AI assistant
Hagar — Annual Report 2020
May 10, 2021
2196_rns_2021-05-10_6b471670-83da-4b23-8219-2dff93aea1e9.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Veltuaukning og bætt afkoma á 4F
Ársuppgjör Haga hf. 2020/21
Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2020/21 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 10. mai 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 4F nam 30.630 millj. kr. (2019/20: 28.613 millj. kr.). Vörusala ársins nam 119.582 millj. kr. (2019/20: 116.357 millj. kr.).
- Framlegðarhlutfall 4F var 22,9% (2019/20: 22,5%). Framlegðarhlutfall ársins var 22,2% (2019/20: 22,2%).
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 2.542 millj. kr. (2019/20: 2.154 millj. kr.). Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu nam 8.805 millj. kr. (2019/20: 8.890 millj. kr.).
- Hagnaður 4F nam 846 millj. kr. eða 2,8% af veltu (2019/20: 705 millj. kr. og 2,5% af veltu). Hagnaður ársins nam 2.519 millj. kr. eða 2,1% af veltu (2019/20: 3.054 millj. kr. og 2,6% af veltu).
- Hagnaður á hlut 4F var 0,73 kr. (2019/20: 0,59 kr.). Hagnaður á hlut á árinu var 2,15 kr. (2019/20: 2,54 kr.).
- Eigið fé nam 25.187 millj. kr. í lok ársins og eiginfjárhlutfall 40,9% (2019/20: 24.587 millj. kr. og 39,2%).
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2020/21 gerði ráð fyrir að EBITDA yrði 8.100-8.600 millj. kr.
Helstu fréttir af starfseminni
- Góður ársfjörðungur að baki með aukinn veltu og bættri framlegð, þrátt fyrir samkomutakmarkanir í desember, stærsta mánuði ársins.
- Árið einkenndist af áhrifum COVID-19 og aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins.
- Hagræðing í starfsemi Olís skilar rekstrarlegum ávinningi á fjörðungnum.
- Starfsfólk samstæðunnar á sérstakar þakkir skildar fyrir ósérhlífni og dugnað við mjög krefjandi aðstæður.
- Seldum stykkjum í matvöruverslunum fjölgaði á árinu en heimsóknum viðskiptavina fækkaði. Meðalkarfa hvers viðskiptavinar stækkaði um ríflega 20%.
- Hagar kolefnisjafna alla starfsemi ársins 2020, sem mótvægsisæðgerð við þau umhverfisáhrif sem verða af rekstri samstæðunnar.
- Nýsköpunardagur Haga var haldinn í fyrsta sinn í lok apríl og hafa Hagar sett á fót styrktarsjóð sem ber nafnið Uppsprettan.
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 8.600-9.100 millj. kr.
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Rekstur Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2020/21 gekk vel. Tekjur námu 30,6 ma.kr. og jukust um 7% miðað við sama tímabil fyrir ári. EBITDA nam 2.542 m.kr. sem er vel umfram áætlanir og 18% yfir sama fjórðungi í fyrra. Við erum því ánægð með rekstur Haga á þessum síðasta ársfjórðungi ögrandi rekstrarárs. Árið hófst í mars 2020, á sama tíma og áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins gætti fyrst, þannig að faraldurinn hefur sett mark sitt á starfsemina alla 12 mánuði rekstrarársins. Í því ljósi, og sér í lagi vegna þess hve erfiður fyrsti fjórðungur reyndist okkur, erum við ánægð með niðurstöðu ársins. Heildartekjur jukust um 3% og námu tæpum 120 ma.kr. og EBITDA var 8.805 m.kr., nánast óbreytt á milli ára. Þessi góði árangur endurspeglar styrk félagsins, vörumerkja þess og okkar frábæra starfsfólks, til að takast á við snúnar aðstæður, en halda áfram að veita viðskiptavinum góða þjónustu og skila ágætri rekstrarniðurstöðu.
Áhrif COVID-19 á tekjur á rekstrarárinu voru ólík eftir rekstrareiningum. Umsvíf jukust mikið í verslun með dagvöru þar sem bæði Bónus og Hagkaup áttu sín stærstu rekstrarár frá upphafi. Sama má segja um sérvoruverslanir Haga, sérstaklega ZARA og Útilíf. Þessi aukning er að hluta til komin vegna þess að fleiri landsmenn eru á Íslandi en á venjulega ári. Á móti kemur að tekjur Olís drógust töluvert saman, enda umferð á COVID ári mun minni en var, bæði hjá landsmönnum og vegna færri erlendra ferðamanna. Við sjáum svo aukinn kostnað þvert á alla okkar starfsemi vegna nauðsynlegra aðgerða til að treysta sóttvarnir og tryggja öryggi viðskiptavina og starfsfólks. Þessi tilfallandi kostnaður reyndist vera á bilinu 300-350 m.kr. fyrir árið í heild. Framlegð Haga styrktist á fjórða ársfjórðungi og stendur í 22,2% fyrir árið, óbreytt frá í fyrra. Eins og fyrr segir reyndist afkoma sambærileg fyrra ári, en greint niður á starfsþætti batnar afkoma í verslunar- og vöruhúsarekstri en dregst saman hjá Olís.
Frá upphafi COVID-19 hefur verið ljóst að neikvæðra áhrifa faraldursins gætti sérstaklega í starfsemi Olís, vegna verulegs samdráttar í sölu á eldsneyti. Til að bregðast við þeirri þróun var gripið til margvislegra aðgerða á haustmánuðum, sem nú þegar hafa leitt af sér töluvert hagræði í rekstri félagsins. Þar má nefna breytingar á þjónustustöðvum, bæði þjónustuframboði og opnunartíma, aukna áherslu á sjálfsafgreiðslu, fyrstu skref í endurskipulagningu á útibúaneti á landsbyggð, hagræðingu á skrifstofu og lokun tiltekinna eininga sem ekki hafa staðið undir sér og töludest ekki mikilvægur hluti þjónustuframboði Olís. Við þessar breytingar hefur stöðugildum hjá Olís fækkað úr 412 í 340 á milli ára, eða um 17,5%. Það er ánægjulegt að við sjáum nú þegar afrakstur þessara aðgerða í rekstrarniðurstöðu fjórða ársfjórðungs, en hann mun koma skýrar fram á næstu misserum. Þó að tilefni þessara aðgerða hjá Olís sé fyrst og fremst að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins, þá er ljóst að þær munu jafnframt búa félagið betur undir þá þróun sem fram undan er til lengri tíma, í minni notkun á jarðefnaeldsneyti og auknu vægi rafmagns og annarra umhverfisvænna orkugjafa í samgöngum og iðnaði.
Horfur í rekstri Haga eru góðar, svipaðar eða heldur betri en verið hefur. Við teljum að áhrifa COVID-19 á rekstur muni gæta fram á haust en gerum þó ráð fyrir sterku ferðasumri á vegum landsins. Vinna við innleiðingu nýrra stefnuáherslna hefur gengið vel og er samkvæmt áætun, en þar er m.a. lagt upp með aukinn fókus á kjarnastarfsemi félagsins, að efla samtal og tengingu við viðskiptavini og vinna betur með sérstöðu vörumerkja dótturfélaga og þjónustuframboð í þágu viðskiptavina. Sölu á Útilíf og Reykjavíkur Apóteki er lokið, vinna við mörkun hjá Högum og dótturfélögum gengur vel, skilgreining á þjónustuframboði til næstu missera er langt komin og sýn á nauðsynlega fjárfestingu í tæknilausnum einnig. Við höfum jafnframt gengið frá ráðningum á lykifólki sem mun styrkja teymið hjá Högum og um leið getu félagsins til að fylgja eftir nýjum verkefnum í samræmi við stefnumótun, sem hefur það að markmiði að framúrskarandi verslun muni efla hag neytenda til framtíðar.“
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| Mallikar | 4F 2020/21 | 4F 2019/20 | Beverina | % | 2020/21 | 2019/20 | Beverina | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.03.2020 | 01.03.2019 | 01.03.2020 | 01.03.2019 | |||||
| Vörusala | 30.630 | 28.613 | 2.017 | 7,0% | 119.582 | 116.357 | 3.225 | 2,8% |
| Kostnadarverð seldra vara | (23.606) | (22.179) | (1.427) | 6,4% | (93.067) | (90.551) | (2.516) | 2,8% |
| Framlegð | 7.024 | 6.434 | 590 | 9,2% | 26.515 | 25.806 | 709 | 2,7% |
| Framlegð % | 22,9% | 22,5% | - | 0,4% | 22,2% | 22,2% | - | 0,0% |
| Aðrar rekstrartekjur | 130 | 99 | 31 | 31,3% | 409 | 484 | (75) | -15,5% |
| Laun og launatengd gjöld | (3.275) | (3.073) | (202) | 6,6% | (12.812) | (12.087) | (725) | 6,0% |
| Annar rekstrarkostnaður | (1.337) | (1.306) | (31) | 2,4% | (5.307) | (5.313) | 6 | -0,1% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.542 | 2.154 | 388 | 18,0% | 8.805 | 8.890 | (85) | -1,0% |
| EBITDA % | 8,3% | 7,5% | - | 0,8% | 7,4% | 7,6% | - | -0,3% |
| Afskriftir | (1.128) | (1.045) | (83) | 7,9% | (4.258) | (3.927) | (331) | 8,4% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.414 | 1.109 | 305 | 27,5% | 4.547 | 4.963 | (416) | -8,4% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (322) | (272) | (50) | 18,4% | (1.553) | (1.327) | (226) | 17,0% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (25) | 28 | (53) | -189,3% | 125 | 139 | (14) | -10,1% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.067 | 865 | 202 | 23,4% | 3.119 | 3.775 | (656) | -17,4% |
| Tekjuskattur | (221) | (160) | (61) | 38,1% | (600) | (721) | 121 | -16,8% |
| Heildarhagnaður | 846 | 705 | 141 | 20,0% | 2.519 | 3.054 | (535) | -17,5% |
| Skipting hagnaðar | ||||||||
| Hlutdeild miðrufélags | 846 | 705 | 141 | 20,0% | 2.522 | 3.054 | (532) | -17,4% |
| Hlutdeild minnihluta | -- | -- | -- | - | (3) | -- | (3) | - |
| 846 | 705 | 141 | 20,0% | 2.519 | 3.054 | (535) | -17,5% |
Rekstur ársins 2020/21
Vörusala ársins nam 119.582 millj. kr., samanborið við 116.357 millj. kr. árið áður. Söluaakning milli ára nam 2,8%. Söluaakning verslana og vöruhúsa nam 13,4% en samdráttur var í sölu Olís um 17,5%.
Framlegð félagsins var 26.515 millj. kr., samanborið við 25.806 millj. kr. árið áður eða 22,2% framlegðarhlutfall á báðum tímabilum.
Launakostnaður hækkáði um 6,0% milli ára sem skýrist m.a. af áhrifum lotunar á samningsbundnum starfslokakostnaði og auknum launakostnaði vegna COVID-19. Annar rekstrarkostnaður var nær öbreyttur milli ára, þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað vegna COVID-19. Kostnaðarhlutfallið í heild hækkar milli ára úr 15,0% í 15,2%.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 8.805 millj. kr., samanborið við 8.890 millj. kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,4%, samanborið við 7,6% árið áður. EBITDA verslana og vöruhúsa hækkar um 8,4% milli ára en EBITDA Olís lækkar um 34,2%.
Afskriftir hækkar um 8,4% milli ára sem skýrist aðallega af endurnýjun verslana og miklum fjárfestingum undanfarin misseri.
Fjármagnskostnaður hækkar um 226 millj. kr. milli ára, m.a. vegna gengistaps á rekstrarárinu.
Heildarhagnaður ársins nam 2.519 millj. kr., sem jafngildir 2,1% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 3.054 millj. kr. eða 2,6% af veltu. Hagnaður lækkar um 17,5% milli ára.
Lykiltölur á 4. ársfjörðungi
- Vörusala 4F jökst um 7,0% milli ára og framlegð um 9,2%.
- Framlegðarhlutfall 4F var 0,4%-stigum yfir fyrra ári eða 22,9% á móti 22,5%. Framlegðarhlutfall matvöruverslana undir væntingum en Olís hækkar milli ára.
- Laun 4F voru 6,6% yfir fyrra ári sem skýrist aðallega af kjarasamningsbundnum launa-hækkunum og aukins launakostnaðar vegna COVID-19.
- Annar rekstrarkostnaður 4F hækkar lítillega eða um 2,4%.
- Launa- og kostnaðarhlutfall 4F er 15,1% en var 15,3% á fyrra ári.
- EBITDA á 4F hækkar um 18,0% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall er 8,3% en var 7,5% á fyrra ári.
- Heildarhagnaður á 4F hækkar um 20,0% á milli ára.
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
Lykiltölur efnahags 28.02.2021
- Heildareignir samstæðunnar í lok ársins námu 61.648 millj. kr. og lækkuðu um 1.060 millj. kr. frá árslokum 2019/20.
- Fastafjármunir voru 47.816 millj. kr. og hækkuðu um 262 millj. kr. frá árslokum. Fjárfesting í fasteignum nam 1.870 millj. kr. á tímabilinu og fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 2.040 millj. kr.
- Veltufjármunir voru 13.832 millj. kr. og lækkuðu um 1.322 millj. kr. frá árslokum.
- Birgðir í lok árs voru 8.791 millj. kr. og veltuhraði birgða 10,8. Birgðir hækkuðu um 411 millj. kr. á rekstrarárinu. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,2.
- Víðskiptakröfur hækkuðu um 530 millj. kr. á rekstrarárinu og er innheimtutími krafna nú 10,3 dagar samanborið við 13,6 daga á sama tímabili á fyrra ári.
- Veltufjárhlutfall er 0,77 og lausafjárhlutfall 0,28 í lok ársins. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 25.187 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 40,9%. Arðsemi eigin fjár á rekstrarárinu var 10,2%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 39,2% og arðsemi eigin fjár 12,6%. Félagið átti 26,4 millj. eigin hluti í lok rekstrarárs.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok ársins voru 36.461 millj. kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.926 millj. kr. og leiguskuldir 9.029 millj. kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok árs voru 21.567 millj. kr. eða 2,4xEBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,4xEBITDA.
- Överðtryggður skuldabréfaflokkur, HAGA181021, að upphæð 2.500 millj. kr. er á gjaldaga í október 2021 en unnið er að endurfjármögnun hans.
| I millj. kr. | 28.02.2021 | 29.02.2020 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 47.816 | 47.554 | 262 | 0,6% |
| Veltufjármunir | 13.832 | 15.154 | (1.322) | -8,7% |
| Eignir samtals | 61.648 | 62.708 | (1.060) | -1,7% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.154 | 1.189 | (35) | -2,9% |
| Annað eigið fé | 24.035 | 23.397 | 638 | 2,7% |
| Samtals | 25.189 | 24.586 | 603 | 2,5% |
| Hlutdeild minnihluta | (2) | 1 | (3) | -300,0% |
| Eigið fé samtals | 25.187 | 24.587 | 600 | 2,4% |
| Langtímaskuldir | 18.592 | 22.362 | (3.770) | -16,9% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 2.957 | 442 | 2.515 | 569,0% |
| Skuldir við lánastofnánir | 601 | 1.273 | (672) | -52,8% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 14.311 | 14.045 | 266 | 1,9% |
| Skuldir samtals | 36.461 | 38.122 | (1.661) | -4,4% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 61.648 | 62.708 | (1.060) | -1,7% |
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar
| Milli kr. | 4F 2020/21 | 4F 2019/20 | Beryting | % | 2020/21 | 2019/20 | Beryting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01-12-2021 | 01-12-2019 | 01-01-2021 | 01-01-2019 | |||||
| Handbært fé frá rekstri | 696 | 1.153 | (457) | -39,6% | 6.627 | 9.828 | (3.201) | -32,6% |
| Fjárfestingarhreýfingar | (657) | (2.657) | 2.000 | -75,3% | (3.591) | (5.221) | 1.630 | -31,2% |
| Fjármögnunarhreýfingar | (1.024) | 371 | (1.395) | -376,0% | (4.880) | (3.111) | (1.769) | 56,9% |
| (Lækkun) hækkun á handbæru fé | (985) | (1.133) | 148 | -13,1% | (1.844) | 1.496 | (3.340) | -223,3% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 1.373 | 3.365 | (1.992) | -59,2% | 2.232 | 736 | 1.496 | 203,3% |
| Handbært fé í lok ársins | 388 | 2.232 | (1.844) | -82,6% | 388 | 2.232 | (1.844) | -82,6% |
Sjóðstreymi rekstrarársins 2020/21
- Handbært fé frá rekstri á árinu nam 6.627 millj. kr., samanborið við 9.828 millj. kr. á fyrra ári. Breytingu á milli ára má rekja til breytinga á rekstrartengdum eignum, en á fyrra ári var gerð breyting á uppgjörsfyrirkomulagi greiðslukorta, þar sem uppgjör frá færsluhirði fór úr því að vera mánaðarlegt í daglegt.
- Fjárfestingarhreýfingar tímabilsins voru 3.591 millj. kr., samanborið við 5.221 millj. kr. á fyrra ári. Á rekstrarárinu var fjárfest í fasteign á Furuvöllum á Akureyri, þar sem verslun Hagkaups er starfrækt. Pá féllu til 2/3 hlutar framkvæmdakostnaðar við byggingu á nýju kæli- og frystivöruhúsi Aðfanga í Korngörðum sem tekið var í notkun fyrir síðustu jól. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum fyrir 2.040 millj. kr. var að stærstum hluta vegna endurnýjunar Bónus og Hagkaupsverslana auk innréttinga og tækja í nýtt kæli- og frystivöruhús.
- Fjármögnunarhreýfingar tímabilsins voru 4.880 millj. kr., samanborið við 3.111 millj. kr. á fyrra ári. Ekki var greiddur arður til hluthafa á árinu, vegna síðastliðins rekstrarárs, en á fyrra ári var arðgreiðsla að fjárhæð 1.159 millj. kr. Keypt eigin bréf á rekstrarárinu námu 1920 millj. kr.
Staðan og framtíðarhorfur
Rekstrarárið sem nú var að líða einkenndist að mestu af áhrifum COVID-19 faraldursins og aðgerðum til að takmarka afleiðingar hans á ýmsa vegu. Sérstaklega var lögð áhersla á að tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Aðgerðirnar skipta miklu máli því stór hluti af starfsemi samstæðunnar, s.s. matvöruverslanir og tengd vöruhús, ásamt sölustöðum eldsneytis, gegna stóru hlutverki í innviðastarfsemi landsins, sérstaklega í krefjandi aðstæðum sem þessum. Mikið og gott samstarf hefur verið við birgja, stjórnvöld og fleiri hagaðila sem komið hefur í veg fyrir margvísleg vandamál líkt og vöruskort.
Áhrifa faraldursins fór strax að gæta í rekstri samstæðunnar í upphafi rekstrarársins, þegar velta í dagvöruhluta samstæðunnar fór að aukast, velta í eldsneytishlutanum dróst verulega saman og framlegð minnkaði. Áhrifin voru hvað mest á fyrsta ársfjörðungi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á oliu höfðu mikil áhrif á framlegð ásamt verðhækkunum frá birgjum. Rekstur á öðrum ársfjörðungi gekk vel, þar sem aukin verslun innanlands hafði jákvæð áhrif á afkomu allra rekstrareininga. Priðji ársfjörðungur var lakari þar sem framlegð var heldur undir væntingum, auk þess sem rekstrakostnaður hækkáði nokkuð vegna faraldursins. Afkoma fjörða ársfjörðungs var svo umfram væntingar með ágætri veltuaukningu og bættri framlegð. Afkoma ársins í heild er lítillega yfir efri mörkum útgefinnar afkomuspár og er það niðurstaða stjórnar og stjórnenda að vel hafi tekist til á árinu þrátt fyrir ófyrirsjáanleika og almennt mjög krefjandi aðstæður til rekstrar. Þar á starfsfólk Haga og dótturfélaga sérstakar þakkir skildar fyrir ósérhlífni og dugnað.
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 sem nú er hafið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 8.600-9.100 millj. kr. Gert er ráð fyrir að áhrifa af faraldrinum muni gæta á samstæðuna fram á mitt rekstrarár 2021/22.
Fjárhagsleg staða samstæðu Haga er sterk og er félagið vel í stakk búið til að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun, að fjárhæð um 6,2 ma. kr., hjá viðskiptabanka einnig tryggð.
Fréttatilkynning
- mai 2021
hagar
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok rekstrarárs nam 67,6 ma. kr. og lokaverð þann 28. febrúar 2021 var 57,3 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok rekstrarárs nam 1.181 millj. kr. Félagið átti 26,4 millj. eigin hluti í lok árs.
- Þann 9. júní 2020 samþykkti aðalfundur að ekki yrði greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins árs.
- Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 9. júní 2020 sett í gang þrjár endurkaupaáætanir frá því í byrjun nóvember 2020, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Þeim er nú öllum lokið og nam fjárhæð endurkaupanna 1.500 millj. kr. eða 26,4 millj. hluta.
- Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins þann 3. júní nk. að greiddur verði 1,27 kr. arður á hlut til hluthafa á árinu 2021, samtals 1.500 millj. kr. eða sem nemur 59,5% af heildarhagnaði ársins.
- Hluthafar voru 684 í byrjun rekstrarárs og 784 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins eiga rúmlega 70% eignarhlut í félaginu.
Rafraenn kynningarfundur þriðjudaginn 11. mai 2021
Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 11. mai kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður varpað í gegnum netið á slóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/9646679/player
Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.
Fjárhagsdagatal 2021/22
Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| 1F – 1. mars til 31. maí | Föstudagur | 25. júní 2021 |
| 2F – 1. mars til 31. ágúst | Þriðjudagur | 19. október 2021 |
| 3F – 1. mars til 30. nóvember | Miðvikudagur | 12. janúar 2022 |
| 4F – 1. mars til 28. febrúar | Þriðjudagur | 10. mái 2022 |
| Aðalfundur 2022 | Fimmtudagur | 2. júní 2022 |
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg í enskri útgáfu þann 12. mái á https://en.hagar.is/
Press release and financial statements will be available in English on May 12th at https://en.hagar.is/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.