Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Annual Report 2018

May 16, 2019

2196_rns_2019-05-16_b5cf2bf1-ad82-49a1-9f7c-b5890f63a2bb.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.

Ársreikningur samstæðunnar

  1. febrúar 2019

Hagar hf.

Hagasmára 1

201 Kópavogur

Kt. 670203-2120


Emisylfirlit

Samstæðuárereikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Áritun óháðs endurskoðanda ... 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 10
Efnahagsreikningur ... 11
Eiginfjáryfirlit ... 12
Sjóðstreymisyflit ... 13
Skýringar ... 14
Viðaukar - óendurskoðuð fylgiskjöl:
Ársfjórðungayfirlit ... 39
Ófjárhagsleg upplýsingagjóf ... 40


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi.

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur 28. febrúar 2019 samanstendur af samstæðuársreikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.

Kaup félagsins á Olíuverzlun Íslands ehf. og DGV ehf.

Þann 29. nóvember 2018 samþykkti Samkeppniseftirlitið samruna Haga hf., Olíuverzlunar Íslands ehf. (Olís) og DGV ehf. Kaupsamningar um viðskiptin voru undirritaðir 26. apríl 2017 með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, samþykkti Samkeppniseftirlitsins og samþykkti hluthafafundar Haga fyrir aukningu hlutafjár. Fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar var aflétt þann 13. júlí 2017 og hlutafjárakning var samþykkt á aðalfundi Haga í júní 2017. Þann 11. september 2018 var undirrituð sátt við Samkeppniseftirlitið um skilyrði fyrir kaupunum en öll skilyrði sáttarinnar voru uppfyllt og kom samruninn því til framkvæmda í lok nóvember eins og áður segir. Í skýringu 14 má finna nánari upplýsingar um kaupin, kaupverð, kostnað vegna samrunans, skilyrði Samkeppniseftirlitisins, kaupverðsútdeilingu o.fl.

Áhrif af rekstri Olís og DGV koma fram frá upphafi fjórða ársfjórðungs en yfirtökudagur var 30. nóvember 2018. Samanburðarfjárhæðum í ársreikningi hefur ekki verið breytt og innifela þær ekki áhrif af hinum nýju félögum.

Rekstur og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 2.317 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 50.851 millj. kr. Eigið fé í lok reikningsársins nam 24.279 millj. kr. og var eiginfjárhlutfall 48%. Fjöldi ársverka á árinu voru 1.583 (2017/18: 1.180).

Hluthafar

Hluthafar voru 843 í byrjun rekstrarársins og 676 í lok þess. Tíu stærstu hluthafar í árslok eru eftirfarandi:

28.2.2019 28.2.2018
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) 14,18% 14,17%
Gildi - lífeyrissjóður 12,50% 12,95%
Samherji hf. 9,26% 0,00%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 8,30% 6,86%
Birta lífeyrissjóður 5,73% 5,61%
FISK-Seafood ehf. 4,57% 0,00%
Stapi lífeyrissjóður 3,45% 5,04%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 3,36% 3,44%
Festa - lífeyrissjóður 3,12% 3,33%
Global Macro Absolute Return Ab 3,08% 3,43%

Hlutafé og samþykktir

Skráð hlutafé félagsins nam í lok reikningsárs 1.213 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eigin hlutir námu í upphafi árs 69 millj. kr. að nafnverði en í lok árs átti félagið enga eigin hluti.

Stjórn félagsins mun leggja til á aðalfundi félagsins að greiddur verði arður sem nemi 50% hagnaðar ársins eða samtals 1.158,5 millj. kr. Vísað er í ársreikning um breytingar á eigin fé.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir Haga hf. mótast af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Hagar hf. fylgja, án frávika, leiöbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 5. útgáfu 2015, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins.

Útskýringar má sjá í ítarlegri yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins, sem er útbúin í samræmi við leiöbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja og er aðgengileg á vefsíðu félagsins, www.hagar.is. Leiöbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja má nálgast á heimasíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.

Í tengslum við gerð ársreiknings hefur félagið komið á innra eftirliti og stýrir áhættu með viðeigandi starfaaögreiningu og vel skilgreindum ábyrgðarsviðum. Stjórn félagsins fær einnig reglulega skýrslur um fjárhagslegar áhættur félagsins sem og skýrslur um einstaka deildir til að fylgjast með árangri. Ferlar eru til staðar til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstarkostnaði og öðrum þáttum sem hafa áhrif á ársreikning félagsins. Enn fremur hefur endurskoðunarnefnd vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Frekari upplýsingar um áhættustýringu félagsins er að finna í skýringu 25.

Stjórn félagsins skipa fimm stjórnarmenn en hún var kjörin á hluthafafundi félagsins 18. janúar 2019. Erna Gísladóttir er formaður stjórnar, Davíð Harðarson er varaformaður og aðrir stjórnarmenn eru Eiríkur S. Jóhannsson, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Stefán Árni Auðólfsson. Í stjórn eru tvær konur og þrír karlar. Stjórnarmenn hafa viðtæka reynslu úr atvinnulífinu og fjölbreytta menntun að baki. Meirihluti stjórnarmanna teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess. Ítarlegar upplýsingar um stjórnarmenn má finna á heimasíðu félagsins, www.hagar.is.

Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega. Starfsreglurnar taka mið af fyrirmælum sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá 11. september 2018. Starfsreglur stjórnar eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.hagar.is, þar sem verkefni stjórnar eru sett fram. Stjórnarfundir voru haldnir að minnsta kosti mánaðarlega á rekstrarárinu 2018/19. Fundina sitja auk stjórnarmanna forstjóri og fjármálastjóri félagsins. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður afgreiðslu mála á stjórnarfundum. Stjórn metur árlega eigin störf.

Lykilstjórnendur Haga hf. eru Finnur Árnason forstjóri, Guðrún Eva Gunnarsdóttir fjármálastjóri, Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus, Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaups, Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, Kjartan Már Friðsteinsson framkvæmdastjóri Banana ehf. og Lárus Óskarsson framkvæmdastjóri Aðfanga.

Á aðalfundi félagsins, þann 6. júní 2018, kusu hluthafar sér tilnefningarnefnd. Hlutverk tilnefningarnefndar er að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu og þekkingu og að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu. Tilnefningarnefnd skipa nú Ásta Bjarnadóttir, formaður nefndar, Björg Sigurðardóttir og Símon Á. Gunnarsson. Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess.

Stjórn Haga hf. hefur kosið endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Hlutverk endurskoðunarnefndar er að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Endurskoðunarnefndina skipa nú Katrín Olga Jóhannesdóttir, Stefán Árni Auðólfsson og Anna Þórðardóttir sem er formaður nefndarinnar. Nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Hlutverk starfskjaranefndar er að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Þá skal starfskjaranefnd hafa eftirlit með framfylgd starfskjarastefnunnar og útbúa skýrslur um framkvæmd hennar. Starfskjaranefnd skipa Erna Gísladóttir, formaður nefndarinnar, Davíð Harðarson og Eiríkur S. Jóhannsson. Meirihluti nefndarmanna eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Ófjárhagsleg upplýsingagjóf

Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum, eru birtar í sérstökum viðauka á bls. 40.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningur félagsins gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir reikningsárið sem lauk 28. febrúar 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 28. febrúar 2019 og breytingum á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir samstæðuársreikning félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja samstæðuársreikninginn.

Kópavogi, 16. maí 2019

Stjórn:
Erna Gísladóttir
Davíð Harðarson
Eiríkur S. Jóhannsson
Katrín Olga Jóhannesdóttir
Stefán Árni Auðólfsson

Forstjóri:
Finnur Árnason

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Haga hf.

Álit

Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Haga hf. (samstæðan) fyrir reikningsárið 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðunnar á reikningsárinu 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019, efnahag hennar 28. febrúar 2019 og breytingu á handbæru fé á reikningsárinu 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi kröfur í lögum um ársreikninga. Jafnframt að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í samstæðuársreikningnum.

Grundvöllur álits

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda. Við erum óháð samstæðunni samkvæmt ákvæðum síðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði síðareglna.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Lykilatriði endurskoðunarinnar

Lykilatriði endurskoðunarinnar eru þau atriði sem að okkar faglega mati höfðu mesta þýðingu í endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar reikningsárið 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019. Sem hluti af endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum voru þessi lykilatriði skoðuð sérstaklega. Við látum ekki í ljós sérstakt álit varandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á samstæðuársreikningnum í heild.

Lykilatriði endurskoðunarinnar Endurskoðunaraðgerðir
Kaup á eignarhlutum í Oliuverzlun Íslands ehf. (Olís) og DGV ehf. (DGV) og útdeiling kaupverðs Endurskoðun á reikningslegri meðhöndlun, forsendum og mati tengt útdeilingu kaupverðs fólst m.a. í eftirfarandi þáttum:
Kaup á öllum eignarhlutum í Olís og DGV komu til framkvæmda þann 30. nóvember 2018 og nam heildarkaupverð kr. 10.529 milljónum. - Kaupsamningar og aðrar upplýsingar tengdar kaupunum voru yfirfarnir til þess að afla skilnings á viðskiptunum.
Áhrif kaupanna og útdeiling kaupverðs eru veruleg m.t.t. reikningsskila samstæðunnar. Jafnframt er um verulega matskennda þætti að ræða sem m.a. byggja á mati stjórnenda. Þess vegna er reikningsleg meðhöndlun tengd kaupunum, forsendur og mat sem lagt er til grundvallar útdeilingu kaupverðs lykilatriði í endurskoðun okkar. - Framkvæmdur var endurútreikningur á kaupverði.
Samstæðan framkvæmdi kaupverðsútdeilingu á yfirtökudegi með því að meta að greinanlegar yfirteknar eignir og skuldir yfirteknu félaganna til gangvirðis. Gangvirði yfirteknna eigna og skulda var metið í samræmi við bókfært verð hjá Olís og DGV á yfirtökudegi. Fasteignir höfðu verið endurmetnar í reikningsskilum félaganna sem keypt voru fyrir yfirtóku. Að öðru leyti var stuðst við bókfærð verð sem talið var endurspegla gangvirði á yfirtökudegi. - Forsendur og mat við endurmat fasteigna fyrir yfirtökudag voru yfirfarnar og bornar saman við almennar markaðsforsendur.
Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 14 um kaup á dötturfélögum þar sem fjallað er um kaupin, kaupverð og reikningslega meðhöndlun. - Útreikningar voru endurreiknaðir.
Farið var yfir rök stjórnenda fyrir því að ekki hafi myndast fleiri að greinanlegar eignir við kaupin og þá forsendu að bókfært virði yfirteknna eigna og skulda endurspeglaði gangvirði á yfirtökudegi.
Víðskiptavild að fjárhæð kr. 2.236 milljónir myndadöst við kaupverðsútdeilingu. Mat á virðisrýrnun viðskiptavildar var yfirfarið og virðisrýrnunarpróf endurreiknað, sjá nánar lykilatriði vegna viðskiptavildar.
Sérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun á mati og framsetningu.
Víðeigandi skýringar voru yfirfarnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Lykilatriði endurskoðunarinnar Endurskoðunaraðgerðir
Mat viðskiptavildar

Viðskiptavild er verulegur liður í reikningsskilum samstæðunnar og vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum sem virðisrýnunarpróf byggja á er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar.

Viðskiptavild samstæðunnar nemur kr. 9.862 milljónum í lok febrúar 2019 og er um 19% af heildareignum samstæðunnar og um 41% af eigin fé samstæðunnar.

Mat á virðisrýnun er háð faglegu mati og byggir m.a. á áætlunum stjórnenda um afkomu og framtíðarvöxt.

Sjá nánar umfjöllun í skýringum nr. 3f og 3h um reikningsskilaaðferðir gagnvart viðskiptavild og virðisrýnun og skýringu nr. 13 um óefnislegar eignir. | Endurskoðun á mati á viðskiptavild fölst m.a. í eftirfarandi þáttum:
- Mat á virðisrýnun viðskiptavildar samstæðunnar var yfirfarið og virðisrýnunarpróf endurreiknað.
- Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fölst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið m.a. á grundvelli sögulegra upplýsinga og áætlana.
- Forsendur um framtíðarvöxt voru yfirfarnar.
- Ávöxtunarkrafa (WACC) sem notuð er við núvirðingu fyrir einstaka fjárskapandi einingar var borin saman við fjármagnskostnað samstæðunnar og aðrar markaðsforsendur.

Verðmatssérfræðingar PwC aðstoðuðu við endurskoðun viðskiptavildar.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar. |
| Mat vörubirgða

Vörubirgðir nema kr. 7.746 milljónum í lok febrúar 2019 og nema um 15% af heildareignum og um 32% af eigin fé samstæðunnar.

Vörubirgðir eru metnar á kostnaðarverði eða dagverði, hvort sem lægra reynist. Á hverjum reikningsskiladegi leggja stjórnendur mat á vörubirgðir. Við mat á vörubirgðum horfa stjórnendur m.a. til söluhæfis birgðanna og vænts söluverðs.

Vegna óvissu um endanlega niðurstöðu er mat vörubirgða lykilatriði í endurskoðun okkar.

Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 3g um reikningsskilaaðferðir gagnvart vörubirgðum og skýringu nr. 15 um vörubirgðir. | Endurskoðun á mati vörubirgða fölst m.a. í eftirfarandi þáttum:
- Birgðaferillinn var yfirfarinn.
- Afstemmingar á bókfærðri stöðu vörubirgða við viðeigandi undirkerfi og talningar voru yfirfarnar.
- Aðferðafræði og forsendur stjórnenda við mat vörubirgða voru yfirfarnar.
- Réttmæti kostnaðarverðs vörubirgða var sannreynt
- með úrtaksprófunum.
Mat stjórnenda á ónýtum og/eða úreltum vörum var yfirfarið.
- Greiningar stjórnenda á væntu söluverði voru yfirfarnar og niðurstöður sannreyndar með úrtaksprófunum.

Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar. |

Aðrar upplýsingar í ársskýrslu

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Ársskýrsla liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við búumst við að fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.

Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.

Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við lög og alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórnendum samstæðunnar að meta hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning samstæðunnar á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa samstæðuna upp eða hætta rekstri hennar, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi samstæðunnar. Stjórnendum samstæðunnar ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.

Stjórn og endurskoðunarnefnd skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að samstæðuársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á samstæðuársreikningnum.

Endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu ársreiknings, að mikilvægum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.

Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.

Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.

Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi samstæðunnar eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemðum um rekstrarhæfi hennar. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í samstæðuársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni leitt til þess að samstæðan verði ekki lengur rekstrarhæf.

Metum framsetningu, gerð og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álit okkar.

Öflum nægjanlegra endurskoðunargagna vegna fjárhagspupplýsinga félaga og eininga innan samstæðunnar og veitum álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, umsjón og framgangi endurskoðunar samstæðunnar. Við berum ábyrgð á áliti okkar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.

Við höfum lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við uppfyllum nauðsynleg siðferðis- og óhæðisskilyrði og að við munum láta þeim í té allar upplýsingar um hugsanleg tengsl og önnur atriði sem gætu haft áhrif á óhæði okkar og trúnað.

Við höfum lagt mat á hvaða atriði, af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, höfðu mesta þýðingu á yfirstandandi ári og eru það lykilatriði endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum lykilatriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undantekningartilfellum þegar mat okkar er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna.

Reykjavík, 16. maí 2019

PricewaterhouseCoopers ehf.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir
löggiltur endurskoðandi

Vignir Rafn Gíslason
löggiltur endurskoðandi

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. mars 2018 til 28. februar 2019
Skýr. 2018/19 2017/18
Vörusala 84.179 73.895
Kostnaðarverð seldra vara ( 64.172) ( 55.577)
Framlegð 20.007 18.318
Aðrar rekstrartekjur 5 340 294
Laun og launatengd gjöld 6 ( 9.194) ( 8.103)
Annar rekstrarkostnaður 7 ( 6.422) ( 6.284)
Kostnaður vegna samruna 14 ( 241) ( 86)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 4.490 4.139
Afskriftir 8 ( 1.300) ( 1.122)
Rekstrarhagnaður 3.190 3.017
Fjármunatekjur 94 153
Fjármagnsgjöld ( 389) ( 221)
Hrein fjármagnsgjöld 9 ( 295) ( 68)
Áhrif hlutdeildarfélaga 3j ( 12) 20
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.883 2.969
Tekjuskattur 10 ( 566) ( 575)
Heildarhagnaður ársins 2.317 2.394
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður og bynntur hagnaður á hlut 19 2,05 2,11
Starfspáttayfirlit, skýring 31

Skýringar á blaðsíðum 14 til 38 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. februar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 28. februar 2019

Skýr. 28.2.2019 28.2.2018
Eignir
Rekstrarfjármunir 11 19.430 10.733
Fjárfestingarfasteignir 12 3.863 1.530
Óefnislegar eignir 13 10.323 8.101
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 3j 1.171 0
Eignarhlutir í öðrum félögum 3i 39 0
Skuldabréfaeign 3c 70 0
Fastafjármunir samtals 34.896 20.364
Eignir til sölu 14 430 0
Vörubirgðir 15 7.746 4.574
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 16 3.212 678
Viðskiptakröfur - greiðslukortakröfur 16 3.831 3.546
Handbært fé 17 736 222
Veltufjármunir samtals 15.955 9.020
Eignir samtals 50.851 29.384
Eigið fé
Hlutafé 1.213 1.103
Yfirverðsreikningur hlutafjár 5.023 0
Lögbundinn varasjóður 303 239
Bundinn hlutdeildarreikningur 5.092 3.664
Óráðstafað eigið fé 12.648 12.951
Eigið fé samtals 18 24.279 17.957
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 20 4.594 2.217
Tekjuskattsskuldbinding 10 2.283 718
Langtímaskuldir samtals 6.877 2.935
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 20 8.431 771
Tekjuskattur til greiðslu 10 653 379
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 21 10.309 6.897
Skuldbindingar 22 302 445
Skammtímaskuldir samtals 19.695 8.492
Skuldir samtals 26.572 11.427
Eigið fé og skuldir samtals 50.851 29.384

Stýring fjárhagslegrar áhættu, skýring 25

Aðrar upplýsingar, skýringar 23,24,26-30

Skýringar á blaðsíðum 14 til 38 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. februar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit

1. mars 2018 til 28. febrúar 2019

Skýr. Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Lögbundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Breytingar á eigin fé 2017/18
Eigið fé 1. mars 2017 1.153 291 0 3.893 12.075 17.412
Endurkaup á eigin bréfum ( 50 ) ( 291 ) ( 1.508 ) ( 1.849 )
Heildarhagnaður ársins 2.394 2.394
Tillag í lögbundinn varasjóð 239 ( 239 ) 0
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning ( 229 ) 229 0
Eigið fé 28. febrúar 2018 18 1.103 0 239 3.664 12.951 17.957
Breytingar á eigin fé 2018/19
Eigið fé 1. mars 2018 1.103 0 239 3.664 12.951 17.957
Heildarhagnaður ársins 2.317 2.317
Tillag í lögbundinn varasjóð 64 ( 64 ) 0
Greiddur arður, 1,024 kr. á hlut ( 1.129 ) ( 1.129 )
Hlutafjáruknning 42 1.901 1.943
Afhending á eigin bréfum v. samruna 69 3.122 3.191
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 1.428 ( 1.428 ) 0
Eigið fé 28. febrúar 2019 18 1.213 5.023 303 5.092 12.648 24.279

Skýringar á blaðsíðum 14 til 38 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyfirlit

  1. mars 2018 til 28. febrúar 2019
Skýr. 2018/19 2017/18
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður ársins 2.317 2.394
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Sóluhagnaður rekstrarfjármuna 62 ( 90)
Afskriftir 8 1.300 1.122
Hrein fjármagnsgjöld 9 295 68
Áhrif hlutdeildarfélaga 3j 12 ( 20)
Tekjuskattur 10 566 575
Aðrir liðir 91) 0
Veltufé frá rekstri 4.461 4.049
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 70) ( 40)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum ( 865) ( 132)
Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt 3.526 3.877
Innheimtar vaxtatekjur 94 145
Greidd vaxtagjöld ( 381) ( 220)
Greiddur tekjuskattur ( 357) ( 864)
Handbært fé frá rekstri 2.882 2.938
Fjárfestingarhreýfingar
Kaup á dótturfélögum, að frádregnu yfirteknu handbæru fé 14 ( 4.967) 0
Fjárfesting í fasteignum 11 ( 113) ( 111)
Fjárfesting í fjárfestingafasteignum 12 ( 243) 0
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum 11 ( 1.203) ( 2.367)
Fjárfesting í óefnislegum eignum 13 7 ( 171)
Seld fasteign 11 230 0
Sóluverð áhalda og innréttinga 34 45
Sóluverð eignarhluta 0 10
Framlag frá hlutdeildarfélagi 0 20
Skuldabréfaeign, breyting 6 0
Fjárfestingarhreýfingar ( 6.249) ( 2.574)
Fjármögnunarhreýfingar
Afborganir vaxtaberandi skulda ( 821) ( 767)
Greiddur arður ( 1.129) 0
Nýjar vaxtaberandi skuldir 5.831 0
Keypt eigin bréf 0 ( 1.849)
Fjármögnunarhreýfingar 3.881 ( 2.616)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 514 ( 2.252)
Handbært fé í ársbyrjun 222 2.474
Handbært fé í lok árs 17 736 222
Fjárfestingar og fjármögnunarhreýfingar án greiðsluáhrifa
Fjárfesting í fasteignum 0 ( 85)
Yfirteknar skuldir við kaup á félagi 0 85
Seld fasteign 0 85
Uppgerð skuld vegna sólu fasteignar 0 ( 85)
Kaup á dótturfélagi, greitt með hlutabréfum ( 5.134) 0
Hlutafjárauknig 1.943 0
Afhending á eigir bréfum v. samruna 3.191 0
Skýringar á blaðsíðum 14 til 38 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2018 til 28. febrúar 2019 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og sala á eldsneyti.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við lög og innihald ársreikninga og samstæðureikninga.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 16. maí 2019.

b. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs.

c. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna.

d. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplysingar um mikilvæg atriði, þar sem óvissa í mati og mikilvægi ákvarðana um reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir í reikningsskilunum, er að finna í skýringu 13 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eigna.

Vörubirgðir eru einnig háðar matsaðferðum stjórnenda. Upplysingar um matsaðferðir þeirra er að finna í skýringu 3.g.

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum og af öllum félögum í samstæðunni.

Til að auka upplysingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplysingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

a. Grundvöllur samstæðu

(i) Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur.

(ii) Viðskipti felld út við gerð samstæðureiknings

Viðskipti milli félaga innan samstæðunnar, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð ársreiknings samstæðunnar.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

b. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi. Aðrar eignir og skuldir, sem metnar eru á gangvirði í erlendri mynt, eru færðar á því gengi sem var í gildi þegar gangvirði þeirra var ákvarðað.

Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning. Gengismunur á innkaupum á vörum til endursölu eru bókfærð meðal kostnaðarverðs seldra vara.

c. Fjármálagerningar

(i) Fjáreignir

Skuldabréf, viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanalegum greiðslum sem eru ekki skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.

Peningamarkaðsinnlán, sjöður og óbundnar bankainnstæður teljast til handbærs fjár.

(ii) Fjárskuldir

Fjárskuldir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Fjáreignum og fjárskuldum er jafnað saman og nettó fjárhæð sýnd í efnahagsreikningi þegar lagalegur réttur er til staðar um jöfnun og fyrirhugað er að gera upp með jöfnun fjáreigna og fjárskulda eða innleysa eignina og greiða skuldina á sama tíma.

d. Rekstrarfjármunir

(i) Færsla og mat

Rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Fasteignir og lóðir Olíuverzlunar Íslands ehf. (Olís) hafa verið endurmetnar til gangvirðis og er bókfært verð þeirra þann 28. febrúar 2019 7.517 millj. kr. Endurmatsreikningur Olís stendur í 4.265 millj. kr. þann 28. febrúar 2019.

Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Keyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur til að unnt sé að nýta vélbúnað er eignfærður sem hluti af þeim tækjabúnaði.

Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bókfærðu verði eignarinnar og er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna.

(ii) Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

d. Rekstrarfjármunir, frh.:

(iii) Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna og færðar í rekstrarreikning. Land er ekki afskrifað.

Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir ... 20-50 ár
Áhöld og innréttingar ... 3-14 ár

Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjörsdegi.

e. Fjárfestingarfasteignir

(i) Færsla og mat

Samstæðan leigir út fasteignir eða hluta fasteigna með tilheyrandi innréttingum og tækjum til lengri eða skemmri tíma þegar slík notkun á húsnæði er hagkvæm eða fellur vel að öðrum rekstri hennar. Fasteignir til leigu geta verið nýjar eða verið endurflokkaðar af fastafjármunum til eigin nota. Endurflokkun á sér stað yfir á fjárfestingarfasteignir þegar leiga hefur verið samþykkt og er færð til baka ef eignirnar eru aftur teknar til eigin nota.

Fjárfestingarfasteignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Endurflokkun af eða á fastafjármuni til eigin nota er á bókéfærðu kostnaðarverði á þeim tíma.

Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Þegar fjárfestingarfasteignir eru samsettar úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður eða tap af sölu fjárfestingarfasteigna er munurinn á söluverði og bókéfærðu verði eignarinnar og er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna.

(ii) Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstakra hluta fjárfestinga er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

(iii) Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta fjárfestingarfasteigna og færðar í rekstrarreikning. Land er ekki afskrifað.

Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir ... 20-50 ár

Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjörsdegi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

f. Óefnislegar eignir

(i) Viðskiptavild

Viðskiptavild verður til við yfirtöku á rekstrarreikningum og kaupum á dótturfélögum og er færð á meðal óefnislegra eigna.

Viðskiptavild er mismunur á kostnaði við yfirtöku eða kaupum félags og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda.

(ii) Síðara mat

Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.

(iii) Aðrar óefnislegar eignir

Aðrar óefnislegar eignir með takmarkaðan líftíma eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.

(iv) Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður sem fellur til síðar er aðeins eignfærður ef hann eykur væntan framtíðarávinning þeirrar eignar sem hann tengist. Allur annar kostnaður, að meðtöldum þeim sem myndar viðskiptavild og vörumerki innan fyrirtækisins, er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann fellur til.

(v) Afskriftir

Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áætaðan nýtingartíma þeirra. Áætaður nýtingartími greinist þannig:

Hugbúnaður ... 5-12 ár
Leiguréttindi ... 10-15 ár

g. Vörubirgðir

Vörubirgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á fyrst inn - fyrst út reglunni og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi.

Hreint söluverð er áætað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætuðum kostnaði við að selja vör.

h. Virðisrýrnun

(i) Fjáreignir (þar á meðal kröfur)

Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign telst vera virðisrýrð ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem átt hafa sér stað benda til þess að vænt framtíðarsjóðstregmi eignarinnar verði lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunur á bókéfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstregmi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar.

Einstaka mikilvægar fjáreignir eru prófaðar sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar. Aðrar fjáreignir eru flokkaðar saman eftir lánsáháettueinkennum og hver flokkur metinn sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar.

Virðisrýrnun fjáreigna er færð til gjalda í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun er bakfærð ef hægt er að tengja hækkun á endurheimtanlegri fjárhæð á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnun var færð. Bakfærsla fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er færð í rekstrarreikning.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

h. Virðisrýrnun, frh:

(ii) Aðrar eignir

Bókfært verð annarra eigna samstæðunnar en peningalegra eigna, að undanskildum birgðum og skatteign, er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Ef eitthvað bendir til þess er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar áættuð. Virðisrýrnunarprófanir eru gerðar á hverjum uppgjörsdegi á viðskiptavild og óefnislegum eignum sem hafa óskilgreindan nýtingartíma eða hafa ekki verið teknar í notkun á uppgjörsdegi.

Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áættlað framtiðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs þá er viðskiptavild sem verður til við samruna færð á fjárskapandi einingar sem vænst er að muni hagnast af samlegðaráhrífum samrunans.

Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bókfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópi eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bókfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun annarra eigna er yfirfarin á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbending er um að dregið hafi úr virðisrýrnun eignarinnar. Virðisrýrnun annarra eigna er bakfærð ef breyting hefur átt sér stað á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki sem nemur áður færðri virðisrýrnun, að frádregnum afskriftum sem hefðu verið færðar ef engin virðisrýrnun hefði orðið.

i. Önnur félög

Eignahlutir í öðrum félögum, þar sem félagir á minna en 20% hlutafjár, eru færðir á kostnaðarverði. Arður frá þessum félögum er færður til tekna meðal fjármagnstekna þegar honum er úthlutað.

j. Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagir hefur veruleg áhríf á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Ársreikningurinn inniheldur hlutdeild félagsins í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga frá upphafi áhrífa til loka þeirra. Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins er bókfærða verðið fært í nüll og færslu frekara taps hætt, nema félagir hafi gengist í ábyrgðir fyrir hlutdeildarfélagir eða fjármagnað það.

Eignarhlutir í hludeildarfélögum eru eignfærðir á verði sem svarar til hlutdeildar félagsins í bókfærðu eigin fé

Samstæðan er eigandi að 40% hlut í Olíudreifingu ehf. sem annast birgðahald og dreifingu eldsneytis fyrir dótturfélag samstæðunnar, Olíuverzlun Íslands ehf. Með vísan til hluthafasamkomulags í Olíudreifingu ehf. og til að gefa sem gleggstar upplýsingar um skiptingu rekstrakostnaðar á einstaka gjaldaliði er hlutdeild samstæðunnar í rekstrakostnaði Olíudreifingar ehf. færð á gjaldaliði, eins og sölu- og dreifingarkostnað, afskriftir og fjármagnskostnað í rekstrarreikningi samstæðunnar.

Hlutdeild samstæðunnar í hlutdeildarfélögum greinist þannig:

Eignarhlutur Afkoma færð í rekstur Bókfært í árslok
Olíudreifing ehf., Reykjavík 40% (12) 876
Fjölver ehf., Reykjavík 33% 0 9
EBK ehf., Reykjavík 25% 0 164
EAK ehf., Reykjavík 33% 0 113
Abena Ísland ehf., Reykjavík 45% 0 9
Eignarhlutur í hlutdeildarfélögum samtals (12) 1.171

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

k. Hlunnindi starfsmanna

Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði

Samstæðan greiðir fóst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikningi meðal launa og launatengdra gjalda eftir því sem þau falla til.

l. Hlutafé

(i) Almennt hlutafé

Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður við útgáfu hlutafjár og kaupréttarsamninga er færður til lækkunar á eigin fé, að frádregnum skattaáhrifum.

(ii) Kaup á eigin hlutum

Pegar hlutir sem flokkaðir eru sem eigið fé eru keyptir er fjárhæð kaupverðsins, að meðtöldum beinum kostnaði að frádregnum skattaáhrifum, færð sem lækkun á eigin fé. Kaup á eigin bréfum eru færð sem eigin hlutir og þeir færðir til lækkunar á heildar eigin fé. Pegar eigin hlutir eru seldir eða gefnir út aftur er fjárhæð sólverðsins færð til hækkunar á eigin fé. Hagnaði eða tapi sem fellur til við sóluna er bætt við eða dregið frá yfirverðsreikningi hlutafjár.

m. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar samstæðunni ber lagaleg eða ætluð skylda vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtiðarsjóðstremi með vöxtum fyrir tekjuskatt sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.

n. Tekjur

(i) Seldar vörur

Tekjur af sölu á vörum eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og ávinnings af eignarhaldi flyst til kaupanda, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum og fjárhæð teknanna með áreiðanlegum hætti.

(ii) Veitt þjónusta/aðrar tekjur

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning samkvæmt samningi þegar þjónustan hefur verið veitt.

o. Leigugreiðslur

Greiðslur vegna rekstrarleigusamninga eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum. Leiguhvatar eru færðir í rekstrarreikning sem óaðskiljanlegur hluti heildarleigugjalda á leigutímabilinu. Leiguhvatar vegna rekstrarleigusamninga eru tekjufærðir línulega í rekstrarreikning á leigutímabilinu.

p. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjárfestingum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar á skuldbindingum, virðisrýrnun fjáreigna og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Lántökukostnaður er færður í rekstrarreikning miðað við virka vexti.

Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman og fært sem annað hvort fjármunatekjur eða fjármagnsgjöld sem fer eftir hvort gengismunahreyfingar skila sér í hagnaði eða tapi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

q. Tekjuskattur

Tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.

Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bóklærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna skattalegs tímabundins mismunar sem er tilkominn vegna upphaflegrar skráningar á viðskiptavild.

Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Skatteign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.

Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtiðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteignin er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

r. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila hagnaði ársins, sem úthlutað er til hluthafa félagsins, með vegnu meðaltali útistandandi hlutafjár yfir árið. Þynntur hagnaður á hlut er ákvarðaður með því að leiðrétta fjölda virkra hluta fyrir mögulegri þynningu vegna hluta sem gæti þurft að gefa út.

s. Starfsþáttayfirlit

Á fyrstu þremur ársfjörðungum rekstrarársins var starfsemi samstæðunnar nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa hingað til metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er överulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Í kjölfar samruna Haga, Olís og DGV á fjörða ársfjörðungi er nú unnið að endurskoðun starfsþátta samstæðunnar. Þar til þeirri vinnu lýkur mun framsetning grundvallast á núverandi skýrslugjöf til stjórnar félagins. Starfsþættir samstæðunnar eru því þrír, Hagar hf. (rekstur þeirra félaga sem mynduðu samstæðuna fyrir samruna Haga, Olís og DGV), Olíuverzlun Íslands ehf. og DGV ehf.

Starfsþáttayfirlitið má finna í skýringu 31.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

t. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir

(i) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem tóku gildi 1. janúar 2018 og hafa áhrif á ársreikninginn

Í upphafi árs 2018 tóku gildi tveir nýjir reikningsskilastaðlar: IFRS 9 Fjármálagerningar og IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini.

IFRS 9 Fjármálagerningar tilgreinir hvernig flokkun, mat og afskráningu fjáreigna og fjárskulda skuli vera háttáð auk þess að setja nýjar reglur um áhættuvarnarreikningsskil og setja fram nýtt líkan fyrir virðisrýrnun fjáreigna. Í reikningsskilum samstæðunnar eru helstu fjármálagerningar viðskiptakröfur, sjöður og bankainnstæður og skuldir allar færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Nýi staðallinn hefur ekki áhrif á meðferð þessara fjármálagerninga hjá samstæðunni.

IFRS 15 nær til sölu á vörum og þjónustu og byggir á þeirri grundvallarreglu að tekjur séu færðar þegar yfirráð yfir vöru eða þjónustu flyst til viðskiptavina. Hjá samstæðunni hafa tekjur verið færðar þegar viðskiptavinur hefur fengið vöru til umráða eða þegar þjónusta hefur verið innt af hendi. Nýr staðall breytir því ekki færslu tekna hjá samstæðunni.

(ii) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem hafa verið útgefnir en hafa ekki tekið gildi.

Eftirfarandi nýir staðlar hafa verið útgefnir en hafa ekki tekið gildi:

IFRS 16 Leigusamningar

Eðli breytinganna

IFRS 16 Leigusamningar var gefinn út í janúar 2016 og verður innleiddur í reikningsskil samstæðunnar frá 1. mars 2019. Staðallinn mun leiða til þess að nánast allir leigusamningar verði færðir í efnahagsreikningi leigutaka vegna þess að meðferð rekstrar- og fjármögnunarleigusamninga er ekki lengur mismunandi. Samkvæmt nýja staðlinum er eign (réttur til að nota hina leigðu eign) og skuld vegna greiðslu leigu færð í efnahagsreikning. Eina undantekningin er leiga til skamms tíma og leiga fyrir lága fjárhæð.

Áhrif

Samstæðan hefur farið yfir alla leigusamninga sína með tilliti til þessara nýju reikningsskilaregla samkvæmt IFRS 16. Staðallinn mun fyrst og fremst hafa áhrif á rekstrarleigusamninga samstæðunnar.

Pann 28. febrúar 2019 er samstæðan aðili að óuppsegjanlegum skuldbindandi leigusamningum að fjárhæð 13.356 milljónir króna, sjá skýringu 24. Af þessum leigusamningum eru um það bil 2 milljónir króna sem eru til skamms tíma eða verða lokið innan eins árs. Engir leigusamningar eru undir lágmarks fjárhæðamörkum, en slíkir samningar yrðu færðir beint í rekstrarreikning.

Samstæðan gerir ráð fyrir að aðrir leigusamningar verði færðir í efnahagsreikning þann 1. mars 2019, sem eign til afnota að fjárhæð 11.732 milljónir, skuld vegna leigusamninga að fjárhæð 12.554 milljónir króna og tekjuskattsinneign að fjárhæð 165 milljónir króna. Áhrif á eigið fé samstæðunnar eru neikvæð um 658 milljónir króna. Aðferðin sem samstæðan beitir er hálf-afturvirk aðferð (Cumulative catch-up approach).

Samstæðan væntir þess að við upptöku staðalsins minnkar hagnaður hennar eftir skatta árið 2019/20 um 23,6 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri eykst um 1.893 milljónir króna þar sem hluti af leigugreiðslum flyst í fjármögnunarhreyfingar sem munu þarf af leiðandi hækka um 1.893 milljónir króna.

Önnur áhrif af upptöku staðalsins er að kröfur um skýringar vegna leigu aukast frá og með árinu 2019.

Innleiðing

Samstæðan mun beita staðlinum frá 1. mars 2019 eins og skylt er. Samstæðan mun í samræmi við heimild í staðlinum beita einfaldaðri aðferð við innleiðinguna og mun því ekki endurreikna og færa samanburðarfjárhæðir. Fasteignir til afnota verða metnar við innleiðingu eins og nýja staðlinum hafi alltaf verið beitt. Allar aðrar leigueignir verða metnar miðað við leiguskuld við innleiðingu (leiðrétt fyrir fyrirframgreiddum eða áföllnum leigugreiðslum).

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
21
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

4. Ákvörðun gangvirðis

Nokkrar reikningsskilaaðferðir og skýringar krefjast þess að gangvirði sé ákvarðað, bæði fyrir fjáreignir og fjárskuldir og aðrar eignir og skuldir. Gangvirði hefur verið ákvarðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur gangvirðis eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir eða skuldir.

a. Rekstrarfjármunir

Gangvirði rekstrarfjármuna, sem yfirteknir eru við samruna, miðast við markaðsvirði þeirra. Markaðsvirði fasteigna er sú fjárhæð sem unnt er að fá við sölu í viðskiptum milli ótengdra, viljugra og upplýstra aðila. Gangvirði tækja og innréttinga byggist á markaðsvirði sambærilegra eigna.

b. Óefnislegar eignir

Gangvirði óefnislegra eigna er byggt á núvirtu væntu framtíðarsjóðstregmi tengdu notkun þeirra.

c. Birgðir

Gangvirði birgða sem yfirteknar eru við samruna er ákvarðað út frá væntu söluvirði í eðlilegum viðskiptum að frátöldum sölukostnaði og eðlilegri álagningu við að selja birgðirnar.

d. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Gangvirði viðskiptakrafna og annarra krafna er metið sem núvirði af væntu sjóðstregmi, núvirt miðað við markaðsvexti á uppgjörsdegi.

e. Fjárskuldir sem ekki teljast afleiður

Gangvirði fjárskulda, sem einungis er ákvarðað vegna skýringa, er reiknað núvirði framtíðarflæðis höfuðstóls og vaxta og er afvaxtað með markaðsvöxtum á uppgjörsdegi.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

5. Aðrar rekstrartekjur

Aðrar rekstrartekjur greinast þannig: 2018/19 2017/18

Húsaleigutekjur ... 150 123
Ýmsar aðrar rekstrartekjur ... 190 171
Aðrar rekstrartekjur samtals ... 340 294

6. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast þannig:

Laun ... 7.554 6.773
Mótframlag í lífeyrissjóð ... 881 683
Önnur launatengd gjöld ... 759 647
Laun og launatengd gjöld samtals ... 9.194 8.103

Fjöldi ársverka ... 1.583 1.180
Fjöldi starfsmanna í árslok ... 2.735 2.246

7. Annar rekstrarkostnaður

Annar rekstrarkostnaður greinist þannig:

Leigugreiðslur ... 2.373 2.527
Ýmis annar rekstrarkostnaður ... 4.049 3.757
Annar rekstrarkostnaður samtals ... 6.422 6.284

8. Afskriftir

Afskriftir greinast þannig:

Afskrift rekstrarfjármuna, sjá skýringu 11 ... 1.178 1.056
Afskrift fjárfestingarfasteigna, sjá skýringu 12 ... 42 33
Hlutdeild í afskriftum Olíudreifingar ehf., sbr. skýringu 3j. ... 34 0
Afskrift óefnislegra eigna, sjá skýringu 13 ... 46 33
Afskriftir samtals ... 1.300 1.122

9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:

Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum ... 94 153
Vaxtagjöld og verðbætur ... ( 389) ( 221)
Hrein fjármagnsgjöld ... ( 295) ( 68)

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
23
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Tekjuskattur
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist pannig: 2018/19 2017/18
Tekjuskattur til greiðslu 442 457
Breyting tekjuskattsskuldbindingar 124 118
Tekjuskattur færður í rekstrarreikning 566 575
Virkur tekjuskattur greinist pannig:
Hagnaður ársins 2.317 2.394
Tekjuskattur ársins 566 575
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.883 2.969
Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall 20,0% 577 20,0% 594
Söluhagnaður eignarhluta í félögum ( 0,6%) 0 ( 0,6%) ( 19)
Aðrir liðir 0,0% ( 11) 0,0% 0
Virkur tekjuskattur 19,4% 566 19,4% 575
Breyting á tímabundnum mismun 2018/19: Fært í
Staða rekstrar- Yfirtekið við Staða
28.2.2018 reikning kaup á félagi 28.2.2019
Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir ( 739 ) ( 86 ) ( 1.438 ) ( 2.263 )
Birgðir ( 45 ) ( 5 ) ( 28 ) ( 78 )
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur ( 33 ) ( 10 ) 17 ( 26 )
Yfirfæranlegt skattalegt tap 0 1 9 10
Skuldbindingar 99 ( 24 ) 0 75
Tekjuskattsskuldbinding samtals ( 718 ) ( 124 ) ( 1.440 ) ( 2.283 )
Breyting á tímabundnum mismun 2017/18: Fært í
Staða rekstrar- Staða
28.2.2017 reikning 28.2.2018
Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir ( 605 ) ( 134 ) 0 ( 739 )
Birgðir ( 43 ) ( 2 ) 0 ( 45 )
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur ( 41 ) 8 0 ( 33 )
Yfirfæranlegt skattalegt tap 0 0 0 0
Skuldbindingar 88 11 0 99
Tekjuskattsskuldbinding samtals ( 601 ) ( 117 ) 0 ( 718 )
Tekjuskattur til greiðslu greinist pannig: 28.2.2019 28.2.2018
Tekjuskattur ársins til greiðslu 692 457
Fyrirframgreiddir skattar ( 39 ) ( 78 )
Tekjuskattur ársins til greiðslu samtals 653 379

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

11. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir greinast pannig:

Áhöld og
Fasteignir Innréttingar Samtals
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2017 5.161 13.297 18.458
Endurflokkað sem hugbúnaður 0 ( 13 ) ( 13 )
Fjárfesting á árinu 111 2.367 2.478
Selt og aflagt 0 ( 40 ) ( 40 )
Staða 28.2.2018 5.272 15.611 20.883
Endurflokkað sem hugbúnaður 0 ( 2 ) ( 2 )
Endurflokkað sem fjárfestingarfasteign ( 1.082 ) 0 ( 1.082 )
Fjárfesting á árinu 113 1.203 1.316
Yfirtaka á Olís og DGV 7.524 2.445 9.969
Selt og aflagt ( 274 ) ( 240 ) ( 514 )
Staða 28.2.2019 11.553 19.017 30.570
Afskriftir
Staða 1.3.2017 193 8.901 9.094
Afskriftir 68 988 1.056
Selt og aflagt 0 0 0
Staða 28.2.2018 261 9.889 10.150
Afskriftir 116 1.062 1.178
Selt og aflagt ( 10 ) ( 178 ) ( 188 )
Staða 28.2.2019 367 10.773 11.140
Bókfært verð
Staða 1.3.2017 4.968 4.396 9.364
Staða 28.2.2018 5.011 5.722 10.733
Staða 28.2.2019 11.186 8.244 19.430

Fjárfestingarfasteignir hafa verið endurflokkaðar í sér lið í efnahagsreikningi, sjá nánar í skýringu 12.

Fasteignamat og vátryggingaverð

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsárs nam eftirfarandi fjárhæðum:

28.2.2019 28.2.2018
Fasteignamat 6.488 3.247
Vátryggingaverð fasteigna 10.485 4.259
Bókfært verð fasteigna 11.186 5.011
Vátryggingaverð innréttinga og áhalda 12.769 8.052
Bókfært verð innréttinga og áhalda 8.244 5.722

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

12. Fjárfestingarfasteignir Verslunar-húsnæði Skrifstofu-húsnæði Samtals
Fjárfestingarfasteignir greinast pannig:
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2017 1.454 170 1.624
Fjárfesting á árinu 0 0 0
Selt og aflagt 0 0 0
Staða 28.2.2018 1.454 170 1.624
Fjárfesting á árinu 243 0 243
Yfirtaka á Olís og DGV 1.050 0 1.050
Endurflokkað sem fjárfestingarfasteign 1.082 0 1.082
Selt og aflagt 0 0 0
Staða 28.2.2019 3.829 170 3.999
Afskriftir
Staða 1.3.2017 54 7 61
Afskriftir 29 4 33
Selt og aflagt 0 0 0
Staða 28.2.2018 83 11 94
Afskriftir 38 4 42
Selt og aflagt 0 0 0
Staða 28.2.2019 121 15 136
Bókfært verð
Staða 1.3.2017 1.400 163 1.563
Staða 28.2.2018 1.371 159 1.530
Staða 28.2.2019 3.708 155 3.863
28.2.2019 28.2.2018
Fasteignamat fjárfestingarfasteigna 1.817 800
Vátryggingaverð fjárfestingarfasteigna 2.470 1.415
Bókfært verð fjárfestingarfasteigna 3.863 1.530

Samstæðan hefur ekki áreiðanlegar upplýsingar um gangvirði fjárfestingarfasteigna í lok tímabilsins.

Hluti fjárfestingarfasteigna er veðsettur vegna vaxtaberandi skulda. Samstæðan hefur ekki gengist undir neinar skuldbindingar nýrra fjárfestingarfasteigna eða um viðhald eða breytingar á núverandi eignum.

Fjárhæðir færðar í rekstrareikning vegna fjárfestingarfasteigna:

28.2.2019 28.2.2018
Leigutekjur 150 123
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum í útleigu 40 25
Beinn rekstrarkostnaður tengdur leigueignum sem eru ekki í útleigu 7 1

Fjárfestingarfasteignir eru ýmist í skammtíma - eða langtímaleigu. Framtíðarleigugreiðslur leigusamninga eru að lágmarki sem hér segir:

28.2.2019 28.2.2018
Innan eins árs 246 108
Eftir eitt til fimm ár 700 234
Eftir meira en fimm ár 847 13
Rekstrarleigusamningar samtals 1.793 355

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

13. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir greinast þannig:

Viðskiptavild Hugbúnaður Langtíma-kostnaður Samtals
Kostnaðarverð
Staða 1.3.2017 8.172 681 145 8.998
Endurflokkað frá rekstrarfjármunum 0 13 0 13
Fjárfesting á árinu 0 171 0 171
Staða 28.2.2018 8.172 865 145 9.182
Viðskiptavild Olís 2.236 0 0 2.236
Yfirtaka á Olís og DGV 21 0 16 37
Endurflokkað frá rekstrarfjármunum 0 2 0 2
Fjárfesting á árinu 1 ( 8 ) 0 ( 7 )
Staða 28.2.2019 10.430 859 161 11.450

Afskriftir og virðisrýrnun

Staða 1.3.2017 563 340 145 1.048
Afskriftir 0 33 0 33
Staða 28.2.2018 563 373 145 1.081
Afskriftir 5 41 0 46
Staða 28.2.2019 568 414 145 1.127

Bókfært verð

Staða 1.3.2017 7.609 341 0 7.950
Staða 28.2.2018 7.609 492 0 8.101
Staða 28.2.2019 9.862 445 16 10.323

Virðisrýnunarpróf

Viðskiptavild sem verður til við yfirtöku á rekstrarreikningum eða kaupum á dótturfélögum er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýnunarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort virðisrýrnun sé til staðar. Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur eða kaup er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.

Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir tekjuskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Í virðisrýnunarprófinu eru þrjár fjárskapandi einingar prófaðar, Bónus, Bananar og Olís. Óverulegar fjárhæðir eru vegna viðskiptavildar í öðrum félögum.

Áætlanir um fjárstreymi byggjast á rauntölum og 5 ára rekstraráætlun hverrar einingar. Í fjárstreyminu er gert ráð fyrir að framtíðarnafnvöxtur eininganna verði að meðaltali 2,8% árunum 2019/20 til 2023/24 (2017/18: 2,7%). Áætlaður framtíðarnafnvöxtur allra eininga að loknu 5 ára spätímabili er 2,5% (2017/18: 2,5%).

Ávöxtunarkrafa heildarfjármagns eftir tekjuskatt var 10,6% hjá Bónus og Bónunum (2017/18: 10,3%) og 9,9% hjá Olís. Við útreikning á ávöxtunarkröfu var stuðst við ávöxtunarkröfu sambærilegra félaga. Hjá Bónus og Bónunum var miðað við 19,2% (2017/18: 18,8%) skuldsetningu á markaðsvöxtunum 6,2% (2017/18: 6,1%). Hjá Olís var miðað við 36,3% skuldsetningur á markaðsvöxtunum 6,2%. Ávöxtunarkrafan er reiknuð út frá fjármagnskostnaði samstæðunnar eftir tekjuskatt.

Töluverð breyting í forsendum mun ekki leiða af sér virðisrýrnun.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kaup á dótturfélögum

Pann 29. nóvember 2018 heimilaði Samkeppniseftirlitið samruna Haga, Olís og DGV eftir að öllum fyrirvörum, sem voru í kaupsamningi, hafði verið aflétt. Samruninn kom því til framkvæmda þann 30. nóvember 2018 eftir að eignarhlutir í Olís og DGV voru afhentir Högum og gengið hafði verið frá greiðslu söluandvirðis. Alls voru 5.396 millj. króna greiddar með reiðufé sem fjármagnaðar voru að mestu með skammtímáláni með gjalddaga 20. nóvember 2019 og auk þess voru afhentir 111 millj. hlutir í Högum. Skv. kaupsamningi skyldu afhentir hlutir reiknast á gengi 47,5 eða að andvirði 5.272 millj. króna. Þó ber að taka fram að skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðlum reiknast virði hinna afhentu hluta í bókum félagsins m.v. gangvirði á afhendingardegi, sem var 46,25. Þann 30. nóvember 2018 juku Hagar hlutafé sitt um 41.831.651 að nafnvirði, til þess að uppfylla ákvæði kaupsamnings. Eftir hækkunina er hlutafé Haga 1.213.333.841 en var áður 1.171.502.190.

Helstu skilyrði fyrir samrunanum eru eftirfarandi:

  1. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að bjóða sama verð á dagvöru á Olís stöðvum um land allt.
  2. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja nýjum endurseljendum eldsneytis, sem eftir því leita, eldsneyti í heildsölu á viðskiptalegum grunni.
  3. Aðgengi endurseljenda eldsneytis að birgðarými hjá Olíudreifingu verður tryggt að því marki sem Olís er unnt sem annar eigandi félagsins.
  4. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteign félagsins að Faxafeni 14 í Reykjavík, þar sem verslun Bónus er starfrækt.
  5. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteignir Olís þjónustustöðvanna við Háaleitisbraut 12 og Vallargrund 3 í Reykjavík.
  6. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur verslana Bónus að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík og Smiðjuvegi 2 í Kópavogi.
  7. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur Olís verslunarinnar í Stykkishólmi.
  8. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og aðstöðu ÓB stöðva við Starengi 2, Kirkjustétt 2-5 og Knarrarvog 2 í Reykjavík.
  9. Annar seljenda Olís, FISK-Seafood ehf., skuldbatt sig gagnvart Samkeppniseftirlitinu til að selja að hluta þann eignarhlut í Högum sem hann fékk afhentan skv. kaupsamningi. Hagar samþykktu samhliða að falla frá sölu- og framsalsbanni sem fram kom í kaupsamningi milli aðila frá 26. apríl 2017.

Pegar sátt Haga við Samkeppniseftirlitið var undirrituð þann 11. september 2018 höfðu kaupsamningar um allar eignir sem Högum bar að selja skv. sátinni verið undirritaðir. Samningur um eignir Haga var gerður við Ísborg ehf. og samningur um eignir Olís við Atlantsolíu. Söluandvirði eignanna er 660 milljónir króna skv. kaupsamningum og var það greitt við afhendingu eignanna, frá seinni hluta janúarmánaðar og fram í byrjun marsmánaðar 2019. Í heild er söluhagnaður af seldum eignum um 15 millj. króna, en þó eru nettó áhrif viðskiptanna á samstæðureikning Haga söltap að fjárhæð 62 milljónir króna. Söluhagnaður var af eignum Olís að fjárhæð 77 milljónir króna, sem færður var í rekstrarreikning Olís fyrir samrunadag þann 30. nóvember skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðum, en söltap varð af dagvörueignum Haga að fjárhæð 62 milljónir króna sem var gjaldfært á rekstur Haga á þriðja ársfjörðungi.

Eftir samrunann eru Olís og DGV dótturfélög Haga og verða þau rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar, líkt og aðrar einingar innan samstæðunnar. Fyrirtæki Haga hafa ólík rekstrarform og ólíka menningu en hlutverk Haga er að veita fyrirtækjum sínum aðhald í rekstri og finna sameiginlega fleti sem leitt geta til hagræðingar í kostnaði og aukið tekjumöguleika fyrirtækjanna og um leið samkeppnisstyrk þeirra. Rekstrarreikningar Olís og DGV eru hluti af samstæðu Haga frá og með fjórða ársfjörðungi. Rekstrarári fyrirtækjanna tveggja hefur verið breytt til samræmis við rekstrarár Haga, þ.e. tímabilið frá 1. mars til febrúarloka ár hvert. Efnahagsreikningar Olís og DGV urðu hluti af efnahagsreikningi samstæðunnar frá lokum þriðja ársfjörðungs, þ.e. 30. nóvember 2018.

Samkvæmt tilkynningu 18. desember 2018 hefur Samkaup kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að heimila samrunann til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krefst þess að samruninn verði ógiltur eða honum sett strangari skilyrði, þar sem skort hafi á rannsókn málsins hjá eftirlitinu og ekki gengið nógu langt við setningu skilyrða fyrir samrunanum. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála mun taka málíð til efnislegrar meðferðar en ekki liggur fyrir hversu langan tíma afgreiðsla málsins mun taka hjá nefndinni. Mat félagsins er að kærran muni ekki hafa áhrif á samrunann.

Samstæðuársreikningar Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kaup á dótturfélögum, frh.:

Yfirteknaar aðgreinanlegar eignir og skuldir

Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðum skal yfirtökufélag framkvæma kaupverðsútdeilingu á yfirtökudegi með því að meta aðgreinanlegar yfirteknaar eignir og skuldir yfirtekins félags til gangvirðis. Kaupverðsútdeilingu er að mestu lokið, en þó með þeim fyrirvara að ef nýjar upplýsingar um stöðu eigna og / eða skulda á yfirtökudegi koma fram innan eins árs frá yfirtöku getur kaupverðsútdeiling breyst.

Taflan hér að neðan sýnir gangvirði yfirtekinna eigna og skulda Olís og DGV samkvæmt kaupverðsútdeilingu.

Óefnislegar eignir 37
Rekstrarfjármunir 9.969
Fjárfestingarfasteignir 1.050
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.183
Eignarhlutir í öðrum félögum 39
Skuldabréfaeign 75
Eignir til sölu 430
Vörubirgðir 2.890
Viðskiptakröfur 2.957
Aðrar skammtímakröfur 71
Handbært fé 428
Tekjuskattsskuldbinding ( 1.416)
Langtímaskuldir ( 5.114)
Viðskiptaskuldir ( 3.366)
Ögreiddir reiknaðir skattar ( 275)
Aðrar skammtímaskuldir ( 665)
Gangvirði aðgreinanlegra yfirtekinna eigna að frádregnum yfirteknum skuldum 8.293
Viðskiptavild 2.236
Kaupverð 10.529

Gangvirði yfirtekinna eigna og skulda er í samræmi við bókfært verð hjá Olís og DGV. Fasteignir hafa verið endurmetnar í reikningsskilum félaganna sem keypt voru. Að öðru leyti er stuðst við bókfærð verð sem talið var endurspegla gangvirði á yfirtökudegi. Eignir til sölu sem færðar eru í efnahagsreikningi í lok árs tengjast allar kaupum á Olís og DGV og eru metnar á gangvirði.

Á tímabilinu frá yfirtökudegi til ársloka nam vörusala Olís og DGV kr. 7.260 millj og tap 80 millj.kr. Hefði yfirtaka Haga á félögunum miðast við 1. mars 2018 hefði vörusala samstæðunnar numið 113.520 millj.kr. á árinu og hagnaður numið 3.512 millj. kr. Pessar fjárhæðir hafa verið reiknaðar m.t.t. reikningsskila félaganna á tímabilinu.

Viðskiptavild

Viðskiptavild er færð að því marki að kaupverð er umfram gangvirði aðgreinanlegra yfirtekinna eigna að frádregnum aðgreinanlegum yfirteknum skuldum. Viðskiptavildin er ekki afskrifuð en er virðisprófuð árlega eða oftar ef víðbendingar eru um virðisrýrnun.

Kostnaður vegna samruna 2018/19 2017/18
1.3.-28.02. 1.3.-28.02.
Sólutap dagvörueigna Haga ( 62 ) 0
Sérfræðikostnaður og annar kostnaður ( 179 ) ( 86 )
Kostnaður vegna samruna samtals ( 241 ) ( 86 )

Kostnaðurinn hefur allur verið gjaldfærður.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

15. Vörubirgðir

Vörubirgðir greinast þannig:

Matvara 4.067 3.583
Sérvara 1.740 709
Eldsneyti 1.668 0
Vörur í flutningi 271 282
Vörubirgðir samtals 7.746 4.574
Niðurfærsla birgða í lok reikningsárs 183 70
Vátryggingaverð birgða 6.918 4.638

Veðskuldir

Allar vörubirgðir samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.

16. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig:

Viðskiptakröfur 2.954 416
Aðrar skammtímakröfur 506 301
Niðurfærsla viðskiptakrafna og annarra skammtímakrafna ( 248) ( 39)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.212 678
Greiðslukortakröfur 3.831 3.546
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 7.043 4.224

Gjaldfallnar viðskiptakröfur eru óverulegur hluti viðskiptakrafna.

Veðskuldir

Allar viðskiptakröfur samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.

17. Handbært fé

Handbært fé greinist þannig:

Óbundnar bankainnstæður 674 162
Sjóður 62 60
Handbært fé samtals 736 222

Veðskuldir

Allt handbært fé samstæðunnar er veðsett vegna vaxtaberandi skulda.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
30
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

18. Eigið fé

Hlutafé

Í milljónum hlutabréfa

28.2.2019 28.2.2018
Útistandandi hlutir í ársbyrjun 1.103 1.153
Endurkaup á eigin bréfum 0 ( 50)
Hlutafjáraukning 42 0
Afhending á eigin bréfum vegna samruna 69 0
Útistandandi hlutir í árslok 1.213 1.103

Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess nam 1.213 millj. kr. í lok reikningsársins. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun sem samþykkt er á aðalfundi félagsins. Félagín á enga eigin hluti þann 28.2.2019.

Yfirverðsreikningur hlutafjár / lögbundinn varasjóður

Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagín hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagín binda 10% af hagnaði ársins og allt að 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem má ekki nota til að greiða hluthöfum arð.

Bundið eigið fé

Samkvæmt lögum nr. 3/2006 ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- eða hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár.

Arðgreiðslur

Stjórn félagsins leggur til að 50% hagnaðar ársins verði greiddur út sem arður til hluthafa á árinu 2019, samtals 1.158,5 millj. kr. (1.129 millj. kr. 2018).

19. Hagnaður á hlut

Grunnhagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og veginn meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut er hinn sami og grunnhagnaður á hlut, þar sem ekki hafa verið gefnir út kaupréttir til starfsmanna né annarra og félagín hefur ekki tekið lán sem er breytanlegt í hlutafé.

2018/19 2017/18
Hagnaður ársins til hluthafa móðurfélagsins 2.317 2.394
Vegið meðaltal útistandandi hlutafjár:
Hlutafé í ársbyrjun 1.103 1.153
Áhrif endurkaupa á eigin bréfum 0 ( 18)
Áhrif hlutafjáraukningar 17 0
Áhrif afhendingar á eigin bréfum v. samruna 11 0
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta 1.131 1.135
Grunnhagnaður á hlut 2,05 2,11

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

20. Vaxtaberandi skuldir

Kaup Haga á Olís og DGV voru að hluta til fjármögnuð með óverðtryggðu skammtímaláni, á gjalddaga 20. nóvember 2019. Unnið er að endurfjármögnun samstæðunnar.

Vaxtaberandi skuldir greinast þannig:

Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
28.2.2019 28.2.2018 28.2.2019 28.2.2018
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 5,58% 5,45% 12.225 2.872
Skuldir í ISK, verðtryggðar - 10,50% 0 116
Lánalína 6,20% - 800 0
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 13.025 2.988
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 8.431) ( 771)
Langtímaskuldir samtals 4.594 2.217

Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 8.431 771
Afborganir eftir 1 til 2 ár 223 2.168
Afborganir eftir 2 til 3 ár 230 49
Afborganir eftir 3 til 4 ár 236 0
Afborganir síðar 3.905 0
Samtals 13.025 2.988

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Vegna mikilla fjárfestinga á rekstrarárinu, sem fjármagnað var með handbæru fé að hluta, náðust ekki skilgreind mörk skilmála í lánasamningi um greiðsluhæfi. Í skilmálunum er ekki tekið tillit til þess handbæra fjár sem félagíð á hverju sinni. Viðskiptabanki félagsins veitti félaginu undanþágu frá lánaskilmálunum í lok febrúar og því uppfyltti félagíð alla gildandi skilmála í lok reikningsárs.

21. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 28.2.2019 28.2.2018
Viðskiptaskuldir 7.499 5.232
Aðrar skammtímaskuldir 2.810 1.665
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 10.309 6.897

22. Skuldbindingar

Skuldbinding í lok febrúar 2019 er vegna íþyngjandi leigusamninga vegna húsnæðis sem ekki er í notkun hjá samstæðunni. Skuldbindingin nam 302 millj. kr. og hefur öll verið gjaldfærð.

23. Atburðir eftir lok reikningsárs

Þann 7. mars 2019 skrifuðu Hagar undir kaupsamning á 90% eignarhlut í Reykjavíkur Apóteki ehf. Kaupsamningurinn var undirritaður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Þann 29. apríl 2019 skrifáði Olís undir kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Mjöll Frigg ehf. Kaupsamningurinn var undirritaður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

24. Rekstrarleigusamningar

Leigusamningar sem leigutaki

Leigugreiðslur vegna óuppsegjanlegra rekstrarleigusamninga greinast þannig: 28.2.2019 28.2.2018
Innan eins árs 2.321 2.348
Eftir eitt til fimm ár 6.878 6.581
Eftir meira en fimm ár 4.157 3.263
Rekstrarleigusamningar samtals 13.356 12.192

Samstæðan leigir fasteignir undir starfsemi sína. Lengstu leigusamningarnir gilda til ársins 2030. Skuldbindingar samstæðunnar vegna leigusamninganna námu 13.356 millj. kr. í lok reikningsársins (2017/18: 12.192 millj. kr.). Flestir leigusamningar eru tengdir vísitölu neysluverðs. Nánar vísast í skýringu 3t um innleiðingu á nýjum reikningsskilastaðli IFRS 16 um leigusamninga sem verður innleiddur 1. mars 2019.

25. Stýring fjármálalegrar áhættu

a. Yfirlit

Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum félagsins:

  • Lánsáhætta
  • Lausafjáráhætta
  • Markaðsáhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu þess. Jafnframt eru veittar tölulegar upplýsingar víðar í ársreikningnum.

Stjórn félagsins ber ábyrgð á innleiðingu og eftirliti með fjármálalegri áhættu samstæðunnar.

Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgótva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring samstæðunnar og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi samstæðunnar. Með starfsmannapjálfun og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta félagsins er einkum vegna viðskiptakrafna og verðbréfa.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Lánsáhætta er lágmörkuð með ítarlegu mati á hverjum og einum viðskiptavin sem hefur lánsviðskipti við félagið, m.a. með því að kanna lánshæfismat.

Félagið myndar niðurfærslu vegna áætaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

25. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

b. Lánsáhætta, frh.:

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:

Skýring 28.2.2019 28.2.2018
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur 16 3.212 678
Viðskiptakrófur - greiðslukortakrófur 16 3.831 3.546
Mesta mögulega tap vegna viðskiptakrafna 7.043 4.224
Handbært fé 17 736 222
Mesta mögulega tap vegna fjáreigna 7.779 4.446

Hreyfingar á niðurfærslu viðskiptakrafna greinast þannig:

Staða í upphafi reikningsárs 39 37
Breyting á árinu 209 2
Staða í lok reikningsárs 248 39

c. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.

Samningsbundnar greiðslur vegna fjárskulda, þar með taldar væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:

Fjárskuldir

28. febrúar 2019 Bókfært verð Samnings-bundið sjóðsflæði Innan árs Eftir 1-2 ár Eftir 2-5 ár Eftir meira en 5 ár
Vaxtaberandi skuldir 13.025 16.108 9.021 476 1.405 5.206
Fjármögnunarleiga 0 0 0 0 0 0
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 10.309 10.309 10.309 0 0 0
23.334 26.417 19.330 476 1.405 5.206

28. febrúar 2018

Vaxtaberandi skuldir 2.872 3.086 899 2.187 0 0
Fjármögnunarleiga 116 148 43 44 61 0
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 6.897 6.897 6.897 0 0 0
9.885 10.131 7.839 2.231 61 0

Til viðbótar við samningsbundið sjóðsflæði þá nemur tekjuskattur til greiðslu og skammtíma skuldbindingar alls 955 millj. kr. (2017/18 824 millj. kr.)

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxt hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjármálagerninga. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

(i) Gjaldmiðlaáhætta

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evra (EUR), bandaríkjadollar (USD) og breskt pund (GBP).

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

25. Stýring fjármálalegrar áhættu, frh.:

d. Markaðsáhætta, frh.:

Tapshætta vegna gjaldmiðlaáhættu

Mögulegt tap samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla, byggt á nafnverðsfjárhæðum, er 557 millj. kr. í árslok (2017/18: 269 millj. kr.). 10% veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í febrúarlok 2019 hefði minnkað eigið fé og afkomu eftir tekjuskatt um 45 millj. kr. (2017/18: -22 millj. kr.).

(ii) Vaxtaáhætta

Í lok árs eru 100% af lántökum félagsins eru með breytilegum vöxtum (2017/18: 96,1%).

Vaxtaáhætta

Vaxtaberandi peningalegar skuldir eru eftirfarandi í lok reikningsárs: 28.2.2019 28.2.2018
Fjármálagerningar með fóstum vöxtum
Fjárskuldir 0 116
Fjármálagerningar með breytilegum vöxtum
Fjárskuldir 13.025 2.872

Breyting í vöxtum skulda með breytilega vexti um 1% í lok reikningsárs myndu hækka (lækka) eigið fé og afkomu um 74 millj. kr. (2017/18: 23 millj. kr.) eftir tekjuskatt.

e. Eiginfjárstýring

Það er stefna stjórnar að eiginfjárstaða félagsins sé sterk til að viðhalda trausti fjárfesta, lánastofnana og annarra markaðsaðila ásamt því að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar í rekstrarfjármunum.

Stefna stjórnar félagsins er greiða hluthöfum þess árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstrarárs. Að auki mun félagið, ef tækifæri gefast, kaupa eigin bréf og kaupa fasteignir á hagstæðu verði sem nýtast félaginu í starfsemi sinni. Félagið stefnir að reglubundnum arðgreiðslum og kaupum á eigin bréfum, samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun, í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins, sé svigrúm til þess.

26. Gangvirði

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda samanborið við bókfært verð eins og það er sett fram í efnahagsreikningi greinist þannig:

28.2.2019 28.2.2018
Bókfært verð Gangvirði Bókfært verð Gangvirði
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 7.043 7.043 4.224 4.224
Handbært fé 736 736 222 222
Vaxtaberandi skuldir (13.025) (13.025) (2.988) (2.988)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir (10.309) (10.309) (6.897) (6.897)
(15.555) (15.555) (5.439) (5.439)

Fjallað er um forsendur við ákvörðun gangvirðis í skýringu 4.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

27. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Tengdir aðilar félagsins eru stjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út við samstæðureikningsskil og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila

Laun, hlunnindi og framlag í lífeyrissjóð til forstjóra, stjórnar og lykilstarfsmanna

Laun fyrir rekstrarárið 2018/19 og eignahlutur í lok rekstrarárs

Laun og hlunnindi Framlag í lífeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Erna Gísladóttir, stjórnarformaður 6,3 0,5 6,9
Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður (til 18. jan 2019) 8,7 0,7 Á ekki við
Davíð Harðarson, stjórnarmaður (frá 6. júní 2018) 4,6 0,4 0,1
Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarmaður (frá 18. jan 2019) 1,0 0,1 112,3
Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður (frá 18. jan 2019) 1,0 0,1 0,0
Sigurður Arnar Sigurðsson, stjórnarmaður (til 18. jan 2019) 6,0 0,5 Á ekki við
Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður 5,3 0,4 0,0
Finnur Árnason, forstjóri 72,7 13,9 4,2
Lykilstjórnendur (6)** 203,7 28,4 1,2

Katrín og Stefán eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Erna, Davíð og Eiríkur eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.

**Sex lykilstjórnendur eru: Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri Haga, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands ehf., Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri Banana ehf. og Lárus Óskarsson framkvæmdastjóri Aðfanga.

Laun fyrir rekstrarárið 2017/18 og eignahlutur í lok rekstrarárs

Laun og hlunnindi Framlag í lífeyrissjóð Eignahlutur í árslok*
Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður 8,9 0,7 0,0
Erna Gísladóttir, stjórnarmaður 4,5 0,4 6,9
Salvör Nordal, stjórnarmaður (til 1. sept 2017) 2,2 0,2 Á ekki við
Sigurður Arnar Sigurðsson, stjórnarmaður 5,8 0,5 0,0
Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður 4,5 0,4 0,0
Finnur Árnason, forstjóri 70,5 13,3 4,2
Lykilstjórnendur (5)** 188,3 26,6 1,2

Erna var nefndarmaður í endurskoðunarnefnd. Kristín, Sigurður Arnar og Stefán Árni voru nefndarmenn í starfskjaranefnd.

*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðilum tengdum þeim.

**Fimm lykilstjórnendur eru: Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri Haga, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri Banana ehf. og Lárus Óskarsson framkvæmdastjóri Aðfanga.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

28. Póknun til endurskoðenda

Póknanir til endurskoðenda samstæðunnar og dótturfélaga á rekstrarárinu 2018/19 námu 38 millj. kr. (2017/18: 29 millj. kr.) þar af 24 millj. kr. (2017/18: 16 millj. kr.) vegna endurskoðunar og könnunar á ársreikningi.

29. Dótturfélög

Dótturfélög félagsins í lok reikningsárs voru sex. Dótturfélögin í samstæðuársreikningnum eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
28.2.2019 28.2.2018
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Ferskar kjötvörur ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Olíuverzlun Íslands ehf. (Olís) Ísland 100% 0%
DGV ehf. Ísland 100% 0%

Hlutir móðurfélagsins í Högum verslunum ehf., Bönunum ehf., Ferskum kjötvörum ehf. og Noron ehf. eru veðsettir vegna vaxtaberandi skulda.

30. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

Efnahagsreikningur: 28.2.2019 28.2.2018
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir 0,81 1,06
Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildareignir 47,7% 61,1%
Innra virði hlutafjár 20,02 16,28

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Starfsbáttayfirlit
Rekstrarárió 2018/19 Hagar hf. 1.3.18-28.2.19 Olúverzlun Islands ehf. 1.12.18-28.2.19 DGV ehf. 1.12.18-28.2.19 Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 76.931 7.260 0 ( 12) 84.179
Aðrar rekstrartekjur 304 10 26 0 340
Heildartekjur starfsbátta 77.235 7.270 26 (12) 84.519
Heildarreletrargjöld starfsbátta 72.965 7.073 3 (12) 80.029
EBITDA starfsbátta 4.270 197 23 0 4.490
Afskriftir starfsbátta 1.084 210 6 0 1.300
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 12) ( 12)
Rekstrarafkoma starfsbátta 3.186 (25) 17 0 3.178
Hrein fjármagnsgjöld ( 295)
Tekjuskattur ( 566)
Hagnaður ársins 2.317
28. febrúar 2019
Eignir starfsbátta 29.758 17.256 1.171 2.666 50.851
Eignir samtals 50.851
Skuldir starfsbátta 16.388 9.332 851 0 26.571
Skuldir samtals 26.571
Fjárfestingar starfsbátta 1.095 193 0 0 1.288
Afskriftir starfsbátta 1.084 210 6 0 1.300
Rekstrarárió 2017/18
Vörusala 73.895 0 0 0 73.895
Aðrar rekstrartekjur 294 0 0 0 294
Heildartekjur starfsbátta 74.189 0 0 0 74.189
Heildarreletrargjöld starfsbátta 70.050 0 0 0 70.050
EBITDA starfsbátta 4.139 0 0 0 4.139
Afskriftir starfsbátta 1.122 0 0 0 1.122
Áhrif hlutdeildarfélaga 20 0 0 0 20
Rekstrarafkoma starfsbátta 3.037 0 0 0 3.037
Hrein fjármagnsgjöld ( 68)
Tekjuskattur ( 575)
Hagnaður ársins 2.394
28. febrúar 2019
Eignir starfsbátta 29.384 0 0 0 29.384
Eignir samtals 29.384
Skuldir starfsbátta 11.427 0 0 0 11.427
Skuldir samtals 11.427
Fjárfestingar starfsbátta 2.604 0 0 0 2.604
Afskriftir starfsbátta 1.122 0 0 0 1.122

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungayfirlit (óendurskoðað)

Rekstrarárið 2018/19 1. árs-fjórðungur 2. árs-fjórðungur 3. árs-fjórðungur 4. árs-fjórðungur Samtals
Vörusala 18.592 19.142 18.521 27.924 84.179
Kostnaðarverð seldra vara (14.000) (14.579) (14.124) (21.469) (64.172)
Framlegð 4.592 4.563 4.397 6.455 20.007
Aðrar rekstrartekjur 56 50 55 179 340
Laun og launatengd gjöld (2.054) (1.951) (2.107) (3.082) (9.194)
Annar rekstrarkostnaður (1.386) (1.441) (1.428) (2.167) (6.422)
Kostnaður vegna samruna (15) (38) (183) (5) (241)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.193 1.183 734 1.380 4.490
Afskriftir (249) (256) (265) (530) (1.300)
Rekstrarhagnaður 944 927 469 850 3.190
Fjármunatekjur 14 7 12 61 94
Fjármagnsgjöld (48) (49) (56) (236) (389)
Hrein fjármagnsgjöld (34) (42) (44) (175) (295)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 0 0 (12) (12)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 910 885 425 663 2.883
Tekjuskattur (182) (177) (97) (110) (566)
Heildarhagnaður ársins 728 708 328 553 2.317
Rekstrarárið 2017/18
Vörusala 19.048 18.121 16.915 19.811 73.895
Kostnaðarverð seldra vara (14.312) (13.660) (12.719) (14.886) (55.577)
Framlegð 4.736 4.461 4.196 4.925 18.318
Aðrar rekstrartekjur 54 49 141 50 294
Laun og launatengd gjöld (2.043) (1.955) (2.014) (2.091) (8.103)
Annar rekstrarkostnaður (1.469) (1.433) (1.425) (1.957) (6.284)
Kostnaður vegna samruna (1) (21) (4) (60) (86)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.277 1.101 894 867 4.139
Afskriftir (225) (231) (366) (300) (1.122)
Rekstrarhagnaður 1.052 870 528 567 3.017
Fjármunatekjur 54 39 26 34 153
Fjármagnsgjöld (64) (56) (53) (48) (221)
Hrein fjármagnsgjöld (10) (17) (27) (14) (68)
Áhrif hlutdeildarfélaga 20 0 0 0 20
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.062 853 501 553 2.969
Tekjuskattur (212) (171) (100) (92) (575)
Heildarhagnaður ársins 850 682 401 461 2.394

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ófjárhagsleg upplýsingagjóf (óendurskoðað)

Um Haga

Hagar hf. er leiðandi verslunarfyrirtæki á íslenskum matvöru-, eldsneytis- og sérvorumarkaði. Félagið starfrækir 42 matvöruverslanir innan tveggja smásölufyrirtækja og fjögur vöruhús. Þá rekur félagið 28 Olísstöð um land allt auk 40 ÓB stöðva. Sérvoruverslanir Haga eru þrjár innan tveggja smásölufyrirtækja, auk þess sem Hagar starfsrækja sérvorusvið innan Hagkaups. Félagið er skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift.

Stjórn Haga hefur sett félaginu stefnu um samfélagslega ábyrgð en hún var samþykkt á fundi í maí 2017. Stefnuna má finna á vef félagsins, www.hagar.is, en hún tekur á flestum þeim þáttum sem hér eru til umfjöllunar. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð.

Umhverfismál

Hagar hafa um langt skeið lagt áherslu á umhverfismál, þó ekki sé í gildi formleg umhverfisstefna. Hagar reyna eftir fremsta megni að starfa í sátt við umhverfi sitt og taka tillit til þess í starfsemi sinni. Eitt stærsta verkefnið er án efa sorpflokkun en stærstu verslanir félagsins hafa flokkað allt sitt sorp í fjöldamörg ár. Þá hafa mat- og sérvoruverslanir félagsins hætt sölu á burðarpokum úr plasti og hvatt viðskiptavini sína til að nota fjölnota burðarpoka og eru þeir seldir á hagstæðu verði í verslunum.

Þá hefur Olís staðfest þátttöku sína í loftlagssamningi Festu og Reykjavíkurborgar með undirritun þann 8. desember 2017 en loftslagsmarkmið Olís eru að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Samfélagsleg mál

Hagar styrkja ýmis góðgerðarmál og hafa gert alla tíð. Um er að ræða styrki, stóra sem smáa, þar sem áherslurnar hafa aðallega verið á hjálparstofnanir, forvarnarstarf, æskulýðsstarf íþróttafélaganna og styrki til tækjakaupa á Landspítalanum.

Hagar hafa átt gott samstarf við Vinnumálastofnun en nokkur af fyrirtækjum félagsins taka þátt í verkefninu Atvinna með stuðningi en þar er fólki með skerta starfsgetu vegna andlegrar og/eða likamlegrar fótlunar veitt

Starfsmannamál

Hagar hafa sett sér starfskjarastefnu sem hefur það að markmiði við gerð samninga um starfskjör, að félagið sé samkeppnishæft um starfsfólk og stjórnendur. Til að svo megi verða skal félagið bjóða samkeppnishæf laun við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum. Hagar telja nauðsynlegt að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins þannig að félagið njóti starfskrafta þeirra og hæfileika sem allra best þannig að hagur þeirra og félagsins fari saman. Við ákvörðun um starfskjör er horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að jafnréttissjónarmiðum. Starfskjarastefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is, en hún var samþykkt á aðalfundi Haga þann 6. júní 2018.

Jafnréttisstefna Haga var endurskoðuð og samþykkt af stjórn félagsins í mars 2018. Stefna Haga er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að hver starfsmaður þess sé metinn að eigin verðleikum, óháð kyni, aldri og uppruna. Allt starfsfólk skal njóta sömu virðingar og skulu kynin hafa jafna stöðu innan fyrirtækisins. Hvers konar mismunun er óheimil og verður ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að koma í veg fyrir að slíkt ranglæti eigi sér stað. Jafnréttisstefnan er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is.

Öll dótturfélög Haga hófu vinnu við jafnlaunavottun á árinu 2018, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 sem lögfest var í júní 2017. Hafa þau nú öll innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019


Ófjárhagsleg upplýsingagjóf, frh.:

Spillingar- og mútumál

Í síðareglum félagsins, sem endurskoðaðar og samþykktar voru af stjórn í apríl 2017, er lögð áhersla á að fara ávallt að lögum og almennum viðmiðum um síðferði í viðskiptum og að fylgt sé þeim reglum sem félagið setur á hverjum tíma. Kveðið er á um að óheimilt er að misnota aðstöðu sína í starfi, þannig að félagið beri skaða af og eru starfsmenn hvattir til að tilkynna næsta yfirmanni ef þeir verða vitni að spillingu eða óreiðu innan félagsins. Síðareglur þessar leggja einnig áherslu á að forða starfsmönnum frá að taka ákvarðanir sem skapað geta hagsmunaárekstra en meginreglan er sú að hagsmunir starfsmanna og félagsins skuli fari saman. Þá er óheimilt að taka við gjöfum, boðsferðum eða annars konar fríðindum frá viðskiptamönnum félagsins nema með samþykki yfirmanns. Síðareglur félagsins má finna á vefnum www.hagar.is.

Mannréttindamál

Hagar leggja sig alla fram um að virða almenn mannréttindi og eru með í gildi, því til stuðnings, jafnréttisstefnu og síðareglur sem fjallað er um hér að framan. Þá eru Hagar með í gildi viðauka við alla verksamninga félagsins þar sem aðalverktakar lýsa því yfir að þeir muni ávallt og í hvívetna virða lög- og samningsbundin réttindi þeirra aðila sem þeir ráða til sinna starfa, hvort sem um ræðir launþega, starfsmenn starfsmannaleiga, aðra verktaka og/eða undirverktaka. Aðalverktaki lýsir því yfir að starfsemi hans uppfylli ávallt þær kröfur sem íslensk lög, reglur og venjur á vinnumarkaði gera hverju sinni. Aðalverktaki lýsir því einnig yfir að hann beri svokallaða keðjuábyrgð, þ.e.a.s. hann ábyrgist að aðrir verktakar og/eða undirverktakar sem hann hefur ráðið til sinna starfa uppfylli sömu kröfur þannig að réttindi allra þeirra starfsmanna sem að verki koma séu tryggð.

Samstæðuársreikningur Haga hf. 28. febrúar 2019