AI assistant
Festi — M&A Activity 2021
Jun 30, 2021
2195_rns_2021-06-30_2875a62b-8758-445d-b719-1b5b7a7f9af9.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Festi hf. - Sala á 4 fasteignum til Reita
Festi hf. - Sala á 4 fasteignum til Reita
Festi hf. hefur samþykkt kauptilboð frá Reitum hf. í fjórar fasteignir félagsins:
- Austurvegur 1-5, Selfossi (50% eignarhlutur)
- Dalbraut 1, Akranesi
- Háholt 13-15, Mosfellsbæ
- Hafnargata 2, Reyðarfirði
Salan er hluti af stefnu félagsins um sölu fasteigna þar sem eigin starfsemi félagins er undir ákveðnu hlutfalli í viðkomandi eign. Samhliða sölunni mun Krónan framlengja leigusamninga sína til 15 ára og leggur áherslu á að salan mun engin áhrif hafa á rekstur Krónunnar á þessum stöðum. Salan er háð samþykki opinberra aðila og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Söluverð fasteignanna er 4.150 m.kr. og áætlaður söluhagnaður er 997 m.kr.
Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri, ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri, ([email protected])