AI assistant
Hagar — Annual Report 2023
May 8, 2024
2196_rns_2024-05-07_8c18f982-3a07-4768-a55c-ea9db4a561d1.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
ÁRSREIKNINGUR MÓDURFÉLAGS
- FEBRÚAR 2024
Hagar
Bananar
BÓNUS
ELDUM RÉTT
HAGKAUP
olis
STÓRKAUP
Z.V.A.
Hagar.hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500
EFNISYFIRLIT
bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 10
Efnahagsreikningur 11
Eiginfjáryfirlit 12
Sjóðstreymisyflit 13
Skýringar 14
| Skýr. | bls. | Skýr. | bls. |
|---|---|---|---|
| 1. Félagið | 14 | 15. Hlutdeildarfélög | 20 |
| 2. Grundvöllur reikningsskilanna | 14 | 16. Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 20 |
| 3. Mat og ákvarðanir | 14 | 17. Handbært fé | 20 |
| 4. Rekstrartekjur | 15 | 18. Eigið fé | 21 |
| 5. Laun og launatengd gjöld | 15 | 19. Vaxtaberandi skuldir | 23 |
| 6. Þóknun til endurskoðenda | 15 | 20. Leiguskuldir | 24 |
| 7. Afskriftir | 15 | 21. Tekjuskattsskuldbinding | 24 |
| 8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | 15 | 22. Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 25 |
| 9. Tekjuskattur | 16 | 23. Stýring fjármálalegrar áhættu | 25 |
| 10. Hagnaður á hlut | 16 | 24. Tengdir aðilar | 27 |
| 11. Rekstrarfjármunir og fjárfestingarfasteignir | 17 | 25. Önnur mál | 29 |
| 12. Óefnislegar eignir | 18 | 26. Kennitölur | 29 |
| 13. Leigueignir | 19 | 27. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir | 30 |
| 14. Dótturfélög | 19 |
Viðaukar - óendurskoðuð fylgiskjöl:
Stjórnarháttayfirlýsing 37
Ófjárhagsleg upplýsingagjóf 47
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA
Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi.
Ársreikningur Haga er gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga.
Rekstur ársins og fjárhagsleg staða
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri félagsins að fjárhæð 5.044 millj. kr. (2022/23: 4.949 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 47.892 millj. kr. (2022/23: 44.107 millj. kr.). Eigið fé í lok reikningsársins nam 28.188 millj. kr. (2022/23: 27.931 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 58,9% (2022/23: 63,3%). Fjöldi ársverka á árinu voru 29 (2022/23: 29) og kynjahlutfall starfsmanna var 55% karlar og 45% konur (2022/23: 60% karlar, 40%, konur).
Rekstur ársins gekk heilt yfir vel og má rekja afkomu umfram upphaflegar spár til aukinna umsvifa hjá öllum rekstrareiningum Haga auk sterkari afkomu hjá Olís en upphaflega var gert ráð fyrir. Góð aðsókn var í allar verslanir dótturfélaga Haga á árinu, og þá einkum í dagvöruhlutanum þar sem bæði seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði nokkuð. Þá var einnig sterk eftirspurn í eldsneytishluta dótturfélagsins Olís.
Fjárhagsleg staða Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun félagsins er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfa vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.
Fjárhagsleg áhættustýring
Í skýringu 23 er fjallað um helstu fjárhagslegu áhættur sem félagið býr við og þá áhættustýringu sem félagið beitir.
Breyting á framkvæmdastjórn
Í september og október 2023 var tilkynnt um breytingar á framkvæmdastjórn samstæðu Haga frá og með 1. janúar 2024. Þá tók Björgvin Víkingsson við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni og Ingunn Svala Leifsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Olís af Frosta Ólafssyni. Í mars 2024 tók svo Magnús Magnússon við stöðu aðstoðarforstjóra Haga en um nýtt hlutverk er að ræða innan félagsins. Magnús hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra stefnumótunar og rekstrar frá því snemma árs 2021 og mun sinna því hlutverki áfram, ásamt hlutverki aðstoðarforstjóra.
Undirbúningur sölumeðferðar á eignarhlut Olís í Olíudreifingu, EAK og EBK
Undanfarin misseri hefur átt sér stað stefnumarkandi vinna um framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti Olís, dótturfélags Haga, og meðeiganda í Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. (EAK) og EBK ehf. Tekin hefur verið ákvörðun um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutunum. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 25.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:
Hluthafar
Hluthafar voru 1.055 í byrjun rekstrarársins og 968 í lok þess. Tíu stærstu hluthafar í árslok eru eftirfarandi:
| Fjöldi hluta í þúsundum króna | Fjöldi hluta | Fjöldi hluta | ||
|---|---|---|---|---|
| 29.2.2024 | Fjöldi hluta % | 28.2.2023 | Fjöldi hluta % | |
| Gildi - lífeyrissjóður | 205.075 | 18,53% | 219.359 | 19,37% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) | 147.592 | 13,34% | 154.062 | 13,60% |
| Lífeyrissjóður verzlunarmanna | 112.743 | 10,19% | 118.718 | 10,48% |
| Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga | 97.323 | 8,80% | 88.761 | 7,84% |
| Kaldbakur ehf. | 86.000 | 7,77% | 51.212 | 4,52% |
| Birta lífeyrissjóður | 85.398 | 7,72% | 93.141 | 8,22% |
| Festa lífeyrissjóður | 50.249 | 4,54% | 47.339 | 4,18% |
| Söfnunarsjóður lífeyrísréttinda | 32.857 | 2,97% | 33.357 | 2,94% |
| Stapi lífeyrissjóður | 31.350 | 2,83% | 46.296 | 4,09% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar | 22.738 | 2,06% | 22.238 | 1,96% |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 871.325 | 78,75% | 874.483 | 77,21% |
| Aðrir hluthafar | 212.984 | 19,25% | 244.256 | 21,56% |
| Hagar - eigin hlutir | 22.120 | 2,00% | 13.937 | 1,23% |
| Samtals | 1.106.429 | 100,00% | 1.132.676 | 100,00% |
Hlutafé og sambykktir
Skráð hlutafé félagsins nam í lok reikningsárs 1.106 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eigin hlutir í upphafi árs námu 13,9 millj. kr. að nafnverði en í lok árs á félagið 22,1 millj. kr. eigin hluti að nafnverði. Nánari upplýsingar um eigin hluti, endurkaup, kaupréttarkerfi starfsmanna o.fl. má finna í skýringu 18.
Samkvæmt 8. gr. í sambykktum félagsins kemur fram að sambykktum verður einungis breytt, umfram það sem hlutafélagalög leyfa, á lögmætum hluthafafundi. Ákvörðun um breytingar á sambykktum verður því aðeins gild að hún hljóti sambykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og sambykki hluthafa sem ráða yfir a.m.k. 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundinum.
Þann 1. júní 2023 sambykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023. Aðalfundur sambykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.133 millj. kr. að nafnverði í 1.106 millj. kr. að nafnverði.
Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2023 sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins, samtals 2.522 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár. Nánari upplýsingar má finna í eiginfjáryfirliti og skýringu 18.
Stjórnarhættir
Stjórnarhættir Haga hf. mótast af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, sambykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Hagar hf. fylgja, án greindra frávika, leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu frá árinu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulifsins.
Stjórn Haga hf. hefur útbúið ítarlega yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins, sem útbúin er í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, og er hana að finna í sérstökum viðauka á bls. 37, auk þess sem hún er birt í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.
Í stjórn Haga hf. sitja þrjár konur og tveir karlar.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:
Öfjárhagsleg upplýsingagjóf
Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, samfélags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum o.fl., eru birtar í sérstökum viðauka á bls. 47. Einnig má finna upplýsingar í samræmi við kröfur Flokkunarreglugerðarinnar (e. EU Taxonomy) sem tók gildi árið 2023 í samstæðuársreikningi Haga hf.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að ársreikningur félagsins gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins fyrir reikningsárið sem lauk 29. febrúar 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess þann 29. febrúar 2024 og breytingum á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins, stöðu þess, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem félagið býr við.
Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir ársreikning félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykja ársreikninginn.
Ársreikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.
Reykjavík, 23. apríl 2024
Stjórn:
Davíð Harðarson, formaður
Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi
Sigriður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi
Forstjóri:
Finnur Oddsson
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÁRITUN ÓHÁÐS ENDURSKOÐANDA
Til stjórnar og hluthafa Haga hf.
Álit
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Haga hf. fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, að undanskilinni skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á reikningsárinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, efnahag þess 29. febrúar 2024 og breytingu á handbæru fé á reikningsárinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga.
Álit okkar er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar.
Ársreikningurinn innifelur
- Skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra.
- Rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
- Efnahagsreikning 29. febrúar 2024.
- Eiginfjáryfirlit 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
- Sjóðstreymisyflrit 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024.
- Skýringar, sem innifela mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Skýrsla stjórnar og yfirlýsing stjórnar og forstjóra er undanskilin endurskoðun, sbr. kafla um aðrar upplýsingar.
Grundvöllur álits
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda.
Óhæði
Við erum óháð félaginu samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur og endurskoðun og síðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði síðareglna.
Samkvæmt okkar bestu vissu, lýsum við yfir að önnur þjónusta sem við höfum veitt félaginu er í samræmi við ákvæði íslenskra laga og reglna og að við höfum ekki veitt þjónustu sem óheimilt er að veita samkvæmt ákvæðum 5.1. gr. Evrópureglugerðar nr. 537/2014.
Gerð er grein fyrir annarri þjónustu sem við höfum veitt félaginu, á tímabilinu 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024, í skýringu 6.
Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Lykilatriði endurskoðunarinnar
Lykilatriði endurskoðunarinnar eru þau atriði sem að okkar faglega mati höfðu mesta þýðingu í endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024. Sem hluti af endurskoðun okkar á ársreikningnum voru þessi lykilatriði skoðuð sérstaklega. Við látum ekki í ljós sérstakt álit varðandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á ársreikningnum í heild.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:
Lykilatriði endurskoðunarinnar
Endurskoðunaraðgerðir
Mat á eignarhlutum í dótturfélögum
Eignarhlutir í dótturfélögum nema kr. 29.549 milljónum í lok febrúar 2024 og eru um 62% af heildareignum félagsins.
Starfsemi dótturfélaga felst í heildsölu á smásölumarkaði, rekstri smásöluverslana og olíuverslunar. Eignarhlutirnir eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð. Mat á virðisrýrnun er háð faglegu mati og byggir m.a. á áætlunum stjórnenda um afkomu og framtíðarvöxt.
Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 27k um reikningsskilaðferðir gagnvart dótturfélögum, nr. 27n um virðisrýrnun og nr. 14 um dótturfélög.
Eignarhlutir í dótturfélögum eru verulegur liður í reikningsskilum félagsins og vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar.
Endurskoðun á mati á eignarhlutum í dótturfélögum fölst m.a. í eftirfarandi þáttum:
-
Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar vegna dótturfélaga var yfirfarið og virðisrýrnunarpróf endurreiknað.
-
Reikningsleg meðhöndlun m.t.t. hlutdeildaraðferðar var yfirfarin og sannreynd með útaksprófunum.
-
Færsla og staða á bundnum hlutdeildarreikningi meðal eigin fjár var yfirfarin og sannreynd með úrtaksprófunum.
Verðmatssérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun viðskiptavildar.
Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar.
Mat vörubirgða er umfangsmikill matskenndur liður í reikningsskilum dótturfélaga. Nánar er vísað í áritun okkar á samstæðuársreikning félagsins.
Aðrar upplýsingar, þ.m.t. skýrsla og yfirlýsing stjórnar
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra og viðaukar við ársreikning félagsins, stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjöf, sem lágu fyrir við áritun okkar.
Álit okkar á ársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga, þ.m.t. skýrslu stjórnar og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi félagsins ber okkur að yfirfara aðrar upplýsingar, sem tilgreindar eru hér að ofan, þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær eru í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina eða ef svo virðist að verulegar rangfærslur séu í þeim. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.
Hvað varðar skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra höfum við, í samræmi við ákvæði 104. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, yfirfarið að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á ársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins ber stjórnendum félagsins að meta hæfi þess til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning félagsins á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa félagið upp eða hætta rekstri þess, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi félagsins. Stjórnendum félagsins ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi þess til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu ársreikningsins.
Stjórn og endurskoðunarnefnd skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:
Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á ársreikningnum.
Endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
-
Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu ársreiknings, að mikilvæggum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.
-
Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits félagsins.
-
Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.
-
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi félagsins eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemduðum um rekstrarhæfi þess. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, þer okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í ársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni leitt til þess að félagið verði ekki lengur rekstrarhæft.
-
Metum framsetningu, gerð og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álit okkar.
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp geta komið í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.
Við höfum lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við uppfyllum nauðsynleg síðferðis- og óhæðisskilyrði og við munum láta þeim í té allar upplýsingar um hugsanleg tengsl og önnur atriði sem gætu haft áhrif á óhæði okkar og trúnað.
Við höfum lagt mat á hvaða atriði, af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, höfðu mesta þýðingu á yfirstandandi ári og eru það lykilatriði endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum lykilatriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undantekningartilfellum þegar mat okkar er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA, FRH.:
Önnur atriði samkvæmt ákvæðum laga og reglna
Kosning endurskoðanda
Við vorum kosin endurskoðendur á aðalfundi Haga hf. þann 7. júní 2017. Kosning okkar hefur verið endurnýjuð, árlega á aðalfundi félagsins og höfum við því verið endurskoðendur félagsins samfellt í sjö ár.
Reykjavík, 23. apríl 2024.
PricewaterhouseCoopers ehf.
