AI assistant
Festi — Remuneration Information 2024
Feb 9, 2024
2195_rns_2024-02-09_679d7a02-cfd0-4185-b6aa-1e6c6ae7db3e.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
FESTI
Skýrsla starfskjaranefndar
Festi hf.
Starfsárið 2023 - 2024
Festi hf.
Dalvegi 10-14
201 Kópavogi
kt. 540206-2010
FESTI
Tilgangur:
Tilgangur starfskjaranefndar Festi hf. er að vera stjórn til aðstoðar og gera störf hennar skilvirkari, með því að fjalla nánar og í smærri hóp um starfskjör stjórnarmanna og æðstu stjórnenda félagsins og dótturfélaga.
Umboð:
Hluthafar setja félaginu starfskjarastefnu sem kemur til afgreiðslu á aðalfundi ár hvert. Starfskjaranefnd Festi hf. starfar í umboði stjórnar félagsins. Stjórn setur nefndinni starfsreglur og ber ábyrgð á störfum hennar.
Skipan:
Samkvæmt starfskjarstefnu Festi hf. skal stjórn félagsins skipa þrjá aðila til setu í nefndinni og skulu þeir allir vera óháðir félaginu. Í starfskjaranefnd má hvorki forstjóri félagsins né annar starfsmaður eiga sæti. Pá skal haft að leiðarljósi að nefndarmenn hafi reynslu og þekkingu á viðmiðum og venjum við ákvörðun starfskjara stjórnenda.
Á aðalfundi sem haldinn var þann 22. mars 2023 fór fram stjórnarkjör í Festi hf. Á stjórnarfundi sem haldinn var þann sama dag samþykkti nýkjörin stjórn að Guðjón Reynisson, Hjörleifur Pálsson og Margrét Guðmundsdóttir tækju sæti í starskjaranefnd og að Hjörleifur Pálsson yrði formaður nefndarinnar. Starfskjör nefndarinnar fara eftir ákvörðun aðalfundar 2023.
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
Helstu verkefni nefndarinnar eru að undirbúa tillögur stjórnar til aðalfundar Festi hf. um starfskjarastefnu og stjórnarlaun, gefa álit á tillögum um kaupauka- og kaupréttarkerfi, hafa eftirlit með starfs- og launakjörum forstjóra og framkvæmdastjórnar og því að starfskjör séu almennt gagnsæ, samkeppnisfær og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins hverju sinni.
Starfsreglur:
Stjórn Festi hf. samþykkti starfsreglur nefndarinnar þann 26. október 2022. Þar er nánar kveðið á um hlutverk nefndarinnar, skipan og samsetningu hennar, fyrirkomulag funda, heimildir, aðgang að gögnum og trúnaðarskyldu. Gildandi starfsreglur nefndarinnar voru yfirfarnar á starfsárinu og bótti ekki tilefni til breytinga á þeim með tillögugerð þar að lútandi til stjórnar félagsins.
Starfsáætlun:
Starfskjaranefnd starfaði eftir starfsáætlun sem kom fyrst til umfjöllunar á fundi nefndarinnar þann 5. júní 2023 en var samþykkt á nefndarfundi sem haldinn var þann 6. september sama ár. Starfsáætluninni er ætlað að aðstoða nefndina við að skipuleggja vinnu sína með það að markmiði að hún sinni hlutverki sínu í samræmi við starfsreglur og góða stjórnarhætti. Starfsáætlunin er leiðbeinandi en ekki afmarkandi og er fyrst og fremst ætlað að styðja við faglegt starf nefndarinnar.
Fundir ársins og helstu verkefni:
Til að rækja hlutverk sitt hélt nefndin sex fundi á starfsárinu.
Á fyrsta fundi nefndarinnar, 5. júní 2023, fór fram umræða um verkaskiptingu og starfsáætlun starfskjaranefndar. Pá voru starfsreglur nefndarinnar yfirfarnar og samþykkt að ekki skyldu lagðar fyrir stjórn tillögur að breytingum þeirra.
2
FESTI
Å öðrum fundi, 6. september 2023, var starfsáætlun nefndarinnar formlega samþykkt. Jafnframt því komu til umfjöllunar málefni sem lutu að störfum og starfssviði nefndarinnar, stjórnendaábyrgðartryggingu, vinnustaðamenningu innan samstæðunnar sem og fríðindum starfsmanna hennar.
Å þriðja fundi, 21. nóvember 2023, fór nefndin yfir niðurstöður vinnustaðagreiningar og stjórnendamats, leiðtogabjálfun, arftakaáætlanir, jafnlaunavottun og jafnréttismál, ýmsa tölfræði tengda launum og stöðugildum, greiningar á starfskjórum stjórnenda og samanburð við markaðskjör auk þess að ræða starfskjarastefnu og viðmið fyrir kaupaukaáætlun 2024.
Å fjórða fundi, 8. desember 2023, ræddi nefndin um kaupauka vegna ársins 2023, árangurstengd viðmið fyrir kaupaukaáætlun 2024 og möguleika á langtímahvatakerfi fyrir allt starfsfólk samstæðunnar og lykilstjórnendur hennar sem og útfærslur þess.
Å fimmta fundi, 10. janúar 2024, fór nefndin yfir tillögur um launabreytingar framkvæmdastjórnar, staðfesti árangursviðmið fyrir kaupaukaáætlun forstjóra og framkvæmdastjórnar 2024 og staðfesti að kaupaukar vegna ársins 2023 væru innan heimilda starfskjarastefnu og í samræmi við viðmið. Jafnframt því fjallaði nefndin frekar um langtímahvatakerfi fyrir allt starfsfólk samstæðunnar og lykilstjórnendur hennar, breytingar á starfskjarastefnu og samþykkti að leggja tillögur um breytingar þar að lútandi fyrir stjórn til nánari meðferðar og ákvarðanatöku. Að lokum yfirfór nefndin greiningar á þróun stjórnarlauna og gerði tillögu um þóknun fyrir stjórnar- og nefndarstörf fyrir starfsárið 2024/2025 til stjórnar til frekari umræðu og afgreiðslu í aðdraganda aðalfundar 2024.
Å sjötta og síðasta fundi starfsársins, 7. febrúar 2024, kom til umfjöllunar sjálfmat á störfum nefndarinnar auk þess sem nefndin fjallaði um og afgreiddi skýrslu til stjórnar um framkvæmd starfskjarastefnu.
Laun og hlunnindi stjórnar og stjórnenda í ársreikningi 2023:
Laun og hlunnindi stjórnar og stjórnenda fyrir vinnu þeirra í þágu samstæðunnar og nafnverð hlutabréfa í þeirra eigu eru tilgreind með eftirfarandi hætti í ársreikningi 2023:
| 2023 | Laun | Hlunnindi | Árangurs-tengd laun | Nafnverð hluta í árslok |
|---|---|---|---|---|
| Stjórn | ||||
| Guðjón Karl Reynisson, stjórnarformaður | 10.929 | 609.391 | ||
| Sigurlina Ingvarsdóttir, varaformaður | 8.486 | |||
| Hjörleitur Pálsson, stjórnarmaður | 6.293 | 40.000 | ||
| Magnús Júliusson, stjórnarmaður | 6.053 | 215.861 | ||
| Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður | 4.757 | 178.014 | ||
| Lykilstjórnendur | ||||
| Asta S. Fjeldsted, forstjóri | 53.097 | 6.300 | 14.400 | 96.000 |
| Eggert Þór Kristófersson, fyrverandi forstjóri | 35.092 | 2.522 | 12.900 | |
| Fimm framkvæmdastjórar | 144.097 | 11.468 | 29.032 | 500.000 |
| Tveir fyrverandi framkvæmdastjórar | 32.112 | 2.749 | 17.550 | 74.902 |
| Samtals | 300.916 | 23.039 | 73.882 | 1.714.168 |
Í ársreikningi 2023 eru árangurstengdar greiðslur fyrir árið 2022 en laun og hlunnindi fyrir árið 2023.
Kaupaukar vegna rekstrarársins 2023, sem munu birtast í ársreikningi 2024, verða eftirfarandi:
Forstjóri mun fá ígildi þriggja mánaðarlauna, fimm framkvæmdastjórar ígildi 11,27 mánaðarlauna samtals og tveir fyrverandi framkvæmdastjórar ígildi 2,64 mánaðarlauna samtals.
3
FESTI
Tillaga starfskjaranefndar til stjórnar um þóknun stjórnar- og nefndarmanna starfsárið 2024/2025:
a. Tillaga um þóknun stjórnarmanna.
Stjórn leggur til, á grundvelli umsagnar og tillögu starfskjaranefndar, að þóknun til stjórnarmanna fyrir starfsárið 2024/2025 verði eftirfarandi:
- Stjórnarformaður fái kr. 860.000 á mánuði
- Varaformaður stjórnar fái kr. 640.000 á mánuði
- Aðrir stjórnarmenn fái kr. 430.000 á mánuði
Tillaga felur í sér að þóknun stjórnarformanns og stjórnarmanna hækkar um 4,9% frá fyrra starfsári en þóknun varaformanns stjórnar um 4,1%.
b. Tillaga um þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd.
Stjórn leggur til, á grundvelli umsagnar og tillögu starfskjaranefndar, að þóknun til nefndarmanna starfskjaranefndar fyrir starfsárið 2024/2025 verði eftirfarandi:
- Formaður fái kr. 130.000 á mánuði
- Aðrir nefndarmenn fái kr. 70.000 á mánuði
Tillaga felur í sér að þóknun formanns starfskjaranefndar hækkar um 8,3% frá fyrra starfsári en þóknun annarra nefndarmanna um 7,7%.
c. Tillaga um þóknun nefndarmanna í endurskoðunarnefnd.
Stjórn leggur til, á grundvelli umsagnar og tillögu starfskjaranefndar, að þóknun til nefndarmanna endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2024/2025 verði eftirfarandi:
- Formaður fái kr. 210.000 á mánuði
- Aðrir nefndarmenn fái kr. 105.000 á mánuði
Tillaga felur í sér að þóknun nefndarmanna fyrir setu í endurskoðunarnefnd hækkar um 5% frá fyrra starfsári.
d. Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
Stjórn leggur til, á grundvelli umsagnar og tillögu starfskjaranefndar, að þóknun til nefndarmanna tilnefningarnefndar fyrir starfsárið 2024/2025 verði eftirfarandi:
- Formaður fái kr. 170.000 á mánuði
- Aðrir nefndarmenn fái kr. 130.000 á mánuði
Tillaga felur í sér að þóknun formanns tilnefningarnefndar hækkar um 6,3% frá fyrra starfsári en þóknun annarra nefndarmanna um 4%.
e. Tillaga um þóknun fyrir setu í fjárfestingarráði.
Stjórn leggur til, á grundvelli umsagnar og tillögu starfskjaranefndar, að þóknun fyrir setu í fjárfestingarráði á starfsárinu 2024/2025 verði eftirfarandi:
- Formaður fái kr. 100.000 á mánuði
- Ráðsmaður fái kr. 70.000 á mánuði
- Þóknun greiðist ekki til starfsmanna Festi hf. eigi þeir setu í ráðinu.
Fjárfestingarráð hefur ekki verið starfandi frá aðalfundi Festi hf. þann 22. mars 2023.
4
FESTI
Viðmið vegna kaupauka fyrir fjárhagsárið 2023:
Kaupauki sem forstjóri og sex framkvæmdastjórar geta áunnið sér á fjárhagsárinu 2024 er að hámarki þrenn mánaðarlaun. Lúta viðmiðin annars vegar að fjárhagslegum markmiðum (EBITDA og arðsemi eigin fjár) sem taka til allt að tveggja mánaðarlauna og hins vegar til ófjárhagslegra markmiða sem geta að hámarkið numið einum mánaðarlaunum.
Kaupréttir lykilstjórnenda og starfsfólks:
Starfskjaranefnd telur mikilvægt að gætt sé að því að hvatakerfi stjórnenda takmarkist ekki við skammtímaárangur og að í framtíðinni verði umbunað fyrir árangur til lengri tíma í þágu hluthafa. Nefndin fékk það hlutverk á starfsárinu að útfæra tillögu til stjórnar um kaupréttarkerfi sem hægt væri að kynna fyrir hluthöfum á aðalfundi 2024. Tillaga liggur nú fyrir og mun stjórn að óbreyttu gera annars vegar að tillögu sinni að tekið verði upp kaupréttarkerfi til handa lykilstjórnendum og hins vegar kerfi sem stendur öllu starfsfólki til boða í samræmi við efni 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og getur, að fengnu samþykki ríkisskattstjóra, leitt til þess að ávinningur skattleggist sem fjármagnstekjur að uppfylltum skilyrðum. Kaupréttarkerfi hafa ekki áður verið við lýði hjá Festi hf. en tilvísanir í kauprétti er að finna í starfskjarastefnu félagsins. Nefndin taldi engu að síður rétt að leggja til við stjórn að afmarka skýrar heimildir til kauprétta í starfskjarastefnu og bera undir hluthafa til afgreiðslu auk tillagna um útgáfu kauprétta.
Annað:
Engir sérstakir annmarkar komu fram við störf nefndarinnar á starfsárinu. Hún hafði eðlilegan aðgang að gögnum og átti í góðu samstarfi við stjórn, forstjóra og aðra stjórnendur.
Við teljum að við höfum rækt þær skyldur sem á okkur eru lagðar af hluthöfum og stjórn og með því stutt við markmið í starfskjarastefnu félagsins um að stýðja við framtíðarsýn félagsins um áframhaldandi sókn þar sem gildi þess eru höfð að leiðarljósi.
Kópavogi, 7. febrúar 2024.
Í starfskjaranefnd Festi hf.
Hjörleifur Pálsson, formaður
Guðjón Reynisson
Margrét Guðmundsdóttir
5