Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi M&A Activity 2024

May 14, 2024

2195_rns_2024-05-14_3f2cc952-8865-4fee-8680-27856deef98b.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf: Kaup Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. - Frestur Samkeppniseftirlitsins til rannsóknar framlengdur til 19. júní 2024 og lokadagur samkvæmt kaupsamningi til 1. júlí 2024

Festi hf: Kaup Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. - Frestur Samkeppniseftirlitsins til rannsóknar framlengdur til 19. júní 2024 og lokadagur samkvæmt kaupsamningi til 1. júlí 2024

Samkeppniseftirlitið hefur fallist á beiðni Festi um að frestur til að ljúka rannsókn vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé Lyfju hf. verði framlengdur um 20 virka daga frá 21. maí nk. að telja. Samkvæmt því er tímafrestur Samkeppniseftirlitsins til að ljúka rannsókninni að hámarki til 19. júní nk.  

Samhliða því hafa Festi, sem kaupandi, og SID ehf., sem seljandi, undirritað samkomulag sem kveður á um að skilgreindur lokadagur samkvæmt kaupsamningi aðila sé 1. júlí 2024 í stað 15. maí 2024.

Svo sem upplýst var um í tilkynningu Festi, dags. 15. apríl 2024, eru yfirstandandi sáttaviðræður á milli Festi og Samkeppniseftirlistins um möguleg skilyrði vegna kaupanna. Verður nánar upplýst um framgang málsins og þeirra viðræðna um leið og tilefni er til.

Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi ([email protected]), og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi ([email protected]).