Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Interim / Quarterly Report 2022

Oct 26, 2022

2195_rns_2022-10-26_ecdc15ef-58e5-451c-a7f0-eff87647aec9.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

FESTI

  1. október 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022

Hagnaður 1.562 milljónir króna á 3. ársfjórðungi 2022

Helstu niðurstöður

  • Vörusala nam 35.146 millj. kr. samanborið við 27.064 millj. kr. árið áður og jókst um 29,9% milli ára.
  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 7.063 millj. kr. Framlegðarstig nam 20,1% og lækkar um 5,3 p.p. mestmegnis vegna hækkunar á hrávöruverðum á heimsmarkaði milli ára.
  • Viðbótarkostnaður fellur til vegna fjárfestinga í nýjum verslunum, dekkjaverkstæðum og veitingastöðum sem opnuðu í ársfjórðungnum.
  • Tekjur einskiptisliða á þriðja ársfjórðungi nema 358 millj. kr. vegna endurgreiðslu flutningsjöfnunar-sjóðsgjalds en gjöldin 76 millj. kr. vegna starfsloka fyrrum forstjóra.
  • EBITDA nam 3.067 millj. kr. samanborið við 3.346 millj. kr. á 3F 2021, sem jafngildir 8,3% lækkun milli ára.
  • Eigið fé í lok 3F 2022 nam 33.654 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 36,1% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru 28.157 millj. kr. í lok 3F 2022 samanborið við 23.309 millj. kr. í lok árs 2021.
  • EBITDA spá félagsins fyrir árið 2022 er hækkuð um 200 millj. kr. og er nú 10.000 - 10.400 millj. kr.
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Rekstrarreikningar
Vöru- og þjónustusala 35.146 27.064 8.083 29,9% 89.654 72.308 17.346 24,0%
Framlegð af vöru- og þjónustusölu 7.063 6.875 189 2,7% 20.123 18.124 1.999 11,0%
Aðrar rekstrartekjur 801 534 267 50,0% 1.714 1.593 121 7,6%
EBITDA 3.067 3.346 -279 -8,3% 7.726 7.309 418 5,7%
EBIT 2.218 3.026 -807 -26,7% 5.179 5.505 -326 -5,9%
EBT 1.892 2.848 -956 -33,6% 4.100 4.449 -349 -7,8%
Hagnaður tímabilsins 1.562 2.286 -724 -31,7% 3.373 3.618 -244 -6,8%
Efnahagsreikningar 30.9.2022 31.12.2021 Breyt. % Breyt.
Birgðir 13.990 9.545 4.445 46,6%
Viðskiptakröfur 6.650 4.757 1.892 39,8%
Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga 29.301 27.312 1.990 7,3%
Handbært fé 1.144 4.003 -2.858 -71,4%
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga 28.157 23.309 4.848 20,8%
Sjóðstreymi 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Handbært fé frá rektri 1.318 4.022 -2.703 -67,2% 2.777 7.404 -4.627 -62,5%
Fjárfestingarhreyfingar -826 372 -1.199 -322,1% -3.403 -96 -3.307 3454,7%
Fjármögnunarhreyfingar -1.487 -3.287 1.800 -54,8% -2.282 -5.647 3.365 -59,6%
Handbært fé í lok tímabils 1.144 4.245 -3.101 -73,0% 1.144 4.245 -3.101 -73,0%
Lykiltölur
Framlegð af vörusölu 20,1% 25,4% -5,3% -20,9% 22,4% 25,1% -2,6% -10,5%
EBITDA/framlegð 43,4% 48,7% -5,2% -10,8% 38,4% 40,3% -1,9% -4,8%
Eiginfjárhlutfall 36,1% 39,4% -3,3% -8,5% 36,1% 35,7% 0,4% 1,1%
Laun/framlegð 46,8% 40,0% 6,8% 16,9% 48,3% 47,4% 0,9% 2,0%
Fjárfestingar 1.220 546 673 123,2% 4.335 1.535 2.799 182,3%
Veltuhraði birgða 7,7 8,5 -0,8 -8,9% 7,7 8,5 -0,8 -8,9%

