnur Oddsson, forstjóri ... 50,1 3,9 16,0 14,2 0,26
Lykilstjórnendur** ... 257,0 21,2 59,8 49,4 0,61

Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.

**Lykilstjórnendur eru: Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar Haga, Eiður Eiðsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni Haga, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Olís, Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri Aðfanga og Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Banana.

2023/24 2022/23

Kynjahlutfall lykilstjórnenda í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) 76/24 78/22

  1. Dótturfélög

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í upphafi og lok reikningsárs. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Eignarhlutur
Staðsetning 29.2.2024 28.2.2023
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olís ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Stórkaup ehf. Ísland 100% 100%
Eldum rétt ehf. Ísland 100% 100%

Eldum rétt ehf. varð hluti af samstæðu Haga frá og með 1. nóvember 2022, og er því hluti af samstæðunni í fjóra mánuði á samanburðarári.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 34


SKYRINGAR, FRH.:

31. Önnur mál

Þann 1. desember 2023 var tilkynnt að Olís, dótturfélag Haga, og Festi hefðu sameiginlega ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til ráðgjafar um stefnu og framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti félaganna í Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. (EAK) og EBK ehf. Í framhaldi af þeirri vinnu hafa Olís og Festi komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sólumeðferðar á eignarhlutunum. Olís á 40% eignarhlut í Olíudreifingu, 33,33% hlut í EAK og 25% hlut í EBK og er bókfært verð þeirra 1.295 millj. kr. í árslok.

32. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

2023/24 2022/23
Rekstur: 1.3.-29.2. 1.3.-28.2.
Rekstrarhagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusala) 7,5% 7,4%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusala) 9,4% 8,9%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusala) 4,3% 4,1%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 10,6 11,2
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 10,2 11,1
Efnahagur: 29.2.2024 28.2.2023
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,82 0,94
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,31 0,38
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 2,1 1,8
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 36,5% 38,8%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 26,00 24,96

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna
35


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum og af öllum félögum í samstæðunni. Þeir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2023 hafa ekki veruleg áhrif á reikningsskil félagsins, sjá nánar í skýringu 33s.

Til að auka upplýsingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

a. Grundvöllur samstæðu

Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur. Upplýsingar um dótturfélög er að finna í skýringu 30.

Viðskipti fellð út við gerð samstæðureiknings

Viðskipti milli félaga innan samstæðunnar, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru fellð út við gerð ársreiknings samstæðunnar.

b. Skilgreining á lykilkennitölum og hugtökum

EBITDA …………………… Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði, áhrif hlutdeildarfélaga og tekjuskatt.

EBITDA hlutfall ………… EBITDA sem hlutfall af vörusölu.

EBIT …………………… Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, áhrif hlutdeildarfélaga og tekjuskatt.

Ávöxtunarkrafa ………… Vegið meðaltal reiknaðra vaxta af lánsfé og eigin fé.

c. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjørsdegi. Aðrar eignir og skuldir, sem metnar eru á gangvirði í erlendri mynt, eru færðar á því gengi sem var í gildi þegar gangvirði þeirra var ákvarðað.

Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning. Gengismunur á innkaupum á vörum til endursölu er bókfærður meðal kostnaðarverðs seldra vara. Samstæðan notar gengisskráningu Seðlabanka Íslands eins og gengið er skráð á hverjum tíma við umreikning.

d. Tekjur

Seldar vörur

Tekjur af sölu á vörum eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og ávinnings af eignarhaldi flyst til kaupanda, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum og fjárhæð teknanna með áreiðanlegum hætti. Tekjur samstæðunnar samanstanda aðallega af staðgreiðslusölu í verslunum og staðgreiðslusölu á bensinstöðvum.

Sala í verslunum og vöruhúsum

Tekjur samstæðunnar eru af staðgreiðslusölu í verslunum og vöruhúsum, þar sem greitt er aðallega með reiðufé, greiðslukorti, inneignanótu eða gjafabréfi, og sölu með greiðslufresti til viðskiptamanna. Áhrif af reglum um skil á vörum eru óveruleg á tekjur félagsins og er ekki færð varuðarfærsla vegna þess í reikningsskil félagsins. Hagar lúta almennum lögum um ábyrgðir vegna seldra vara, m.a. vegna gallaðra vara, og er ekki færð varuðarfærsla vegna þeirra í reikningsskil félagsins.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 36


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

d. Tekjur, frh.:

Sala á eldsneyti

Tekjur samstæðunnar eru af staðgreiðslusölu eldsneytis á bensínstöðvum og sölu eldsneytis til stórnotenda, þar sem greitt er aðallega með greiðslukorti, reiðufé, inneignarnótu eða gjafabréfi, og sölu með greiðslufresti til viðskiptamanna. Áhrif af reglum um skil á vörum eru óveruleg á tekjur félagsins og er ekki færð varúðarfærsla vegna þess í reikningsskil samstæðunnar. Dótturfélagið Olís ehf. sem rekur bensínstöðvar lýtur almennum lögum um ábyrgðir vegna seldra vara, m.a. vegna gallaðra vara, og er ekki færð varúðarfærsla vegna þeirra í reikningsskil félagsins.

Veitt þjónusta/aðrar tekjur

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning samkvæmt samningi þegar þjónustan hefur verið veitt. Aðrar rekstrartekjur samstæðunnar eru leigutekjur fasteigna, aðstöðuleiga, hagnaður af sölu eigna o.fl.

e. Hlunnindi starfsmanna

Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði

Samstæðan greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikningi meðal launa og launatengdra gjalda eftir því sem þau falla til.

f. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjárfestingum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar á skuldbindingum, virðisrýrnun fjáreigna og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Lántökukostnaður er færður í rekstrarreikning miðað við virka vexti. Samstæðan eignfærir ekki vaxtagjöld af lánum.

Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman og fært sem annað hvort fjármunatekjur eða fjármagnsgjöld sem fer eftir hvort gengismunahreyfingar skila sér í hagnaði eða tapi.

g. Tekjuskattur

Tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.

Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókéfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna skattalegs tímabundins mismunar sem er tilkominn vegna upphaflegrar skráningar á viðskiptavild.

Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Skatteign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.

Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteignin er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milijónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaðferðir, frh.:

h. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila hagnaði ársins, sem úthlutað er til hluthafa félagsins, með vegnu meðaltali útistandandi hlutafjár yfir árið. Þynntur hagnaður á hlut er ákvarðaður með því að leiðréttá fjölda virkra hluta fyrir mögulegri þynningu vegna hluta sem gæti þurft að gefa út vegna kaupréttta starfsmanna.

i. Rekstrarfjármunir

Færsla og mat

Rekstrarfjármunir í samstæðunni eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Keyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur til að unnt sé að nýta vélbúnað er eignfærður sem hluti af þeim tækjabúnaði.

Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bókfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekna og sölutap fært meðal annars rekstrarkostnaðar.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávínningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna og færðar í rekstrarreikning. Land og lóðir eru ekki afskrifaðar.

Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir ... 20-50 ár
Áhöld og innréttingar ... 3-17 ár

Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjörsdegi.

Samstæðúrsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 38


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

j. Fjárfestingarfasteignir

Færsla og mat

Samstæðan leigir út fasteignir eða hluta fasteigna með tilheyrandi innréttingum og tækjum til lengri eða skemmri tíma þegar slík notkun á húsnæði er hagkvæm eða fellur vel að öðrum rekstri hennar. Fasteignir til leigu geta verið nýjar eða verið endurflokkaðar af fastafjármunum til eigin nota. Endurflokkun á sér stað yfir á fjárfestingarfasteignir þegar leiga hefur verið samþykkt og er færð til baka ef eignirnar eru aftur teknar til eigin nota.

Fjárfestingarfasteignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Endurflokkun af eða á fastafjármuni til eigin nota er á bókfærðu kostnaðarverði á þeim tíma.

Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Þegar fjárfestingarfasteignir eru samsettar úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður eða tap af sölu fjárfestingarfasteigna er munurinn á söluverði og bókfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekná og sölutap fært meðal annars rekstrarkostnaðar.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta fjárfestinga er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlæðan nýtingartíma einstakra hluta fjárfestingarfasteigna og færðar í rekstrarreikning. Land og lóðir eru ekki afskrifaðar.

Áætlæður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir ... 20-50 ár
Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjørsdegi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 39


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

k. Öefnislegar eignir

Viðskiptavild

Viðskiptavild verður til við yfirtöku á rekstrareiningum og kaupum á dótturfélögum og er færð á meðal óefnislegra eigna.

Viðskiptavild er mismunur á kostnaði við yfirtöku eða kaupum félags og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda.

Síðara mat

Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.

Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áæltað framtiðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs þá er viðskiptavild sem verður til við samruna færð á fjárskapandi einingar sem vænst er að muni hagnast af samlegðaráhrifum samrunans.

Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bóktfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópi eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bóktfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun annarra eigna er yfirfarin á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbending er um að dregið hafi úr virðisrýrnun eignarinnar. Virðisrýrnun annarra eigna er bakfærð ef breyting hefur átt sér stað á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki sem nemur áður færðri virðisrýrnun, að frádregnum afskriftum sem hefðu verið færðar ef engin virðisrýrnun hefði orðið.

Aðrar óefnislegar eignir

Aðrar óefnislegar eignir, þ.e. hugbúnaður, leiguréttindi og langtímakostnaður með takmarkaðan líftíma, eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.

Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður sem fellur til síðar er aðeins eignfærður ef hann eykur væntan framtiðarávinning þeirrar eignar sem hann tengist. Allur annar kostnaður, að meðtöldum þeim sem myndar viðskiptavild og vörumerki innan fyrirtækisins, er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann fellur til.

Afskriftir

Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áæltaðan nýtingartíma þeirra. Áæltaður nýtingartími greinist þannig:

Hugbúnaður ... 5-12 ár
Leiguréttindi og langtímakostnaður ... 10-15 ár

I. Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Ársreikningurinn inniheldur hlutdeild félagsins í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga frá upphafi áhrifa til loka þeirra. Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bóktfært verð hlutdeildarfélagsins er bóktfærða verðið fært í nüll og færslu frekara taps hætt, nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir hlutdeildarfélagið eða fjármagnað það.

Eignarhlutir í hludeildarfélögum eru eignfærðir á verði sem svarar til hlutdeildar félagsins í bóktfærðu eigin fé þeirra.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

m. Önnur félög

Eignahlutir í öðrum félögum, þar sem félagið á minna en 20% hlutafjár, eru færðir á kostnaðarverði sem talið er að endurspegli gangvirði. Arður frá þessum félögum er færður til tekna meðal fjármagnstekna þegar honum er úthlutað.

n. Vörubirgðir

Vörubirgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á fyrst inn - fyrst út reglunni og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi.

Gangvirði birgða sem yfirteknar eru við samruna er ákvarðað út frá væntu söluvirði í eðlilegum viðskiptum að frátöldum sölukostnaði og eðlilegri álagningu við að selja birgðirnar.

Hreint söluverð er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vör.

o. Fjármálagerningar

Fjáreignir

Skuldabréf, viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanalegum greiðslum sem eru ekki skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.

Markaðsverðbréf, sjóður og óbundnar bankainnstæður teljast til handbærs fjár.

Virðisrýrnun fjáreigna

Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign telst vera virðisrýrð ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem átt hafa sér stað benda til þess að vænt framtíðarsjóðstremi eignarinnar verði lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunur á bókéfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstremi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar.

Fjárskuldir

Fjárskuldir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Fjáreignum og fjárskuldum er jafnað saman og nettó fjárhæð sýnd í efnahagsreikningi þegar lagalegur réttur er til staðar um jöfnun og fyrirhugað er að gera upp með jöfnun fjáreigna og fjárskulda eða innleysa eignina og greiða skuldina á sama tíma.

Afleiður

Afleiðusamningar eru upphaflega færðir á gangvirði og endurmetnir til gangvirðis í lok hvers uppgjörstímabils. Gangvirðis breytingar eru færðar í rekstrarreikning.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milfjónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

p. Leigusamningar

Við upphaf samnings leggur samstæðan mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér rétt til yfirráða tiltekinnar eignar á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér yfirráð tiltekinnar eignar notar samstæðan skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.

Samstæðan sem leigutaki

Allir leigusamningar samstæðunnar eru um fasteignir og þá hefur samstæðan kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.

Samstæðan færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leigueignarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguilvilnunum sem samstæðan hefur fengið.

Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til samstæðunnar í lok leigutímabilins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að samstæðan muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastaðjármuni samstæðunnar. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.

Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar samstæðan þá vexti sem hún fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.

Leigugreiðslur sem eru innifaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér fastar leigugreiðslur og breytilegar leigugreiðslur tengdar vísitölu.

Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati samstæðunnar á fjárhæð sem hún væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef samstæðan breytir mati sínu á því hvort hún muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.

Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókéfærðu verði leigueignarinnar, eða leiðrétting færð í rekstrarreikning samstæðunnar ef bókéfærð virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í nüll.

Leigueignir eru sérgreindar í efnahagsreikningi meðal fastaðjármuna. Leiguskuldir eru sérgreindar í efnahagsreikningi og skipt í langtíma- og skammtímahluta skulda. Afskriftir af leigueignum eru í rekstrarreikningi undir afskriftum og vaxtagjöld af leiguskuldum eru í rekstrarreikningi undir fjármagnsgjöldum.

Samstæðan sem leigusali

Samstæðan leigir fasteignir og færir leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga línulega yfir leigutímabilið meðal annarra teknu í rekstrarreikningi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
42


SKÝRINGAR, FRH.:

33. Mikilvægar reikningsskilaðferðir, frh.:

q. Hlutafé

Almennt hlutafé

Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður við útgáfu hlutafjár, að frádregnum skattaáhrifum, og beinn kostnaður við útgáfu kaupréttarsamninga er færður til lækkunar á eigin fé.

Kaup á eigin hlutum

Þegar hlutir sem flokkaðir eru sem eigið fé eru keyptir er fjárhæð kaupverðsins, að meðtöldum beinum kostnaði að frádregnum skattaáhrifum, færð sem lækkun á eigin fé. Kaup á eigin bréfum eru færð sem eigin hlutir og þeir færðir til lækkunar á heildar eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir eða gefnir út aftur er fjárhæð söluverðsins færð til hækkunar á eigin fé. Hagnaði eða tapi sem fellur til við sölna er bætt við eða dregið frá yfirverðsreikningi hlutafjár.

r. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar samstæðan ber lagalega eða ætlaða skyldu vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstreymi með vöxtum fyrir tekjuskatt sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.

s. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir

Á árinu tók í gildi nýr reikningsskilastaðall, IFRS 17 um vátryggingarsamninga. Staðallinn hefur ekki áhrif á reikningsskil félagsins. Auk þess tóku í gildi á árinu eftirfarandi breytingar á stöðlunum:

Breyting á IAS 1 ... Skýringar um reikningsskilareglur og leiðbeinandi verklagi í IFRS Practise Statement 2.

Breyting á IAS 8 ... Skilgreining á reikningshaldslegu mati.

Breyting á IAS 12 ... Frestaður tekjuskattur vegna eigna og skulda sem myndast við ein viðskipti.

Breytingar á ofangreindum stöðlum höfðu óveruleg áhrif á reikningsskil félagsins.

Nokkrar breytingar á reikningsskilastöðlum hafa verið gerðar sem hafa ekki tekið gildi fyrir reikningsskil 31. desember 2023 og hafa ekki verið innleidd fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila. Ekki er búist við að breytingar á þessum reikningsskilastöðlum muni hafa veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


ÁRSFJÓRBUNGAYFIRLIT (ÓENDURSKOBAB)

Rekstrarárið 2023/24

1. árs-fjórðungur 2. árs-fjórðungur 3. árs-fjórðungur 4. árs-fjórðungur Samtals
Vörusala 41.490 45.309 43.683 42.788 173.270
Kostnaðarverð seldra vara ( 33.418) ( 35.406) ( 34.621) ( 33.836) ( 137.281)
Framlegð 8.072 9.903 9.062 8.952 35.989
Aðrar rekstrartekjur 194 210 139 139 682
Laun og launatengd gjöld ( 3.932) ( 3.881) ( 4.094) ( 4.322) ( 16.229)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.813) ( 1.760) ( 1.877) ( 1.929) ( 7.379)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.521 4.472 3.230 2.840 13.063
Afskriftir ( 1.129) ( 1.353) ( 1.285) ( 1.261) ( 5.028)
Rekstrarhagnaður 1.392 3.119 1.945 1.579 8.035
Hrein fjármagnsgjöld ( 626) ( 639) ( 625) ( 731) (2.621)
Áhrif hlutdeildarfélaga 40 109 60 488 697
Hagnaður fyrir tekjuskatt 806 2.589 1.380 1.336 6.111
Tekjuskattur ( 153) ( 505) ( 264) ( 145) ( 1.067)
Heildarhagnaður tímabilsins 653 2.084 1.116 1.191 5.044

Rekstrarárið 2022/23

Vörusala 38.213 43.399 40.220 40.160 161.992
Kostnaðarverð seldra vara ( 30.649) ( 35.016) ( 32.919) ( 32.421) ( 131.005)
Framlegð 7.564 8.383 7.301 7.739 30.987
Aðrar rekstrartekjur 202 1.029 587 179 1.997
Laun og launatengd gjöld ( 3.443) ( 3.438) ( 3.578) ( 3.886) ( 14.345)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.655) ( 1.605) ( 1.712) ( 1.626) ( 6.598)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.668 4.369 2.598 2.406 12.041
Afskriftir ( 1.021) ( 1.099) ( 1.085) ( 1.248) ( 4.453)
Rekstrarhagnaður 1.647 3.270 1.513 1.158 7.588
Hrein fjármagnsgjöld ( 544) ( 426) ( 414) ( 503) ( 1.887)
Áhrif hlutdeildarfélaga 44 94 34 220 392
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.147 2.938 1.133 875 6.093
Tekjuskattur ( 221) ( 560) ( 223) ( 140) ( 1.144)
Heildarhagnaður tímabilsins 926 2.378 910 735 4.949

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna
44


STJÓRNARHÁTTAYFÍRLYSING (ÓENDURSKOBAB)

  1. Hlutafélagið Hagar hf.

Hagar eru fjölskylda af fyrirtækjum sem að starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Öll fyrirtæki Haga hafa það markmið að veita framúrskarandi þjónustu, selja gæða vörur á sanngjörnu verði og hafa um leið eins jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mögulegt er. Gildi Haga endurspegla þessi leiðarljós í rekstrinum en þau eru þjónustulund, samvinna, hagkvæmni og framsækni.

1.1 Fylgni við leiðbeiningar um stjórnarhætti, lög og reglur

Stjórnarhættir Haga eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru samþykktar af stjórn þann 22. mars 2024, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru samþykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í samþykktum. Gildandi starfskjarastefna Haga var staðfest á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023, en hún nær til allra helstu þátta í starfs- og launakjörum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 30. maí 2024.

Helstu lög sem gilda um starfsemi Haga eru lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um ársreikninga nr. 3/2006, samkeppnislög nr. 44/2005, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, lög um aðgerðir gegin markaðssvikum nr. 60/2021 og lög um tekjuskatt nr. 90/2003. Þá tryggja Hagar öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með í starfseminni, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lögin eru aðgengileg á vef Alþingis, www.althingi.is.

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulifsins, sem félaginu ber að fylgja sem útgefanda skráðra verðbréfa. Leiðbeiningarnar má finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is og á www.leidbeiningar.is.

Hagar birta reglur og annað efni sem Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja gera ráð fyrir að félög birti á vefsíðu sinni á sérstöku svæði fyrir fjárfesta á vef félagsins, www.hagar.is. Þar má meðal annars finna starfsreglur stjórnar og undirnefnda, starfskjarastefnu og arðgreiðslustefnu. Yfirlýsing þessi er einnig aðgengileg á vef félagsins, auk þess sem hún er birt í ársreikningi og í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess, sem hittast á hluthafafundum að minnsta kosti einu sinni á ári. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq CSD, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins. Fundargerðir hluthafafunda, sem haldnir hafa verið eftir að hlutir félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins innan sjö daga frá hluthafafundi.

1.2 Frávik frá leiðbeiningum um stjórnarhætti

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera að fullu leyti í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, og telur stjórn félagsins að hvergi sé vikið frá leiðbeiningunum.

1.3 Tilvísanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir

Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is.

Arðgreiðslustefna

Stjórn Haga hefur markað félaginu þá stefnu að skila til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins. Arðgreiðslustefnan er endurskoðuð árlega og var síðast breytt þann 22. mars 2024.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

1.3 Tilvísanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:

Jafnréttis- og mannréttindastefna

Í mars 2024 endurskoðaði stjórn Haga jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins og samþykkti hana með breytingum en stefnan byggir á lögum nr. 150/2020. Markmið stefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan félagsins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kyni, uppruna, þjóðerni, litarhætti o.s.frv. Stefnuna skal endurskoða minnst á þriggja ára fresti.

Öll dótturfélög Haga hafa lokið jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem lögfest var í júní 2017, og hafa þau innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun. Móðurfélag Haga lauk jafnlaunastaðfestingu í lok árs 2022.

Persónuverndarstefna

Hagar hafa einsett sér að vinna með persónuupplýsingar í hvívetna í samræmi við lög um persónuupplýsingar og vinnslu persónuupplýsinga og hafa því til staðfestingar sett félaginu persónuverndarstefnu sem síðast var breytt og samþykkt á stjórnarfundi þann 24. mars 2023.

Reglur um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda

Markmið reglna um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda er að tryggja örugga meðferð innherjaupplysinga og hindra að innherjaupplysingar berist til annarra en þeirra sem þarfnast þeirra starfs síns vegna. Reglunum er ætlað að stuðla að því að viðskipti stjórnenda séu í samræmi við lög og reglur sem um málaflokkinn gilda og að slík viðskipti séu trúverðug. Reglurnar hafa einnig það að markmiði að stuðla að auknu jafnræði meðal fjárfesta þannig að þeir hafi jafnan aðgang að nýjustu upplysingum, er máli skipta, á hverjum tíma. Stjórn samþykkti reglurnar þann 7. september 2023 og skulu þær endurskoðaðar að lágmarki á tveggja ára fresti.

Reglur um vernd uppljóstrara

Markmið laga um vernd uppljóstrara, nr. 40/2020, er að stuðla að því upplýst verði um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi og þannig dregið úr slíku hátterni. Reglum um vernd uppljóstrara er ætlað að koma á skilvirku úrræði til að koma upplýsingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í fór með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila. Stjórn Haga samþykkti reglurnar þann 22. mars 2024.

Samkeppnisstefna

Samkeppnisstefna Haga var samþykkt á aðalfundi félagsins í júní 2019. Í stefnunni er kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sátt Haga við Samkeppniseftirlitið frá 2018 og skyldur samkvæmt samkeppnislögum. Jafnframt felur stefnan í sér hátternisreglur fyrir hluthafa Haga.

Síðareglur

Stjórn Haga hefur sett félaginu síðareglur en þær gilda um stjórn Haga og allt starfsfólk félagsins og dótturfélaga þess. Síðareglurnar eru endurskoðaðar árlega og var þeim síðast breytt á stjórnarfundi þann 7. apríl 2022.

Sjálfbærni- og umhverfisstefna

Stjórn Haga hefur sett félaginu sjálfbærnistefnu sem endurskoðaðar var á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Hagar hafa alla tíð lagt metnað sinn í að þjóna íslenskum neytendum með ábyrgum hætti. Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara samfélags og umhverfis, samhliða heilbrigðum rekstri. Sjálfbærnistefnan byggir á fjórum meginstöðum; umhverfi, mannaður, neytendur og stjórnarhættir. Þá hafa Hagar valið sjö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í framkvæmdaráætlun stefnunnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

1.3 Tilvisanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:

Stjórn Haga hefur einnig sett félaginu umhverfisstefnu en stefnan var endurskoðuð á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Umhverfisstefna Haga og dótturfélaga er sett fram með það að leiðarljósi að leggja áherslu á mikilvægi umhverfissjónarmiða í daglegri starfsemi félagsins. Meginmarkmiðið er að félagið leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og styðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Umhverfisstefnan byggir á fjórum meginstoðum; loftslagsmál, hringrásarhagkerfi, mengun og líffræðileg fjölbreytni.

Hagar og rekstrareiningar þess hafa frá árinu 2019, í samvinnu við Klappir Grænar lausnir hf., birt sjálfbærniuppgjör samstæðunnar skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um sjálfbærni og bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.

Starfsemi Haga fellur undir ákvæði ársreikningalaga um ófjárhagslega upplýsingagjóf en þar eru settar fram upplýsingar til að hægt sé að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfismál, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum. Starfsemi Haga fellur einnig undir gildissvið flokkunarreglugerðar ESB frá og með rekstrarárinu 2023/24 en reglugerðin skilgreinir viðmið sem ákvarða hvort atvinnustarfsemi uppfylli skilyrði þess að teljast umhverfislega sjálfbær. Ófjárhagslegar upplýsingar Haga má finna í sérstökum viðauka í ársreikningi samstæðu Haga.

Skattastefna

Þann 28. febrúar 2024 samþykkti stjórn Haga skattastefnu félagsins. Tilgangur skattastefnu er að marka stefnu og miðla því hvernig félagið hagar skattamálum samstæðunnar í samræmdu og samkeppnishæfu skattaumhverfi. Skattastefnan veitir leiðbeiningar um stjórnun skattamála og skattaáhátttu sem tengjast rekstri samstæðunnar, reglufylgni og samskipti við skattayfirvöld.

Stefna um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka

Í janúar 2024 lauk félagið uppfærslu á áhættumati samstæðunnar vegna aðgerða gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Í kjölfarið samþykkti stjórn, þann 11. janúar 2024, stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútuþægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í för með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.

Upplysingastefna

Stjórn Haga hefur mótað sér stefnu um birtingu upplýsinga. Markmið upplýsingastefnunnar er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum, tímanlegum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi félagsins á hverjum tíma, í samræmi við lög og reglur sem félaginu ber að fylgja sem útgefandi skráðra verðbréfa, s.s. lög um verðbréfaviðskipti.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

2. Innra eftirlit og áhættustjórnun

2.1 Innra eftirlit og áhættustýring

Félagið kappkostar að hafa fullnægjandi innra eftirlit á hinum ýmsu sviðum. Innra eftirlit Haga felst í eftirliti með starfsemi félagsins í því skyni að fyrirbyggja og greina hugsanleg mistök og sviksemi birgja, starfsmanna og viðskiptavina félagsins. Félagið hefur lagt áherslu á að efla eftirlit og auka öryggisráðstafanir. Hjá Högum er m.a. í þessu skyni starfrækt sérstök öryggisdeild sem hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki í eftirliti með öllu sem viðkemur rekstri verslana félagsins. Einnig er starfandi á aðalskrifstofu Haga starfsmaður sem hefur innra eftirlit að sínu aðalstarfi og heyrir hann undir forstjóra félagsins. Hlutverk innra eftirlits og öryggisdeildar Haga er að hafa eftirlit með því að viðeigandi verklagsreglum sé fylgt í daglegum rekstri félagsins. Í því skyni er m.a. beitt sérhæfðum upplýsingakerfum. Stjórn Haga hefur falið endurskoðunarnefnd að hafa vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Þá hefur stjórn félagsins skilgreint áhættuþætti í rekstri Haga og miðast áhættustýringin að því að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi.

2.2 Ytri endurskoðun

Endurskoðendur félagsins eru kosnir til eins árs í senn á aðalfundi. Endurskoðendur Haga eða aðilar þeim tengdir mega ekki eiga hlutabréf í félaginu. Endurskoðendur skulu endurskoða reikningsskil félagsins á grundvelli alþjóðlegra endurskoðunarstaðla. Þeir gera ýmsar kannanir á bókhaldi félagsins og hafa ávallt óhindraðan aðgang að bókhaldi og öllum gögnum félaga í samstæðu Haga. Stjórn félagsins og endurskoðunarnefnd fær árlega í hendur sérstaka endurskoðunarskýrslu frá endurskoðendum þess þar sem fram koma helstu athugasemdir þeirra við reikningsskilin.

Endurskoðandi Haga er PricewaterhouseCoopers ehf. Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, löggiltir endurskoðendur, bera ábyrgð á endurskoðun félagsins fyrir hönd PricewaterhouseCoopers ehf.

2.3 Regluvarsla

Stjórn félagsins hefur skipað regluvörð þess. Hlutverk regluvarðar er m.a. að hafa umsjón með því að lögum um aðgerðir gegin markaðssvikum og reglugerð MAR sé fylgt í starfsemi félagsins. Regluvörður félagsins er Guðrún Eva Gunnarsdóttir og staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.

3. Stefna um fjölbreytileika

Stefnu um fjölbreytileika er lýst í gildandi jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins, sbr. umfjöllum í gr. 1.3. hér að framan en tilgangur stefnunnar er m.a. sá að stuðla að því að hlutur kynjanna verði eins jafn og unnt er í stjórnunar- og áhrifastöðum, auk þess sem stefnan miðar að jöfnum réttindum og sömu tækifærum einstaklinga í starfi. Þá er viðar í stjórnarháttum Haga tekið á málaflokknum en í samþykktum félagsins er m.a. kveðið á um að tryggja beri að hlutfall hvors kyns í stjórn félagsins sé ekki lægra en 40%, í samræmi við lög um kynjakvóta í stjórnum. Tilnefningarnefnd hefur verið skipuð af hluthöfum félagsins og ber henni skv. starfsreglum m.a. að huga vel að samsetningu stjórnar, fjölbreytni og kynjahlutföllum og starfar hún auk þess eftir leiðbeiningum um stjórnarhátti. Nánar er fjallað um tilnefningarnefnd Haga í 7. gr. leiðbeininga þessara.

4. Stjórn Haga

4.1 Samsetning og starfsemi stjórnar

Stjórn Haga hf. fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórnin var kjörin á aðalfundi þann 1. júní 2023. Stjórnina skipa Davíð Harðarson (formaður), Eva Bryndís Helgadóttir (varaformaður), Eirikur S. Jóhannsson, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Sigríður Olgeirsdóttir. Stjórnarmenn hafa lagt fram persónulegar upplýsingar, svo sem um trúnaðarstörf fyrir aðra aðila, stjórnarsetu í öðrum félögum og möguleg hagsmunatengsl til að auðvelda mat á hæfi þeirra. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess. Samsetning stjórnar uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta sem tóku gildi 1. september 2013. Nánari upplýsingar um stjórn félagsins má finna í gr. 4.2. í yfirlýsingu þessari.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

4.1 Samsetning og starfsemi stjórnar, frh.:

Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega og voru gildandi starfsreglur sambykktar af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar taka mið af fyrirmælum sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá 11. september 2018. Í starfsreglunum er meðal annars kveðið á um störf stjórnarinnar, ábyrgð hennar og verkaskiptingu. Sérstaklega er fjallað um skyldur formanns stjórnar í reglunum, en þar er hvorki getið um að stjórn útbúi sérstaka starfslysingu fyrir formann né aðra stjórnarmenn. Samkvæmt starfsreglunum kýs stjórn sér formann og varaformann á fyrsta fundi. Ekki er kjörö til annarra embætta. Samkvæmt starfsreglunum ber stjórn að hittast a.m.k. einu sinni á ári án formanns til að meta frammistöðu hans. Henni ber einnig að meta árlega sín eigin störf, störf forstjóra og undirnefnda. Árangursmat stjórnar (sjálfsmatið) er lagt til grundvallar til að bæta störf stjórnar enn frekar á komandi starfsári. Hvorki stjórnarmenn né forstjóri mega taka þátt í ákvörðunum þar sem þeir sjálfir hafa verulegra hagsmuna að gæta.

Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á aðalskrifstofu Haga hf., mánaðarlega hið minnsta. Árlega er sambykkt fundaáætlun ár fram í tímann. Fundina sitja, auk stjórnarmanna, forstjóri, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar, og framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjörí á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn skal atkvæði formanns ráða. Fundargerðir stjórnarfunda ritar framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Fundargerðir eru afhentar stjórnarmönnum á stjórnarvef innan nokkurra daga frá fundi og eru þær staðfestar á næsta stjórnarfundi á eftir.

Starfsárið 2023-2024, þ.e. tímabilið milli aðalfunda, hafa verið haldnir níu stjórnarfundir og eru áættlaðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Meirihluti stjórnar var mættur í öllum tilfellum. Stjórnarmenn voru í einhverjum tilvikum viðstaddir fund í gegnum fjarskiptabúnað.

4.2 Stjórn Haga

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc-gráðu í fjármálum frá University of Florida, Cand.Oecon- gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Travel Connect hf. Hann var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016, fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016 og verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland 2009-2013. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Nordic Visitor ehf., Travel Connect hf., Terra Nova ehf., Iceland Travel ehf., Corivo ehf., Forest Cat Travel ehf., WAYWF ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 356.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva er varaformaður stjórnar. Hún var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMG slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. auk þess sem hún hefur setið í stjórn Viðskiptaráðs Íslands frá árinu 2022. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

4.2 Stjórn Haga, frh.:

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur var kjörinn í stjórn Haga hf. pann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur er framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf. Þar áður var Eiríkur forstjóri Slippsins á Akureyri 2015 til loka árs 2021 ásamt því að sinna starfi stjórnarformanns Samherja, en því starfi sinnti hann 2005-2023. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og vann fyrir skilanefnd bankans til 2014. Þar áður var hann forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur á að baki stjórnarsetu í ýmsum félögum á Íslandi sem og erlendis, hann er nú stjórnarformaður Jarðborana hf., Slippsins Akureyri ehf., Optimar AS og Knattspyrnufélags Akureyrar auk félaga innan samstæðu Kaldbaks. Hann er í stjórn Hrólfsskers ehf., auk fjölskyldutengdra félaga. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Kaldbaki ehf. sem á 86.000.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. pann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína hefur verið framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf. frá 2020. Áður var hún Associate Partner hjá Valcon consulting frá 2019 – 2020. Jensína var framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannaðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sólú á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (síðar Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og Vinnvinn ehf. og er auk þess framkvæmdastjóri og stjórnarmaður hjá Sunnuvegi 13 ehf. Jensína er formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Jensína á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengd Sunnuvegi 13 ehf. sem á 60.000 hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960)

Sigríður var kjörin í stjórn Haga hf. pann 1. júní 2022. Hún er með AMP gráðu frá Harvard Business School, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, rekstar- og viðskiptanám hjá Endurmenntun HÍ og kerfisfræði frá EDB-skolen í Danmörku. Sigríður hefur verið stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum og Íslandsbanka. Var sviðsstjóri þjónustu hjá Völku ehf. 2019-2021, framkvæmdastjóri Rekstar- og upplýsingatæknisiðs Íslandsbanka 2010-2019, sjálfstætt starfandi og í stjórnarstörfum 2008-2010, forstjóri Humac ehf. (Apple umboði á Íslandi auk 4 dótturfélaga á Norðurlöndunum) 2007-2008, framkvæmdastjóri Skipta/Símans 2006-2007 og áður framkvæmdastjóri hjá Ax hugbúnaðarhúsi, Ax Business Intelligence AS og Tæknival hf. Sigríður er stjórnarformaður Nova, stjórnarmaður í Íslandshótelum og situr í tilnefningarnefnd Sjóvá. Sigríður á 35.000 hluti í Högum hf. Engir aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

4.3 Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar

Bein samskipti hluthafa við stjórn skulu vera við formann stjórnar. Stjórn félagsins skal upplýst um tillögur, spurningar eða athugasemdir hluthafa utan hluthafafunda til stjórnar og stjórn félagsins skal hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim. Hluthafar geta komið tillögum, fyrirspurnum og athugasemdim á framfæri við stjórn félagsins í gegnum netfangið stjó[email protected]. Allir stjórnarmenn fá sjálfkrafa afrit af tölvupóstum sem berast á netfang stjórnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

5. Framkvæmdastjórn Haga

5.1 Forstjóri Haga

Forstjóri er ráðinn af stjórn og ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar, lög, sambykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Starfslýsing forstjóra kemur fram í ráðningarsamningi hans.

Forstjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Forstjóri kemur fram fyrir hönd félagsins í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.

Forstjóri Haga hf. er Finnur Oddsson. Staðgengill forstjóra er Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum hf.

