Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Interim / Quarterly Report 2019

Aug 28, 2019

2195_rns_2019-08-28_4327137e-bc4e-421e-bedf-a739406cec2c.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

FESTI

Festi hf.
Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar
1. janúar til 30. júní 2019

Festi hf.
Dalvegi 10-14
201 Kópavogur
Kt. 540206-2010


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda ... 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 6
Efnahagsreikningur ... 7
Eiginfjáryfirlit ... 8
Sjóðstreymisyfirlit ... 9
Skýringar ... 10
Starfsbáttayfirlit ... 16


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34.

Samstæðan

Árshlutareikningurinn innifelur rekstur, efnahag og sjóðstreymi Festi hf. og dótturfélaganna Ego ehf. og Hlekks ehf. auk dótturfélaga Hlekks fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2019. Samanburðarfjárhæðir í rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu, eiginfjáryfirliti og sjóðstreymisyfirliti innifela hins vegar eingöngu rekstur Festi og dótturfélagsins Ego enda urðu Hlekkur og dótturfélög Hlekks ekki hluti af samstæðu Festi fyrr en 1. september 2018. Í upphafi árs 2019 fluttist rekstur eldsneytisstöðva til nýstofnaða rekstrarfélagsins N1 ehf. og vöruhúsarekstur til Bakkans Vöruhótels ehf., en þessi rekstur var áður í móðurfélaginu Festi hf. Bæði félögin eru dótturfélög Hlekks. Móðurfélagið Festi er áfram eigandi fasteigna sem tengist rekstrinum.

Rekstur tímabilisins

Rekstrartekjur samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins námu 40.632 m.kr. sem er 112% hækkun frá sama tímabili árið áður. Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður af rekstri á tímabilinu 601 m.kr. en þegar tekið er tillit til þýðingamunar vegna starfsemi erlends hlutdeildarfélags er heildarafkoma samstæðunnar 641 m.kr. Eigið fé í lok tímabilisins var 26.610 m. kr. að meðtöldu hlutafé að fjárhæð 330 m.kr.

Hlutafé

Hlutafé félagsins nemur 330 m.kr. að nafnvírði og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Á aðalfundi Festi þann 21. mars 2019 var samþykkt tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum. Samkvæmt henni er stjórn heimilt að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Heimildin skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin hlutum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði, í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Heimild þessi gildir fram að aðalfundi félagsins 2020, en þó aldrei lengur en til 21. september 2020, en heimildin hefur ekki verið nýtt. Samhliða voru eldri heimildir til kaupa á eigin hlutum felldar niður.

Hluthafar

Hluthafar félagsins í lok tímabilisins voru 765, en þeir voru 915 í upphafi ársins. Tuttugu stærstu hluthafar félagsins í lok tímabilisins eru:

Stefnir 14,2%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,1%
Gildi - lífeyrissjóður 8,9%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-, B- og S-deild 8,1%
Lansdowne Icav Lansdowne Euro 6,1%
Birta lífeyrissjóður 5,4%
Almenni lífeyrissjóðurinn 4,8%
Stapi lífeyrissjóður 4,7%
Landsbréf 4,4%
Kvika banki hf. 2,6%
Stormtré ehf. 2,5%
Festa - lífeyrissjóður 2,5%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2,5%
Lífsverk lífeyrissjóður 2,1%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 1,5%
Vátryggingafélag Íslands hf. 1,4%
Brekka Retail ehf. 1,3%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 1,2%
Júpiter 1,2%
Íslenski lífeyrissjóðurinn-Lífsbraut 1,2%

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2019 og rekstarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2019.

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra gefi glögga mynd af þróun og árangri í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Festi hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019 og staðfest hann með undirritun sinni.

Kópavogur, 28. ágúst 2019

Stjórn Festi hf.

Margrét Guðmundsdóttir
Formaður

Björgólfur Jóhannsson

Kristín Guðmundsdóttir

Guðjón Karl Reynisson

Þórður Már Jóhannesson

Forstjóri

Eggert Þór Kristófersson

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019


Kőnnunaráritun óháðra endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa í Festi hf.

Við höfum kannað meðfylgjandi árshlutareikning samstæðu Festi hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019. Árshlutareikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á árshlutareikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við reikningsskilastaðla IAS 34 um árshlutareikningsskil eins og hann hefur verið sambýkktur af Evrópusambandinu.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á kőnnuninni.

Umfang kőnnunar

Kőnnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um kőnnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik kőnnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum kőnnunaraðgerðum. Kőnnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.

Ályktun

Við kőnnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2019 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við reikningsskilastaðla IAS 34 um árshlutareikningsskil eins og hann hefur verið sambýkktur af Evrópusambandinu.

Staðfesting skýrslu stjórnar

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir samstæðuárshlutareikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Kópavogur, 28. ágúst 2019

Deloitte ehf.