FESTI

  1. október 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022

Rekstur 3. ársfjórðungs 2022

Rekstur félagsins gekk ágætlega á þriðja ársfjórðungi. Vörusala jókst um 29,9% milli ára og hefur aldrei verið hærri í einum ársfjórðungi. Mikil aukning erlendra ferðamanna en færri Íslenðingar að ferðast um landið einkenndu allan fjórðunginn. Góð magnaukning var á öllum sviðum rekstrar en gríðarleg hækkun hrávöruverða hafði mikil áhrif á framlegðarstig sem lækkaði um 5,3 p.p. milli ára. Niðurstaða rekstrar var í takt við áætlanir félagsins. Afkoma N1 var 356 millj. kr. verri en árið áður en neikvæður mismunur í hagnaði olíuvarna milli ára nemur 192 millj. kr. Afkoma ELKO var 38 millj. kr. betri en árið áður og afkoma Krónunnar svipuð. EBITDA félagsins nam 3.067 millj. kr. sem er 279 millj. kr. verri afkoma en í sama fjórðungi árið áður.

Tekjur 3. ársfjórðungs 2022

  • Tekjur af vöru- og þjónustusölu námu 35.146 millj. kr. sem er um 29,9% aukning milli ára.
  • Tekjur af dagvörusölu námu 15.261 millj. kr. sem er aukning um 13,2% milli ára.
  • Tekjur af eldsneytis- og rafmagnssölu jukust um 5.538 millj. kr. milli ára eða 71,5%.
  • Tekjur af raftækjasölu námu 4.449 millj. kr. sem er 16,6% aukning milli ára.
  • Tekjur af annarri vöru- og þjónustusölu námu 2.156 millj. kr. sem er aukning um 6,5% milli ára.
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Vöru- og þjónustusala
Dagvörur 15.261 13.482 1.779 13,2% 41.566 38.891 2.675 6,9%
Eldsneyti og rafmagn 13.280 7.742 5.538 71,5% 30.141 17.638 12.503 70,9%
Raftæki 4.449 3.816 633 16,6% 11.765 10.543 1.222 11,6%
Aðrar vörur og þjónusta 2.156 2.024 132 6,5% 6.182 5.235 947 18,1%
Samtals vöru-og þjónustusala 35.146 27.064 8.083 29,9% 89.654 72.308 17.346 24,0%
Aðrar rekstrartekjur 801 534 267 50,0% 1.714 1.593 121 7,6%
Tekjur samtals 35.948 27.598 8.350 30,3% 91.368 73.900 17.468 23,6%

Tekjur af dagvörusölu jukust um 13,2% milli ára en verslunum Krónunnar fjölgaði um eina frá fyrra ári með opnun nýrrar verslunar í Borgartúni í maí sl. Pá opnaði Krónan nýja stærri verslun í Skeifunni í byrjun júlí en lokaði minni verslun í sama hverfi á sama tíma. Tekjur af eldsneyti og rafmagni hækkuðu um 71,5% milli ára en hækkun á heimsmarkaðsverði eldsneytis nam á bilinu 40-90% milli vörutegunda. Selt magn nam um 65,6 millj. lítra og jókst um 13,2% milli ára en aukning varð í sölu allra eldsneytistegunda milli ára. Tekjur af raftækjasölu jukust um 16,6% en mesta aukningin þar kemur frá verslunum félagsins á Keflavíkurflugvelli. ELKO opnaði einnig nýja stærri verslun í Skeifunni í júlí en eldri verslun var notuð í september til að selja gamlar birgðir á útsölu. Tekjur af öðrum vörum og þjónustu aukast um 6,5% milli ára en N1 opnaði nýtt verkstæði fyrir bifreiðapjónustu sína í Klettagörðum í september sl.


