AI assistant
Hagar — AGM Information 2020
May 18, 2020
2196_rns_2020-05-18_d740b248-4bbb-4f3d-9ff0-3c680f474809.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Aðalfundur Haga hf. 9. júní 2020
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn 9. júní 2020 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2) Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
3) Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2019/20.
4) Tillaga að lækku hlutafjár og breytingu á samþykktum.
- Grein 2.1 um hlutafé félagsins verði breytt þar sem hlutafé verði lækkað úr kr. 1.213.333.841 að nafnverði í kr. 1.180.624.568 að nafnverði og eigin hlutir, að nafnvirði kr. 32.709.273, þannig ógiltir.
5) Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda.
6) Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu og skýrsla starfskjara nefndar.
7) Kosning tilnefningarnefndar.
8) Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
9) Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
10) Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins, http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur/ Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.