AI assistant
Festi — M&A Activity 2024
Apr 10, 2024
2195_rns_2024-04-10_aaf3aaef-0ddd-44ba-82c7-aca0c249e598.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Festi hf.: Ákvörðun um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum Festi og Olís í innviðafélögunum Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. og EBK ehf.
Festi hf.: Ákvörðun um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum Festi og Olís í innviðafélögunum Olíudreifingu ehf., Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. og EBK ehf.
Í tilkynningu Festi, dags. 1. desember 2023, var greint frá því að Festi og Olís, dótturfélag Haga, hefðu sameiginlega ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til ráðgjafar um stefnu og framtíðarmöguleika hvað varðar eignarhluti félaganna í Olíudreifingu ehf. („Olíudreifing“), Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli ehf. („EAK“) og EBK ehf. („EBK“).
Í framhaldi af þeirri stefnumarkandi vinnu sem hefur átt sér stað hafa Festi og Olís komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu, EAK og EBK.
Nánar verður upplýst um framgang málsins um leið og tilefni er til.
Olíudreifing er 60% í eigu Festi og 40% í eigu Olís en félögin tvö fara jafnframt hvort um sig með 33,33% hlut í EAK og 25% hlut í EBK.
Félögin eru mikilvæg innviðafélög hvað varðar birgðahald og dreifingu á eldsneyti á Íslandi. Meginstarfsemi Olíudreifingar er birgðahald og dreifing á eldsneyti um land allt en meginstarfsemi EAK og EBK er birgðahald og dreifing á flugvélaeldsneyti á Keflavíkurflugvelli.