FESTI

  1. oktober 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022

Framlegð af vöru- og þjónustusölu á 3. ársfjórðungi 2022

  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 7.063 millj. kr. sem er 2,7% aukning milli ára.
  • Framlegð af dagvörusölu nam 3.611 millj. kr. sem er aukning um 7,1% milli ára.
  • Framlegð af eldsneytis- og rafmagnssölu nam 1.457 millj. kr. sem er 362 millj. kr. lægri en árið áður. Framlegðarstig nam 11,0% og lækkar um 12,5 p.p. milli ára.
  • Framlegð af raftækjasölu nam 1.137 millj. kr. sem er aukning um 20,0% milli ára.
  • Framlegð af öðrum vörum og þjónustu nam 858 millj. kr. sem er aukning um 16,6% milli ára.
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Framlegð af vöru- og þjónustusölu
Dagvörur 3.611 3.373 239 7,1% 9.846 9.367 479 5,1%
Eldsneyti og rafmagn 1.457 1.818 -362 -19,9% 4.694 3.983 711 17,8%
Raftæki 1.137 948 189 20,0% 3.039 2.720 319 11,7%
Aðrar vörur og þjónusta 858 736 122 16,6% 2.544 2.053 490 23,9%
Samtals framlegð af vöru- og þjónustusölu 7.063 6.875 189 2,7% 20.123 18.124 1.999 11,0%

Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 7.063 millj. kr. samanborið við 6.875 millj. kr. á þriðja ársfjórðungi 2021 sem er 2,7% hækkan milli ára. Framlegð af dagvörusölu nam 3.611 millj. kr. sem er 7,1% aukning á milli ára. Framlegð af eldsneyti og rafmagni nam 1.457 millj. kr. sem er um 362 millj. kr. samdráttur milli ára. Framlegðarstig eldsneytis lækkar úr 23,5% í 11,0% eða 12,5 p.p. Neikvæður mismunur í hagnaði af eldsneytisvörunum nemur 192 millj. kr. milli ára en einnig er lægri framlegð per krónu á seldan líter milli ára, sérstaklega í sölu á bensíni. Framlegð af raftækjasölu nam 1.137 millj. kr. sem er 20,0% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu nam 858 millj. kr. sem er aukning um 16,6% milli ára.

Rekstrarkostnaður 3. ársfjórðungs 2022

  • Rekstrarkostnaður á 3F 2022 var 4.798 millj. kr. og hækkar um 735 millj. kr. frá 3F 2021 eða um 18,1%.
  • Launa- og starfsmannakostnaður hækkar um 555 millj. kr. milli ára eða um 20,2%.
  • Annar rekstrarkostnaður hækkar um 180 millj. kr. milli ára eða um 13,7%
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Rekstrarkostnaður
Laun og annar starfsmannakostnaður 3.307 2.752 555 20,2% 9.721 8.587 1.134 13,2%
Annar rekstrarkostnaður
Rekstarkostnaður fasteigna 446 397 49 12,2% 1.305 1.123 182 16,2%
Viðhaldskostnaður 261 224 37 16,7% 690 655 35 5,4%
Sölu og markaðskostnaður 399 302 97 32,1% 1.110 889 221 24,9%
Samskiptakostnaður 209 161 48 29,6% 604 496 107 21,6%
Skrifstofu og stjörnunarkostnaður 91 73 18 24,6% 291 275 16 5,9%
Vátrygginga og tjónakostnaður 26 94 -68 -72,8% 144 193 -49 -25,4%
Niðurfærsla krafna og tapaðar kröfur -10 12 -22 -179,1% 38 36 2 5,0%
Annar kostnaður 69 47 22 46,8% 207 154 53 34,7%
Samtals annar rekstrarkostnaður 1.491 1.311 180 13,7% 4.389 3.821 568 14,9%
Samtals rekstrarkostnaður 4.798 4.063 735 18,1% 14.110 12.408 1.703 13,7%

FESTI

  1. oktober 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022

Laun og annar starfsmannakostnaður á 3F 2022 nam 3.307 millj. kr. samanborið við 2.752 millj. kr. á sama tíma árið áður sem er 20,2% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda nam 1.326 á fjórðungnum sem er fjölgun um 110 stöðugildi milli ára. Tvær samningsbundnar launahækkanir tóku gildi á milli tímabilanna eða í janúar 2022 og apríl 2022 sem höfðu 131 millj. kr. áhrif til hækkunar milli ára. Þá er kostnaður vegna starfsloka fyrrum forstjóra 76 millj. kr. gjaldfærður á fjórðungnum. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu á hækkun launa og annars starfsmannakostnaðar í millj. kr. milli ára:

Laun og launatengd gjöld samtals 3F 2021 2.752
Stöðugildi - breyting 249
Samningsbundnar launahækkanir 131
Orlofsskuldbinding 15
Starfsmannakostnaður -2
Annað 162
Laun og launatengd gjöld samtals 3F 2022 3.307

Annar rekstrarkostnaður var 1.491 millj. kr. samanborið við 1.311 m.kr. á 3F 2021, sem er hækkun um 13,7% milli ára. Aukningin stafar að mestu vegna sölutengds kostnaðar sem hækkar með meiri veltu og aukinna umsvifa í kjölfar afléttingar samkomutakmarkana.

Fjármagnsliðir 3. ársfjórðungs 2022

  • Nettó fjármagnskostnaður og áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 326 millj. kr. samanborið við 178 millj. kr. frá árinu áður. Aukningin er því 149 millj. kr. milli ára.
  • Fjármagnstekjur námu 173 millj. kr. og hækka um 132 millj. kr. milli ára.
  • Fjármagnsgjöld námu 715 millj. kr. og hækkuðu um 330 millj. kr. milli ára.
  • Áhrif hlutdeildarfélaga námu 216 millj. kr. og hækkuðu um 49 millj. kr. milli ára.
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Fjármagnstekjur 173 40 132 328,4% 267 89 178 200,7%
Fjármagnsgjöld -715 -385 -330 85,6% -1.730 -1.437 -292 20,3%
Áhrif hlutdeildarfélaga 216 167 49 29,1% 385 293 92 31,3%
Samtals -326 -178 -149 83,5% -1.078 -1.056 -23 2,1%

Fjármagnstekjur nema 173 millj. kr. og hækka um 132 millj. kr. milli ára. Rúmlega helmingur af hækkuninni eða 68 millj. kr. er vegna gengishagnaðar. Fjármagnsgjöld nema 715 millj. kr. og hækka um 330 millj. kr. milli ára mestmegnis vegna áhrifa af hækkunum stýrisvaxta Seðlabankans milli ára. Áhrif hlutdeildarfélaga nema 216 millj. kr. og hækka um 49 millj. kr. milli ára.

Efnahagur og fjárhagsleg staða í lok 3F 2022

  • Heildar eignir námu 93.215 millj. kr. í lok 3F 2022 og hafa aukist um 7.243 millj. kr. frá áramótum.
  • Fastafjármunir námu 70.454 millj. kr. og hafa aukist um 3.676 millj. kr. frá áramótum.
  • Veltufjármunir námu 22.761 millj. kr. og hafa aukist um 3.567 millj. kr. frá áramótum
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,1% í lok 3F 2022 samanborið við 39,4% í árslok 2021.
  • Handbært fé nam 1.144 millj. kr. í lok 3F 2022 sem er lækkun um 2.858 millj. kr. frá áramótum.

FESTI

  1. október 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022
Milljónir króna 30.9.2022 31.12.2021 Breyt. % Breyt.
Viðskiptavild 14.668 14.668 0 0,0%
Aðrar óefnislegar eignir 4.567 4.744 -178 -3,7%
Rekstrarfjármunir 34.017 32.544 1.473 4,5%
Leigueignir 7.978 6.155 1.822 29,6%
Fjárfestingarfasteignir 6.494 6.100 393 6,4%
Birgðir 13.990 9.545 4.445 46,6%
Viðskiptakröfur 6.650 4.757 1.892 39,8%
Handbært fé 1.144 4.003 -2.858 -71,4%
Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga 29.301 27.312 1.990 7,3%
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga 28.157 23.309 4.848 20,8%
Nettó vaxtaberandi skuldir 36.500 29.731 6.769 22,8%
Eignfjárhlutfall 36,1% 39,4% -3,3 p.p. -8,5%
Veltuhraði vörubirgða 7,7 8,5 -0,8 -8,9%

Viðskiptavild nam 14.668 millj. kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.567 millj. kr. í lok 3F 2022. Rekstrarfjármunir námu 34.017 millj. kr. og fjárfestingarfasteignir 6.494 millj. kr. og hækka um 393 millj. kr. frá áramótum.

Vörubirgðir hækka um 4.445 millj. kr. vegna hækunar hrávöruverðs og opnun nýrra verslana á 2. og 3. ársfjórðungi. Viðskiptakröfur hækka um 1.892 millj. kr. frá áramótum í takt við hækun heimsmarkaðsverðs og vegna árstíðasveiflu í rekstrinum.

Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga námu samtals 28.157 millj. kr. sem er hækun um 4.848 millj. kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,1% í lok 3F 2022 samanborið við 39,4% í lok árs 2021. Lausafjárstaða félagsins er góð og efnahagsreikningur félagsins sterkur.

Sjóðstreymi 3. ársfjórðungs 2022

  • Handbært fé frá rekstri á 3F 2022 var 1.318 millj. kr. samanborið við 4.022 millj. kr. á 3F 2021.
  • Fjárfestingahreyfingar neikvæðar um 826 millj. kr., sem er breyting um 1.199 millj. kr. milli ára.
  • Fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 1.487 millj. kr., minnkun um 1.800 millj. kr. milli ára.
Milljónir króna 3F 2022 3F 2021 Breyt. % Breyt. 9M 2022 9M 2021 Breyt. % Breyt.
Sjóðstreymi
Handbært fé í byrjun tímabils 2.085 3.134 -1.050 -33,5% 4.003 2.563 1.440 56,2%
Handbært fé frá rekstri 1.318 4.022 -2.703 -67,2% 2.777 7.404 -4.627 -62,5%
Fjárfestingarhreyfingar -826 372 -1.199 -322,1% -3.403 -96 -3.307 3454,7%
Fjármögnunarhreyfingar -1.487 -3.287 1.800 -54,8% -2.282 -5.647 3.365 -59,6%
Gengismunur af handbæru fé 55 4 51 1257,1% 49 21 28 132,8%
Breyting á handbæru fé -940 1.111 -2.051 -184,6% -2.858 1.682 -4.541 -269,9%
Handbært fé í lok tímabils 1.144 4.245 -3.101 -73,0% 1.144 4.245 -3.101 -73,0%

FESTI

  1. október 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2022

Handbært fé frá rekstri á 3F 2022 nam 1.318 millj. kr. sem er lækkun um 2.703 millj. kr. milli ára. Aukin fjárbinding í vörubirgðum og viðskiptakröfum skýrir breytinguna milli ára vegna gríðarlegra hækkana heimsmarkaðsverða á hrávörum en einnig voru greiddar 900 millj. kr. í lok september með eindaga í byrjun október þar sem eindaginn kom upp á helgi. Fjárfestingar námu 1.220 millj. kr. sem er aukning um 673 millj. kr. milli ára. Kaup á eigin bréfum námu 901 millj. kr. og afborganir á vaxtaberandi lánum námu um 400 millj. kr. Handbært fé lækkæði um 940 millj. kr. á þriðja ársfjórðungi 2022 og nam 1.144 millj. kr. í lok september 2022.

Horfur í rekstri Festi hf. og EBITDA spá 2022

Á grunni afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2022 og mati stjórnenda á horfum út árið þá er EBITDA spá félagsins fyrir árið 2022 hækkæði um 200 millj. kr. eða í 10.000 - 10.400 millj. kr.

Eftirfarandi utanaðkomandi þættir geta haft mikil áhrif á rekstur félagsins:

  • Áhrif innrásar Rússá í Úkraínu á vöruframboð
  • Miklar breytingar á heimsmarkaðsverði á hrávöru og gengi ISK
  • Mikil verðbólga á alþjóðamörkuðum þar með talið á Íslandi
  • Óvissa um fjölda ferðamanna til Íslands og ferðalög Íslendinga til útlanda

Eiginfjárhlutfall félagsins er 36,1% í lok fjórðungsins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Horfur í rekstrinum eru góðar og félagið er í vel stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.

Hluthafar

  • Markaðsvirði félagsins í lok 3F 2022 nam 59 milljörðum króna.
  • Hluthafar félagsins voru 1.229 í lok 3F 2022.

Kynningarfundur fimmtudaginn 27. október 2022

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 27. október 2022 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14, 3. hæð og hefst kl. 08:30. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar

Forstjóri í fæðingarorlof frá og með 1. nóvember nk.

Forstjóri Festi, Ásta S. Fjeldsted, fer í fæðingarorlof frá og með 1. nóvember nk. Staðgengill hennar er Magnús Kr. Ingason, sem mun gegna hlutverki forstjóra sem og hlutverki fjármálastjóra á meðan fæðingarorlofi stendur.

Fjárhagsdagatal

  • Ársuppgjör 2022: 8. febrúar 2023
  • Aðalfundur 2023: 22. mars 2023

Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]).