Þorsteinn Pétur Guðjónsson
endurskoðandi

Rúnar Dór Daníelsson
endurskoðandi

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til. júní 2019


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. janúar til 30. júní 2019

| | Skýr. | 2019
1.4.-30.6. | 2018

1.4.-30.6. | 2019
1.1.-30.6. | 2018
1.1.-30.6. |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6 | 21.390.870 | 10.931.549 | 39.620.471 | 18.914.736 |
| Kostnaðarverð seldra vara | | (16.342.543) | (8.073.436) | (30.341.311) | (14.067.314) |
| Framlegð af vörusölu | 6 | 5.048.326 | 2.858.113 | 9.279.160 | 4.847.421 |
| Aðrar rekstrartekjur | | 639.352 | 123.584 | 1.011.454 | 229.088 |
| Laun og annar starfsmannakostnaður | | (2.587.889) | (1.237.296) | (4.878.541) | (2.331.470) |
| Sölukostnaður | | (370.476) | (245.695) | (628.306) | (457.188) |
| Annar rekstrarkostnaður | | (836.910) | (421.731) | (1.562.140) | (810.352) |
| | | (3.795.275) | (1.904.722) | (7.068.986) | (3.599.011) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
og matsbreytingar | | 1.892.404 | 1.076.975 | 3.221.628 | 1.477.499 |
| Afskriftir rekstrarfjármuna,
leigueigna og óefnislegra eigna | 7 | (623.476) | (254.368) | (1.344.969) | (502.237) |
| Matsbreytingar fjárfestingarfasteigna | | (72.189) | 0 | (117.281) | 0 |
| Rekstrarhagnaður | | 1.196.740 | 822.607 | 1.759.379 | 975.262 |
| Fjármunatekjur | | 15.652 | 16.436 | 34.937 | 39.714 |
| Fjármagnsgjöld | | (653.470) | (107.128) | (1.271.148) | (209.852) |
| Gengismunur | | 17.258 | 42.686 | 53.736 | 28.905 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 84.645 | 29.142 | 144.846 | 58.660 |
| Gangvirðisbreyting hlutabréfa | | 0 | (2.228) | 0 | (2.443) |
| | | (535.915) | (21.093) | (1.037.629) | (85.017) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 660.825 | 801.514 | 721.750 | 890.245 |
| Tekjuskattur | 8 | (111.315) | (129.822) | (120.635) | (142.124) |
| Hagnaður tímabilsins | | 549.510 | 671.692 | 601.115 | 748.121 |
| Önnur heildarafkoma | | | | | |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé
en kunna síðar að verða færðir í rekstrarreikning: | | | | | |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi
erlends hlutdeildarfélags | | 39.743 | 9.609 | 39.512 | (5.819) |
| Önnur heildarafkoma samtals | | 39.743 | 9.609 | 39.512 | (5.819) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | 589.253 | 681.301 | 640.627 | 742.302 |
| Grunnhagnaður og þýnntur
hagnaður á hlut í krónum | | 1,67 | 2,69 | 1,82 | 2,99 |

*Ársfjörðungur er ekki kannaður af endurskoðendum félagsins
Skýringar á blaðsíðum 10 til 17 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuárshlutareikningsins

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019
Fjárhæðir eru í þúscundum króna


Efnahagsreikningur 30. júní 2019

Skýr. 30.6.2019 31.12.2018
Eignir
Viðskiptavild 14.070.463 14.070.463
Aðrar óefnislegar eignir 4.579.372 4.504.012
Rekstrarfjármunir 31.370.175 32.418.877
Leigueignir 3 3.622.806 0
Fjárfestingarfasteignir 6.944.295 8.751.774
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 2.264.008 2.079.666
Verðbréfaeign 187.388 66.838
Fastafjármunir 63.038.508 61.891.630
Birgðir 8.432.133 7.616.386
Viðskiptakrófur 4.622.335 3.718.347
Aðrar skammtímakrófur 401.294 305.786
Handbært fé 4.950.283 4.266.925
Veltufjármunir 18.406.044 15.907.443
Eignir samtals 81.444.552 77.799.073
Eigið fé
Hlutafé 329.574 329.574
Yfirverðsreikningur hlutafjár 13.140.383 13.140.383
Annað bundið eigið fé 5.618.281 5.258.048
Óráðstafað eigið fé 7.522.235 7.241.841
Eigið fé 26.610.473 25.969.846
Skuldir
Skuldir við lánastofnanir 9 30.392.815 33.593.033
Leiguskuldir 3 3.169.292 0
Tekjuskattsskuldbinding 8 3.744.992 3.938.773
Langtímaskuldir 37.307.099 37.531.807
Tekjuskattur til greiðslu 760.663 595.668
Aðrar skuldir við hið opinbera 3.381.957 2.306.564
Skuldir við lánastofnanir 9 4.470.547 3.720.530
Leiguskuldir 3 503.696 0
Viðskiptaskuldir 6.663.325 5.654.412
Aðrar skammtímaskuldir 1.746.793 2.020.246
Skammtímaskuldir 17.526.981 14.297.421
Skuldir samtals 54.834.079 51.829.227
Eigið fé og skuldir samtals 81.444.552 77.799.073

Skýringar á blaðsíðum 10 til 17 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðuárs hlutareikningsins

Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019

Fjárhæðir eru í þúsumdum króna


Eiginfjáryfirlit 30. júní 2019

Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Lögbundinn varasjóður Endurmats-reikningur Óinnleystur hagnaður dóttur- og hlut-deildarfélaga Þýðingar-munur
1. janúar til 30. júní 2019
Eigið fé 1.1.2019 329.574 13.140.383 82.393 3.654.286 1.642.560 (121.191) 7.241.841 25.969.846
Heildarafkoma tímabilsins 39.512 601.115 640.627
Bundið vegna dóttur- og hlutdeildarfélaga 567.527 (567.527) 0
Upplausn á endurmati hlutdeildarfélags (10.405) 10.405 0
Upplausn á endurmati rekstrarfjármuna (236.401) 236.401 0
Eigið fé 30.6.2019 329.574 13.140.383 82.393 3.407.480 2.210.087 (81.679) 7.522.235 26.610.473
Annað bundið eigið fé samtals 5.618.281
1. janúar til 30. júní 2018
Eigið fé 1.1.2018 250.000 3.153.857 62.500 3.846.730 376.857 (154.490) 6.276.324 13.811.779
Heildarafkoma tímabilsins (5.819) 748.121 742.302
Bundið vegna hlutdeildarfélaga (44.440) 44.440 0
Upplausn á endurmati hlutdeildarfélags (17.342) 17.342 0
Upplausn á endurmati rekstrarfjármuna (78.559) 78.559 0
Eigið fé 30.6.2018 250.000 3.153.857 62.500 3.750.810 332.417 (160.308) 7.164.805 14.554.080
Annað bundið eigið fé samtals 3.985.418

Skýringar á blaðsiðum 10 til 17 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðúárshlutareikningsins

Samandreginn samstæðúárshlutareikningar Festi hf. janúar til júní 2019

Fjárhæðir eru í þásundum króna


Sjóðstreymisyfirlit 1. janúar til 30. júní 2019

2019
Skýr. 1.1.-30.6.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og matsbreytingar 3.221.628 1.477.499
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: Söluhagnaður rekstrarfjármuna og fjárfestingarfasteigna (239.916) (35.050)
2.981.712 1.442.449
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, (hækkun) (815.746) (1.187.225)
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur, (hækkun) (1.049.497) (1.367.730)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun 1.820.626 2.261.786
Breytingar rekstrartengdra eigna og skulda (44.617) (293.169)
Innborgaðir vextir 60.177 39.707
Greiddir vextir (850.153) (191.573)
Greiddur tekjuskattur (149.558) (217.770)
Handbært fé frá rekstri 1.997.561 779.644
Fjárfestingarhreyfingar
Keyptar óefnislegar eignir (289.831) 0
Keyptir rekstrarfjármunir (639.653) (473.314)
Seldir rekstrarfjármunir 233.661 78.014
Kaup/viðbætur fjárfestingarfasteigna (52.525) 0
Sala fjárfestingarfasteigna 2.507.379 0
Keyptir eignarhlutir í félögum (97.500) 0
Móttekinn arður frá öðrum félögum 0 120.000
Fjárfestingarhreyfingar 1.661.532 (275.300)
Fjármögnunarhreyfingar
Tekin ný langtímalán 13.371.000 0
Tekin ný skammtímalán 1.000.000 0
Afborganir langtímaskulda við lánastofnanir (17.193.105) 0
Afborganir leiguskulda (171.924) 0
Fjármögnunarhreyfingar (2.994.029) 0
Hækkun á handbæru fé 665.064 504.344
Gengismunur af handbæru fé 18.295 14.553
Handbært fé í ársbyrjun 4.266.925 2.800.082
Handbært fé í lok tímabilsins 4.950.283 3.318.979

Skýringar á blaðsíðum 10 til 17 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðúárshlutareikningsins

Samandreginn samstæðúárshlutareikningar Festi hf. janúar til júní 2019
Fjárhæðir eru í þúsundum króna


Skýringar

  1. Starfsemi samstæðunnar

Festi hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Meginstarfsemi samstæðunnar felst í sölu eldsneytis, vöru og þjónustu til fyrirtækja, matvöru og tengdra vara, raftækjasölu og útleigu húsnaðis. Samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess. Vísað er til félaganna í heild sem samstæðunnar og til einstakra félaga sem samstæðufélaga.

  1. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Samstæðuárshlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samandreginn samstæðuárshlutareikningur félagsins inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum samstæðuársreikningi og ætti að lesa í samhengi við samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2018.

Stjórn Festi hf. samþykkti samstæðuárshlutareikninginn 28. ágúst 2019.

Breytt flokkun rektarkostnaðar

Eins og fram kemur í samstæðuársreikningi félagsins fyrir árið 2018 var flokkun tiltekinna rektargjalda breytt á árinu 2018 í kjólfar kaupa Festi á Hlekk og dótturfélögum. Breytt framsetning var gerð til að samræma flokkun rektargjalda í samstæðunni. Í þessum samandregna árshlutareikningi samstæðunnar hefur samanburðarfjárhæðum í rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu vegna ársins 2018 verið breytt til samræmis við nýja flokkun en breytingin hefur engin áhrif á afkomu samstæðunnar, eignir, skuldir, eigið fé eða sjóðstreymi. Veigamesta breytingin er sú að dreifingakostnaður er færður til gjalda meðal kostnaðarverðs seldra vara en var áður færður meðal sölu- og dreifingakostnaðar.

Breytt framsetning vaxtagjalda í sjóðstreymisyfirliti

Framsetningu greiddra vaxta meðal rekstrarhreýfinga hefur verið breytt á þann veg að greiddir vextir af langtímaskuldum við lánastofnnir eru nú færðir meðal rekstrarhreýfinga en voru áður færðir meðal fjármögnunarhreýfinga. Greiddir vextir í sjóðstreymisyfirliti innifela nú hvort tveggja greidda vexti af skammtímaskuldum og langtímaskuldum. Greiddir vextir meðal rekstrarhreýfinga á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2019 innifela auk þess greidda vexti af leiguskuldum vegna beitingar IFRS 16 (sjá skýringu 3). Samanburðarfjárhæðum fyrra árs hefur verið breytt til samræmis við nýja flokkun. Það er mat stjórnenda að breytt flokkun greiddra vaxta af langtímaskuldum við lánastofnnir gefi gleggri mynd af uppruna og ráðstöfun handbærs fjár í sjóðstreymisyfirliti.

Breytingar á samstæðunni og framsetningu starfsþáttayfirlits

Í upphafi árs 2019 fluttist frá Festi hf. rekstur eldsneytisstöðva til rekstrarfélagsins N1 ehf. og vöruhúsarekstur til Bakkans Vöruhótels ehf. Bæði félögin eru dótturfélög Hlekks. Móðurfélagið Festi hf. er áfram eigandi fasteigna sem tengist rekstrinum. Í kjólfar yfirtöku Festi á Hlekk og dótturfélögum þann 1. september 2018 hefur verið unnið að breyttri framsetningu starfsþátta samstæðunnar. Þeirri vinnu er nú lokið og eru starfsþættir nú sundurlöðair með ýtarlegri hætti en í samstæðuársreikningi félagsins fyrir árið 2018. Starfsþættir samstæðunnar byggja á innri skýrslugjöf til lykilstjórnenda samstæðunnar.

Aðrar breytingar frá fyrri reikningsskilaaðferðum

Í upphafi árs 2019 tók staðalinn IFRS 16 Leigusamningar gildi. Vísað er til skýringar 3 um áhrif staðalsins. Vegna þeirrar innleiðingaraðferðar sem beitt var við upptöku IFRS 16 hefur samanburðarfjárhæðum fyrra árs ekki verið breytt.

Að öðru leyti en að framan greinir um breytta flokkun vaxtagjalda í sjóðstreymisyfirlitinu, áhrif IFRS 16 og framsetningu starfsþáttayfirlits var sömu reikningsskilaðferðum beitt við gerð þessa samstæðuárshlutareiknings og við gerð samstæðuársreiknings félagsins fyrir árið 2018.

Framsetningar- og starfsrækslumiðill

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður og birtur í íslenskum krónum (ISK) sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Fjárhæðir eru birtur í þúsundum króna nema annað sé tekið fram.

Rekstrarhæfi

Stjórnendur hafa metið rekstrarhæfi samstæðunnar. Það er mat þeirra að áframhaldandi rekstur hennar sé tryggður og hún vel í stakk búin til að mæta skuldbindingum sínum í fyrirsjáanlegri framtið. Árshlutareikningurinn er því settur fram miðað við áframhaldandi starfsemi.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða fråbrugðnar þessu mati.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019
Fjárhæðir eru í þúsundum króna


Skyringar, frh.:

3. IFRS 16 Leigusamningar

Almennt um IFRS 16

IFRS 16 Leigusamningar tok gildi 1. januar 2019 og kom i stað IAS 17 Leigusamningar og tengdra tülkana.

IFRS 16 innleiðir eitt reikningshaldslegt líkan um færslu leigusamninga í efnahagsreikning leigutaka. Vegna þessa hefur samstæðan sem leigutaki eignfært leigueignir vegna réttar samstæðunnar til að nota þær og leiguskuldir vegna skuldbindingar samstæðunnar til að greiða leigu. Færsla leigusamninga hjá leigusala er svipuð og samkvæmt fyrri reikningsskilaðferðum, þ.e. leigusali flokkar hvern leigusamning annaðhvort sem fjármögnunarleigusamning eða rekstrarleigusamning. Beiting IFRS 16 hefur ekki haft áhrif á reikningsskil samstæðunnar sem leigusala.

Skilgreining á leigusamningi

Samstæðan leggur nú mat á það hvort samningur sé eða innihaldi leigusamning byggt á nýrri skilgreiningu á leigusamningi. Samkvæmt IFRS 16 er samningur leigusamningur, eða inniheldur leigusamning, ef hann veitir rétt til yfirráða yfir skilgreindri eign á tímabili í skiptum fyrir endurgjald.

Áhrif við upptöku

Samstæðan hefur beitt IFRS 16 frá 1. januar 2019. Samstæðan tók staðalinn upp með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa, þar sem leigueignir voru færðar við sömu fjárhæðum og leiguskuldir, án áhrifa á eigið fé 1. januar 2019 og án þess að breyta samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018. Áhrif staðalsins voru þau að leigueignir og leiguskuldir að fjárhæð 3.702 m.kr. voru færð í efnahagsreikning þann 1. januar 2019.

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru vegna húsnæðis og lóða. Við útreikning fjárhæða leigueigna og leiguskulda var lagt mat á leigutíma og vexti á nýju lánsfé enda var ekki unnt að ákvarða innbyggða vexti í leigusamningum með áreiðanlegum hætti.

Við mat á vöxtum á nýju lánsfé þurftu stjórnendur að leggja mat sitt á það. Við matið var horft til ýmissa þátta en einkum tegund leigueignar, staðsetningar hennar, ástands og leigutíma. Vegnir meðalvextir voru ákvarðaðir sem 5,5% - 7,0% fyrir húsnæði en 5,0% - 7,7% fyrir lóðir.

Stjórnendur þurftu jafnframt að leggja mat á leigutíma, einkum vegna ótímabundinna samninga og samninga með framlengingar- og / eða uppsagnarheimildum. Ákvarðaður leigutími kann að vera lengri eða styttri en sá leigutími sem tilgreindur er í samningi. Veginn leigutími leigusamninga um húsnæði og lóðir var ákvarðaður 10 ár.

Leigusamningar samstæðunnar um húsnæði og lóðir voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar fram til 1. januar 2019 og því ekki færðir í efnahagsreikning samstæðunnar í árslok 2018. Skuldbindingar samstæðunnar vegna þessara leigusamninga námu 4.992 m.kr. í árslok 2018, samanber skýringu 16 í ársreikningi samstæðunnar fyrir árið 2018. Við innleiðingu IFRS 16 voru skuldbindingarnar núvirtar og færðar sem leiguskuldir að fjárhæð 3.702 m.kr. í efnahagsreikning samstæðunnar þann 1. januar 2019.

Áhrif á reikningsskilatímabilinu

Leigueignir

Leigueignir eru upphaflega færðar í efnahagsreikning á upphafsdegi leigusamninga og metnar á kostnaðarverði. Þær eru síðan færðar á endurmetnu verði í samræmi við endurmatslíkan IAS 16, líkt og sambærilegar eignir til eigin nota sem eru í eigu samstæðunnar, að teknu tilliti til afskrifta, virðisrýmunar og leiðréttinga vegna endurmats leiguskulda, eftir því sem við á. Leigueignir eru sérgreindar í efnahagsreikningi meðal fasta fjármuna.

Leigueignir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilins:

Húsnæði Lóðir Samtals
Staða 1. januar 2019 3.158.939 543.122 3.702.061
Breyting vegna endurmats á leiguskuldum 118.318 65 118.383
Afskriftir tímabilins ( 170.044) ( 27.593) ( 197.637)
Staða 30. júní 2019 3.107.213 515.594 3.622.806

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019
Fjárhæðir eru í þásundum króna


Skýringar, frh.:

3. IFRS 16 Leigusamningar, frh.

Leiguskuldir

Leiguskuldir eru upphaflega færðar í efnahagsreikning á upphafsdegi leigusamninga og metnar miðað við núvirði leigugreiðslna sem eru ógreiddar á þeim tíma, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé.

Eftir upphaflega færslu er bókfært verð leiguskulda hækkað vegna vaxtagjalda og lækkað vegna greiddra leigugreiðslna. Bókfært verð er jafnframt endurmetið þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, á mati á þeirri fjárhæð sem vænst er að þurfi að greiða á grundvelli hrakvirðistryggingar, eða þegar við á, breytinga á mati á því hvort nokkuð víst er að kaupheimild eða framlengingarheimild verði nýtt eða að uppsagnarheimild verði ekki nýtt. Leigugreiðslum er skipt í vaxtahluta annars vegar og afborgunarhluta leiguskulda hins vegar. Vaxtahluti leigugreiðslna fer almennt lækkandi eftir því sem líður á leigutíma. Leiguskuldir eru sérgreindar í efnahagsreikningi og skipt í langtíma- og skammtímahluta.

Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins:

Leiguskuldir 1.1.2019 3.702.061
Vaxtagjöld 97.447
Greiddar leiguskuldir á tímabilinu ( 254.401)
Hækkun vegna vísitölubindingar leigugreiðslna 61.285
Hækkun leigugreiðslna 66.596
Leiguskuldir 30.6.2019 3.672.988

Áhrif á rekstrarreikning

Vegna færslu leigusamninga samkvæmt IFRS 16 hefur samstæðan fært í rekstrarreikning á tímabilinu afskriftir að fjárhæð 197 m.kr og vaxtagjöld að fjárhæð 97 m.kr. Beiting IFRS 16 á fyrsta helmingi ársins 2019 leiðir til þess að EBITDA tímabilsins er 254 m.kr. hærri en hefði verið ef fyrri reikningsskilaðferðum vegna leigusamninga hefði verið beitt áfram.

4. Samstæðufélög

Dótturfélög eru félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð eru til staðar ef samstæðan ber áhættu og réttinn til að njöta breytílegs ávinnings vegna þátttöku sinnar í félaginu og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinninginn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðúárshlutareikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur.

Stöður og viðskipti og allar óinnleystar tekjur og gjöld milli félaga innan samstæðu eru fellð út við gerð samstæðureikningsskilanna.

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019
Fjárhæðir eru í þúsundum króna


Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019
13
Fjárhadir eru í þásundum króna

4. Samstæðufélög, frh.

Félög í samstæðunni

Samstæðuárshlutareikningurinn innifelur eftirfarandi félög. Öll dótturfélög eru beint eða óbeint að fullu í eigu móðurfélagsins Festi.

Félag Starfsemi
Festi hf. Festi hf. er eignarhaldsfélag sem sérhæfir sig í rekstri félaga sem eru leiðandi í smásölu og sölu á eldsneyti á Íslandi. Hlutverk Festi er að veita rekstrarfélögum stuðning við að uppfylla kröfur viðskiptavina þannig að þau geti áfram verið í fararbroddi í þjónustu- og vöruframboði um land allt. Festi leggur rekstrarfélögum sínum til stoðþjónustu m.a. á sviði fjármála, reksturs og viðskiptaþróunar.
Ego ehf. Ego ehf. er fjárfestingafélag til að halda utan um fjárfestingar félagsins og næstu skref í framþróun þess.
Hlekkur ehf. Hlekkur ehf. er eignarhaldsfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í verslunarfyrirtækjum og öðrum félögum sem tengjast verslunarrekstri.
N1 ehf. N1 ehf. sér um rekstur bensínstöðva félagsins. Félagið rekur 29 þjónustustöðvar um land allt. Á þjónustustöðvum félagsins er veitingarekstur, eldsneytissala og sala ýmissa dagvara. Auk þessa rekur N1 55 sjálfsafgreiðslustöðvar með eldsneyti. Verkstæði N1 eru 11 og verslanir 5.
Krónan ehf. Krónan ehf. er verslunarfyrirtæki sem starfar á dagvöruverslunarmarkaði. Fyrirtækið starfrækir verslanir á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni undir merkjum Krónunnar, Kr, Kjarvals og Nóatúns.
Elko ehf. Starfsemi félagsins felst í sölu á heimilistækjum og raftækjum í sérverslunum. Fyrirtækið starfrækir verslanir á höfuðborgarsvæðinu og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk þess sem félagið er með vefverslun.
Festi fasteignir ehf. Starfsemi félagsins felst í útleigu á atvinnuhúsnæði.
Bakkinn Vöruhótel ehf. Bakkinn vöruhótel ehf. sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir samstæðufélögin og viðskiptavini sem kjósa að úthýsa vöruhúsastarfsemi sinni að hluta til eða öllu leyti.

Skýringar, frh.:

5. Starfspåttayfirlit

Rekstrarstarfsþåttur er eining innan samstæðunnar sem með starfsemi sinni getur aflað tekna og stofnað til útgjalda, þar á meðal tekna og gjalda vegna viðskipta við aðra starfsþætti samstæðunnar. Starfsþættir eru ákvarðaðir af forstjóra félagsins sem yfirfer reglulega starfsþætti samstæðunnar til að ákvarða hvernig eignum hennar er skipt á starfsþætti og til að meta frammistöðu þeirra.

Rekstrarafkoma starfsþátta, eignir og skuldir þeirra samanstanda af liðum sem tengja má beint við hvern starfsþátt og þá liði sem hægt er að skipta milli starfsþátta á rökraenan hátt.

Fjárfestingar starfsþátta eru heildarkostnaður við kaup rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna.

Verð á vöru og þjónustu sem seld er milli starfsþátta er ákveðið eins og um óskylda aðila sé að ræða.

Hvert og eitt rekstrarfélag í samstæðunni er sérstakur starfsþåttur (sjá skýringu nr. 4 um félög innan samstæðunnar) en starfsþåtturinnn fasteignir innifelur rekstur fasteigna innan Festi hf. og Festi fasteigna ehf. Starfsþåttayfirlitið er á bls. 16.

6. Sala og framlegð

Sala samstæðunnar sundurliðast þannig: 2019 2018
1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Eldsneyti 11.987.534 13.584.177
Aðrar vörur 27.632.936 5.330.558
Sala samtals 39.620.471 18.914.736
Sala samstæðunnar greinist þannig eftir viðskiptavinum:
Sjávarútvegur 1.756.726 1.986.200
Samgöngur 834.606 2.716.606
Verktakar 1.288.649 1.184.673
Erlend sala 1.171.225 1.259.938
Aðrar atvinnugreinar og einstaklingar 34.569.265 11.767.318
Samtals 39.620.471 18.914.736
Framlegð af vörusölu samstæðunnar sundurliðast þannig:
Eldsneyti 2.336.210 2.500.875
Aðrar vörur 6.942.951 2.346.547
Framlegð af vörusölu samtals 9.279.160 4.847.421

7. Afskriftir

Afskriftir í rekstrarreikningi greinist þannig:
Rekstrarfjármunir 931.512 483.619
Leigueignir 204.406 0
Óefnislegar eignir 209.050 18.619
Afskriftir samtals 1.344.969 502.237

8. Tekjuskattur

Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig: 2019 2018
1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Hagnaður fyrir tekjuskatt 721.750 890.245
Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall 20,0% (144.350) 20,0%
Óskattskyldar tekjur af eignarhlutum 4,0% (28.969) ( 1,3% )
Aðrar breytingar ( 7,3% ) 52.684 ( 2,8% )
Virkur tekjuskattur 16,7% (120.635) 16,0%

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019

Fjárhæðir eru í þásundum króna


Skyringar, frh.:

8. Tekjuskattur, frh.:

Tekjuskattsskuldbinding

Tekjuskattsskuldbinding greinist pannig á einstaka liði í lok tímabilsins:

Rekstrarfjármunir og fjárfestingarfasteignir. 2.970.429 3.123.132

Óefnislegar eignir. 841.240 807.850

Aðrir liðir. (66.677) 7.791

Tekjuskattsskuldbinding. 3.744.992 3.938.773

9. Skuldir við lánastofnanir

Vaxtaberandi skuldir greinast pannig: 30.6.2019 31.12.2018
Vaxtakjör Bókfært verð Vaxtakjör Bókfært verð
Óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum 5,3% 9.106.110 5,5% 13.474.500
Verðtryggð lán með föstum vöxtum 0 3,9% 11.610.538
Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum 3,3% 21.286.705 3,8% 8.507.995
Langtímahluti samtals 30.392.815 33.593.033
Næsta árs afborganir langtímaskulda 1.470.547 1.720.530
Skammtímalán 5,3% 3.000.000 5,3% 2.000.000
Skammtímahluti samtals 4.470.547 3.720.530
Skuldir við lánastofnanir samtals 34.863.362 37.313.563
Afborganir langtímalána greinast pannig: 30.6.2019 31.12.2018
Næstu 12 mánuðir 1.470.547 1.720.530
Næstu 12-24 mánuðir 1.470.547 1.733.483
Næstu 24-36 mánuðir 1.470.547 1.744.282
Næstu 36-48 mánuðir 1.470.547 1.692.671
Næstu 48-60 mánuðir 1.470.547 1.101.644
Til greiðslu síðar 24.510.628 27.321.027
Langtímaskuldir við lánastofnanir samtals 31.863.362 35.313.563

Í maí 2019 voru langtímalán dótturfélagsins Festi fasteigna ehf. og Hlekks ehf. endurfjármögnuð. Eldri langtímalán að fjárhæð 15.300 m.kr. voru greidd upp en ný lántaka nam 13.500 m.kr.

10. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar

2019 2018
Rekstur 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Veltuhraði vörubirgða í lok tímabils:
Vörunotkun / meðalstaða vörubirgða á árinu 7,87 7,94
Söludagar í viðskiptakröfum:
Meðalstaða viðskiptakrafna á árinu / seldar vörur og þjónusta 18 30
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði / framlegð af vörusölu 34,7% 30,5%
Laun og launatengd gjöld / framlegð af vörusölu 52,6% 48,1%
Sölukostnaður / framlegð af vörusölu 6,8% 9,4%
Annar rekstarkostnaður / framlegð af vörusölu 16,8% 16,7%
Efnahagur 30.6.2019 31.12.2018
Veltufjárhlutfall: Veltufjármunir / skammtímaskuldir 1,05 1,11
Lausafjárhlutfall: (Veltufjármunir - birgðir) / skammtímaskuldir 0,57 0,58
Skuldsetning: Nettó vaxtaberandi skuldir / EBITDA 4,42 3,52
Eiginfjárhlutfall: Eigið fé / heildarfjármagn 32,7% 33,4%
Arðsemi eigin fjár: Afkoma tímabilsins / meðalstaða eigin fjár 4,6% 11,0%

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Festi hf. janúar til júní 2019

Fjárhæðir eru í þásundum króna


Starfspåttayfirlit

N1 Krónan ELKO Fasteignir Annað Samtals Jöfnunar-færslur Beiting IFRS 16* Samkvæmt árshlutareikningi
Fyrri árshelmingur 2019
Sala 17.375.557 17.458.001 4.818.603 0 0 39.652.162 (31.691) 0 39.620.471
Aðrar rekstrartekjur 129.674 69.499 535 1.946.121 1.408.928 3.554.756 (2.543.302) 0 1.011.454
Heildartekur starfsbåtta 17.505.231 17.527.500 4.819.138 1.946.121 1.408.928 43.206.918 (2.574.993) 0 40.631.925
Heildarrekstrargjöld starfsbåtta (16.940.221) (16.890.233) (4.754.254) (362.313) (1.523.305) (40.470.326) 2.805.629 254.401 (37.410.297)
EBITDA starfsbåtta 565.010 637.267 64.884 1.583.808 (114.377) 2.736.592 230.636 254.401 3.221.628
Afskriftir starfsbåtta (307.830) (255.771) (82.658) (398.198) (96.105) (1.140.562) 0 (204.406) (1.344.969)
Matsbreyting fjärfestingarfasteigna 0 0 0 (117.281) 0 (117.281) 0 0 (117.281)
Ährif hlutdeildafélaga 0 0 0 0 144.846 144.846 0 0 144.846
Rekstrarafkoma starfsbåtta 257.180 381.496 (17.773) 1.068.329 (65.636) 1.623.595 230.636 49.995 1.904.225
Hrein fjärmagnssgjöld (1.182.474)
Tekjuskattur (120.635)
Hagnaður tímabilsins 601.115
30. júni 2019
Eignir starfsbåtta 18.402.964 9.654.528 3.390.382 37.119.550 13.699.033 82.266.457 (6.492.862) 3.622.806 79.396.402
Öskiptar eignir 2.048.150
Eignir samtals 81.444.552
Öskiptar skuldir 54.834.079
Fjärfestingar starfsbåtta 178.855 338.776 49.770 448.525 70.562 1.086.489 (104.480) 0 982.009
Afskriftir (307.830) (255.771) (82.658) (398.198) (96.105) (1.140.562) 0 (204.406) (1.344.969)
  • Upplysingar sem stjörnendur horfa til vegna starfsbåtta taka ekki mið af reglum IFRS 16.

Samandreginn samstæfnairshlatureikningar Festi hf. jandair til júni 2019

Fjárhællir eru í þúrandam króna


Starfspåttayfirlit, frh.

N1 Krónan ELKO Fasteignir Annað Samtals Jöfnunar-færslur Beiting IFRS 16° Samkvæmt árshlutareikningi
Fyrri árshelmingur 2018
Sala 18.914.736 18.914.736 18.914.736
Aðrar rekstrartekjur 229.088 1.028.762 1.257.850 (1.028.762) 229.088
Heildartekjur starfsþátta 19.143.824 0 0 1.028.762 0 20.172.586 (1.028.762) 0 19.143.824
Heildarrekstrargjöld starfsþátta (18.480.753) (214.335) (18.695.088) 1.028.762 (17.666.326)
EBITDA starfsþátta 663.071 0 0 814.427 0 1.477.498 0 0 1.477.499
Afskriftir starfsþátta (206.551) (295.686) (502.237) (502.237)
Áhrif hlutdeildafélaga 58.660 0 58.660 58.660
Rekstrarafkoma starfsþátta 515.180 0 0 518.741 0 1.033.921 0 0 1.033.921
Hrein fjármagnsgjöld (143.677)
Tekjuskattur (142.124)
Hagnaður tímabilsins 748.121
30. júní 2018
Eignir starfsþátta 12.453.827 14.865.300 27.319.127 27.319.127
Öskiptar eignir 3.318.979
Eignir samtals 30.638.106
Öskiptar skuldir 16.084.026
Fjárfestingar starfsþátta 286.491 186.823 473.314 473.314
Afskriftir (206.551) (295.686) (502.237) (502.237)

Samandreginn samstæfnairshlutareikningur Festi hf. júnáur til júní 2019

Fjárhællir eru í þúrandam króna