Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2021

May 12, 2021

2196_rns_2021-05-12_cf10e15f-3de8-49b8-a500-2d07ea8a5b3c.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Aðalfundur 2021 - Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.

Hagar hf.: Aðalfundur 2021 - Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 3. júní 2021 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Þann 24. mars 2021 var birt auglýsing frá tilnefningarnefnd Haga hf., þar sem þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. var bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar eigi síðar en 23. apríl sl.

Alls bárust tilnefningarnefnd 11 framboð til stjórnar fyrir auglýstan frest nefndarinnar. Allir núverandi stjórnarmenn gefa kost á sér og auk þess buðu sex aðrir einstaklingar sig fram til stjórnarstarfa, sem hafa nú allir dregið framboð sitt til baka.

Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Davíð Harðarson, fjármálastjóri Nordic Visitor

Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Slippsins Akureyri ehf.

Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður hjá LMB Mandat slf.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf.

Katrín Olga Jóhannesdóttir, eigandi Kría konsulting ehf.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Tilnefningarnefnd hefur nú lokið störfum og farið yfir þau framboð sem bárust innan tiltekins frests og leggur hún til að Davíð Harðarson, Eiríkur S. Jóhannsson, Eva Bryndís Helgadóttir, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir verði kosin í stjórn félagsins. Skýrsla nefndarinnar er hér meðfylgjandi.

Hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 09:00 þann 30. maí 2021. Þegar lögboðinn framboðsfrestur er runninn út, eða minnst tveimur dögum fyrir hluthafafund, verður tilkynnt um endanlegan lista frambjóðenda.

Viðhengi: