Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Interim / Quarterly Report 2019

May 20, 2019

2195_rns_2019-05-20_e015e71a-b6e0-4f48-99ab-68aeba54fd69.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

FESTI

  1. mai 2019

Hagnaður Festi 52 milljónir króna á 1. ársfjórðungi 2019

Helstu niðurstöður

  • Fjölgun félaga í samstæðu skýrir að mestu hækkanir á tekjum og gjöldum á 1F 2019 í samanburði við 1F 2018 og gerir það samanburð milli tímabila erfiðan
  • EBITDA að undanskildum kostnaði við kaup á Hlekk nam 1.367 m.kr. á 1F 2019 samanborið við 436 m.kr. 1F 2018
  • Minni umsvif voru í sölu annarra vara en eldsneytis í samstæðunni en gert hafði verði ráð fyrir á 1F 2019 en þó skar Krónan sig úr þar sem sala var umfram væntingar
  • Selt magn af bensíni og gasoliu minnkaði um 2,4% á milli 1F 2019 og 1F 2018, að mestu leyti á höfuðborgarsvæðinu
  • Eigið fé var 26.021 m.kr. og eiginfjárhlutfall 32,0% í lok 1F 2019
Milljónir króna 1F 2019 1F 2018 Breyt. % Breyt.
Rekstrarreikningur
Framlegð af vörusölu 4.231 1.989 2.242 112,7%
Leigutekjur fasteigna og aðrar rekstrartekjur 372 106 267 252,7%
EBITDA 1.329 401 929 231,9%
EBIT 563 153 410 268,6%
EBT 61 89 -28 -31,3%
Hagnaður tímbilsins 52 76 -25 -32,5%
Efnahagsreikningur
Birgðir 7.092 3.252 3.840 118,1%
Viðskiptakröfur 3.607 3.051 556 18,2%
Vaxtaberandi skuldir 41.002 8.000 33.002 412,5%
Handbært fé 4.411 2.387 2.024 84,8%
Nettó vaxtaberandi skuldir 36.709 5.661 31.048 548,5%
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri 690 -252 942 -373,6%
Fjárfestingarhreýfingar -233 -163 -70 42,9%
Fjármögnunarhreýfingar -345 0 -345
Handbært fé í lok tímabils 4.411 2.387 2.024 84,8%
Lykiltölur
EBITDA/framlegð 31,4% 20,1% 11,3% 56,0%
Eiginfjárhlutfall 32,0% 49,0% -17,0% -34,7%
Laun/framlegð 54,1% 55,0% -0,9% -1,6%
Hagnaður á hlut 0,16 0,31 -0,15 -49,5%
Arðsemi eigin fjár 0,8% 2,2% -0,01 -63,6%
Fjárfestingar -454 -171 -283 166,1%
Veltuhraði birgða 7,61 7,49 0,12 1,7%

FESTI

  1. mai 2019

Rekstur fyrsta ársfjórðungs

Milljónir króna 1F 2019 1F 2018 Breyt. % Breyt.
Rekstrarreikningur
Framlegð af vörusölu 4.231 1.989 2.242 112,7%
Leigutekjur fasteigna og aðrar rekstrartekjur 372 106 267 252,7%
Laun og annar starfsmannakostnaður -2.291 -1.094 1.196 109,3%
Sölukostnaður -258 -211 46 21,9%
Annar rekstarkostnaður -725 -389 337 86,6%
EBITDA 1.329 401 929 231,9%

EBITDA á 1F 2019 var 1.329 m.kr. samanborið við 401 m.kr. á 1F 2018 en kostnaður við kaup á Hlekk nam 37 m.kr. á 1F 2019 og 35 m.kr. á 1F 2018. Minni umsvif voru í sölu annarra vara en eldsneytis í samstæðunni en gert hafði verði ráð fyrir á 1F 2019, en þó skar Krónan sig úr þar sem sala var umfram væntingar.

Tekjur á fyrsta ársfjórðungi

Púsundir litra / velta í öðrum vörum í milljónum króna 1F 2019 1F 2018 Breyt. % Breyt.
Selt magn - bensín 10.104 10.967 -864 -7,9%
Selt magn - gasolía 20.637 20.523 114 0,6%
Selt magn - heild án JET 42.007 43.094 -1.088 -2,5%
Velta annarra vara 12.949 2.381 10.568 443,8%
Framlegð eldsneytis 991 968 23 2,4%
Framlegð annarra vara 3.240 1.022 2.218 217,1%

Selt magn án JET dróst saman um 2,5% á 1F 2019 samanborið við 1F 2018, sem skýrist af minni umsvifum í sjávarútvegi. Selt magn af bensín og gasolíu minnkaði um 2,4% á milli 1F 2019 og 1F 2018 að mestu leyti á höfuðborgarsvæðinu. Breytt sölusamsetning í eldsneyti skýrir að mestu að framlegð á seldan lítra eldsneytis er hærri er á 1F 2019 miðað við 1F2018. Velta annarra vara jókst um 443,8% á 1F 2019 samanborið við 1F 2018 sem skýrist af nýjum félögum í samstæðunni. Minni umsvif voru í sölu annarra vara en eldsneytis í samstæðunni en gert hafði verði ráð fyrir á 1F 2019, en þó skar Krónan sig úr þar sem sala var umfram væntingar.

