Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2018

May 23, 2018

2196_rns_2018-05-23_063144c8-465c-4a50-85da-2e98fcbac9d5.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Haga hf. 6. júní 2018

Aðalfundur Haga hf. 6. júní 2018

Endanleg dagskrá og tillögur.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. skal tveimur vikum fyrir aðalfund birta dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikning, skýrslu stjórnar og skýrslu endurskoðenda, auk tillagna félagsstjórnar um starfskjarastefnu.

Dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2018 eru óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins þann 15. maí sl.

Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (sunnudaginn 27. maí nk.) á netfangið [email protected], eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann dag.

Hluthöfum er einnig bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 09:00 þann 1. júní nk. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund.

Stjórn Haga hf.