Finnur Oddsson (f. 1970)

Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D. gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbýggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., Eldum rétt ehf., Stórkaup ehf., Klasi ehf., Mynto ehf., Effectus ehf. og Norðurver ehf. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Finnur á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

5.2 Framkvæmdastjórn Haga

Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af forstjóra auk þriggja framkvæmdastjóra hjá móðurfélagi og fimm framkvæmdastjórum stærstu rekstrareininga Haga. Að jafnaði eru haldnir 10 framkvæmdastjórnarfundir á ári hverju. Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af eftirtöldum aðilum, í stafrófsrøð:

Björgvin Víkingsson (f. 1983)

Björgvin er framkvæmdastjóri Bónus. Hann hóf störf hjá Bónus 1. maí 2023 og tók við starfi framkvæmdastjóra þann 1. janúar 2024. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin starfaði sem forstjóri Rikiskaupa frá árinu 2020 en hann hefur auk þess viðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. Björgvin er stjórnarmaður í Vinna Minna ehf. og Michelsen ehf. Hann er varamaður í stjórn Frjálslþróttasambands Íslands og Sáms ehf. Hvorki Björgvin né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Björgvin á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Eiður Eiðsson (f. 1968)

Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænnni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænnni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS. Eiður á 100.000 hluti í Högum hf. Eiður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)

Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskr á kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Stórkaup ehf., Olís ehf. (varamaður), Eldum rétt ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Guðrún Eva á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Ingunn Svala Leifsdóttir (f. 1976)

Ingunn Svala er framkvæmdastjóri Olís en hún tók við starfinu 1. janúar 2024. Ingunn Svala er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á reikningshald og fjármál, og lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Auk þess lauk Ingunn Svala AMP prógrammi frá IESE Business School í New York árið 2018. Ingunn Svala starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dohop og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík í sjö ár. Ingunn Svala hefur auk þess viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum og hefur t.a.m. starfað fyrir Kaupþing, skilanefnd Kaupþings og Actavis Group PTC. Ingunn Svala er stjórnarmaður í Kviku banka ehf., ÖSAR lífæð heilbrigðis hf., Parlogis ehf. og Stórkiri ehf. Hvorki Ingunn Svala né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Ingunn á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Jóhanna P. Jónsdóttir (f. 1970)

Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur viðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf., innkaupastjóri Distica hf., sem innkaupa- og birgðastjóri hjá Bláa Lóninu hf. og Össuri hf. Jóhanna situr í stjórn GS1 Ísland ehf., Vörustjórnunarfélags Íslands og Grænlensk-íslenska viðskiptaráðinu. Hvorki Jóhanna né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Jóhanna á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Lárus Óskarsson (f. 1960)

Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988. Lárus á 151.000 hluti í Högum hf. Lárus á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Magnús Magnússon (f. 1988)

Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og aðstoðarforstjóri. Magnús hóf störf þann 1. febrúar 2021 sem framkvæmdastjóri en tók einnig við stöðu aðstoðarforstjóra í mars 2024. Magnús er með M.Eng. gráðu í íðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforniu, og B.Sc. gráðu í íðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlands og erlands. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórnum 2M ehf., Djús ehf. og Stórkaups ehf., auk þess sem hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:

Sigurður Reynaldsson (f. 1966)

Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999. Sigurður situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Múrbúðin ehf. og KS smiði ehf. (varamaður). Hvorki Sigurður né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Sigurður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

6. Undirnefndir stjórnar Haga

Stjórn Haga hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn skulu vera þrír í hvorri nefnd fyrir sig. Að minnsta kosti tveir nefndarmenn í undirnefndum stjórnar þurfa að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.

6.1 Endurskoðunarnefnd

Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varðandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Endurskoðunarnefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Endurskoðunarnefnd skipa nú Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi, sem er formaður nefndarinnar, Eva Bryndís Helgadóttir, stjórnarmaður í Högum og Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður í Högum. Allir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga, daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2023/24, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2023, hafa verið haldnir fjórir fundir hjá endurskoðunarnefnd og eru áætláðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

6.2 Starfskjaranefnd

Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Þá skal starfskjaranefnd hafa eftirlit með framfylgd starfskjarastefnunnar og útbúa skýrslu um framkvæmd hennar. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Starfskjaranefnd skipa nú Jensína Kristín Böðvarsdóttir, stjórnarmaður í Högum, Davíð Harðarson, stjórnarmaður í Högum, og Eiríkur S. Jóhannesson, stjórnarmaður í Högum. Jensína er formaður nefndarinnar. Allir nefndarmenn eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2023/24, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2023, hafa verið haldnir þrír fundir hjá starfskjaranefnd og eru áætláðir 1-2 fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:

6.3 Starfskjarastefna

Starfskjarastefna Haga var samþykkt á aðalfundi þann 1. júní 2023. Tilgangur starfskjarastefnunnar er að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf um starfsfólk. Starfskjarastefnan er einn liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.

Stjórnarmönnum er greidd föst, mánaðarleg þóknun. Fjárhæð hennar er nú kr. 386.000. Laun formanns stjórnar eru tvöföld sú fjárhæð eða kr. 772.000 og þóknun varaformanns er kr. 568.000. Þóknun til stjórnarmanna er ákveðin á aðalfundi ár hvert.

Starfskjör forstjóra eru tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi við hann. Þar koma fram helstu skyldur hans og ábyrgðarsvið, föst laun, árangurstengdar greiðslur, lífeyrisréttindi, orlof og önnur hlunnindi. Starfskjör annarra æðstu stjórnenda eru á sama hátt tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum. Þá má finna í starfskjarastefnunni upplýsingar um breytileg starfskjör forstjóra og æðstu stjórnenda ásamt upplýsingum um kaupréttarkerfi.

Starfskjarastefnan er tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Gera skal grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins.

7. Tilnefningarnefnd

Hluthafar Haga kusu sér tilnefningarnefnd á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023. Í nefndinni skulu sitja að lágmarki þrír einstaklingar en stjórnarmönnum, stjórnendum og öðrum starfsmönnum Haga er óheimilt að sitja í tilnefningarnefnd.

Hlutverk tilnefningarnefndar er að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu og þekkingu og að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu. Starfsreglur nefndarinnar voru samþykktar á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023. Starfsreglurnar taka m.a. mið af fyrirmælum sáttar Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.

Tilnefningarnefnd skipa nú Björn Ágúst Björnsson, formaður nefndar, Björg Sigurðardóttir og Kristjana Milla Snorradóttir. Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess.

8. Helstu úrskurðir og dómar tengdir Högum

Undanfarið ár hafa nokkrir úrskurðir og dómar fallið er varða Haga, eins og eðlilegt er hjá stóru félagi. Ekkert þessara mála hafði áhrif á starfsemi eða rekstrarafkomu félagsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓF JÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAÐ)

1. Um viðskiptalíkan Haga

Hagar hf. er leiðandi verslunarfyrirtæki sem starfar á íslenskum matvöru-, sérvoru- og eldsneytismarkaði en félagið var stofnað í núverandi mynd árið 2003. Í lok rekstrarársins starfrækti félagið 40 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvoruverslun. Kjarnastarfse mi Haga er á sviði verslunar með dagvöru og eldsneyti og tengdrar starfsemi vöruhúsa. Starfsmenn samstæðunnar í árslok voru 2.699 talsins og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 1.501. Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift en í lok árs voru hluthafar 968 talsins.

Fyrirtæki Haga voru starfrækt í sex dótturfélögum á rekstrarárinu. Fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar en Hagar veita aðhald í rekstri og stuðning með miðlægri þjónustu þar sem markmiðið er að ná fram kostnaðarhagræði, bæta þjónustu við viðskiptavini og styrkja þannig tekjumyndun og samkeppnisstöðu. Þannig skapa Hagar virði fyrir hluthafa.

Hagar hafa það að markmiði að starfrækja og þróa leiðandi vörumerki á smásölumarkaði sem standast væntingar viðskiptavina sinna og hafa burði til að vaxa. Markmiðið er einnig að halda einfaldleika í starfsemi allra rekstrareininga sem og að reka hverja einingu sem sjálfstætt og arðbært fyrirtæki með öllum eiginleikum hefðbundins fyrirtækis. Markmið Haga er enn fremur að hámarka virði hverrar rekstrareiningar með aukinn þekkingu á viðskiptum og smásölu.

Stefna Haga er að verslanir félagsins verði ávallt fyrsti valkostur neytenda á grundvelli verðs, gæða, úrvals og þjónustu. Verkefni félagsins er að efla hag neytenda með framúrskarandi verslun og þjónustu og skapa eftirsóknarverðan vinnustað. Þannig ná Hagar markmiðum um að skila hluthöfum sanngjarnri ávöxtun. Gildi Haga eru hagkvæmni, samvinna, þjónustulund og framsækni.

1.1 Þróun lagaumhverfis

Á síðustu árum hefur verið hröð þróun á því lagaumhverfi sem snýr að birtingu evrópskra fyrirtækja á sjálfðærniupplýsingum. Flokkunarreglugerðin svokallaða (e. EU Taxonomy) tók gildi hér á landi þann 1. júní 2023, en hún skyldar fyrirtæki yfir ákveðnum stærðarviðmiðum til að mæla að hvaða marki starfsemi þeirra telst umhverfislega sjálfðær og er það mælt sem hlutfall af veltu, rekstrakostnaði og fjárfestingakostnaði. Skýrslugjóf Haga í samræmi við flokkunarreglugerðina má finna í kafla 9 hér á eftir.

Þá hefur CSRD tilskipunin um skýrslugjóf á sviði sjálfðærni tekið gildi innan Evrópusambandsins. Tilskipuninni fylgja efnismiklir uppgjörstaðlar (ESRS), sem segja til um hvernig fyrirtæki eiga að haga birtingu á sjálfðærniupplýsingum. Ekki er orðið fulljóst hvenær tilskipunin tekur gildi hér á landi, en undirbúningur fyrir birtingu sjálfðærniupplýsinga í samræmi við umrædda ESRS staðla er þegar hafin innan Haga.

1.2 Áhrif, áhætta, og tækifæri

Á síðasta ári hófst vinna við að leggja mat á mikilvægi sjálfðærnitengdra áhrífa, áhættu og tækifæra í starfsemi Haga. Við framkvæmd matsins var höfð hliðsjón af fyrnæfndum ESRS stöðlum og drögum að leiðbeiningum um mikilvægismat sem samdar voru af Evrópsku ráðgjafanefndinni um reikningsskil (EFRAG).

Tilgangur matsins er í fyrsta lagi að ákvarða umfang upplýsingaskyldu Haga gagnvart ESRS stöðlunum þegar CSRD tilskipunin tekur gildi hér á landi og í öðru lagi að leggja grunn að stefnumótun félagsins í sjálfðærnimálum með það að markmiði að tryggja langtímaafkomu. Um er að ræða lífandi mat sem verður endurskoðað árlega með hliðsjón af aðstæðum og fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma.

Framkvæmd matsins hófst með undirbúningur þar sem lagður var grunnur að matinu með samantekt nauðsynlegra gagna, m.a. sjálfðærniupplýsinga, fjárhagspplýsinga, hagaðilakönnunar og upplýsinga um aðgerðir félagsins. Þá voru mismunandi framtíðarsviðsmyndir skoðaðar og listi útbúinn með hugsanlegum áhrifum, áhættum og tækifærum í starfsemi Haga. Í framhaldinu voru haldnar vinnustofur, bæði með lykilstarfsfói ki Haga og dótturfélaga. Lögð var áhersla á að þátttakendur hefðu sem fjölbreyttasta reynslu og þekkingu til þess að auðga matið. Markmið þessara vinnustofa var tvipætt. Annars vegar að greina og koma auga á áhrif, áhættur og tækifæri, og hins vegar að meta mikilvægi þeirra út frá skilgreindum viðmiðum. Að lokum voru niðurstöður dregnar saman í skýrslu.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

1.2 Áhrif, áhætta, og tækifæri, frh.:

Þeir efnisflokkar sem lagðir voru til grundvallar í matinu byggjast á ESRS stöðlunum og eru eftirfarandi:

  • Loftslagsbreytingar (E1)
  • Mengun á vatni, landi og andrúmslofti (E2)
  • Vatn og sjávarauðlindir (E3)
  • Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (E4)
  • Hráefnanotkun og hringrásarhagkerfi (E5)

  • Eigin mannauður (S1)

  • Starfsfólk í virðiskeðju (S2)
  • Samfélagsleg réttindi (S3)
  • Neytendur og endanotendur (S4)
  • Viðskiptasiðferði (G1)

1.2.1 Áhrif

Áhrif Haga á umhverfi eða fólk geta ýmist verið raunveruleg eða hugsanleg, jákvæð eða neikvæð og átt sér stað í eigin starfsemi eða í virðiskeðju félagsins. Við mat á því hvort áhrif félagsins í tengslum við framangreinda efnisflokka teljast „mikilvæg“ er horft til þess hversu mikil, hversu viðtæk og hversu óbætanleg þau eru. Ef um hugsanleg áhrif er að ræða, er jafnframt tekið inn í myndina hversu liklegt sé að áhrif komi fram.

Eftirfarandi tafla inniheldur yfirli yfir þau áhrif sem Hagar hafa skilgreint sem mikilvæg:

Staðfesting áhrifa í virðiskeðju
Efnisflokkur Áhrif Raunveruleg / hugsanleg Jákvæð/ Neikvæð Aðsteymi Eigin starfsemi Frástreymi Skýring
Loftslagsbreytingar Losun gróðurhúsalofttegunda Raunveruleg Neikvæð * * * Heildarlosun félagsins í öllum umföngum var um 1,2 milljón tonna af kotivísyringsigildum árið 2023. Sjá sjálfbærniuppgjör í kafla 8.
Hringrásarhagkerfi Úrgangur frá rekstri Raunveruleg Neikvæð * * 5.880 tonn af úrgangi mynduðust í starfseminni árið 2023.
Matarsóun Raunveruleg Neikvæð * * Magn lífræns úrgangs í starfseminni árið 2023 var um 950 tonn. Þá sýna rannsöknir fram á það að matarsóun heimila landsins var 23.780 tonn árið 2022.
Efnisval og merkingar umbúða fyrir eigin framleiðsluvörur Raunveruleg Jákvæð * * Með því að besta umbúðir með tilliti til líftima vara, velja umhverfisvænni efni og gera neytendum auðvelt að flokka umbúðir drögum við úr sóun og umhverfisáhrifum.
Mengun Mengunaróhöpp Hugsanleg Neikvæð * * Sala og dreifing á olíu og öðrum mengandi efnum felur í sér eðilslæga hættu á mengunaróhöppum, hvort sem það er á fyrri stigum í virðiskeðju félagsins eða í eigin rekstri.
Sala á vörum sem geta mengað umhverfið Raunveruleg Neikvæð * Rekstrarvörur sem seldar eru kunna að vera losaðar að einhverju leyti út í umhverfið af viðskiptavinum við notkun.
Líffræðileg fjölbreytni Framboð á vörum sem kunna að hafa neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni Hugsanleg Neikvæð * Áhrif þessi eru lítið þekkt í dag. Miðað við stærð virðiskeðju og fjölda vörunúmera má þó leiða að því likur að innan samstæðu Haga séu seldar einhverjar vörur sem hafa neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni vegna framleiðsluaðferða.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

Staðfesting áhrifa í virðiskeðju
Efnisflokkur Áhrif Raunveruleg / hugsanleg Jákvæð/ Neikvæð Aðsteymi Egin starfsemi Skýring
Eigin mannaður Ráðstafanir til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks Raunveruleg Jákvæð Lagt er miklð upp úr því að tryggja heilsu og öryggi starfsmanna til þess að koma í veg fyrir og lágmarka líkur á vinnuslysum ásamt því að efla heilbrigði starfsfólks.
Vinnuslys Raunveruleg Neikvæð Það koma fyrir tilvik þar sem vinnuslys eða "næstum" slys eiga sér stað innan samstæðunnar.
Jafnrétti Raunveruleg Jákvæð Lögð er áhersla á jafnrétti í allri starfsemi Haga og að hver starfsmaður sé metinn á eigin verðleikum. Hvers konar mismunun er óheimil og er ekki liðin. Þá er það stefna Haga að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar hjá félaginu.
Fjölbreytni Raunveruleg Jákvæð Með því að auðvelda fólki, óháð hvers konar stöðu og uppruna, að starfa hjá samstæðunni höfum við jákvæð áhrif.
Þjálfun og starfsþróun Raunveruleg Jákvæð Hagar og dótturfélög leggja mikla áherslu á vöxt starfsfólks með þjálfun, fræðslu og starfsþróunartækifærum.
Starfsfólk í virðiskeðju Áhrif á starfsfólk í virðiskeðju með tilliti til vinnuaðstæðna og mannréttinda Hugsanleg Bæði Með því að setja skýrar kröfur til birgja, krefja þá um að setja sambærilegar kröfur til sinna birgja og innleiða virkt eftirlit með birgjum getum við haft jákvæð áhrif á vinnuaðstæður og mannréttindi starfsfólks í virðiskeðjunni. Hins vegar með því að bjóða upp á vörur frá framleiðendum sem virða réttindi starfsfólks að vettugi getum við haft neikvæð áhrif.
Neytendur og endanotendur Áhrif á lýðheilsu Raunveruleg Bæði Með því að bjóða upp á bæði heilsusamleg og óheilsusamleg matvæli hafa Hagar bæði jákvæð og neikvæð áhrif á lýðheilsu.
Virk verðsam-keppni og sama verð á matvöru um allt land Raunveruleg Jákvæð Bónus hefur íðulega verið með lægsta verð allra matvöruverslana og hafa matvöruverslanir Haga haft sama verð óháð staðsetningu.
Aðgengi að nauðsynjavöru Raunveruleg Jákvæð Allir eru velkomnir í verslanir Haga óháð hvers konar stöðu og lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir fatlaða í verslunum. Þá hefur félagið jafnframt tryggt aðgengi að verslunum við náttúruhamfarir, s.s. við heitavatnsleysi á Reykjanesi vegna eldgoss.
Stuðla að matvælaöryggi á Íslandi Raunveruleg Jákvæð Með því að gera ráðstafanir sem auka aðlögunarhæfni félagsins gagnvart vöruskorti í virðiskeðju vegna hugsanlegra uppskerubresta, útflutningsbanna og fleiri atburða stuðlum við að matvælaöryggi Íslands.
Viðskiptasiðferði Keðjuáhrif í gegnum virðiskeðju Hugsanleg Jákvæð Það að við setjum kröfur á okkar birgja í tengslum við síðferðisleg málfni og gerum kröfu um að birgjar okkar setji samskonar kröfur á sína birgja getur haft jákvæð áhrif á síðferði virðiskeðjunnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

1.2.2 Fjárhagsleg áhætta og tækifæri

Við greiningu á fjárhagslegri áhættu í tengslum við sjálfbærni er horft til atriða sem geta haft fjárhagsleg áhrif á félagið, s.s. leitt til samdráttar í tekjum, aukins kostnaðar, skerts aðgangs að fjármagni, hærri fjármögnunarkostnaðar og/eða minni áhuga frá fjárfestum.

Þegar ákvarðað er hvort fjárhagsleg áhætta telst mikilvæg er annars vegar litið til hugsanlegs fjárhagslegs umfangs hennar og hins vegar til þess hversu liklegt sé að áhætta raungerist. Við mat á fjárhagslegu umfangi raunlægrar áhættu í tengslum við loftslagsbreytingar er miðað við dekkri sviðsmyndir á borð við RCP8.5 sviðsmynd IPCC, en við mat á umfangi umbreytingaráhættu er tekið mið af sviðsmynd þar sem þjóðir heimsins halda sig við 1,5 gráðu markmið Parisarsamkomulagsins. Mat á líkindum tekur svo aftur á móti mið af núverandi aðstæðum og yfirlystri stefnu stjórnvalda.

Hér er samantekt yfir þær áhættur sem taldar eru ná mikilvægispröskuldi:

Efnisflokkur Tegund Áhætta Tími þar til áhrif gætu komið fram Hugsanleg afleiðing Skýringar
Loftslagsbreytingar Umbreytingar-ahætta Stefna stjórnvalda í tengslum við útfösun á jarðefna-eldsneyti Miðlungs Samdráttur í tekjum af sölu jarðefna-eldsneytis og hækkað kostnaðarverð seldrar vöru Markmið ESB um kolefnishlutleysi fyrir 2050 og 55% samdrátt í losun fyrir 2030 gera ráð fyrir hróðum orkuskíptum með tilheyrandi áhrifum á tekjur vegna ollusölu. Núverandi birtingarmyndir þessa eru m.a. kolefnisskattar, yfirvofandi losunarheimildarkerfi fyrir sölaðila eldsneytis (ETS 2) og losunarheimildarkerfi á flutningsaðila eldsneytis (ETS) sem öll leiða til hærra kostnaðarverðs á jarðefnaeldsneytisbruna í þeim tilgangi að hraða orkuskíptum.
Raunlæg áhætta Kerfislægur vöruskortur í virðiskeðju vegna loftslagsbreytinga (s.s. Uppskeru-bresta og útfutnings-banna) Langur Samdráttur í tekjum Takmörkun framboðs sem bundið er við einstaka vörur eða vörutegundir felur í sér óverulega áhættu fyrir félagið. Aðlögunarhæfni félagsins gerir okkur kleift að bregðast við silkum breytingum á framboði. Híns vegar komi til þess að vöruskortur verði kerfislægur með þeim hætti að matvælaöryggi Íslands sé ógnað varðar það mjög fjárhagslega hagsmuni félagsins.
Umbreytingar-ahætta Fjárfestingar í umhverfis-vænni tækjabúnaði, s.s. kæli-kerfum og rafmagns-bifreiðum Stuttur Aukinn fjárfestinga-kostnaður Endurnýjun tækjabúnaðar vegna orkusparandi aðgerða, orkuskípta og útfösunar á óumhverfisvænum kælimiðlum felur í sér aukinn fjárfestingakostnað.
Umbreytingar-ahætta Orðspors-áhætta vegna aukinnar áherslu á loftslagsmál frá hagaðilum og samfélaginu Miðlungs Minni áhugi frá fjárfestum, skert aðgengi að fjármagni, lakari fjármagnskjör og samdráttur í tekjum Skorti gagnsæi í upplýsingagjóf eða séu markmið og aðgerðir félagsins í tengslum við loftslagsmál ótrúverðug getur það leitt til orðsporshnekki og haft neikvæð fjárhagsleg áhrif á félagið. Aðgerðir félagsins gagnvart loftslagsbreytingum draga úr likum á orðsporsáhættu þessari.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Efnisflokkur Tegund Áhætta Tími þar til áhrif gætu komíð fram Hugsanleg afleiðing Skýringar
Eigin mannáður Hæði Hæði gagnvart eigin mannáuði Á.e.v. Á.e.v. Starfsemi Haga og dótturfélaga er mjög háð eigin mannáuði. Atburðir eða atvik sem leiða til þess að stór hluti starfsfólks geti ekki mætt til vinnu um langt tímabil geta haft mikil fjárhagsleg áhrif á félagið. Sömuleiðis ef ekki er staðið vel að starfsmannamálum getur það leitt til þess að erfiðara sé að halda í og laða að gott starfsfólk sem skapar virði fyrir félagið.
Neytendur og endanotendur Hæði Hæði gagnvart neytendum Á.e.v. Á.e.v. Félagið er mjög háð neytendum til tekjuöflunar sem eru langstærsti viðskiptavinahópur félagsins.

1.2.3 Niðurstaða

Út frá mikilvægismati á áhrifum, áhættu og tækifærum í starfsemi Haga og virðiskeðju er það niðurstaða félagsins að eftirtaldir þrír efnisflokkar ESRS staðlanna séu mikilvægir út frá bæði áhrifum og fjárhagslegri áhættu:

  • Loftslagsbreytingar (E1)
  • Eigin mannáuður (S1)
  • Neytendur og endanotendur (S4)

Þá eru fimm efnisflokkar taldir mikilvægir út frá mati á áhrifum, en ná ekki upp fyrir mikilvægispróskuld fjárhagslegrar áhættu:

  • Mengun á vatni, landi og andrúmslofti (E2)
  • Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (E4)
  • Hráefnanotkun og hringrásarhagkerfi (E5)
  • Starfsfólk í virðiskeðju (S2)
  • Viðskiptasiðferði (G1)

Að lokum voru eftirfarandi efnisflokkar hvorki taldir mikilvægir út frá mati á áhrifum né fjárhagslegri áhættu:

  • Vatn og sjávarauðlindir (E3)
  • Samfélagsleg réttindi (S3)

Framangreind niðurstaða leggur grunn að langtímaforgangsröðun verkefna og stefnumótun Haga í tengslum við sjálfbærni.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

2. Sjálfbærnistefna

Uppfærð sjálfbærnistefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 22. mars 2024. Við uppfærslu á stefnunni var tekið mið af mikilvægismati félagsins á sjálfbærnitengdum áhrifum, áhættu og tækifærum.

Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara umhverfis og samfélags, samhliða heilbrigðum rekstri. Stefnan byggir á fjórum meginstöðum, sem móta áherslur félagsins og þau lykilverkefni sem unnið er að hverju sinni:

img-0.jpeg

Umhverfi

Hagar leggja áherslu á að þekkja þau beinu og óbeinu áhrif sem starfsemi félagsins hefur á umhverfið og leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum eftir fremsta megni. Með neikvæðum áhrifum er einkum átt við losun gróðurhúsalofttegunda, hvers konar mengun, matarsóun og athafnir sem stuðla að hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.

Mannauður

Hagar kapkosta við að tryggja velliðan og öryggi starfsfólks. Jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllum ákvörðunum og skapar félagið virði fyrir atvinnulífið með menntun og þjálfun starfsfólks. Jafnframt leggja Hagar áherslu á að réttindi starfsfólks í virðiskeðju félagsins séu virt.

Neytendur

Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga. Lögð er áhersla á ríkulegt framboð af heilsusamlegum valkostum auk þess að bjóða neytendum hagstæðustu kjör hverju sinni óháð staðsetningu. Þá styður félagið ýmis samfélagsleg málefni hvort sem er í formi styrkja eða samstarfsverkefna.

Stjórnarhættir

Hagar starfa eftir þeim lögum og reglum sem félaginu ber að fylgja, sem og leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Auk þess hefur félagið sett sér síða- og samskiptareglur sem fylgt er í hvívetna í starfseminni.

2.1 Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hagar hafa valið sjö af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að stýðja enn frekar við stefnustöðir félagsins. Markmiðin eru: 5: Jafnrétti kynjanna, 8: Góð atvinna og hagvöxtur, 9: Nýsköpun og uppbygging, 10: Aukinn jöfnuður, 12: Ábyrg neysla og framleiðsla, 13: Aðgerðir í loftslagsmálum, 15: Líf á landi.

3. Ófjárhagslegar stefnur samstæðunnar

Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is, og eru þær auk þess listaðar upp í kafla 1.3 í stjórnarháttaryfirlýsingu félagsins sem finna má á bls. 45.

4. Umhverfi

Hagar og dótturfélög þess hafa um árabil lagt mikla áherslu á umhverfismál í allri sinni starfsemi. Uppfærð umhverfisstefna samstæðunnar var samþykkt af stjórn í mars 2024. Umhverfisstefnan nær til allrar starfsemi Haga og dótturfélaga auk starfsfólks samstæðunnar. Meginmarkmið stefnunnar er að samstæðan leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og stýðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Hagar vilja stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum jarðarinnar í þágu íbúa hennar, atvinnulífð og komandi kynslóða, til efnahagslegs og félagslegs ábata.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

4. Umhverfi, frh.:

4.1 Loftslagsmál

Hagar leggja áherslu á að þekkja áhrif félagsins á loftslagið og draga markvisst úr losun gróðurhúsalofftegunda. Þá er á sama tíma mikilvægt að tryggja seiglu félagsins gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga. Sérstök áhersla er lögð á að Hagar og dótturfélög:

  • mæli og hafi reglulegt eftirlit með losun gróðurhúsalofftegunda, bæði í eigin rekstri sem og í virðiskeðju sinni.
  • setji sér markmið um samdrátt í losun með hliðsjón af markmiðum íslenskra stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins.
  • innleiði og endurskoði með reglubundnum hætti aðgerðaráætlun sem miðar að samdrætti í losun gróðurhúsalofftegunda.
  • hugi sérstaklega að orkusparandi aðgerðum í allri starfsemi, hvort sem er á skrifstofum, í verslunum og í framkvæmdum á vegum félagsins.
  • taki mið af sjálfbærnisjónarmiðum við innkaup í þágu starfseminnar.
  • fjárfesti með ábyrgum hætti í verkefnum sem hafa það að markmiði að binda kolefni úr andrúmslofti.
  • vinni markvisst að því að auka seiglu og aðlögunarhæfni gagnvart mögulegum afleiðingum loftslagsbreytinga, s.s. uppskerubrestum í virðiskeðju félagsins.

4.2 Hringrásarhagkerfi

Það er stefna Haga að lágmarka alla sóun og innleiða hringrásarhugsun í starfsemi félagsins. Einkum er lögð áhersla á að:

  • halda úti mælingum á vörusóun og þeim úrgangi sem fellur til í starfseminni.
  • leita stöðugt leiða til að draga úr vörusóun, minnka úrgangsmagn og bæta flokkunar- og endurvinnsluhlutfall.
  • hafa sjálfbærnisjónarmið að leiðarljósi við hönnun og efnisval á umbúðum fyrir eigin framleiðsluvörur.

4.3 Mengun

Hagar leggja ríka áherslu á forvarnir og aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir og lágmarka líkur á hvers konar mengun, hvort sem er á landi, vatni eða andrúmslofti, í eigin rekstri eða í virðiskeðju félagsins.

4.4 Liffræðileg fjölbreytni

Þótt þekking á áhrifum félagsins á líffræðilega fjölbreytni sé enn takmörkuð, er það þekkt að matvælaframleiðsla getur haft neikvæð áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika á sama tíma og slík framleiðsla reiðir sig að miklu leyti á hann. Það er stefna Haga að efla þekkingu sína á slíkum neikvæðum áhrifum, einkum í virðiskeðju félagsins, og kappskosta við að draga úr þeim eftir fremsta megni.

5. Mannauður

Hjá Högum starfa um 2.700 starfsmenn í um 1.500 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks í landinu með störfum sinum. Starfsemi félagsins er mjög háð þeim mannuði sem hjá því starfar og er kappskostað við að skapa starfsumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að vaxa og dafna af eigin verðleikum. Rík áhersla er lögð á velliðan og öryggi starfsfólks, jafnrétti og fjölbreytni á vinnustað og starfsþróun.

Jafnréttis- og mannréttindastefna Haga var endurskoðuð og samþykkt af stjórn félagsins í mars 2024. Stefna Haga er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að allt starfsfólk Haga og dótturfélaga þess sé metið að eigin verðleikum, óháð kyni, aldri, kynhneigð og uppruna. Allt starfsfólk skal njóta sömu virðingar og skulu kynin hafa jafna stöðu innan fyrirtækisins. Hvers konar mismunun er óheimil og verður ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að koma í veg fyrir að slíkt ranglæti eigi sér stað. Jafnréttis- og mannréttindastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

5. Mannauður, frh.:

Öll dótturfélög Haga hafa lokið vinnu við jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem lögfest var í júní 2017. Hafa þau nú öll innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun.

Stjórn Haga hefur sett félaginu starfskjarastefnu sem hefur það að markmiði við gerð samninga um starfskjör, að félagið sé samkeppnishæft um starfsfólk og stjórnendur. Til að svo megi verða skal félagið bjóða samkeppnishæf laun við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum. Hagar telja nauðsynlegt að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins þannig að félagið njóti starfskrafta þeirra og hæfileika sem allra best þannig að hagur þeirra og félagsins fari saman. Við ákvörðun um starfskjör er horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum. Starfskjarastefnan er liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, stjórnenda og annarra hagsmunaaðila, með skipulegum, einföldum og gagnsæjum hætti. Starfskjarastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is en hún var sambykkt á aðalfundi Haga þann 1. júní 2023.

6. Spillinga- og mútumál

Í síðareglum Haga og dótturfélaga er lögð áhersla á að stjórn og starfsfólk skuli ávallt fara að lögum og almennum viðmiðum um síðferði í viðskiptum og að fylgt sé þeim reglum sem félagið setur á hverjum tíma. Kveðið er á um að óheimilt er að misnota aðstöðu sína í starfi, þannig að félagið beri skaða af og eru starfsmenn hvattir til að tilkynna næsta yfirmanni ef þeir verða vitni að spillingu eða óreiðu innan félagsins. Síðareglur þessar leggja einnig áherslu á að forða starfsmönnum frá að taka ákvarðanir sem skapað geta hagsmunaárekstra en meginreglan er sú að hagsmunir starfsmanna og félagsins skuli fari saman. Þá er óheimilt að taka við gjöfum, boðsferðum eða annars konar fríðindum frá viðskiptamönnum félagsins nema með sambykki yfirmanns.

Hjá samstæðunni hefur verið unnið áhættumat vegna aðgerða gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Samhliða áhættumatinu sambykkti stjórn stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútupægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í för með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.

Þá eru til staðar hjá samstæðunni reglur um vernd uppljóstrara, sbr. lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara, en reglunum er ætlað að koma á skilvirku úrræði til að koma upplýsingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í för með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila.

7. Mannréttindi

Hagar leggja sig alla fram um að virða almenn mannréttindi í allri starfsemi félagsins líkt og kveður á um í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að sama skapi gerir félagið þær kröfur að hagsmunaaðilar virði mannréttindi. Þá er barnaprælkun, nauðungarvinna, sem og þrælahald, ekki liðin innan félagsins. Þessu til stuðnings er í gildi jafnréttis- og mannréttindastefna Haga og síðareglur sem fjallað er um hér að framan. Þá eru Hagar með í gildi viðauka við alla verksamninga félagsins þar sem aðalverktakar lýsa því yfir að þeir muni ávallt og í hvívetna virða lög- og samningsbundin réttindi þeirra aðila sem þeir ráða til sinna starfa, hvort sem um ræðir launpega, starfsmenn starfsmannaleiga, aðra verktaka og/eða undirverktaka. Aðalverktaki lýsir því yfir að starfsemi hans uppfylli ávallt þær kröfur sem íslensk lög, reglur og venjur á vinnumarkaði gera hverju sinni. Aðalverktaki lýsir því einnig yfir að hann beri svokallaða keðjuábyrgð, þ.e.a.s. hann ábyrgist að aðrir verktakar og/eða undirverktakar sem hann hefur ráðið til sinna starfa uppfylli sömu kröfur þannig að réttindi allra þeirra starfsmanna sem að verki koma séu tryggð.

Hagar og dótturfélög þess hafa sett birgjum sínum síðareglur sem ætlað er að stuðla að því að samstæðan og birgjar hennar verði í sameiningu hreyfiafl til góðra verka. Síðareglurnar ná til allra birgja samstæðunnar og er birgjunum gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

8. Sjálfbærniuppgjör

Upplysingar úr sjálfbærniuppgöri Haga eru nú birtar í fyrsta sinn í ársreikningi félagsins, en hingað til hefur uppgörið eingöngu verið birt samhliða árs- og sjálfbærniskýrslu félagsins. Sjálfbærniuppgörið var unnið með aðstoð Klappa Grænna Lausna hf. og hefur það hlotið staðfestingu með takmarkaðri vissu (e. limited assurance) frá Deloitte. Frekari skýringar og umfjöllun við einstaka liði uppgörsins verður að finna í árs- og sjálfbærniskýrslu félagsins sem birt verður á vefsíðu Haga í aðdraganda aðalfundar þann 30. maí 2024.

Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á upplysingagjöf félagsins í tengslum við sjálfbærnimál. Í fyrsta lagi var unnið að útvikkun á kolefnisbókhaldi samstæðunnar svo það gæfi betri mynd af heildaráhrifum hennar á loftslagið. Framkvæmt var mikilvægismat í þeim tilgangi að forgangsraða útreikningum á losunarþáttum eins og þeir eru skilgreindir í Greenhouse Gas Protocol. Við matið var annars vegar horft á áæltað eða útreiknað umfang losunarþáttar og hins vegar hversu aðgengilegt væri að framkvæma útreikninga á viðkomandi losunarþætti.

img-0.jpeg

Grænmerktir losunarþættir eru þeir sem taldir hafa verið fram í fyrri uppgörum félagsins á meðan þeir gulmerktu hafa ekki verið gerðir upp hingað til. Með hliðsjón af umræddu mikilvægismati var ákveðið að bæta eftirfarandi losunarþáttum við kolefnisbókhaldið og reikna þá út afturvirktt til ársins 2022:

  • Lekalosun (Umfang 1)
  • Aðkeypt vara og þjónusta (Umfang 3)
  • Aðkeyptur flutningur og dreifing (Umfang 3)
  • Notkun á seldri vör (Umfang 3)

Þá var tveimur nýjum rekstrareiningum bætt við kolefnisbókhaldið, þ.e. Eldum rétt og Stórkaup.

Að lokum var upplysingagjöf um eigin mannauðsmál aðlöguð að hluta til að ESRS stöðlunum, en hingað til hefur félagið birt slíkar upplysingar í samræmi við ESG leiðbeiningar Nasdaq. Í þessu felst að ákveðnar breytingar voru gerðar á upplysingaliðum og aðferðarfræði við útreikninga auk þess sem tímabil upplysinganna hefur verið fært frá almanakssári yfir á fjárhagsár félagsins (1. mars 2023 til 29. febrúar 2024).

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Kolefnisbókhald

Gróðurhúsalofttegundir Eining 2023 2022
Umfang 1 tCO2í 3.432,9 3.149,4
Umfang 2 (landsnetið) tCO2í 581,2 577,5
Umfang 2 (m.t.t. upprunaábyrgða) tCO2í 14.477,4 577,5
Umfang 1 og 2 tCO2í 4.014,1 3.727,0
Umfang 3 tCO2í 1.207.449 1.225.483
Samtals losun GHL (m.t.t. upprunaábyrgða) tCO2í 1.225.355 1.229.210
Samtals losun GHL (landsnetið) tCO2í 1.211.463 1.229.210
Umfang 1 Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Heildarlosun umfang 1 tCO2í 3.432,9 3.149,4
Staðbundin eldsneytisnotkun tCO2í 6,1 8,2
Eldsneytisnotkun farartækja tCO2í 843,6 822,4
Lekalosun tCO2í 2.583,2 2.318,8
Umfang 2 Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Heildarlosun umfang 2 tCO2í 581,2 577,5
Rafmagn tCO2í 286,4 293,1
Hitaveita tCO2í 294,8 284,4
Umfang 3 - Losun á fyrri stigum Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Flokkur 1: Aðkeypt vara og þjónusta
Heildarlosun tCO2í 501.240 484.785
Aðkeypt vara til endursölu tCO2í 501.240 484.785
Flokkur 3: Eldsneytis- og orkutengd starfsemi
Heildarlosun tCO2í 338,4 309,6
Losun á fyrri stigum vegna eldsneytisnotkunar tCO2í 207,8 186,6
Losun á fyrri stigum vegna rafmagsnotkunar tCO2í 1,0 1,0
Flutnings- og dreifitap raforku og hitaveitu tCO2í 129,7 122,0
Flokkur 4: Aðkeyptur flutningur og dreifing
Heildarlosun tCO2í 8.790,3 10.069,9
Flutningur með flugi tCO2í 2.911,0 4.391,6
Flutningur með skipi tCO2í 4.138,4 4.012,0
Landflutningar tCO2í 1.740,9 1.666,3
Flokkur 5: Úrgangur frá rekstri
Heildarlosun tCO2í 689,2 855,6
Flutningur, förgun og meðhöndlun á úrgangi tCO2í 689,2 855,6
Flokkur 6: Víðskiptaferðir
Heildarlosun tCO2í 35,5 25,9
Flugferðir tCO2í 35,5 25,9
Umfang 3 - Losun á síðari stigum Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Flokkur 11: Notkun á seldri vöru
Heildarlosun tCO2í 696.355 729.437
Notkun á seldu eldsneyti og gasi tCO2í 696.355 729.437

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Umhverfisbókhald

Orkunotkun Eining 2023 2022
Heildarorkunotkun kWst 64.507.496 63.911.045
Jarőefnaeldsneyti kWst 3.396.988 3.318.809
Lifeldsneyti kWst - -
Rafmagn kWst 27.804.852 28.458.972
Hitaveita kWst 33.305.657 32.133.263
Bein orkunotkun kWst 3.396.988 3.318.809
Óbein orkunotkun kWst 61.110.508 60.592.235
Orkusamsetning Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Heildarorkunotkun kWst 64.507.496 63.911.045
Jarőefnaeldsneyti % 5,3% 5,2%
Endurnýjanlegir orkugjafar % 94,7% 94,8%
Kjarnorka % 0,0% 0,0%
Eldsneytisnotkun Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Samtals eldsneytisnotkun kg 284.286 277.823
Bensín kg 61.577 57.115
Díselolía kg 222.706 220.708
Lekalosun Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Samtals lekalosun kg 2.109 4.437
Koltvísýringur (CO2) kg 1.232 3.673
F-gös kg 904 764
Samsetning raforku Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Heildarnotkun raforku kWst 27.804.852 28.458.972
Jarőefnaeldsneyti % 0,0% 0,0%
Endurnýjanlegir orkugjafar % 100,0% 100,0%
Kjarnorka % 0,0% 0,0%
Meðhõndlun úrgangs Eining 2023 2022
--- --- --- ---
Heildarmagn úrgangs kg 5.880.259 5.447.837
Flokkaður úrgangur kg 4.348.475 3.743.087
Óflokkaður úrgangur kg 1.531.644 1.704.750
Endurnýttur úrgangur kg 4.477.546 3.780.341
Úrgangi fargað kg 1.402.573 1.667.487
Flokkunarhlutfall úrgangs % 74,0% 68,7%
Endurnýtingarhlutfall úrgangs % 76,1% 69,4%

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Umhverfisstjörnun

Umhverfisstjörnun Eining 2023 2022
Fylgir fyrirtækið formlegri umhverfisstefnu? ... J/N J J
Fylgir fyrirtækið sérstökum úrgangs, vatns, orku og/eða endurvinnslustefnum? ... J/N J J
Notar fyrirtækið þitt viðurkennt orkustjörnunarkerfi ... J/N N N
Loftslagseftirlit Eining 2023 2022
Hefur framkvæmdastjörn yfirumsjón með og/eða stýrir loftslagstengdri áhættu? ... J/N J N
Hefur stjörn þín eftirlit með og/eða stjörnar loftslagstengdri áhættu? ... J/N J N
Mildun loftslagsáhættu Eining 2023 2022
Heildarfjármagn sem árlega er fjárfest í loftslagstengdum innviðum, seiglu og vöruþróun... m. ISK * 733,2

Eigin mannauður

Fjöldi starfsfólks Eining 2023
Heildarfjöldi starfsfólks**
Karlar fj. 1.500
Konur fj. 1.114
Annað fj. 0
Samtals fj. 2.614
Heildarfjöldi ótímabundins starfsfólks
Karlar fj. 1.500
Konur fj. 1.113
Annað fj. 0
Samtals fj. 2.613
Heildarfjöldi tímabundins starfsfólks
Karlar fj. 0
Konur fj. 1
Annað fj. 0
Samtals fj. 1
Heildarfjöldi starfsfólks með ótryggan vinnutíma
Karlar fj. 0
Konur fj. 0
Annað fj. 0
Samtals fj. 0
Heildarfjöldi starfsfólks í fullu starfi
Karlar fj. 537
Konur fj. 378
Annað fj. 0
Samtals fj. 915
  • Sjá nánari hlutföll fyrir fjárfestingargjöld á bls. 73

**Heildarfjöldi starfsfólks í sjálfbærniuppgjörinu tekur mið af úttektarmánuði jafnlaunavottunar hjá hverju félagi fyrir sig í samstæðunni, en ekki fjárhagsári þessa samstæðuársreiknings.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Eigin mannauður, frh.:

Fjöldi starfsfólks Eining 2023
Heildarfjöldi starfsfólks í hlutastarfi
Karlar fj. 963
Konur fj. 736
Annað fj. 0
Samtals fj. 1.699
Starfsmannaveita
Fjöldi starfsfólks sem lauk störfum á árinu fj. 1.051
Hlutfall starfsfólks sem lauk störfum á árinu % 40%
Kjarasamningar og trúnaðarmenn Eining 2023
--- --- ---
Hlutfall starfsfólks sem heyrir undir kjarasamninga % 99,6%
Hlutfall starfsfólks sem hefur trúnaðarmann % 78,0%
Fjölbreytni Eining 2023
--- --- ---
Kynjafjölbreytni í æðstu stjórnendastöðum
Karlar fj. 29
Konur fj. 15
Annað fj. 0
Karlar % 65,9%
Konur % 34,1%
Annað % 0,0%
Aldursdreifing starfsfólks
Undir 30 ára % 67,0%
30-50 ára % 23,0%
Yfir 50 ára % 10,0%
Heilsa og öryggi Eining 2023
--- --- ---
Fjöldi dauðsfalla vegna vinnuslysa eða vinnutengdra veikinda fj. 0
Fjöldi skráningarskyldra vinnuslysa fj. 39
Skráningarskyld vinnuslys per milljón vinnustundir X:1 12,5
Launamunur Eining 2023
--- --- ---
Launamunur kynja % 0,8%
Heildarlaun forstjóra (X) sem hlutfall af miðgildi
launa annarra starfsmanna X:1 14,5
Mannréttindabrot Eining 2023
--- --- ---
Fjöldi alvarlegra mannréttindabrota í tengslum við starfsfólk félagsins fj. 0
Heildarupphæð sekta eða skaðabóta í tengslum
við alvarleg mannréttindabrot ISK 0

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

Stjórnarhættir

Kynjahlutfall i stjórn Eining 2023 2022
Hlutfall kvenkyns stjórnarmeðlima % 60% 60%
Hlutfall kvenkyns nefndarformanna % 33% 100%
Óhæði stjórnar Eining 2023 2022
Bannar fyrirtækið forstjóra að sinna stjórnarformennsku? J/N N N
Hlutfall óháðra stjórnarmanna % 100% 100%
Kaupaukar Eining 2023 2022
Fá framkvæmdastjórar formlegan kaupauka
fyrir að ná árangri á sviði sjálfbærni? J/N N N
Siðareglur birgja Eining 2023 2022
Ber birgjum fyrirtækisins að fylgja siðareglum? J/N J N
Hversu hátt hlutfall birgja hefur formlega
staðfest að þeir fylgi siðareglunum? % 0% á.e.v.
Siðferði og aðgerðir gegn spillingu Eining 2023 2022
Framfylgir fyrirtækið siðareglum og/eða stefnu gegn spillingu og mútum? J/N J J
Hvaða hlutfall starfsfólks hefur formlega staðfest að það fylgi stefnunni? % 0% 0%
Persónuvernd Eining 2023 2022
Framfylgir fyrirtækið persónuverndarstefnu? J/N J J
Hefur fyrirtækið hafist handa við að fylgja GDPR reglum? J/N J J
Sjálfbærniskýrsla Eining 2023 2022
Birtir fyrirtækið sjálfbærniskýrslu J/N J J
Inniheldur skýrslugjöf til stjórnvalda gögn um sjálfbærni? J/N J J
Starfsvenjur við upplýsingagjöf Eining 2023 2022
Veitir fyrirtækið upplýsingar um sjálfbærni til viðurkenndra
aðila með skipulögðum hætti? J/N J J
Leggur fyrirtækið áherslu á tiltekin heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (UN SDGs)? J/N J J
Setur fyrirtækið þitt markmið og gefur skýrslu
um framvindu heimsmarkmiða SP? J/N N N
Gögn tekin út/sannreynd af ytri aðila Eining 2023 2022
Er upplýsingagjöf um sjálfbærni tryggð eða staðfest af þriðja aðila? J/N J N

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

9. Flokkunarreglugerðin (e. EU Taxaonomy)

Kröfur um upplysingagjöf á sviði sjálfbærni hafa aukist síðustu ár og tók flokkunarreglugerðin 2020/852/ESB (e. EU Taxomomy) gildi á Íslandi þann 1. júní 2023 með lögum nr. 25/2023 um upplysingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálabjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Lögin voru afturvirk til 1. janúar 2023 og gilda því fyrir allt fjárhagsárið 2023/24 og eru birtar í fyrsta sinn í ársreikningi samstæðunnar 29. febrúar 2024.

Tilgangur flokkunarreglugerðarinnar er að búa til samræmda umgjörð þar sem skilgreint er hvaða atvinnustarfsemi telst umhverfislega sjálfbær út frá tæknilegum matsviðmiðum sem koma fram í framseldum reglugerðum ESB. Henni er jafnframt ætlað að stuðla að gagnsæi og samræmi í sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja. Í fyrsta lagi þarf atvinnustarfsemin að stuðla verulega að einu eða fleiri af sex umhverfismarkmiðum flokkunarreglugerðarinnar, og á sama tíma má hún ekki skaða önnur markmið hennar. Þá þarf starfsemin að uppfylla lágmarksverndarráðstafanir sem snúa meðal annars að mannréttindum, spillingu og mútum, skattamálum og samkeppnismálum.

Umhverfismarkmiðin eru sex talsins: mildun loftslagsbreytinga, aðlögum að loftslagsbreytingum, sjálfbær notkun og verndun vatns- og sjávarauðlinda, umskipti yfir í hringrásarhagkerfi, mengunarvarnir og eftirlit með mengun og vernd, og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.

Hagar hófu upplysingargjöf vegna sjálfbærnimála fyrir fjárhagsárið sem lauk 28. febrúar 2019 þegar fyrstu tölulegu upplysingar um umhverfis og félagslega þætti voru birtir í samfélagsskýrslu félagsins. Hagar hafa lagt mikinn metnað í fjalla á greinagóðan hátt um þá þætti sem falla undir sjálfbærni og verður því haldið áfram til að uppfylla þær upplysingarkröfur sem falla undir flokkunarreglugerðina.

9.1 Hæf starfsemi Haga í skilningi reglugerðarinnar (e. Taxonomy-eligibility)

Starfsemi sem fellur undir flokkunarkerfið á hverjum tíma mun taka stöðugum breytingum á grundvelli reglna sem samþykktar eru á vettvangi ESB en reglurnar munu taka reglulegum breytingum. Hagar munu byggja upplysingagjöf sína á þeim framseldu reglugerðum sem gilda samkvæmt lögum og reglum á Íslandi á hverjum tíma.

Tæknileg matsviðmið fyrir starfsemi sem telst verulegt framlag fyrstu tveggja markmiðanna, mildunar og aðlögunar loftslagsbreytinga, koma fram í framseldri reglugerð 2021/2139/ESB og gilda hér á landi. En á Íslandi hefur framseld reglugerð 2023/2485/ESB um breytingu á framseldum lögum um loftslagsmál og framseld reglugerð 2023/2486/ESB ekki verið innleiddar eins og hjá Evrópusambandinu.

Við mat á tæknilegum matsviðmiðum hjá Högum á árinu kom í ljós að smásala, sem er kjarnastarfsemi samstæðunnar, fellur ekki undir þau tæknilegu matsviðmið sem hafa verið birt. Af þeim sökum var ákveðið að vera ihaldsöm í nálgun og er það mat félagsins að vegna áður nefndra reglugerða sem ekki hafa verið innleiddar á Íslandi er enginn flokkur sem getur fallið að flokkunarkerfinu (e. Taxonomy-aligned) og aðeins lítill hluti af veltu, fjárfestingargjöldum og rekstrargjöldum samstæðunnar er hæf í skilningi reglugerðarinnar (e. Taxonomy-eligibility). Eftirfarandi eru þeir flokkar sem eru ekki verulegir en tengjast starfsemi Haga og dótturfélaga á einhvern hátt í samræmi við lykilmælikvarða í leiðbeiningum með reglugerðinni. Útreikningar á lykilmælikvörðum eru birtir á samstæðugrundvelli þar sem innri viðskiptum hefur verið eytt út til að forðast tvitalningu.

9.1.1 Velta (e. Turnover)

Hlutfall veltu samkvæmt skilgreiningu flokkunarreglugerðarinnar nær yfir tekjur sem eru færðar skv. a-lið 82. mgr. alþjóðlegs reikningsskilastaðals IAS 1. Tekjur Haga eru að langmestum hluta vörusala sem fellur ekki undir þau tæknilegu matsviðmið sem hafa verið gefin út. En meðal annarra rekstrartekná í samræmi við skýringu 6 í ársreikningi eru eftirfarandi flokkar:

  • 6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum
  • 7.7 Kaup og eignarhald á byggingum

Sjá hlutföll fyrir veltu á bls. 72

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

9.1.2 Fjárfestingargjöld (e. CapEx)

Fjárfestingargjöld samkvæmt 8. gr. flokkunarreglugerðarinnar samanstanda af viðbótum vegna efnislegra og óefnislegra eigna á rekstrarárinu, fyrir afskriftir, niðurgreiðslur og endurmat, að undanskildum breytingum á gangvirði. Meðal fjárfestinga í samræmi við skýringu 14, 15, 16 og 17 í ársreikningi eru eftirfarandi flokkar:

  • 6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum
  • 7.2 Endurnýjun bygginga sem fyrir eru
  • 7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnaði
  • 7.7 Kaup og eignarhald á byggingum

Sjá hlutföll fyrir fjárfestingargjöld á bls. 73

9.1.3 Rekstrargjöld (e. OpEx)

Rekstrargjöld ná yfir beinan kostnað sem ekki er færður til eignar, sem varðar rannsóknir og þróun, ráðstafanir vegna endurnýjunar bygginga, skammtímáleigu, viðhald og viðgerðir, og öll önnur bein útgjöld vegna daglegs viðhalds varanlegra rekstrarfjármuna fyrirtækisins eða þriðja aðila sem starfsemi er útvistað til, sem þörf er á til að tryggja áframhaldandi og skilvirka starfrækslu slíkra eigna. Meðal rekstrakostnaðar eru eftirfarandi flokkar:

  • 6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum
  • 7.2 Endurnýjun bygginga sem fyrir eru
  • 7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnaði

Sjá hlutföll fyrir rekstrargjöld á bls. 74.

9.2 Að valda ekki umhverfislegu tjóni

Hagar skulu með starfsemi sinni ekki vinna gegni hinum sex umhverfismarkmiðum flokkunarreglugerðarinnar. Þar sem Hagar hafa ekki getað sýnt fram á að starfsemin sé umhverfislega sjálfbær samkvæmt flokkunarkerfinu á þetta ekki við. Pess má samt geta að Hagar hafa unnið áhættumat vegna aðlögunar að loftslagsbreytingum og mesta áhættan fyrir félagið vegna loftslagsbreytinga er falin í orkuskiptum, veðurfarsbreytingum í virðiskeðju og orðsporsáhættu.

Ekki er talið að starfsemin valdi umtalsverðu tjóni gagnvart aðlögun og starfsemi Haga telst ekki valda umtalsverðu tjóni á nein umhverfismarkmið reglugerðarinnar.

9.3 Lágmarksráðstafnir til að valda ekki umtalsverðu tjóni (e. Minimum safeguards)

Eitt af grunnskilyrðum þess að starfsemi Haga geti talist sjálfbær er að félagið geri fullnægjandi lágmarksverndarráðstafanir (e. minimum safeguards) í samræmi við 18. gr. flokkunarreglugerðarinnar (8. gr. reglugerðar ESB 2020/852). Með því að hafa þessar lágmarksverndarráðstafanir styður félagið ekki aðeins umhverfismarkmið sín heldur uppfyllir einnig alþjóðlegar laga- og leiðbeiningakröfur um félagsleg viðmið.

Hagar hafa sett sér stefnu og mælikvarða varðandi mannréttindi, varnir gegni mútum og spillingu, skattamál og samkeppnismál.

9.3.1 Mannréttindi

Umfjöllun um áherslur Haga í mannréttindamálum í starfsemi félagsins má finna í kafla 7 hér að framan.

9.3.2 Spilling og mútur

Umfjöllun um áherslur Haga í spillinga- og mútumálum í starfsemi félagsins má finna í kafla 6 hér að framan.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:

9.3.3 Skattastefna

Þann 28. febrúar 2024 samþykkti stjórn Haga skattastefnu félagsins. Tilgangur skattastefnu er að marka stefnu og miðla því hvernig félagið hagar skattamálum samstæðunnar í samræmdu og samkeppnishæfu skattaumhverfi. Skattastefnan veitir leiðbeiningar um stjórnun skattamála og skattaáhættu sem tengjast rekstri samstæðunnar, reglufylgni og samskipti við skattayfirvöld.

9.3.4 Sanngjörn samkeppni

Samkeppnisstefna Haga var samþykkt á aðalfundi félagsins í júní 2019. Í stefnunni er kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sátt Haga við Samkeppniseftirlitið frá 2018 og skyldur samkvæmt samkeppnislögum. Jafnframt felur stefnan í sér hátternisreglur fyrir hluthafa Haga. Hagar hafa auk þess sett sér Samkeppnisréttaráætlun sem nær til félagsins alls og er hún uppfærð og kynnt stjórn, stjórnendum og lykilstarfsfólki með reglubundnum hætti.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

  1. Flokkunarreglugerőin (e. EU Taxaonomy), frh.:
Hiutfall veltu Viömiö fyrir verulegt framlag Viömiö fyrir verulegt tjón (veldur ekki verulegu tjón)
Atvinnustarfsemi Heldarvelta Huitfall veltu Mótvægi við loftslagsbreytingur Mótvægi við loftslagsbreytingur Vatns- og sjávarauðlindir Hringrásarhagkerfi Mengun Liffræðileg fjölbreytni og vístkerfi Liffræðileg fjölbreytni og vístkerfi Vatns- og sjávarauðlindir Hringrásarhagkerfi Mengun Liffræðileg fjölbreytni og vístkerfi Mengun Hringrásarhagkerfi Fokkur (umbreytingar starfsemi) Fokkur (fortreksemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum) Flokkur (umbreytingar starfsemi) Fokkur (fortreksemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum)
millj. kr. % % % % % % % J/N J/N J/N J/N J/N J/N J/N E E E E
A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR YFIR 0,2%
A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 0 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.7 Kaup og eignarhald á byggingum 0 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
Velta frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) 0 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% J J J J J J J 0% 0% 0%
A.2 Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 11 0,0%
7.7 Kaup og eignarhald á byggingum 395 0,2%
Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) 406 0,2%
Samtals (A.1+A.2) 406 0,2%
B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR EKKI YFIR
Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) 173.546 99,8%
Samtals (A+B) 173.952 100,0%

Samstæduárseikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

  1. Flokkunarreglugerőin (e. EU Taxaonomy), frh.:
Hlutfall fjárfestingargjalda Viðmið fyrir verulegt framlag Viðmið fyrir verulegt tjón (veldur ekki verulegu tjón)
Atvinnustarfsemi Heldar fjárfestingargjöld Hlutfall fjárfestingargjalda Heltvægi við loftslagsbreytingar Mótvægi við loftslagsbreytingar Vatns- og sjávarauðlindir Hringrásarhagkerfi Mengun Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi Mótvægi við loftslagsbreytingar Liffræðileg fjölbreytni og vístkerfi Liffræðileg fjölbreytni og vístkerfi Lágrmarks verndarráðstafanir Lágrmarks verndarráðstafanir Lágrmarks verndarráðstafanir Flokkur (umbreytingar starfsemi) Flokkur (umbreytingar starfsemi) Flokkur (umbreytingar starfsemi) Flokkur (umbreytingar starfsemi)
millj. kr. % % % % % % % J/N J/N J/N J/N J/N J/N J/N J/N E T
A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR YFIR 33,3%
A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.2 Endurnjýun bygginga sem fyrir eru 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnáði 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.7 Kaup og eignarhald á byggingum 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
Fjárfestingargjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% J J J J J J J 0% 0% 0%
A.2 Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 98 1,4%
7.2 Endurnjýun bygginga sem fyrir eru 275 4,0%
7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnáði 667 9,6%
7.7 Kaup og eignarhald á byggingum 1.273 18,4%
Fjárfestingargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) 2.313 33,3%
Samtals (A.1+A.2) 2.313 33,3%
B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR EKKI YFIR
Fjárfestingargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) 4.624 66,7%
Samtals (A+B) 6.937 100,0%

Samstæduárseikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAB), FRH.:

  1. Flokkunarreglugerőin (e. EU Taxaonomy), frh.:
Hiutfall rektirargjalda Viömiö fyrir verulegt framlag Viömiö fyrir verulegt tjón (veldur ekki verulegu tjón)
Atvinnustarfsemi Heldar rektirargjöld Hutfall rektirargjalda Mótvægi við loftslagsbreytingar Mótvægi við loftslagsbreytingar Adögun að loftslagsbreytingum Hringrásarhagkerfi Mengun Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi Mengun Hringrásarhagkerfi Vatns- og sjávarauðlindir Hringrásarhagkerfi Lágnarks verndarráðstafanir Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi Lágnarks verndarráðstafanir Flokkur (umbreytingar starfsemi) Flokkur (trafsemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum) Flokkur (trafsemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum)
millj. kr. % % % % % % % J/N J/N J/N J/N J/N J/N J/N E T
A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFÍÐ NÆR YFIR 12,3%
A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.2 Endurnýjun bygginga sem fyrir eru 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnáði 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% 0%
Rekstrargjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) 0 0,0% 0% 0% 0% 0% 0% 0% J J J J J J 0,0% 0% 0%
A.2 Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu)
6.6 Vöruflutningabjónusta á vegum 24 0,3%
7.2 Endurnýjun bygginga sem fyrir eru 56 0,8%
7.3 Uppsetning, viðhald og viðgerðir á orkunýtnum búnáði 26 0,4%
Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) 106 12,3%
Samtals (A.1+A.2) 106 12,3%
B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFÍÐ NÆR EKKI YFIR
Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) 758 87,7%
Samtals (A+B) 864 100,0%

Samstæduársreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna