Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2024

Aug 23, 2024

2196_rns_2024-08-23_ef472cc5-b90a-4db8-9a1c-dad70e85731d.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Endanleg dagskrá hluthafafundar 30. ágúst 2024

Hagar hf.: Endanleg dagskrá hluthafafundar 30. ágúst 2024

Stjórn Haga hf. hefur boðað til hluthafafundar í félaginu, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, föstudaginn 30. ágúst 2024 kl. 10:00.

Engar breytingatillögur hafa borist félagsstjórn innan tilskilins frests og er því dagskrá fundarins óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins þann 9. ágúst sl.

Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum bréflega. Á heimasíðu Haga, https://www.hagar.is/fjarfestar/hluthafafundir/2024/, má finna nánari leiðbeiningar um atkvæðaseðil.

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.

Stjórn Haga hf.