AI assistant
Hagar — AGM Information 2023
Mar 23, 2023
2196_rns_2023-03-23_673df58c-10f4-4429-9fbd-1815890d2fe5.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Hagar hf.: Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2023
Hagar hf.: Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2023
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 1. júní 2023.
Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2023 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 13. apríl nk. á netfangið [email protected].
Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 21. apríl 2023 á netfangið [email protected]. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má á í viðhengi og á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.
Auk framboðseyðublaðs má í viðhengi finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Upplýsingarnar má einnig finna á vefsíðu Haga hf., www.hagar.is/fjarfestar/hluthafafundir/2023/.
Upplýst skal að núverandi stjórnarmenn Haga hf. gefa allir kost á sér til endurkjörs.
Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 10. maí nk.
Tilnefningarnefnd Haga hf.

Viðhengi: