Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Share Issue/Capital Change 2026

May 19, 2026

2195_rns_2026-05-19_e33d47c3-fce2-434b-8f87-8ff076d15657.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Breyting á fjölda eigin hluta félagsins vegna efnda á kaupréttarsamningum

Festi hf.: Breyting á fjölda eigin hluta félagsins vegna efnda á kaupréttarsamningum

Á öðru nýtingartímabili samkvæmt kaupréttaráætlun fyrir starfsfólk Festi hf. (hér eftir „Festi“ eða félagið) og dótturfélaga, sem samþykkt var á aðalfundi 6. mars 2024, bárust tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 1.307.853 hluta í félaginu á genginu 180 og 213.283 hluta á genginu 290,1 á hvern hlut (kaupgengi aðlagað að teknu tilliti til arðgreiðslna frá gerð kaupréttarsamninga) eða fyrir heildarfjárhæð kr. 297.286.902.

Í kjölfar nýtingar kaupréttar samkvæmt kaupréttaráætluninni og í tengslum við uppgjörið afhendir félagið alls 1.521.136 hluti til starfsfólks samstæðunnar til efnda á skuldbindingum samkvæmt kaupréttarsamningum.

Festi á eftir afhendingu framangreindra hluta samtals 3.678.864 eigin hluti eða sem nemur 1,18% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi – [email protected] og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrasviðs Festi – [email protected].