Rekstarkostnaður á fyrsta ársfjórðungi


FESTI

  1. mai 2019
Milljónir króna 1F 2019 1F 2018 Breyt. % Breyt.
Launa- og starfsmannakostnaður -2.291 -1.094 1.196 109,3%
Sölukostnaður -258 -211 46 21,9%
Annar rekstrarkostnaður -725 -389 337 86,6%

Fjölgun félaga í samstæðu skýrir að mestu kostnaðarhækkanir á 1F 2019 miðað við 1F 2018. Kostnaður við kaup á Hlekk nam 37 m.kr. á 1F 2019 samanborið við 35 m.kr. á 1F 2018.

Fjármagnsliðir

Fjármunatekjur lækka á 1F 2019 vegna lægri stöðu handbærs fjár. Fjármagnsgjöld hækka á 1F 2019 miðað við 1F 2018 vegna hærri stöðu lána og upptöku IFRS 16 en vaxtagjöld hækka um 50 m.kr. vegna upptöku staðalsins.

Milljónir króna 1F 2019 1F 2018 Breyting % Breyting
Fjármunatekjur 19 23 -4 -17,2%
Fjármagnsgjöld -618 -103 515 501,3%
Gengismunur 36 -14 50 -364,7%
Áhrif hlutdeildarfélaga 60 30 31 103,9%
Samtals -502 -64 -438 684,9%

FESTI

  1. mai 2019

Efnahagur og fjárhagsleg staða

Milljónir króna 1F 2019 1F 2018 Breyting % Breyting
Viðskiptavild 14.070 0 14.070
Aðrar óefnislegar eignir 4.519 206 4.313 2097,2%
Rekstrarfjármunir 31.911 16.870 15.041 89,2%
Fjárfestingarfasteignir 8.725 0 8.725
Birgðir 7.092 3.252 3.840 118,1%
Viðskiptakröfur 3.607 3.051 556 18,2%
Handbært fé 4.411 2.387 2.024 84,8%
Nettó vaxtaberandi skuldir 36.709 5.661 31.048 548,5%
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskulda 32.890 5.661 27.229 481,0%
Eiginfjárhlutfall 32,0% 49,0% -17,0% -34,7%
Veltuhraði birgða 7,61 7,49 0,12 1,7%

Eignir og skuldir hækka vegna nýrra félaga í samstæðu. Eiginfjárhlutfall er 32,0% og eru nettó vaxtaberandi skuldir 36.709 m.kr. en þar af eru leiguskuldir 3.819 m.kr. Á 1F 2019 var rekstur Dælunnar seldur í samræmi við sätt við samkeppniseftirlitið en salan hafði óveruleg áhrif. Í byrjun apríl voru seldar fasteignir fyrir um 2.500 m.kr. og verður hluti af söluandvirðinu notaður til að greiða upp vaxtaberandi skuldir, en í lok apríl lauk félagið endurfjármögnun samstæðunnar.

Horfur í rekstri Festi hf. og EBITDA spá 2019

  • Gert er ráð fyrir svipuðum umsvifum í verslun við ferðamenn og á árinu 2018
  • Aukin óvissa er með fjölda ferðamanna til landsins á árinu 2019
  • Órói á olíumörkuðum og gengi ISK getur valdið sveiflum á framlegð og fjárbindingu

EBITDA spá Festi fyrir árið 2019 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA muni verða á bilinu 7.400 – 7.700 m.kr. að undanskildum kostnaði við kaup á Festi hf. en kostnaðurinn er að mestu kominn fram.

Hluthafar

  • Markaðsvirði félagsins í lok mars 2019 nam 37,1 milljörðum króna
  • Aðalfundur var haldinn þann 21. mars síðastliðinn þar sem stjórn var sjálfkjörin.

FESTI

  1. mai 2019

Kynningarfundur þriðjudaginn 21. mai 2019

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 21. mai 2019 í höfuðstöðvum Festi að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum. Fundurinn hefst kl. 8:30 og verður boðið upp á léttan morgunverð frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasiðu Festi: http://festi.is/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/ og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Fjárhagsdagatal

  • Uppgjör 2F 2019: 28. ágúst 2019
  • Uppgjör 3F 2019: 6. nóvember 2019
  • Ársuppgjör 2019: 27. febrúar 2020
  • Aðalfundur 2020: 19. mars 2020

Nánari upplýsingar veita Eggert Kristófersson, forstjóri, ([email protected]) og Pétur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, ([email protected]).