Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2019

Jun 7, 2019

2196_rns_2019-06-07_95006fed-8760-4281-bfbd-ea7c9ea92cc2.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

GILDI

Bókun Gildis-lífeyrissjóðs á aðalfundi Haga hf. 7.6.2019

Á aðalfundi Haga hf. 2018 sat Gildi-lífeyrissjóður hjá við afgreiðslu starfskjarastefnu og lagði fram bókun þar sem m.a. kom fram að mikilvægt væri að stjórn félagsins upplýsi nánar um það með hvaða hætti heildarlaun stjórnenda væru mótuð, við hvaða samanburð þau miða og hvert væri hlutfall milli fastra og árangurstengdra greiðslna hjá stjórnendum. Að sama skapi kom þar fram varðandi árangurstengd launakerfi að eðlilegt væri að mælikvarðar komi fram í starfskjarastefnu sem væru viðeigandi og á grundvelli þátta sem stjórnendur geta haft áhrif á og/eða stýrt í störfum sínum. Þá var lögð áhersla á að greint væri frá því hversu háar árangurstengdar launagreiðslur geta orðið þannig að hámörk og takmörk komi fram í stefnunni sjálfri og að skýrsla yrði gerð um framkvæmd starfskjarastefnunnar.

Stjórn Haga hf. hefur nú lagt fram uppfærða starfskjarastefnu, sem m.a. setur fram skýrari ramma um árangurstengdar launagreiðslur og gerir ráð fyrir því að gerð sé skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu. Þrátt fyrir að sjóðurinn telji að ganga þurfi lengra varðandi skýrleika í þessum efnum er engu að síður um jákvæð skref að ræða til bóta hjá félaginu. Gildi-lífeyrissjóður mun því greiða atkvæði með starfskjarastefnunni en leggur á það áherslu að félagið haldi áfram á þessari braut og að í aðdraganda næsta aðalfundar komi fram skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu sem upplýsi nánar um með hvaða hætti heildarlaun stjórnenda eru mótuð, á hvaða samanburði þau byggja og hvert hlutfall er á milli fastra og árangurstengdra greiðslna hjá stjórnendum.

F.h. Gildis-lífeyrissjóðs

Árni Guðmundsson
Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri

Lífeyrissjóður
[email protected]
515 4700
www.gildi.is