Bryndís Björk Guðjónsdóttir
löggiltur endurskoðandi
Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir
löggiltur endurskoðandi
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU
1. MARS 2023 TIL 29. FEBRUAR 2024
| Skýr. | 2023/24 | 2022/23 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 4 | 2.076 | 2.325 |
| Laun og launatengd gjöld | 5 | ( 766) | ( 674) |
| Annar rekstrarkostnaður | ( 1.085) | ( 997) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 225 | 654 | |
| Afskriftir | 7 | ( 347) | ( 303) |
| Rekstrarhagnaður | ( 122) | 351 | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 1.146) | ( 976) |
| Áhrif dótturfélaga | 14 | 5.532 | 5.244 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 15 | 492 | 147 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 4.756 | 4.766 | |
| Tekjuskattur | 9 | 288 | 183 |
| Heildarhagnaður ársins | 5.044 | 4.949 | |
| Hagnaður á hlut: | |||
| Grunnhagnaður á hlut | 10 | 4,59 | 4,40 |
| Þynntur hagnaður á hlut | 10 | 4,51 | 4,32 |
Skýringar á blaðsíðum 14 til 36 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 10
EFNAHAGSREIKNINGUR 29. FEBRÚAR 2024
| Skýr. | 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Rekstrarfjármunir | 11 | 93 | 89 |
| Fjárfestingarfasteignir | 11 | 10.927 | 9.775 |
| Óefnislegar eignir | 12 | 1.846 | 1.759 |
| Leigueignir | 13 | 78 | 93 |
| Eignarhlutir í dótturfélögum | 14 | 29.549 | 28.141 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 15 | 4.204 | 3.712 |
| Eignarhlutir í öðrum félögum | 2 | 2 | |
| Fastafjármunir samtals | 46.699 | 43.571 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 16 | 111 | 76 |
| Handbært fé | 17 | 1.082 | 460 |
| Veltufjármunir samtals | 1.193 | 536 | |
| Eignir samtals | 47.892 | 44.107 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 1.084 | 1.119 | |
| Bundið eigið fé | 8.928 | 7.290 | |
| Óráðstafað eigið fé | 18.176 | 19.522 | |
| Eigið fé samtals | 18 | 28.188 | 27.931 |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 19 | 8.434 | 8.808 |
| Leiguskuldir | 20 | 48 | 69 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 21 | 250 | 238 |
| Langtímaskuldir samtals | 8.732 | 9.115 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 19 | 5.639 | 3.139 |
| Leiguskuldir | 20 | 34 | 28 |
| Skuldir við tengda aðila | 24 | 3.847 | 2.252 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 22 | 1.452 | 1.642 |
| Skammtímaskuldir samtals | 10.972 | 7.061 | |
| Skuldir samtals | 19.704 | 16.176 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 47.892 | 44.107 |
Skýringar á blaðsiðum 14 til 36 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EIGNFJÁRYFIRLIT
1. MARS 2023 TIL 29. FEBRÚAR 2024
| Skýr. | Hlutafé | Yfirverös-reikningur hlutafjár | Bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Breytingar á eigin fé 2022/23 | ||||||
| Eigið fé 1. mars 2022 | 1.139 | 1.147 | 5.571 | 18.869 | 26.726 | |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 14 ) | ( 653 ) | ( 333 ) | ( 1.000 ) | ||
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | ( 6 ) | ( 494 ) | ( 500 ) | |||
| Breyting á varasjóð | ( 2 ) | 2 | 0 | |||
| Breyting á hlutdeildarreikning | 1.700 | ( 1.700 ) | 0 | |||
| Kaupréttarsamningar | 21 | 21 | ||||
| Greiddur arður, 2,00 kr. á hlut | ( 2.265 ) | ( 2.265 ) | ||||
| Heildarhagnaður ársins | 4.949 | 4.949 | ||||
| Eigið fé 28. febrúar 2023 | 18 | 1.119 | 0 | 7.290 | 19.522 | 27.931 |
| Breytingar á eigin fé 2023/24 | ||||||
| Eigið fé 1. mars 2023 | 1.119 | 0 | 7.290 | 19.522 | 27.931 | |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 22 ) | ( 1.478 ) | ( 1.500 ) | |||
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | ( 13 ) | ( 820 ) | ( 833 ) | |||
| Breyting á varasjóð | ( 6 ) | 6 | 0 | |||
| Breyting á hlutdeildarreikning | 1.623 | ( 1.623 ) | 0 | |||
| Kaupréttarsamningar | 21 | 21 | ||||
| Greiddur arður, 2,24 kr. á hlut | ( 2.475 ) | ( 2.475 ) | ||||
| Heildarhagnaður ársins | 5.044 | 5.044 | ||||
| Eigið fé 29. febrúar 2024 | 18 | 1.084 | 0 | 8.928 | 18.176 | 28.188 |
Skýringar á blaðsíðum 14 til 36 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÓÐSTREYMISYFIRLIT
1. MARS 2023 TIL 29. FEBRÚAR 2024
| Skýr. | 2023/24 | 2022/23 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Hagnaður ársins | 5.044 | 4.949 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
| Söluhagnaður | ( 2) | ( 473) | |
| Afskriftir | 7 | 347 | 303 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 1.146 | 976 |
| Áhrif dótturfélaga | 14 | ( 5.532) | ( 5.244) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | ( 492) | ( 147) | |
| Tekjuskattur | 9 | ( 288) | ( 183) |
| Aðrir liðir | 21 | 21 | |
| Veltufé frá rekstri | 244 | 202 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum | ( 35) | ( 16) | |
| Breytingar á rekstrartengdum skuldum | 4.076 | 1.305 | |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 4.285 | 1.491 | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 62 | 11 | |
| Greidd vaxtagjöld | ( 805) | ( 437) | |
| Greiddur tekjuskattur | ( 1.326) | ( 918) | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.216 | 147 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 11 | ( 40) | ( 6) |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 9 | 20 | |
| Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum | 11 | ( 1.391) | ( 69) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | 12 | ( 138) | ( 126) |
| Móttekinn arður frá dótturfélögum | 14 | 4.154 | 3.706 |
| Fjárfesting í dótturfélagi að frádregnu yfirteknu handbæru fé | 14 | ( 30) | ( 1.613) |
| Seldur eignarhlutur í dótturfélagi | 0 | 2 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | 2.564 | 1.914 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Keypt eigin bréf | 18 | ( 2.333) | ( 1.500) |
| Greiddur arður | ( 2.475) | ( 2.265) | |
| Nýjar vaxtaberandi langtímaskuldir | 19 | 2.000 | 0 |
| Afborganir langtímaskulda | 19 | ( 266) | ( 252) |
| Leiguskuld afborganir | 20 | ( 29) | ( 27) |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting | 0 | 2.880 | |
| Tengdir aðilar, breyting | ( 1.055) | ( 569) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | ( 4.158) | ( 1.733) | |
| Hækkun á handbæru fé | 622 | 328 | |
| Handbært fé í ársbyrjun | 460 | 132 | |
| Handbært fé í lok árs | 17 | 1.082 | 460 |
| Fjárfestingarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||
| Söluverð fasteigna | 0 | 1.635 | |
| Fjárfesting í hlutdeildarfélögum | 0 | ( 3.403) | |
| Tengdir aðilar | 0 | 1.768 |
Skýringar á blaðsiðum 14 til 36 eru óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR
1. Félagið
Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Ársreikningur félagsins er fyrir reikningsárið 1. mars 2023 til 29. febrúar 2024. Félagið er móðurfélag í samstæðu Haga þar sem aðalstarfsemi samstæðunnar er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga nr. 3/2006. Samhliða þessum ársreikningi móðurfélagsins gerir félagið samstæðureikning félagsins og dótturfélaga. Í skýringum 14 og 24 má finna yfirlit yfir dótturfélög Haga.
Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 23. apríl 2024.
b. Rekstrarhæfi
Stjórnendur hafa metið rekstrarhæfi félagsins. Það er mat þeirra að áframhaldandi rekstur þess sé tryggður og fjárhagsleg staða Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við krefjandi aðstæður í íslensku efnahagslífi.
c. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.
d. Grundvöllur matsaðferða
Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að afleiðusamningar eru færðir á gangvirði. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur gangvirðis eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir. Að svo miklu leyti sem hægt er, notar félagið markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda.
3. Mat og ákvarðanir
Gerð ársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir um mat er að finna í eftirfarandi skýringum:
Skýrning 27h og 27i ... Mat á áætlúðum nýtingartíma rekstrarfjármuna og fjárfestingarfasteigna
Skýring 12 og 27j ... Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar og annarra óefnislegra eigna
Skýring 27o ... Ákvörðun leigutíma og mat á núvirðingarvöxtum
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
4. Rekstrartekjur
| Rekstrartekjur greinast pannig: | 2023/24 | 2022/23 |
|---|---|---|
| Húsaleigutekjur | 1.331 | 1.218 |
| Hagnaður af sölu eigna til Klasa | 0 | 473 |
| Ýmsar aðrar rekstrartekjur | 745 | 634 |
| Aðrar rekstrartekjur samtals | 2.076 | 2.325 |
5. Laun og launatengd gjöld
| Laun og launatengd gjöld greinast pannig: | ||
|---|---|---|
| Laun | 616 | 545 |
| Mótframlag í lífeyrissjóð | 89 | 76 |
| Önnur launatengd gjöld | 54 | 46 |
| Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga, sbr. skýringu 18 | 7 | 7 |
| Laun og launatengd gjöld samtals | 766 | 674 |
| Fjöldi ársverka | 29 | 29 |
| Fjöldi starfsmanna í árslok | 30 | 27 |
| Kynjahlutfall starfsmanna í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) | 55/45 | 60/40 |
6. Póknun til endurskoðenda
| Póknun til endurskoðenda greinist pannig: | ||
|---|---|---|
| Endurskoðun | 16 | 16 |
| Staðfestingarvinna og önnur þjónusta | 1 | 14 |
| Samtals þóknun til endurskoðenda | 17 | 30 |
7. Afskriftir
| Afskriftir greinast pannig: | ||
|---|---|---|
| Afskrift rekstrarfjármuna, sjá skýringu 11 | 28 | 27 |
| Afskrift fjárfestingarfasteigna, sjá skýringu 11 | 239 | 217 |
| Afskrift óefnislegra eigna, sjá skýringu 12 | 50 | 31 |
| Afskrift leigueigna, sjá skýringu 13 | 30 | 28 |
| Afskriftir samtals | 347 | 303 |
8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: | ||
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum | 62 | 8 |
| Gengishagnaður | 1 | 2 |
| Fjármunatekjur samtals | 63 | 10 |
| Vaxtagjöld og verðbætur | ( 1.205) | ( 982) |
| Vaxtagjöld leiguskuldar | ( 4) | ( 4) |
| Fjármagnsgjöld samtals | ( 1.209) | ( 986) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1.146) | ( 976) |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milfjónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
9. Tekjuskattur
| Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist pannig: | 2023/24 | 2022/23 | ||
|---|---|---|---|---|
| Tekjuskattur til greiðslu | 1.082 | 1.248 | ||
| Áhrif samsköttunar | ( 1.382) | ( 1.405) | ||
| Breyting tekjuskattsskuldbindingar | 12 | ( 26) | ||
| Tekjuskattur færður í rekstrarreikning | ( 288) | ( 183) | ||
| Virkur tekjuskattur greinist pannig: | ||||
| Hagnaður ársins | 5.044 | 4.949 | ||
| Tekjuskattur ársins | ( 288) | ( 183) | ||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 4.756 | 4.766 | ||
| Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall | 20,0% | 951 | 20,0% | |
| Áhrif dótturfélaga | ( 26,2%) | ( 1.246) | ( 23,8%) | |
| Aðrar breytingar | 0,1% | 7 | ( 0,1%) | |
| Virkur tekjuskattur | ( 6,1%) | ( 288) | ( 3,9%) |
Félagið er samskattað með dótturfélögum sínum.
10. Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna.
| 2023/24 | 2022/23 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins til hluthafa móðurfélagsins | 5.044 | 4.949 |
| Vegið meðaltal útistandandi hlutafjár: | ||
| Hlutafé í ársbyrjun | 1.133 | 1.154 |
| Áhrif endurkaupa og ógildingar á eigin bréfum | ( 35) | ( 29) |
| Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta | 1.098 | 1.125 |
| Áhrif kaupréttasamninga | 21 | 21 |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað | 1.119 | 1.146 |
| Grunnhagnaður á hlut | 4,59 | 4,40 |
| Þynntur hagnaður á hlut | 4,51 | 4,32 |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
- Rekstrarfjármunir og fjárfestingarfasteignir
| Rekstrarfjármunir og fjárfestingarfasteignir greinast pannig: | Fjárfestingar-fasteignir | Áhöld og innréttingar | Samtals |
|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | |||
| Staða 1.3.2022 | 10.993 | 351 | 11.344 |
| Fjárfesting á árinu | 69 | 6 | 75 |
| Selt og aflagt | 0 | ( 59) | ( 59) |
| Staða 28.2.2023 | 11.062 | 298 | 11.360 |
| Fjárfesting á árinu | 1.391 | 40 | 1.431 |
| Selt og aflagt | 0 | ( 12) | ( 12) |
| Staða 29.2.2024 | 12.453 | 326 | 12.779 |
| Afskriftir | |||
| Staða 1.3.2022 | 1.070 | 222 | 1.292 |
| Afskriftir | 217 | 27 | 244 |
| Selt og aflagt | 0 | ( 40) | ( 40) |
| Staða 28.2.2023 | 1.287 | 209 | 1.496 |
| Afskriftir | 239 | 28 | 267 |
| Selt og aflagt | 0 | ( 5) | ( 5) |
| Staða 29.2.2024 | 1.526 | 232 | 1.758 |
| Bókfært verð | |||
| Staða 1.3.2022 | 9.923 | 129 | 10.052 |
| Staða 28.2.2023 | 9.775 | 89 | 9.864 |
| Staða 29.2.2024 | 10.927 | 93 | 11.020 |
| Félagið hefur ekki áreiðanlegar upplýsingar um gangvírði fjárfestingarfasteigna í lok tímabilsins. | |||
| Fjárhæðir færðar í rekstrarreikning vegna fjárfestingarfasteigna: | 2023/24 | 2022/23 | |
| Leigutekjur | 1.331 | 1.218 | |
| Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum í útleigu | 232 | 215 | |
| Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum sem ekki eru í útleigu | 4 | 4 | |
| Fjárfestingarfasteignir eru ýmist í skammtíma- eða langtimaleigu. Framtíðarleigugreiðslur leigusamninga eru að lágmarki sem hér segir: | |||
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | ||
| Innan eins árs | 1.233 | 1.124 | |
| Eftir eitt til fimm ár | 3.637 | 2.797 | |
| Eftir meira en fimm ár | 3.993 | 1.624 | |
| Rekstrarleigusamningar samtals | 8.863 | 5.545 |
Fasteignamat og vátryggingaverð
| Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum: | ||
|---|---|---|
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
| Fasteignamat | 8.856 | 8.025 |
| Vátryggingaverð fasteigna | 15.483 | 13.998 |
| Bókfært verð fasteigna | 10.927 | 9.775 |
| Vátryggingaverð innréttinga og áhalda | 443 | 397 |
| Bókfært verð innréttinga og áhalda | 93 | 89 |
Veðsetningar
Á fjárfestingarfasteignum félagsins, sem eru á bókfærðu verði 9.600 millj. kr., hvila þinglýst veð og skuldbindingar að fjárhæð 10.574 millj. kr. til tryggingar skuldum félagsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
- Óefnislegar eignir
| Óefnislegar eignir greinast þannig: | Viðskiptavild | Hugbúnaður | Langtíma-kostnaður | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Staða 1.3.2022 | 1.783 | 239 | 122 | 2.144 |
| Fjárfesting á árinu | 0 | 126 | 0 | 126 |
| Staða 28.2.2023 | 1.783 | 365 | 122 | 2.270 |
| Fjárfesting á árinu | 0 | 138 | 0 | 138 |
| Staða 29.2.2024 | 1.783 | 503 | 122 | 2.408 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Staða 1.3.2022 | 281 | 79 | 121 | 481 |
| Afskriftir | 0 | 30 | 1 | 31 |
| Staða 28.2.2023 | 281 | 109 | 122 | 512 |
| Afskriftir | 0 | 50 | 0 | 50 |
| Staða 29.2.2024 | 281 | 159 | 122 | 562 |
| Bókfært verð | ||||
| Staða 1.3.2022 | 1.502 | 160 | 1 | 1.663 |
| Staða 28.2.2023 | 1.502 | 256 | 0 | 1.759 |
| Staða 29.2.2024 | 1.502 | 344 | 0 | 1.846 |
Virðisrýnunarpróf
Viðskiptavild sem verður til við yfirtöku á rekstrareiningum eða kaupum á dótturfélögum er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýnunarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort virðisrýrnun sé til staðar. Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur eða kaup er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins. Sjá nánari umfjöllun um dótturfélög í skýringu 14, 24 og 27k.
Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innihalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg ytri og innri gögn. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón að fjárhæðum í sambykktum rekstraráætlunum ársins 2024/25 og næstu fimm ára ásamt föstum framtíðarnafnvexti eftir spátímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarþrúun og spár greiningaraðila um verðbólgu og hagvöxt næstu árin. Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri- og innri gögnum. Forsendur eru eftirfarandi:
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|
| Langtímavöxtur | 2,0-4,5% | 2,0-5,0% |
| Tekjuvöxtur á næstu 2-5 ára | 2,5-11,5% | 2,5-15,0% |
| EBITDA hlutfall næstu 2-5 ára | 4,5-15,0% | 4,3-15,0% |
| Veginn fjármagnskostnaður (WACC) | 10,2-10,9% | 10,8-11,1% |
| Skuldsetningarhlutfall | 28,5-42,1% | 24,1-40,5% |
| Áhættulausir vextir | 6,19% | 6,72% |
Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýrnun færð hjá félaginu.
Við framkvæmd virðisrýnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýnunarprófi. Slikt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar eru mis viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýnunarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykliforsendum samt sem áður ekki leiða til virðisrýnunar.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
13. Leigueignir
Leigueignir og leiguskuldir félagsins sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 20, upplysingar um greiðsluflæði í skýringu 23c og reikningsskilaðferðir í skýringu 27o.
| Leigueignir greinast þannig: | 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|---|
| Leigueignir 1. mars | 93 | 110 | |
| Nýir leigusamningar | 8 | 0 | |
| Verðbætur | 7 | 10 | |
| Afskriftir | ( 30) | ( 28) | |
| Aðrar breytingar | 0 | 1 | |
| Leigueignir samtals | 78 | 93 |
14. Dótturfélög
Eignarhlutir í dótturfélögum greinast þannig:
| 29. febrúar 2024 | Bananar | Eldum Rét | Hagar verslanir | Noron |
|---|---|---|---|---|
| Eignarhlutur 1.3.2023 | 1.917 | 1.689 | 10.726 | 182 |
| Keypt félag | 0 | 30 | 0 | 0 |
| Hlutdeild í afkomu | 830 | 289 | 3.079 | 19 |
| Móttekinn arður | ( 800) | ( 280) | ( 2.604) | 0 |
| Eignarhlutur 29.2.2024 | 1.947 | 1.728 | 11.201 | 201 |
| Olís | Stórkaup | Samtals dótturfélög | ||
| --- | --- | --- | --- | |
| Eignarhlutur 1.3.2023 | 13.651 | ( 23) | 28.141 | |
| Keypt félag | 0 | 0 | 30 | |
| Hlutdeild í afkomu | 1.354 | ( 39) | 5.532 | |
| Móttekinn arður | ( 470) | 0 | ( 4.154) | |
| Eignarhlutur 29.2.2024 | 14.535 | ( 62) | 29.549 | |
| 28. febrúar 2023 | ||||
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Bananar | Eldum Rét | Hagar verslanir | Noron | |
| Eignarhlutur 1.3.2022 | 1.949 | 0 | 11.237 | 141 |
| Keypt félag | 0 | 1.613 | 0 | 0 |
| Hlutdeild í afkomu | 768 | 76 | 2.395 | 41 |
| Frestaður söluhagnaður af sölu Olíseigna til Klasa .. | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Móttekinn arður | ( 800) | 0 | ( 2.906) | 0 |
| Selt félag | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Eignarhlutur 28.2.2023 | 1.917 | 1.689 | 10.726 | 182 |
| Olís | Stórkaup | Önnur félög | Samtals dótturfélög | |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Eignarhlutur 1.3.2022 | 11.412 | 1 | 1 | 24.741 |
| Keypt félag | 0 | 0 | 0 | 1.613 |
| Hlutdeild í afkomu | 1.987 | ( 24) | 1 | 5.244 |
| Frestaður söluhagnaður af sölu Olíseigna til Klasa .. | 0 | 0 | 0 | 252 |
| Móttekinn arður | 0 | 0 | 0 | ( 3.706) |
| Selt félag | 0 | 0 | ( 2) | ( 2) |
| Eignarhlutur 28.2.2023 | 13.399 | ( 23) | 0 | 28.141 |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milijónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
15. Hlutdeildarfélög
Hlutdeild félagsins í hlutdeildarfélögum greinist pannig:
| | Eignar-hlutur | Bókfært verð
í ársbyrjun | Afkoma færð
í rekstur | Bókfært verð
í árslok |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Djús ehf., RVK | 49% | 162 | 5 | 167 |
| Klasi ehf., RVK | 33% | 3.550 | 487 | 4.037 |
| Eignarhlutur samtals | | 3.712 | 492 | 4.204 |
Eignarhlutur í Klasa ehf.
Hagar eru eigandi að 33,3% hlut í Klasa ehf. Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Eignarhlutur Haga í Klasa er 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Reikningskil Klasa ehf. eru gerð í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur og samkvæmt ársreikningi Klasa fyrir reikningsárið sem lauk 31. desember 2023 greinast helstu fjárhæðir pannig:
| 31.12.2023 | |
|---|---|
| Tekjur (100%) | 449 |
| Hagnaður (100%) | 1.501 |
| Fastafjármunir | 15.373 |
| Veltufjármunir | 238 |
| Langtímaskuldir | ( 1.558) |
| Skammtímaskuldir | ( 416) |
| Eigið fé (100%) | 13.637 |
| Hlutdeild í eigin fé | 4.546 |
| Frestaður söluhagnaður | ( 509) |
| Eignarhlutur í árslok (33,3%) | 4.037 |
16. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig: | 29.2.2024 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur | 4 | 2 |
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 15 | 28 |
| Aðrar skammtímakröfur | 92 | 46 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals | 111 | 76 |
Allar viðskiptakröfur félagsins eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.
17. Handbært fé
| Handbært fé greinist pannig: | 29.2.2024 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Óbundnar bankainnstæður í ISK | 32 | 422 |
| Óbundnar bankainnistæður í erlendri mynt | 0 | 38 |
| Markaðsverðbréf | 1.050 | 0 |
| Handbært fé samtals | 1.082 | 460 |
Allt handbært fé félagsins er veðsett vegna vaxtaberandi skulda félagsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
| 18. Eigíð fé
Hlutafé | 29.2.2024 | 28.2.2023 |
| --- | --- | --- |
| Hlutafé í ársbyrjun | 1.133 | 1.154 |
| Eigin bréf í ársbyrjun | ( 14) | ( 15) |
| Útistandandi hlutir í ársbyrjun | 1.119 | 1.139 |
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | ( 13) | ( 6) |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 22) | ( 14) |
| Útistandandi hlutir í árslok | 1.084 | 1.119 |
Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði útgefið hlutafé Haga því úr 1.133 millj. kr. að nafnverði í 1.106 millj. kr. að nafnverði. Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykkum þess er því 1.106 millj. kr. í lok reikningsársins. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun sem samþykkt er á aðalfundi félagsins. Félagín á eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. kr. í lok reikningsárs eða samtals 2,0% af útgefnu hlutafé.
Á aðalfundi Haga sem haldinn var þann 1. júní 2023 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Settar voru í framkvæmd tvær endurkaupaáætlanir á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar. Endurkaupin á rekstrarárinu námu 35,3 millj. hluta fyrir samtals 2.333 millj. kr.
Yfirverðsreikningur hlutafjár / lögbundinn varasjóður
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagín hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagín binda 10% af hagnaði ársins og allt að 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem má ekki nota til að greiða hluthöfum að.
Bundið eigið fé
Samkvæmt lögum nr. 3/2006 ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- og/eða hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár. Á bundinn eiginfjárreikning er jafnframt færður áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga.
Bundið eigið fé greinist þannig:
| Lög-bundinn varasjóður | Bundinn hlutdeildar-reikningur | Bundinn eiginfjár-reikningur | Bundið eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Bundið eigið fé 1. mars 2022 | 285 | 5.274 | 12 | 5.571 |
| Breyting á varasjóð | ( 2) | 0 | 0 | ( 2) |
| Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga | 0 | 0 | 21 | 21 |
| Breyting á hlutdeildarreikningi | 0 | 1.700 | 0 | 1.700 |
| Bundið eigið fé 28. febrúar 2023 | 283 | 6.974 | 33 | 7.290 |
| Bundið eigið fé 1. mars 2023 | 283 | 6.974 | 33 | 7.290 |
| Breyting á varasjóð | ( 6) | 0 | 0 | ( 6) |
| Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga | 0 | 0 | 21 | 21 |
| Breyting á hlutdeildarreikningi | 0 | 1.623 | 0 | 1.623 |
| Bundið eigið fé 29. febrúar 2024 | 277 | 8.597 | 54 | 8.928 |
Arðgreiðslur
Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 30. maí 2024 að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2024 sem nemur 50,0% af heildarhagnaði ársins, samtals 2.522 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár (2023: 2,2 kr. á hlut).
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
18. Eigið fé, frh.:
Kaupréttarsamningar
Í samræmi við samþykkt aðalfundar þann 3. júní 2021 var þann 6. júlií sama ár gengið frá samningum um kauprétti sem ná til tiltekinna lykilstarfsmanna félagsins. Alls voru veittir 11.806.246 hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu, þar af 6.800.398 til framkvæmdastjórnar.
Nýtingarverð kaupréttanna er 60,4 kr. á hlut, þ.e. dagslokagengi hluta í Högum eins og það var skráð á Nasdaq Iceland degi fyrir úthlutun á aðalfundi þann 3. júní 2021. Nýtingarverð skal leiðrétt, til lækkunar, fyrir framtíðar arðgreiðslum og leiðrétt, til hækkunar, með 3% árlegum vöxtum ofan á áhættulausa vexti frá úthlutunardegi og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil. Ávinnsludagur er þremur árum frá úthlutun og hefst þá nýtingartímabil. Unnt verður að nýta 1/3 af kaupréttum á 1. tímabili, 1/3 á 2. tímabili og svo 1/3 á 3. tímabili en hvert tímabil spannar eitt ár.
Samkvæmt heimild stjórnar, hefur kaupréttum sem fallið hafa úr gildi verið endurúthlutað. Heildarfjöldi útistandandi kaupréttta er óbreyttur, 11.806.246 hlutir en þar af hefur 6.784.000 hlutum verið úthlutað til framkvæmdastjórnar.
Heildarkostnaður félagsins, skv. reiknilikani Black&Scholes vegna kaupréttarsamninganna er áætlaður um 81,8 millj. kr. á ávinnslutímanum en þar af er gjaldfærður í samstæðunni áfallinn kostnaður vegna þeirra 21,0 millj. kr. á rekstrarárinu 2023/24 (2022/23: 21,0 millj. kr.) og þar af 7,0 millj. kr. hjá móðurfélaginu (2022/23: 7,0 millj. kr.).
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 22
SKÝRINGAR, FRH.:
- Vaxtaberandi skuldir
| Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: | ||||
|---|---|---|---|---|
| Vegið meðaltal vaxta | Eftirstöðvar | Eftirstöðvar | ||
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
| Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar | 7,25% | 4,53% | 5.094 | 3.129 |
| Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar | 2,80% | 2,80% | 6.099 | 5.938 |
| Vixilskuldir í ISK | 10,32% | 7,25% | 2.880 | 1.080 |
| Lánalína í ISK | - | 8,10% | 0 | 1.800 |
| Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 14.073 | 11.947 | ||
| Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda | (5.639) | (3.139) | ||
| Langtímaskuldir samtals | 8.434 | 8.808 | ||
| Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig á næstu ár: | ||||
| Afborganir innan árs | 5.639 | 3.139 | ||
| Afborganir eftir 1 til 2 ár | 258 | 2.748 | ||
| Afborganir eftir 2 til 3 ár | 2.261 | 248 | ||
| Afborganir eftir 3 til 4 ár | 263 | 250 | ||
| Afborganir eftir 4 til 5 ár | 266 | 252 | ||
| Afborganir síðar | 5.386 | 5.310 | ||
| Samtals | 14.073 | 11.947 | ||
| Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig: | ||||
| Vaxtaberandi skuldir 1. mars | 11.947 | 8.770 | ||
| Ný lántaka langtímalána | 2.000 | 0 | ||
| Afborganir ársins | (266) | (252) | ||
| Breyting á vixilskuldum | 1.800 | 1.080 | ||
| Breyting á lánalínu | (1.800) | 1.800 | ||
| Verðbætur | 392 | 549 | ||
| Vaxtaberandi skuldir samtals | 14.073 | 11.947 |
Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.
Í lánaskilmálum eru kvaðir um ákveðin fjárhagsleg skilyrði sem stóðust prófun í lok rekstrarárs.
Stjórn Haga hf. samþykkti þann 23. nóvember 2022 útgáfuramma um útgáfu skuldabréfa og vixla að fjárhæð 10.000 millj. kr. Undanfarið hefur félagið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu, í samræmi við útgáfurammann. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum en til marks um það var gefinn út nýr skuldabréfaflokkur HAGA120926 1 í september síðastliðnum að fjárhæð 2.000 millj. kr.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
23
SKYRINGAR, FRH.:
20. Leiguskuldir
Leigueignir og leiguskuldir félagsins sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leigueignir má finna í skýringu 13, upplysingar um greiðsluflæði í skýringu 23c og reikningsskilaðferðir í skýringu 27o.
| Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: | 29.2.2024 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Leiguskuldir 1. mars | 97 | 113 |
| Nýir samningar | 8 | 0 |
| Afborgunarþáttur leigugreiðslna | ( 29) | ( 27) |
| Verðbætur | 7 | 10 |
| Aðrar breytingar samninga | ( 1) | 1 |
| Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 82 | 97 |
| Næsta árs afborganir leiguskulda | ( 34) | ( 28) |
| Leiguskuldir til langtíma samtals | 48 | 69 |
Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár:
| Afborganir innan árs | 34 | 28 |
|---|---|---|
| Afborganir eftir 1 til 2 ár | 29 | 26 |
| Afborganir eftir 2 til 3 ár | 19 | 25 |
| Afborganir eftir 3 til 4 ár | 0 | 18 |
| Samtals | 82 | 97 |
| Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig: | 2023/24 | 2022/23 |
| --- | --- | --- |
| Vaxtagjöld á leiguskuldir | 4 | 4 |
| Afskrift leigueignar | 30 | 28 |
Áhrif leigusamninga í sjóðstreymi greinast þannig:
| Greitt vegna leigusamninga, afborganir og vextir | 29 | 27 |
|---|---|---|
21. Tekjuskattsskuldbinding
Tekjuskattsskuldbinding greinist þannig á einstaka liði:
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir | ( 462) | ( 412) |
| Leiguskuldbinding | 199 | 157 |
| Aðrir liðir | 13 | 17 |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | ( 250) | ( 238) |
Tekjuskattur til greiðslu greinist þannig:
| Tekjuskattur ársins til greiðslu | 1.082 | 1.248 |
|---|---|---|
| Fyrirframgreiddir skattar | ( 226) | ( 148) |
| Tekjuskattur ársins til greiðslu samtals | 856 | 1.100 |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milijónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
22. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 29.2.2024 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Tekjuskattur til greiðslu | 856 | 1.100 |
| Viðskiptaskuldir | 181 | 156 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 415 | 386 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 1.452 | 1.642 |
23. Stýring fjármálalegrar áhættu
a. Yfirlit
Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum félagsins:
- Lánsáhætta
- Lausafjáráhætta
- Markaðsáhætta
- Rekstraráhætta
Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu þess. Jafnframt eru veittar tölulegar upplýsingar viðar í ársreikningnum.
Stjórn félagsins ber ábyrgð á innleiðingu og eftirliti með fjármálalegri áhættu félagsins.
Markmið félagsins með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring félagsins og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi félagsins. Með starfsmannapjálfun og starfsreglum stefnir félagrið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.
b. Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar.
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur
Lánsáhætta félagsins ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Sambjöppunaráhætta félagsins er óveruleg og tengist að mestu öðrum fyrirtækjum í samstæðu Haga.
Félagrið myndar niðurfærslu vegna áætaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.
Í lok reikningsársins var lánsáhætta félagsins óveruleg.
Mögulegt tap vegna lánsáhættu
Mesta mögulega tap félagsins vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:
| Skýring | 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 16 | 111 | 76 |
| Handbært fé | 17 | 1.082 | 460 |
| Mesta mögulega tap vegna fjáreigna | 1.193 | 536 |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
23. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:
c. Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagsins.
Samningsbundnar greiðslur vegna fjárskulda, þar með taldar væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:
| 29. febrúar 2024 | Bókfært verð | Samnings-bundið sjóðsflæði | Innan árs | Eftir 1-5 ár | Eftir meira en 5 ár |
|---|---|---|---|---|---|
| Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir .. | 7.974 | 9.456 | 6.068 | 2.662 | 726 |
| Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... | 6.099 | 7.274 | 409 | 1.589 | 5.276 |
| Leiguskuldir | 82 | 88 | 35 | 53 | 0 |
| Skuldir við tengda aðila | 3.847 | 3.847 | 3.847 | 0 | 0 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 596 | 596 | 596 | 0 | 0 |
| 18.598 | 21.261 | 10.955 | 4.304 | 6.002 |
28. febrúar 2023
| Óverðtryggðar vaxtaberandi skuldir .. | 6.009 | 6.702 | 3.136 | 2.871 | 695 |
|---|---|---|---|---|---|
| Verðtryggðar vaxtaberandi skuldir ... | 5.938 | 6.924 | 386 | 1.482 | 5.056 |
| Leiguskuldir | 97 | 104 | 28 | 76 | 0 |
| Skuldir við tengda aðila | 2.252 | 2.252 | 2.252 | 0 | 0 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 542 | 542 | 542 | 0 | 0 |
| 14.838 | 16.524 | 6.344 | 4.429 | 5.751 |
Til viðbótar við samningsbundið sjóðsflæði þá nemur tekjuskattur til greiðslu 898 millj. kr. (2022/23: 1.100 millj. kr.).
d. Markaðsáhætta
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxt hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjármálagerninga. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður. Gjaldmiðlaáhætta félagsins er óveruleg en vísað er í samstæðureikning Haga varandi gjaldmiðlaáhættu samstæðunnar.
Vaxtaáhætta
Í lok árs eru 23,2% langtímalána félagsins með breytilegum vöxtum (2022/23: 6,9%). Breyting í vöxtum skulda með breytilega vexti um 1% í lok reikningsárs myndu hækka (lækka) eigið fé og afkomu um 21 millj. kr. (2022/23: 5 millj. kr.) eftir tekjuskatt.
Gangvirði
Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
23. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:
e. Rekstraráhætta
Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni af völdum margra þátta í starfseminní en þar ber helst að nefna ranga viðskiptastefnu, vinnu starfsfólks, tækni, ófullnægjandi eða gallaða innri ferla eða ytri atburða.
Til að draga úr rekstraráhættu hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar ber helst að nefna vinnu við stefnumótun og ítarlega greiningu á rekstrar- og samkeppnismhverfi Haga, lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og samkeppnishæf laun, áhersla er á kostnaðargreiningar, áætlanagerð, frávikagreiningar og uppgjör. Innleiddir hafa verið verkferlar á mörgum sviðum starfseminnar ásamt því að gerðar hafa verið umtalsverðar breytingar til hins betra í rekstri upplýsingatækni í samstæðunni, með traustari rekstri grunnkerfa, bættum og skjalfestum verkferlum og framþróun í stafrænum lausnum. Unnið hefur verið markvisst að netóryggismálum og hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í því samhengi.
1. Eiginfjárstýring
Það er stefna stjórnar að eiginfjárstaða félagsins sé sterk til að viðhalda trausti fjárfesta, lánastofnana og annarra markaðsaðila ásamt því að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins.
Stefna stjórnar félagsins er að greiða hluthöfum þess árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar síðasta rekstrarárs eftir skatta. Forsendur fjárhæðar arðgreiðslu er að félagið viðhaldi fjárhagslegum styrk sínum og að arðgreiðslan taki mið af handbæru fé frá rekstri. Að auki mun félagið kaupa eigin bréf samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins. Þá stefnir stjórn Haga að því að eiginfjárhlutfall samstæðunnar verði um 35%.
24. Tengdir aðilar
Skilgreining tengdra aðila
Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, dótturfélög, hlutdeildarfélög, lykilstjórnendur og stjórnarmenn.
Stjórn og lykilstjórnendur
Laun, hlunnindi og árangurstengd laun stjórnar og lykilstjórnenda og eignarhlutur í árslok að nafnverði greinast þannig:
| 2023/24 | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Laun | Hlunnindi | Árangurs-tengd laun | Framlag í lífeyrissjóð | Eignahlutur í árslok* | |
| Davíð Harðarson, stjórnarformaður ... | 10,2 | 0,0 | 0,0 | 1,2 | 0,36 |
| Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... | 7,8 | 0,0 | 0,0 | 0,9 | 0,00 |
| Eiríkur S. Jóhannsson, meðstj. ... | 5,7 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 86,00 |
| Jensína K. Böðvarsdóttir, meðstj. ... | 6,7 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 0,06 |
| Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... | 5,7 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 0,04 |
| Finnur Oddsson, forstjóri ... | 56,8 | 3,2 | 18,0 | 15,6 | 0,26 |
Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.
*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
24. Tengdir aðilar, frh.:
Stjórn og lykilstjórnendur, frh.:
| 2022/23 | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Laun | Hlunnindi | Árangurs-tengd laun | Framlag í lífeyrissjóð | Eignahlutur í árslok* | |
| Davíð Harðarson, stjórnarformaður ... | 9,8 | 0,0 | 0,0 | 1,1 | 0,36 |
| Eva Bryndís Helgadóttir, varaform. ... | 7,0 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 0,00 |
| Eiríkur S. Jóhannsson, meðstj. ... | 5,9 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 51,29 |
| Jensína K. Bóðvarsdóttir, meðstj. ... | 6,5 | 0,0 | 0,0 | 0,8 | 0,00 |
| Sigríður Olgeirsdóttir, meðstj. ... | 4,1 | 0,0 | 0,0 | 0,6 | 0,04 |
| Katrín O. Jóhannesdóttir, fv. meðstj. . | 1,3 | 0,0 | 0,0 | 0,2 | 0,00 |
| Finnur Oddsson, forstjóri ... | 50,1 | 3,9 | 16,0 | 14,2 | 0,26 |
Eva Bryndís og Sigríður eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Jensína, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.
| 2023/24 | 2022/23 | |
|---|---|---|
| Kynjahlutfall lykilstjórnenda í % - fjöldi ársverka (karlar/konur) ... | 75/25 | 75/25 |
Dótturfélög
Dótturfélög Haga hf. voru sex í upphafi og lok reikningsárs. Dótturfélögin eru eftirfarandi:
| Staðsetning | Eignarhlutur | ||
|---|---|---|---|
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | ||
| Hagar verslanir ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Olís ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Bananar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Noron ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Stórkaup ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Eldum rétt ehf. | Ísland | 100% | 100% |
Félágið á í viðskiptum við félög innan samstæðu Haga og eru þau viðskipti gerð á armslengdar kjörum.
Viðskipti við dótturfélög
| Viðskipti við tengda aðila greinast þannig: | 2023/24 | 2022/23 |
|---|---|---|
| Í rekstrarreikningi eru eftirfarandi rekstrartekjur frá dótturfélögum | 1.706 | 1.454 |
| Í efnahagsreikningi eru eftirfarandi viðskiptastöður við dótturfélög | ( 3.847) | ( 2.252) |
| Í sjöðstreymisyflriti eru eftirfarandi arðstekjur frá dótturfélögum | 4.154 | 3.706 |
Viðskipti við hlutdeildarfélög
Viðskipti við hlutdeildarfélög eru óveruleg.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
25. Önnur mál
Þann 1. desember 2023 var tilkynnt að Olís, dótturfélag Haga, og Festi hefðu sameiginlega ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til ráðgjafar um stefnu og framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti félaganna í Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. (EAK) og EBK ehf. Í framhaldi af þeirri vinnu hafa Olís og Festi komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sólumeðferðar á eignarhlutunum. Olís á 40% eignarhlut í Olíudreifingu, 33,33% hlut í EAK og 25% hlut í EBK og er bókfært verð þeirra í reikningsskilum Olís, 1.295 millj. kr. í árslok.
26. Kennitölur
Helstu kennitölur félagsins eru eftirfarandi:
| 29.2.2024 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|
| Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) | 0,11 | 0,08 |
| Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) | 58,9% | 63,3% |
| Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) | 26,00 | 24,96 |
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 29
SKÝRINGAR, FRH.:
27. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum. Þeir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2023 hafa ekki veruleg áhrif á reikningsskil félagsins, sjá nánar í skýringu 27r.
Til að auka upplýsingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
a. Tekjur
Veitt þjónusta/aðrar tekjur
Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning samkvæmt samningi þegar þjónustan hefur verið veitt. Aðrar rekstrartekjur félagsins eru leigutekjur fasteigna, aðstöðuleiga, hagnaður af sölu eigna o.fl. Langstærstur hluti rekstrartekna félagsins kemur frá öðrum fyrirtækjum í samstæðu Haga. Greiðsluskilmálar eru hefðbundnir.
b. Skilgreining á lykilkennitölum og hugtökum
EBITDA ... Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði, áhrif hlutdeildarfélaga og tekjuskatt.
Ávöxtunarkrafa ... Vegið meðaltal reiknaðra vaxta af lánsfé og eigin fé.
c. Erlendir gjaldmiðlar
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi. Aðrar eignir og skuldir, sem metnar eru á gangvirði í erlendri mynt, eru færðar á því gengi sem var í gildi þegar gangvirði þeirra var ákvarðað.
d. Hlunnindi starfsmanna
Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði
Félagið greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Félagið ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikningi meðal launa og launatengdra gjalda eftir því sem þau falla til.
e. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjárfestingum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.
Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar á skuldbindingum, virðisrýrnun fjáreigna og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Lántökukostnaður er færður í rekstrarreikning miðað við virka vexti. Félagið eignfærir ekki vaxtagjöld af lánum.
Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman og fært sem annað hvort fjármunatekjur eða fjármagnsgjöld sem fer eftir hvort gengismunahreyfingar skila sér í hagnaði eða tapi.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
27. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
f. Tekjuskattur
Tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.
Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókéfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna skattalegs tímabundins mismunar sem er tilkominn vegna upphaflegrar skráningar á viðskiptavild.
Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Skatteign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.
Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteignin er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.
g. Hagnaður á hlut
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila hagnaði ársins, sem úthlutað er til hluthafa félagsins, með vegnu meðaltali útistandandi hlutafjár yfir árið. Þynntur hagnaður á hlut er ákvarðaður með því að leiðréttá fjölda virkra hluta fyrir mögulegri þynningu vegna hluta sem gæti þurft að gefa út vegna kaupréttta starfsmanna.
h. Rekstrarfjármunir
Færsla og mat
Rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Keyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur til að unnt sé að nýta vélbúnað er eignfærður sem hluti af þeim tækjabúnaði.
Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.
Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bókéfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekná og sölutap meðal annars rekstrarkostnaðar.
Kostnaður sem fellur til síðar
Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.
Afskriftir
Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna og færðar í rekstrarreikning.
Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Áhöld og innréttingar ... 3-14 ár
Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjörsdegi.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milfjónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
- Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
i. Fjárfestingarfasteignir
Færsla og mat
Félagið leigir út fasteignir eða hluta fasteigna með tilheyrandi innréttingum og tækjum til lengri eða skemmri tíma þegar slík notkun á húsnæði er hagkvæm eða fellur vel að öðrum rekstri hennar. Fasteignir til leigu geta verið nýjar eða verið endurflokkaðar af fastafjármunum til eigin nota. Endurflokkun á sér stað yfir á fjárfestingarfasteignir þegar leiga hefur verið samþykkt og er færð til baka ef eignirnar eru aftur teknar til eigin nota.
Fjárfestingarfasteignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Endurflokkun af eða á fastafjármuni til eigin nota er á bókfærðu kostnaðarverði á þeim tíma.
Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Þegar fjárfestingarfasteignir eru samsettar úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.
Hagnaður eða tap af sölu fjárfestingarfasteigna er munurinn á söluverði og bókfærðu verði eignarinnar og er söluhagnaður færður í rekstrarreikning meðal annarra rekstrartekná og sölutap fært meðal annars rekstrarkosntaðar.
Kostnaður sem fellur til síðar
Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta fjárfestinga er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.
Afskriftir
Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlæðan nýtingartíma einstakra hluta fjárfestingarfasteigna og færðar í rekstrarreikning. Land og lóðir eru ekki afskrifaðar.
Áætlæður nýtingartími greinist þannig:
Fasteignir ... 50 ár
Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjørsdegi.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
- Mikilvægar reikningsskilaøferðir, frh.:
j. Óefnislegar eignir
Viðskiptavild
Viðskiptavild verður til við yfirtöku á rekstrareiningum og er færð á meðal óefnislegra eigna. Viðskiptavild vegna kaupa á dótturfélögum er innifalin í bókfærðu verði dótturfélaga.
Viðskiptavild er mismunur á kostnaði við yfirtöku eða kaupum félags og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda.
Síðara mat
Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.
Aðrar óefnislegar eignir
Aðrar óefnislegar eignir eru hugbúnaður með takmarkaðan líftíma eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
Kostnaður sem fellur til síðar
Kostnaður sem fellur til síðar er aðeins eignfærður ef hann eykur væntan framtiðarávinning þeirrar eignar sem hann tengist. Allur annar kostnaður, að meðtöldum þeim sem myndar viðskiptavild og vörumerki innan fyrirtækisins, er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann fellur til.
Afskriftir
Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áætlaðan nýtingartíma þeirra. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Hugbúnaður ... 5-12 ár
k. Dótturfélög
Dótturfélög eru þau félög þar sem félagið fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni.
Eignarhlutir í dótturfélögum eru færðir til eignar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Samkvæmt hlutdeildaraðferð er hlutdeild í hagnaði og tapi dótturfélaga eftir kaup færð í rekstrarreikning. Uppsöfnuð áhrif eftir kaup koma fram í bókfærðu verði eignarhluta í dótturfélögum. Hætt er að taka tillit til hlutdeildar í tapi dótturfélags þegar bókfært verð er núll. Móttekinn arður frá dótturfélögum er færður til lækkunar á fjárfestingu í dótturfélagi. Inniðfalið í bókfærðu verði eignarhlutanna er viðskiptavild sem myndáðist við upphaffeg kaup viðkomandi dótturfélags.
l. Hlutdeildarfélög
Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Ársreikningurinn inniheldur hlutdeild félagsins í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga frá upphafi áhrifa til loka þeirra. Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins er bókfærða verðið fært í núll og færslu frekara taps hætt, nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir hlutdeildarfélagið eða fjármagnað það.
Eignarhlutir í hludeildarfélögum eru eignfærðir á verði sem svarar til hlutdeildar félagsins í bókfærðu eigin fé þeirra.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
27. Mikilvægar reikningsskilaðferðir, frh.:
m. Önnur félög
Eignahlutir í öðrum félögum, þar sem félagið á minna en 20% hlutafjár, eru færðir á kostnaðarverði sem talið er að endurspegli gangvirði. Arður frá þessum félögum er færður til tekna meðal fjármagnstekna þegar honum er úthlutað.
n. Fjármálagerningar
Fjáreignir
Skuldabréf, viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanalegum greiðslum sem eru ekki skráðar á virkum markaði. Slikar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.
Markaðverðbréf, sjóður og óbundnar bankainnstæður teljast til handbærs fjár.
Virðisrýrnun fjáreigna
Á hverjum uppgjørsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign telst vera virðisrýrð ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem átt hafa sér stað benda til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar verði lægra en áður var talið.
Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunur á bókéfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar.
Fjárskuldir
Fjárskuldir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.
Fjáreignum og fjárskuldum er jafnað saman og nettó fjárhæð sýnd í efnahagsreikningi þegar lagalegur réttur er til staðar um jöfnun og fyrirhugað er að gera upp með jöfnun fjáreigna og fjárskulda eða innleysa eignina og greiða skuldina á sama tíma.
o. Leigusamningar
Við upphaf samnings leggur félagið mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér rétt til yfirráða tiltekinnar eignar á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér yfirráð tiltekinnar eignar notar félagið skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.
Félagið sem leigutaki
Allir leigusamningar félagsins eru um fasteignir og þá hefur félagið kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.
Félagið færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leigueignarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áæltaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguilvilnunum sem félagið hefur fengið.
Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til félagsins í lok leigutímabilins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að félagið muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastaðjármuni félagsins. Jafnframt er virði leigueignar lækkæð reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
27. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
o. Leigusamningar, frh.:
Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar félagið þá vexti sem það fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar félagið vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.
Leigugreiðslur sem eru innifaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér fastar leigugreiðslur og breytilegar leigugreiðslur tengdar vísitölu.
Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati félagsins á fjárhæð sem hún væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef félagið breytir mati sínu á því hvort hún muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.
Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókéfærðu verði leigueignarinnar, eða leiðrétting færð í rekstrarreikning félagsins ef bókéfærð virði leigueignarinnar hefur verið færð niður í nüll.
Leigueignir eru sérgreindar í efnahagsreikningi meðal fastafjármuna. Leiguskuldir eru sérgreindar í efnahagsreikningi og skipt í langtíma- og skammtímahluta skulda. Afskriftir af leigueignum eru í rekstrarreikningi undir afskriftum og vaxtagjöld af leiguskuldum eru í rekstrarreikningi undir fjármagnsgjöldum.
Félagið sem leigusali
Félagið leigir fasteignir og færir leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga línulega yfir leigutímabilið meðal annarra tekna í rekstrarreikningi.
p. Hlutafé
Almennt hlutafé
Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður við útgáfu hlutafjár, að frádregnum skattaáhrifum, og beinn kostnaður við útgáfu kaupréttarsamninga er færður til lækkunar á eigin fé.
Kaup á eigin hlutum
Þegar hlutir sem flokkaðir eru sem eigið fé eru keyptir er fjárhæð kaupverðsins, að meðtöldum beinum kostnaði að frádregnum skattaáhrifum, færð sem lækkun á eigin fé. Kaup á eigin bréfum eru færð sem eigin hlutir og þeir færðir til lækkunar á heildar eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir eða gefnir út aftur er fjárhæð söluverðsins færð til hækkunar á eigin fé. Hagnaði eða tapi sem fellur til við sölna er bætt við eða dregið frá yfirverðsreikningi hlutafjár.
q. Skuldbindingar
Skuldbinding er færð þegar félagið ber lagalega eða ætlaða skyldu vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstremi með vöxtum fyrir tekjuskatt sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna 35
SKÝRINGAR, FRH.:
27. Mikilvægar reikningsskilaðferðir, frh.:
r. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir
Á árinu tók í gildi nýr reikningsskilastaðall, IFRS 17 um vátryggingarsamninga. Staðallinn hefur ekki áhrif á reikningsskil félagsins. Auk þess tóku í gildi á árinu eftirfarandi breytingar á stöðlunum:
Breyting á IAS 1 ... Skýringar um reikningsskilareglur og leiðbeinandi verklagi í IFRS Practise Statement 2.
Breyting á IAS 8 ... Skilgreining á reikningshaldslegu mati.
Breyting á IAS 12 ... Frestaður tekjuskattur vegna eigna og skulda sem myndast við ein viðskipti.
Breytingar á ofangreindum stöðlum höfðu óveruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
Nokkrar breytingar á reikningsskilastöðlum hafa verið gerðar sem hafa ekki tekið gildi fyrir reikningsskil 31. desember 2023 og hafa ekki verið innleitt fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila. Ekki er búist við að breytingar á þessum reikningsskilastöðlum munu hafa veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
36
STJÓRNARHÁTTAYFÍRLYSING (ÓENDURSKOBAB)
- Hlutafélagið Hagar hf.
Hagar eru fjölskylda af fyrirtækjum sem að starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Öll fyrirtæki Haga hafa það markmið að veita framúrskarandi þjónustu, selja gæða vörur á sanngjörnu verði og hafa um leið eins jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mögulegt er. Gildi Haga endurspegla þessi leiðarljós í rekstrinum en þau eru þjónustulund, samvinna, hagkvæmni og framsækni.
1.1 Fylgni við leiðbeiningar um stjórnarhætti, lög og reglur
Stjórnarhættir Haga eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru samþykktar af stjórn þann 22. mars 2024, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru samþykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í samþykktum. Gildandi starfskjarastefna Haga var staðfest á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023, en hún nær til allra helstu þátta í starfs- og launakjörum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 30. maí 2024.
Helstu lög sem gilda um starfsemi Haga eru lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um ársreikninga nr. 3/2006, samkeppnislög nr. 44/2005, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og lög um tekjuskatt nr. 90/2003. Þá tryggja Hagar öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með í starfseminni, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lögin eru aðgengileg á vef Alþingis, www.althingi.is.
Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulifsins, sem félaginu ber að fylgja sem útgefanda skráðra verðbréfa. Leiðbeiningarnar má finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is og á www.leidbeiningar.is.
Hagar birta reglur og annað efni sem Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja gera ráð fyrir að félög birti á vefsíðu sinni á sérstöku svæði fyrir fjárfesta á vef félagsins, www.hagar.is. Þar má meðal annars finna starfsreglur stjórnar og undirnefnda, starfskjarastefnu og arðgreiðslustefnu. Yfirlýsing þessi er einnig aðgengileg á vef félagsins, auk þess sem hún er birt í ársreikningi og í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess, sem hittast á hluthafafundum að minnsta kosti einu sinni á ári. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq CSD, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins. Fundargerðir hluthafafunda, sem haldnir hafa verið eftir að hlutir félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins innan sjö daga frá hluthafafundi.
1.2 Frávik frá leiðbeiningum um stjórnarhætti
Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera að fullu leyti í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, og telur stjórn félagsins að hvergi sé vikið frá leiðbeiningunum.
1.3 Tilvísanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir
Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is.
Arðgreiðslustefna
Stjórn Haga hefur markað félaginu þá stefnu að skila til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins. Arðgreiðslustefnan er endurskoðuð árlega og var síðast breytt þann 22. mars 2024.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
1.3 Tilvísanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:
Jafnréttis- og mannréttindastefna
Í mars 2024 endurskoðaði stjórn Haga jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins og samþykkti hana með breytingum en stefnan byggir á lögum nr. 150/2020. Markmið stefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan félagsins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kyni, uppruna, þjóðerni, litarhætti o.s.frv. Stefnuna skal endurskoða minnst á þriggja ára fresti.
Öll dótturfélög Haga hafa lokið jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem lögfest var í júní 2017, og hafa þau innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun. Móðurfélag Haga lauk jafnlaunastaðfestingu í lok árs 2022.
Persónuverndarstefna
Hagar hafa einsett sér að vinna með persónuupplýsingar í hvívetna í samræmi við lög um persónuupplýsingar og vinnslu persónuupplýsinga og hafa því til staðfestingar sett félaginu persónuverndarstefnu sem síðast var breytt og samþykkt á stjórnarfundi þann 24. mars 2023.
Reglur um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda
Markmið reglna um meðferð innherjaupplysinga og viðskipti stjórnenda er að tryggja örugga meðferð innherjaupplysinga og hindra að innherjaupplysingar berist til annarra en þeirra sem þarfnast þeirra starfs síns vegna. Reglunum er ætlað að stuðla að því að viðskipti stjórnenda séu í samræmi við lög og reglur sem um málaflokkinn gilda og að slík viðskipti séu trúverðug. Reglurnar hafa einnig það að markmiði að stuðla að auknu jafnræði meðal fjárfesta þannig að þeir hafi jafnan aðgang að nýjustu upplysingum, er máli skipta, á hverjum tíma. Stjórn samþykkti reglurnar þann 7. september 2023 og skulu þær endurskoðaðar að lágmarki á tveggja ára fresti.
Reglur um vernd uppljóstrara
Markmið laga um vernd uppljóstrara, nr. 40/2020, er að stuðla að því upplýst verði um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi og þannig dregið úr slíku hátterni. Reglum um vernd uppljóstrara er ætlað að koma á skilvirku úrræði til að koma upplýsingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í fór með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila. Stjórn Haga samþykkti reglurnar þann 22. mars 2024.
Samkeppnisstefna
Samkeppnisstefna Haga var samþykkt á aðalfundi félagsins í júní 2019. Í stefnunni er kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sátt Haga við Samkeppniseftirlitið frá 2018 og skyldur samkvæmt samkeppnislögum. Jafnframt felur stefnan í sér hátternisreglur fyrir hluthafa Haga.
Síðareglur
Stjórn Haga hefur sett félaginu síðareglur en þær gilda um stjórn Haga og allt starfsfólk félagsins og dótturfélaga þess. Síðareglurnar eru endurskoðaðar árlega og var þeim síðast breytt á stjórnarfundi þann 7. apríl 2022.
Sjálfbærni- og umhverfisstefna
Stjórn Haga hefur sett félaginu sjálfbærnistefnu sem endurskoðaðar var á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Hagar hafa alla tíð lagt metnað sinn í að þjóna íslenskum neytendum með ábyrgum hætti. Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara samfélags og umhverfis, samhliða heilbrigðum rekstri. Sjálfbærnistefnan byggir á fjórum meginstöðum; umhverfi, mannaður, neytendur og stjórnarhættir. Þá hafa Hagar valið sjö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í framkvæmdaráætlun stefnunnar.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
1.3 Tilvisanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir, frh.:
Stjórn Haga hefur einnig sett félaginu umhverfisstefnu en stefnan var endurskoðuð á stjórnarfundi þann 22. mars 2024. Umhverfisstefna Haga og dótturfélaga er sett fram með það að leiðarljósi að leggja áherslu á mikilvægi umhverfissjónarmiða í daglegri starfsemi félagsins. Meginmarkmiðið er að félagið leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og styðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Umhverfisstefnan byggir á fjórum meginstoðum; loftslagsmál, hringrásarhagkerfi, mengun og líffræðileg fjölbreytni.
Hagar og rekstrareiningar þess hafa frá árinu 2019, í samvinnu við Klappir Grænar lausnir hf., birt sjálfbærniuppgjör samstæðunnar skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um sjálfbærni og bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.
Starfsemi Haga fellur undir ákvæði ársreikningalaga um ófjárhagslega upplýsingagjóf en þar eru settar fram upplýsingar til að hægt sé að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfismál, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum. Starfsemi Haga fellur einnig undir gildissvið flokkunarreglugerðar ESB frá og með rekstrarárinu 2023/24 en reglugerðin skilgreinir viðmið sem ákvarða hvort atvinnustarfsemi uppfylli skilyrði þess að teljast umhverfislega sjálfbær. Ófjárhagslegar upplýsingar Haga má finna í sérstökum viðauka í ársreikningi samstæðu Haga.
Skattastefna
Þann 28. febrúar 2024 samþykkti stjórn Haga skattastefnu félagsins. Tilgangur skattastefnu er að marka stefnu og miðla því hvernig félagið hagar skattamálum samstæðunnar í samræmdu og samkeppnishæfu skattaumhverfi. Skattastefnan veitir leiðbeiningar um stjórnun skattamála og skattaáhátttu sem tengjast rekstri samstæðunnar, reglufylgni og samskipti við skattayfirvöld.
Stefna um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka
Í janúar 2024 lauk félagið uppfærslu á áhættumati samstæðunnar vegna aðgerða gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Í kjölfarið samþykkti stjórn, þann 11. janúar 2024, stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútuþægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í för með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.
Upplysingastefna
Stjórn Haga hefur mótað sér stefnu um birtingu upplýsinga. Markmið upplýsingastefnunnar er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum, tímanlegum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi félagsins á hverjum tíma, í samræmi við lög og reglur sem félaginu ber að fylgja sem útgefandi skráðra verðbréfa, s.s. lög um verðbréfaviðskipti.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLYSING, FRH.:
2. Innra eftirlit og áhættustjórnun
2.1 Innra eftirlit og áhættustýring
Félagið kappkostar að hafa fullnægjandi innra eftirlit á hinum ýmsu sviðum. Innra eftirlit Haga felst í eftirliti með starfsemi félagsins í því skyni að fyrirbyggja og greina hugsanleg mistök og sviksemi birgja, starfsmanna og viðskiptavina félagsins. Félagið hefur lagt áherslu á að efla eftirlit og auka öryggisráðstafanir. Hjá Högum er m.a. í þessu skyni starfrækt sérstök öryggisdeild sem hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki í eftirliti með öllu sem viðkemur rekstri verslana félagsins. Einnig er starfandi á aðalskrifstofu Haga starfsmaður sem hefur innra eftirlit að sínu aðalstarfi og heyrir hann undir forstjóra félagsins. Hlutverk innra eftirlits og öryggisdeildar Haga er að hafa eftirlit með því að viðeigandi verklagsreglum sé fylgt í daglegum rekstri félagsins. Í því skyni er m.a. beitt sérhæfðum upplýsingakerfum. Stjórn Haga hefur falið endurskoðunarnefnd að hafa vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Þá hefur stjórn félagsins skilgreint áhættuþætti í rekstri Haga og miðast áhættustýringin að því að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi.
2.2 Ytri endurskoðun
Endurskoðendur félagsins eru kosnir til eins árs í senn á aðalfundi. Endurskoðendur Haga eða aðilar þeim tengdir mega ekki eiga hlutabréf í félaginu. Endurskoðendur skulu endurskoða reikningsskil félagsins á grundvelli alþjóðlegra endurskoðunarstaðla. Þeir gera ýmsar kannanir á bókhaldi félagsins og hafa ávallt óhindraðan aðgang að bókhaldi og öllum gögnum félaga í samstæðu Haga. Stjórn félagsins og endurskoðunarnefnd fær árlega í hendur sérstaka endurskoðunarskýrslu frá endurskoðendum þess þar sem fram koma helstu athugasemdir þeirra við reikningsskilin.
Endurskoðandi Haga er PricewaterhouseCoopers ehf. Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, löggiltir endurskoðendur, bera ábyrgð á endurskoðun félagsins fyrir hönd PricewaterhouseCoopers ehf.
2.3 Regluvarsla
Stjórn félagsins hefur skipað regluvörð þess. Hlutverk regluvarðar er m.a. að hafa umsjón með því að lögum um aðgerðir gegin markaðssvikum og reglugerð MAR sé fylgt í starfsemi félagsins. Regluvörður félagsins er Guðrún Eva Gunnarsdóttir og staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.
3. Stefna um fjölbreytileika
Stefnu um fjölbreytileika er lýst í gildandi jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins, sbr. umfjöllum í gr. 1.3. hér að framan en tilgangur stefnunnar er m.a. sá að stuðla að því að hlutur kynjanna verði eins jafn og unnt er í stjórnunar- og áhrifastöðum, auk þess sem stefnan miðar að jöfnum réttindum og sömu tækifærum einstaklinga í starfi. Þá er viðar í stjórnarháttum Haga tekið á málaflokknum en í samþykktum félagsins er m.a. kveðið á um að tryggja beri að hlutfall hvors kyns í stjórn félagsins sé ekki lægra en 40%, í samræmi við lög um kynjakvóta í stjórnum. Tilnefningarnefnd hefur verið skipuð af hluthöfum félagsins og ber henni skv. starfsreglum m.a. að huga vel að samsetningu stjórnar, fjölbreytni og kynjahlutföllum og starfar hún auk þess eftir leiðbeiningum um stjórnarhátti. Nánar er fjallað um tilnefningarnefnd Haga í 7. gr. leiðbeininga þessara.
4. Stjórn Haga
4.1 Samsetning og starfsemi stjórnar
Stjórn Haga hf. fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórnin var kjörin á aðalfundi þann 1. júní 2023. Stjórnina skipa Davíð Harðarson (formaður), Eva Bryndís Helgadóttir (varaformaður), Eirikur S. Jóhannsson, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Sigríður Olgeirsdóttir. Stjórnarmenn hafa lagt fram persónulegar upplýsingar, svo sem um trúnaðarstörf fyrir aðra aðila, stjórnarsetu í öðrum félögum og möguleg hagsmunatengsl til að auðvelda mat á hæfi þeirra. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess. Samsetning stjórnar uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta sem tóku gildi 1. september 2013. Nánari upplýsingar um stjórn félagsins má finna í gr. 4.2. í yfirlýsingu þessari.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
4.1 Samsetning og starfsemi stjórnar, frh.:
Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega og voru gildandi starfsreglur sambykktar af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar taka mið af fyrirmælum sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá 11. september 2018. Í starfsreglunum er meðal annars kveðið á um störf stjórnarinnar, ábyrgð hennar og verkaskiptingu. Sérstaklega er fjallað um skyldur formanns stjórnar í reglunum, en þar er hvorki getið um að stjórn útbúi sérstaka starfslysingu fyrir formann né aðra stjórnarmenn. Samkvæmt starfsreglunum kýs stjórn sér formann og varaformann á fyrsta fundi. Ekki er kjörö til annarra embætta. Samkvæmt starfsreglunum ber stjórn að hittast a.m.k. einu sinni á ári án formanns til að meta frammistöðu hans. Henni ber einnig að meta árlega sín eigin störf, störf forstjóra og undirnefnda. Árangursmat stjórnar (sjálfsmatið) er lagt til grundvallar til að bæta störf stjórnar enn frekar á komandi starfsári. Hvorki stjórnarmenn né forstjóri mega taka þátt í ákvörðunum þar sem þeir sjálfir hafa verulegra hagsmuna að gæta.
Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á aðalskrifstofu Haga hf., mánaðarlega hið minnsta. Árlega er sambykkt fundaáætlun ár fram í tímann. Fundina sitja, auk stjórnarmanna, forstjóri, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar, og framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjörí á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn skal atkvæði formanns ráða. Fundargerðir stjórnarfunda ritar framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Fundargerðir eru afhentar stjórnarmönnum á stjórnarvef innan nokkurra daga frá fundi og eru þær staðfestar á næsta stjórnarfundi á eftir.
Starfsárið 2023-2024, þ.e. tímabilið milli aðalfunda, hafa verið haldnir níu stjórnarfundir og eru áættlaðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Meirihluti stjórnar var mættur í öllum tilfellum. Stjórnarmenn voru í einhverjum tilvikum viðstaddir fund í gegnum fjarskiptabúnað.
4.2 Stjórn Haga
Davíð Harðarson (f. 1976)
Davíð er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc-gráðu í fjármálum frá University of Florida, Cand.Oecon- gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Travel Connect hf. Hann var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016, fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016 og verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland 2009-2013. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Nordic Visitor ehf., Travel Connect hf., Terra Nova ehf., Iceland Travel ehf., Corivo ehf., Forest Cat Travel ehf., WAYWF ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 356.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)
Eva er varaformaður stjórnar. Hún var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMG slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. auk þess sem hún hefur setið í stjórn Viðskiptaráðs Íslands frá árinu 2022. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)
Eiríkur var kjörinn í stjórn Haga hf. pann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur er framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf. Þar áður var Eiríkur forstjóri Slippsins á Akureyri 2015 til loka árs 2021 ásamt því að sinna starfi stjórnarformanns Samherja, en því starfi sinnti hann 2005-2023. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og vann fyrir skilanefnd bankans til 2014. Þar áður var hann forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur á að baki stjórnarsetu í ýmsum félögum á Íslandi sem og erlendis, hann er nú stjórnarformaður Jarðborana hf., Slippsins Akureyri ehf., Optimar AS og Knattspyrnufélags Akureyrar auk félaga innan samstæðu Kaldbaks. Hann er í stjórn Hrólfsskers ehf., auk fjölskyldutengdra félaga. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Kaldbaki ehf. sem á 86.000.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.
Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)
Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. pann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína hefur verið framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf. frá 2020. Áður var hún Associate Partner hjá Valcon consulting frá 2019 – 2020. Jensína var framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannaðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sólú á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (síðar Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og Vinnvinn ehf. og er auk þess framkvæmdastjóri og stjórnarmaður hjá Sunnuvegi 13 ehf. Jensína er formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Jensína á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengd Sunnuvegi 13 ehf. sem á 60.000 hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960)
Sigríður var kjörin í stjórn Haga hf. pann 1. júní 2022. Hún er með AMP gráðu frá Harvard Business School, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, rekstar- og viðskiptanám hjá Endurmenntun HÍ og kerfisfræði frá EDB-skolen í Danmörku. Sigríður hefur verið stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum og Íslandsbanka. Var sviðsstjóri þjónustu hjá Völku ehf. 2019-2021, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka 2010-2019, sjálfstætt starfandi og í stjórnarstörfum 2008-2010, forstjóri Humac ehf. (Apple umboðið á Íslandi auk 4 dótturfélaga á Norðurlöndunum) 2007-2008, framkvæmdastjóri Skipta/Símans 2006-2007 og áður framkvæmdastjóri hjá Ax hugbúnaðarhúsi, Ax Business Intelligence AS og Tæknival hf. Sigríður er stjórnarformaður Nova, stjórnarmaður í Íslandshótelum og situr í tilnefningarnefnd Sjóvá. Sigríður á 35.000 hluti í Högum hf. Engir aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
4.3 Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar
Bein samskipti hluthafa við stjórn skulu vera við formann stjórnar. Stjórn félagsins skal upplýst um tillögur, spurningar eða athugasemdir hluthafa utan hluthafafunda til stjórnar og stjórn félagsins skal hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim. Hluthafar geta komið tillögum, fyrirspurnum og athugasemdum á framfæri við stjórn félagsins í gegnum netfangið stjó[email protected]. Allir stjórnarmenn fá sjálfkrafa afrit af tölvupóstum sem berast á netfang stjórnar.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
5. Framkvæmdastjórn Haga
5.1 Forstjóri Haga
Forstjóri er ráðinn af stjórn og ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar, lög, sambykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Starfslýsing forstjóra kemur fram í ráðningarsamningi hans.
Forstjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Forstjóri kemur fram fyrir hönd félagsins í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.
Forstjóri Haga hf. er Finnur Oddsson. Staðgengill forstjóra er Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum hf.
Finnur Oddsson (f. 1970)
Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D. gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbýggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., Eldum rétt ehf., Stórkaup ehf., Klasi ehf., Mynto ehf., Effectus ehf. og Norðurver ehf. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Finnur á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
5.2 Framkvæmdastjórn Haga
Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af forstjóra auk þriggja framkvæmdastjóra hjá móðurfélagi og fimm framkvæmdastjórum stærstu rekstrareininga Haga. Að jafnaði eru haldnir 10 framkvæmdastjórnarfundir á ári hverju. Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af eftirtöldum aðilum, í stafrófsrøð:
Björgvin Víkingsson (f. 1983)
Björgvin er framkvæmdastjóri Bónus. Hann hóf störf hjá Bónus 1. maí 2023 og tók við starfi framkvæmdastjóra þann 1. janúar 2024. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin starfaði sem forstjóri Rikiskaupa frá árinu 2020 en hann hefur auk þess viðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. Björgvin er stjórnarmaður í Vinna Minna ehf. og Michelsen ehf. Hann er varamaður í stjórn Frjálslþróttasambands Íslands og Sáms ehf. Hvorki Björgvin né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Björgvin á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Eiður Eiðsson (f. 1968)
Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænnni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænnni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS. Eiður á 100.000 hluti í Högum hf. Eiður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta– eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:
Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)
Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskr á kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Stórkaup ehf., Olís ehf. (varamaður), Eldum rétt ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Guðrún Eva á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Ingunn Svala Leifsdóttir (f. 1976)
Ingunn Svala er framkvæmdastjóri Olís en hún tók við starfinu 1. janúar 2024. Ingunn Svala er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á reikningshald og fjármál, og lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Auk þess lauk Ingunn Svala AMP prógrammi frá IESE Business School í New York árið 2018. Ingunn Svala starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dohop og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík í sjö ár. Ingunn Svala hefur auk þess viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum og hefur t.a.m. starfað fyrir Kaupþing, skilanefnd Kaupþings og Actavis Group PTC. Ingunn Svala er stjórnarmaður í Kviku banka ehf., ÖSAR lífæð heilbrigðis hf., Parlogis ehf. og Stórkiri ehf. Hvorki Ingunn Svala né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Ingunn á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Jóhanna P. Jónsdóttir (f. 1970)
Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur viðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf., innkaupastjóri Distica hf., sem innkaupa- og birgðastjóri hjá Bláa Lóninu hf. og Össuri hf. Jóhanna situr í stjórn GS1 Ísland ehf., Vörustjórnunarfélags Íslands og Grænlensk-íslenska viðskiptaráðinu. Hvorki Jóhanna né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Jóhanna á kauprétt að 562.082 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Lárus Óskarsson (f. 1960)
Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988. Lárus á 151.000 hluti í Högum hf. Lárus á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Magnús Magnússon (f. 1988)
Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og aðstoðarforstjóri. Magnús hóf störf þann 1. febrúar 2021 sem framkvæmdastjóri en tók einnig við stóðu aðstoðarforstjóra í mars 2024. Magnús er með M.Eng. gráðu í íðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforniu, og B.Sc. gráðu í íðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlands og erlands. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórnum 2M ehf., Djús ehf. og Stórkaups ehf., auk þess sem hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
5.2 Framkvæmdastjórn Haga, frh.:
Sigurður Reynaldsson (f. 1966)
Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þrónarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999. Sigurður situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Múrbúðin ehf. og KS smiði ehf. (varamaður). Hvorki Sigurður né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Sigurður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
6. Undirnefndir stjórnar Haga
Stjórn Haga hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn skulu vera þrír í hvorri nefnd fyrir sig. Að minnsta kosti tveir nefndarmenn í undirnefndum stjórnar þurfa að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.
6.1 Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varðandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Endurskoðunarnefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 22. mars 2024. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.
Endurskoðunarnefnd skipa nú Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi, sem er formaður nefndarinnar, Eva Bryndís Helgadóttir, stjórnarmaður í Högum og Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður í Högum. Allir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga, daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.
Á starfsárinu 2023/24, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2023, hafa verið haldnir fjórir fundir hjá endurskoðunarnefnd og eru áætláðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.
6.2 Starfskjaranefnd
Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Þá skal starfskjaranefnd hafa eftirlit með framfylgd starfskjarastefnunnar og útbúa skýrslu um framkvæmd hennar. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.
Starfskjaranefnd skipa nú Jensína Kristín Böðvarsdóttir, stjórnarmaður í Högum, Davíð Harðarson, stjórnarmaður í Högum, og Eiríkur S. Jóhannesson, stjórnarmaður í Högum. Jensína er formaður nefndarinnar. Allir nefndarmenn eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.
Á starfsárinu 2023/24, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2023, hafa verið haldnir þrír fundir hjá starfskjaranefnd og eru áætláðir 1-2 fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
STJÓRNARHÁTTAYFIRLÝSING, FRH.:
6.3 Starfskjarastefna
Starfskjarastefna Haga var samþykkt á aðalfundi þann 1. júní 2023. Tilgangur starfskjarastefnunnar er að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf um starfsfólk. Starfskjarastefnan er einn liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.
Stjórnarmönnum er greidd föst, mánaðarleg þóknun. Fjárhæð hennar er nú kr. 386.000. Laun formanns stjórnar eru tvöföld sú fjárhæð eða kr. 772.000 og þóknun varaformanns er kr. 568.000. Þóknun til stjórnarmanna er ákveðin á aðalfundi ár hvert.
Starfskjör forstjóra eru tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi við hann. Þar koma fram helstu skyldur hans og ábyrgðarsvið, föst laun, árangurstengdar greiðslur, lífeyrisréttindi, orlof og önnur hlunnindi. Starfskjör annarra æðstu stjórnenda eru á sama hátt tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum. Þá má finna í starfskjarastefnunni upplýsingar um breytileg starfskjör forstjóra og æðstu stjórnenda ásamt upplýsingum um kaupréttarkerfi.
Starfskjarastefnan er tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Gera skal grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins.
7. Tilnefningarnefnd
Hluthafar Haga kusu sér tilnefningarnefnd á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023. Í nefndinni skulu sitja að lágmarki þrír einstaklingar en stjórnarmönnum, stjórnendum og öðrum starfsmönnum Haga er óheimilt að sitja í tilnefningarnefnd.
Hlutverk tilnefningarnefndar er að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu og þekkingu og að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu. Starfsreglur nefndarinnar voru samþykktar á aðalfundi félagsins þann 1. júní 2023. Starfsreglurnar taka m.a. mið af fyrirmælum sáttar Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.
Tilnefningarnefnd skipa nú Björn Ágúst Björnsson, formaður nefndar, Björg Sigurðardóttir og Kristjana Milla Snorradóttir. Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess.
8. Helstu úrskurðir og dómar tengdir Högum
Undanfarið ár hafa nokkrir úrskurðir og dómar fallið er varða Haga, eins og eðlilegt er hjá stóru félagi. Ekkert þessara mála hafði áhrif á starfsemi eða rekstrarafkomu félagsins.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÓF (ÓENDURSKODAÐ)
1. Um viðskiptalíkan Haga
Hagar hf. er leiðandi verslunarferjártæki sem starfar á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði en félagöð var stofnað í núverandi mynd árið 2003. Í lok rekstrarársins starfrakti félagöð 40 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfemi Haga er á sviði verslunar með dagvöru og eldsneyti og tengdrar starfsemi vöruhúsa. Starfsmenn samstæðunnar í árslok voru 2.699 talsins og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 1.501. Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift en í lok árs voru hluthafar 968 talsins.
Fyrirtæki Haga voru starfrakt í sex dótturfélögum á rekstrarárinu. Fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar en Hagar veita aðhald í rekstri og stuðning með miðlægri þjónustu þar sem markmiðið er að ná fram kostnaðarhagræði, bæta þjónustu við viðskiptavini og styrkja þannig tekjumyndun og samkeppnisstöðu. Þannig skapa Hagar virði fyrir hluthafa.
Hagar hafa það að markmiði að starfrækja og þróa leiðandi vörumerki á smásölumarkaði sem standast væntingar viðskiptavina sinna og hafa burði til að vaxa. Markmiðið er einnig að halda einfaldleika í starfsemi allra rekstrareininga sem og að reka hverja einingu sem sjálfstætt og arðbært fyrirtæki með öllum eiginleikum hefðbundins fyrirtækis. Markmið Haga er enn fremur að hámarka virði hverrar rekstrareiningar með aukinn þekkingu á viðskiptum og smásölu.
Stefna Haga er að verslanir félagsins verði ávallt fyrsti valkostur neytenda á grundvelli verðs, gæða, úrvals og þjónustu. Verkefni félagsins er að efla hag neytenda með framúrskarandi verslun og þjónustu og skapa eftirsóknarverðan vinnustað. Þannig ná Hagar markmiðum um að skila hluthöfum sanngjarnri ávöxtun. Gildi Haga eru hagkvæmni, samvinna, þjónustulund og framsækni.
1.1 Þróun lagaumhverfis
Á síðustu árum hefur verið hröð þróun á því lagaumhverfi sem snýr að birtingu evrópskra fyrirtækja á sjálfðærniupplýsingum. Flokkunarreglugerðin svokallaða (e. EU Taxonomy) tók gildi hér á landi þann 1. júní 2023, en hún skyldar fyrirtæki yfir ákveðnum stærðarviðmiðum til að mæla að hvaða marki starfsemi þeirra telst umhverfislega sjálfðær og er það mælt sem hlutfall af veltu, rekstrakostnaði og fjárfestingakostnaði. Skýrslugjóf Haga í samræmi við flokkunarreglugerðina má finna í samstæðuársreikningi Haga hf.
Þá hefur CSRD tilskipunin um skýrslugjóf á sviði sjálfðærni tekið gildi innan Evrópusambandsins. Tilskipuninni fylgja efnismiklir uppgjörstaðlar (ESRS), sem segja til um hvernig fyrirtæki eiga að haga birtingu á sjálfðærniupplýsingum. Ekki er orðið fulljóst hvenær tilskipunin tekur gildi hér á landi, en undirbúningur fyrir birtingu sjálfðærniupplýsinga í samræmi við umrædda ESRS staðla er þegar hafin innan Haga.
1.2 Áhrif, áhætta, og tækifæri
Á síðasta ári hófst vinna við að leggja mat á mikilvægi sjálfðærnitengdra áhrífa, áhættu og tækifæra í starfsemi Haga. Við framkvæmd matsins var höfð hliðsjón af fyrnæfndum ESRS stöðlum og drögum að leiðbeiningum um mikilvægismat sem samdar voru af Evrópsku ráðgjafanefndinni um reikningsskil (EFRAG).
Tilgangur matsins er í fyrsta lagi að ákvarða umfang upplýsingaskyldu Haga gagnvart ESRS stöðlunum þegar CSRD tilskipunin tekur gildi hér á landi og í öðru lagi að leggja grunn að stefnumótun félagsins í sjálfðærnimálum með það að markmiði að tryggja langtímaafkomu. Um er að ræða lífandi mat sem verður endurskoðað árlega með hliðsjón af aðstæðum og fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma.
Framkvæmd matsins hófst með undirbúningur þar sem lagður var grunnur að matinu með samantekt nauðsynlegra gagna, m.a. sjálfðærniupplýsinga, fjárhagspplýsinga, hagaðilakönnunar og upplýsinga um aðgerðir félagsins. Þá voru mismunandi framtíðarsviðsmyndir skoðaðar og listi útbúinn með hugsanlegum áhrífum, áhættum og tækifærum í starfsemi Haga. Í framhaldinu voru haldnar vinnustofur, bæði með lykilstarfsfói Ki Haga og dótturfélaga. Lögð var áhersla á að þátttakendur hefðu sem fjölbreyttasta reynslu og þekkingu til þess að auðga matið. Markmið þessara vinnustofa var tvipætt. Annars vegar að greina og koma auga á áhrif, áhættur og tækifæri, og hins vegar að meta mikilvægi þeirra út frá skilgreindum viðmiðum. Að lokum voru niðurstöður dregnar saman í skýrslu.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:
1.2 Áhrif, áhætta, og tækifæri, frh.:
Þeir efnisflokkar sem lagðir voru til grundvallar í matinu byggjast á ESRS stöðlunum og eru eftirfarandi:
- Loftslagsbreytingar (E1)
- Mengun á vatni, landi og andrúmslofti (E2)
- Vatn og sjávarauðlindir (E3)
- Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (E4)
-
Hráefnanotkun og hringrásarhagkerfi (E5)
-
Eigin mannauður (S1)
- Starfsfólk í virðiskeðju (S2)
- Samfélagsleg réttindi (S3)
- Neytendur og endanotendur (S4)
- Viðskiptasiðferði (G1)
1.2.1 Áhrif
Áhrif Haga á umhverfi eða fólk geta ýmist verið raunveruleg eða hugsanleg, jákvæð eða neikvæð og átt sér stað í eigin starfsemi eða í virðiskeðju félagsins. Við mat á því hvort áhrif félagsins í tengslum við framangreinda efnisflokka teljast „mikilvæg“ er horft til þess hversu mikil, hversu viðtæk og hversu óbætanleg þau eru. Ef um hugsanleg áhrif er að ræða, er jafnframt tekið inn í myndina hversu liklegt sé að áhrif komi fram.
1.2.2 Fjárhagsleg áhætta og tækifæri
Við greiningu á fjárhagslegri áhættu í tengslum við sjálfbærni er horft til atriða sem geta haft fjárhagsleg áhrif á félagið, s.s. leitt til samdráttar í tekjum, aukins kostnaðar, skerts aðgangs að fjármagni, hærri fjármögnunarkostnaðar og/eða minni áhuga frá fjárfestum.
Þegar ákvarðað er hvort fjárhagsleg áhætta telst mikilvæg er annars vegar litið til hugsanlegs fjárhagslegs umfangs hennar og hins vegar til þess hversu liklegt sé að áhætta raungerist. Við mat á fjárhagslegu umfangi raunlægrar áhættu í tengslum við loftslagsbreytingar er miðað við dekkri sviðsmyndir á borð við RCP8.5 sviðsmynd IPCC, en við mat á umfangi umbreytingaráhættu er tekið mið af sviðsmynd þar sem þjóðir heimsins halda sig við 1,5 gráðu markmið Parisarsamkomulagsins. Mat á likindum tekur svo aftur á móti mið af núverandi aðstæðum og yfirlystri stefnu stjórnvalda.
1.2.3 Niðurstaða
Út frá mikilvægismati á áhrifum, áhættu og tækifærum í starfsemi Haga og virðiskeðju er það niðurstaða félagsins að eftirtaldir þrír efnisflokkar ESRS staðlanna séu mikilvægir út frá bæði áhrifum og fjárhagslegri áhættu:
- Loftslagsbreytingar (E1)
- Eigin mannauður (S1)
- Neytendur og endanotendur (S4)
Þá eru fimm efnisflokkar taldir mikilvægir út frá mati á áhrifum, en ná ekki upp fyrir mikilvægispröskuld fjárhagslegrar áhættu:
- Mengun á vatni, landi og andrúmslofti (E2)
- Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (E4)
- Hráefnanotkun og hringrásarhagkerfi (E5)
- Starfsfólk í virðiskeðju (S2)
- Viðskiptasiðferði (G1)
Að lokum voru eftirfarandi efnisflokkar hvorki taldir mikilvægir út frá mati á áhrifum né fjárhagslegri áhættu:
- Vatn og sjávarauðlindir (E3)
- Samfélagsleg réttindi (S3)
Framangreind niðurstaða leggur grunn að langtímaforgangsröðun verkefna og stefnumótun Haga í tengslum við sjálfbærni.
Nánari upplýsingar um áhrif, áhættu og tækifæri í starfsemi Haga, ásamt sjálfbærniuppgjóri og upplýsingagjóf vegna Flokkunarreglugerðarinnar (e. EU Taxonmy), má finna í samstæðuársreikningi Haga hf.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:
2. Sjálfbærnistefna
Uppfærð sjálfbærnistefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 22. mars 2024. Við uppfærslu á stefnunni var tekið mið af mikilvægismati félagsins á sjálfbærnitengdum áhrifum, áhættu og tækifærum.
Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara umhverfis og samfélags, samhliða heilbrigðum rekstri. Stefnan byggir á fjórum meginstöðum, sem móta áherslur félagsins og þau lykilverkefni sem unnið er að hverju sinni:

Umhverfi
Hagar leggja áherslu á að þekkja þau beinu og óbeinu áhrif sem starfsemi félagsins hefur á umhverfið og leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum eftir fremsta megni. Með neikvæðum áhrifum er einkum átt við losun gróðurhúsalofttegunda, hvers konar mengun, matarsóun og athafnir sem stuðla að hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.
Mannauður
Hagar kapkosta við að tryggja velliðan og öryggi starfsfólks. Jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllum ákvörðunum og skapar félagið virði fyrir atvinnulífið með menntun og þjálfun starfsfólks. Jafnframt leggja Hagar áherslu á að réttindi starfsfólks í virðiskeðju félagsins séu virt.
Neytendur
Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga. Lögð er áhersla á ríkulegt framboð af heilsusamlegum valkostum auk þess að bjóða neytendum hagstæðustu kjör hverju sinni óháð staðsetningu. Þá styður félagið ýmis samfélagsleg málefni hvort sem er í formi styrkja eða samstarfsverkefna.
Stjórnarhættir
Hagar starfa eftir þeim lögum og reglum sem félaginu ber að fylgja, sem og leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Auk þess hefur félagið sett sér síða- og samskiptareglur sem fylgt er í hvívetna í starfseminni.
2.1 Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Hagar hafa valið sjö af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að stýðja enn frekar við stefnustöðir félagsins. Markmiðin eru: 5: Jafnrétti kynjanna, 8: Góð atvinna og hagvöxtur, 9: Nýsköpun og uppbygging, 10: Aukinn jöfnuður, 12: Ábyrg neysla og framleiðsla, 13: Aðgerðir í loftslagsmálum, 15: Líf á landi.
3. Ófjárhagslegar stefnur
Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess. Stefnurnar og reglur þessar má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is, og eru þær auk þess listaðar upp í kafla 1.3 í stjórnarháttaryfirlýsingu félagsins sem finna má á bls. 37.
4. Umhverfi
Hagar og dótturfélög þess hafa um árabil lagt mikla áherslu á umhverfismál í allri sinni starfsemi. Uppfærð umhverfisstefna samstæðunnar var samþykkt af stjórn í mars 2024. Umhverfisstefnan nær til allrar starfsemi Haga og dótturfélaga auk starfsfólks samstæðunnar. Meginmarkmið stefnunnar er að samstæðan leggi sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og stýðji við mikilvægi þess að starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í þágu umhverfisins. Hagar vilja stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum jarðarinnar í þágu íbúa hennar, atvinnulífS og komandi kynslóða, til efnahagslegs og félagslegs ábata.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÓFJÁRHAGSLEG UPPLYSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:
4. Umhverfi, frh.:
4.1 Loftslagsmál
Hagar leggja áherslu á að þekkja áhrif félagsins á loftslagið og draga markvisst úr losun gróðurhúsalofftegunda. Þá er á sama tíma mikilvægt að tryggja seiglu félagsins gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga. Sérstök áhersla er lögð á að Hagar og dótturfélög:
- mæli og hafi reglulegt eftirlit með losun gróðurhúsalofftegunda, bæði í eigin rekstri sem og í virðiskeðju sinni.
- setji sér markmið um samdrátt í losun með hliðsjón af markmiðum íslenskra stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins.
- innleiði og endurskoði með reglubundnum hætti aðgerðaráætlun sem miðar að samdrætti í losun gróðurhúsalofftegunda.
- hugi sérstaklega að orkusparandi aðgerðum í allri starfsemi, hvort sem er á skrifstofum, í verslunum og í framkvæmdum á vegum félagsins.
- taki mið af sjálfbærnisjónarmiðum við innkaup í þágu starfseminnar.
- fjárfesti með ábyrgum hætti í verkefnum sem hafa það að markmiði að binda kolefni úr andrúmslofti.
- vinni markvisst að því að auka seiglu og aðlögunarhæfni gagnvart mögulegum afleiðingum loftslagsbreytinga, s.s. uppskerubrestum í virðiskeðju félagsins.
4.2 Hringrásarhagkerfi
Það er stefna Haga að lágmarka alla sóun og innleiða hringrásarhugsun í starfsemi félagsins. Einkum er lögð áhersla á að:
- halda úti mælingum á vörusóun og þeim úrgangi sem fellur til í starfseminni.
- leita stöðugt leiða til að draga úr vörusóun, minnka úrgangsmagn og bæta flokkunar- og endurvinnsluhlutfall.
- hafa sjálfbærnisjónarmið að leiðarljósi við hönnun og efnisval á umbúðum fyrir eigin framleiðsluvörur.
4.3 Mengun
Hagar leggja ríka áherslu á forvarnir og aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir og lágmarka líkur á hvers konar mengun, hvort sem er á landi, vatni eða andrúmslofti, í eigin rekstri eða í virðiskeðju félagsins.
4.4 Liffræðileg fjölbreytni
Þótt þekking á áhrifum félagsins á líffræðilega fjölbreytni sé enn takmörkuð, er það þekkt að matvælaframleiðsla getur haft neikvæð áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika á sama tíma og slík framleiðsla reiðir sig að miklu leyti á hann. Það er stefna Haga að efla þekkingu sína á slíkum neikvæðum áhrifum, einkum í virðiskeðju félagsins, og kappskosta við að draga úr þeim eftir fremsta megni.
5. Mannauður
Hjá samstæðu Haga starfa um 2.700 starfsmenn í um 1.500 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks í landinu með störfum sinum. Starfsemi félagsins er mjög háð þeim mannaðri sem hjá því starfar og er kappskosta við að skapa starfsumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að vaxa og dafna af eigin verðleikum. Rík áhersla er lögð á velliðan og öryggi starfsfólks, jafnrétti og fjölbreytni á vinnustað og starfspróun.
Jafnréttis- og mannréttindastefna Haga var endurskoðuð og samþykkt af stjórn félagsins í mars 2024. Stefna Haga er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að allt starfsfólk Haga og dótturfélaga þess sé metið að eigin verðleikum, óháð kyni, aldri, kynhneigð og uppruna. Allt starfsfólk skal njóta sömu virðingar og skulu kynin hafa jafna stöðu innan fyrirtækisins. Hvers konar mismunun er óheimil og verður ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að koma í veg fyrir að slíkt ranglæti eigi sér stað. Jafnréttis- og mannréttindastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
ÓFJÁRHAGSLEG UPPLÝSINGAGJÖF (ÓENDURSKOBAB), FRH.:
5. Mannauður, frh.:
Öll dótturfélög Haga hafa lokið vinnu við jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem lögfest var í júní 2017. Hafa þau nú öll innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun.
Stjórn Haga hefur sett félaginu starfskjarastefnu sem hefur það að markmiði við gerð samninga um starfskjör, að félagið sé samkeppnishæft um starfsfólk og stjórnendur. Til að svo megi verða skal félagið bjóða samkeppnishæf laun við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum. Hagar telja nauðsynlegt að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins þannig að félagið njóti starfskrafta þeirra og hæfileika sem allra best þannig að hagur þeirra og félagsins fari saman. Við ákvörðun um starfskjör er horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum. Starfskjarastefnan er líður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, stjórnenda og annarra hagsmunaaðila, með skipulegum, einföldum og gagnsæjum hætti. Starfskjarastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is en hún var samþykkt á aðalfundi Haga þann 1. júní 2023.
6. Spillinga- og mútumál
Í síðareglum Haga og dótturfélaga er lögð áhersla á að stjórn og starfsfólk skuli ávallt fara að lögum og almennum viðmiðum um síðferði í viðskiptum og að fylgt sé þeim reglum sem félagið setur á hverjum tíma. Kveðið er á um að óheimilt er að misnota aðstöðu sína í starfi, þannig að félagið beri skaða af og eru starfsmenn hvattir til að tilkynna næsta yfirmanni ef þeir verða vitni að spillingu eða óreiðu innan félagsins. Síðareglur þessar leggja einnig áherslu á að forða starfsmönnum frá að taka ákvarðanir sem skapað geta hagsmunaárekstra en meginreglan er sú að hagsmunir starfsmanna og félagsins skuli fari saman. Þá er óheimilt að taka við gjöfum, boðsferðum eða annars konar fríðindum frá viðskiptamönnum félagsins nema með samþykki yfirmanns.
Hjá samstæðunni hefur verið unnið áhættumat vegna aðgerða gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 140/2018. Samhliða áhættumatinu samþykkti stjórn stefnu félagsins um aðgerðir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilgangur stefnunnar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Haga og dótturfélaga verði notaðar í ólðglegum tilgangi er tengist peningapvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagið er tilkynningaskyldur aðili á grundvelli laganna vegna útleigu fasteigna og mætir mögulegum tilvikum vegna spillingar eða mútupægni vegna þeirrar starfsemi með mildunaraðgerðum sem hafa í för með sér að eftirstæð áhætta er lágmörkuð niður í litla sem enga.
Þá eru til staðar hjá samstæðunni reglur um vernd uppljóstrara, sbr. lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara, en reglunum er ætlað að koma á skilvirku úrræði til að koma upplýsingum og/eða gögnum á framfæri, um brott á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi, og styðja og vernda þá sem slíkt gera. Markmið reglnanna er að fyrirbyggja misferli og draga úr tjóni sem slíkt kann að hafa í för með sér fyrir samstæðu Haga, viðskiptavini samstæðunnar, samfélagið og aðra hagaðila.
7. Mannréttindi
Hagar leggja sig alla fram um að virða almenn mannréttindi í allri starfsemi félagsins líkt og kveður á um í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að sama skapi gerir félagið þær kröfur að hagsmunaaðilar virði mannréttindi. Þá er barnaprælkun, nauðungarvinna, sem og þrælahald, ekki liðin innan félagsins. Þessu til stuðnings er í gildi jafnréttis- og mannréttindastefna Haga og síðareglur sem fjallað er um hér að framan. Þá eru Hagar með í gildi viðauka við alla verksamninga félagsins þar sem aðalverktakar lýsa því yfir að þeir muni ávallt og í hvívetna virða lög- og samningsbundin réttindi þeirra aðila sem þeir ráða til sinna starfa, hvort sem um ræðir launpega, starfsmenn starfsmannaleiga, aðra verktaka og/eða undirverktaka. Aðalverktaki lýsir því yfir að starfsemi hans uppfylli ávallt þær kröfur sem íslensk lög, reglur og venjur á vinnumarkaði gera hverju sinni. Aðalverktaki lýsir því einnig yfir að hann beri svokallaða keðjuábyrgð, þ.e.a.s. hann ábyrgist að aðrir verktakar og/eða undirverktakar sem hann hefur ráðið til sinna starfa uppfylli sömu kröfur þannig að réttindi allra þeirra starfsmanna sem að verki koma séu tryggð.
Hagar og dótturfélög þess hafa sett birgjum sínum síðareglur sem ætlað er að stuðla að því að samstæðan og birgjar hennar verði í sameiningu hreyfiafl til góðra verka. Síðareglurnar ná til allra birgja samstæðunnar og er birgjunum gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.
Móðurfélagsreikningur Haga hf. 29. febrúar 2024
Undirritunarsíða
Stjórnarformaður
Davíð Harðarson

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:24:17
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Vea Bryndís Helgadóttir

Undirritað af:
Eva Bryndís Helgadóttir
1905723909
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:25:34
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Meðstjórnandi
Sigríður Olgeirsdóttir

Undirritað af:
Sigríður Olgeirsdóttir
0505604309
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:27:37
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Löggiltur endurskoðandi - PWC
Bryndís Björk Guðjónsdóttir

Undirritað af:
Bryndís Björk
Guðjónsdóttir
2812654079
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:48:26
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Meðstjórnandi
Eiríkur S Jóhannsson

Undirritað af:
Eiríkur Sigríðarson
Jóhannsson
0802684839
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:22:21
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Undirritað af:
Jensína Kristín
Böðvarsdóttir
1903694049
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:26:34
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Forstjóri
Finnur Oddsson

Undirritað af:
Finnur Oddsson
0810704159
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:23:21
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5
Löggiltur endurskoðandi - PWC
Sara Henný H Arnbjörnsdóttir

Undirritað af:
Sara Henný H
Arnbjörnsdóttir
1207862889
Dags: 23.04.2024
Timi: 14:45:17
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 2b446b4f-3a13-48e9-9223-28306d8af6b5