AI assistant
Festi — Earnings Release 2023
Feb 7, 2024
2195_rns_2024-02-07_f2b0139a-fc24-4b70-99a8-dd8e365b3071.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
FESTI
Hagnaður 975 millj. kr. á 4F og 3.438 millj. kr. á 12M 2023
Helstu niðurstöður 4. ársfjörðungs 2023
- Vörusala nam 35.235 millj. kr. samanborið við 31.744 millj. kr. árið áður og jókst um 11,0% milli ára.
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 8.109 millj. kr. og jókst um 1.238 millj. kr. eða 18,0% á milli ára.
- Framlegðarstig nam 23,0% og er óbreytt frá síðasta ársfjörðungi en hækkar um 1,4 p.p. frá 4F 2022.
- Laun og starfsmannakostnaður eykst um 5,9% en stöðugildum fjölgar um 4,0% milli ára.
- EBITDA nam 3.148 millj. kr. samanborið við 2.293 millj. kr. sem er hækkun um 37,3% milli ára.
- Hagnaður fjörðungsins nam 975 millj. kr. eða 12,0% af framlegð og jókst um 37,7% frá árinu áður.
- Eigið fé nam 35.842 millj. kr. og er eiginfjárhlutfallið 37,3% í lok árs 2023.
- Handbært fé frá rekstri nam 1.933 millj. kr. eða 23,8% af framlegð, samanborið við 1.830 millj. kr. árið áður.
- Nettó vaxtaberandi skuldir lækkuðu um 2.550 millj. kr. á árinu 2023.
- Hagnaður ársins nam 3.438 millj. kr. og hagnaður á hlut 11,3 kr. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður 3 kr. á hlut eða samtals 904 millj. kr., sem er 26,3% af hagnaði ársins.
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||||||||
| Vöru- og þjónustusala | 35.235 | 31.744 | 3.490 | 11,0% | 136.251 | 121.398 | 14.853 | 12,2% |
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | 8.109 | 6.871 | 1.238 | 18,0% | 30.667 | 26.994 | 3.673 | 13,6% |
| Aðrar rekstrartekjur | 639 | 673 | -33 | -4,9% | 2.189 | 2.386 | -197 | -8,3% |
| EBITDA | 3.148 | 2.293 | 855 | 37,3% | 11.015 | 10.020 | 996 | 9,9% |
| EBIT | 2.052 | 1.529 | 524 | 34,3% | 7.053 | 6.707 | 345 | 5,1% |
| EBT | 1.187 | 835 | 352 | 42,1% | 4.136 | 4.936 | -800 | -16,2% |
| Hagnaður tímabilsins | 975 | 708 | 267 | 37,7% | 3.438 | 4.082 | -644 | -15,8% |
| Efnahagsreikningur | 31.12.2023 | 31.12.2022 | Breyt. | % Breyt. | ||||
| Birgðir | 13.557 | 13.086 | 471 | 3,6% | ||||
| Viðskiptakröfur | 5.985 | 5.960 | 25 | 0,4% | ||||
| Handbært fé | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% | ||||
| Vaxtaberandi skuldir | 37.140 | 38.440 | -1.300 | -3,4% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 33.778 | 36.328 | -2.550 | -7,0% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir/EBITDA | 3,1 | 3,6 | -55,9 | -15,4% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 37,3% | 36,9% | +0,4 p.p. | 1,1% | ||||
| Arðsemi eigin fjár | 10,0% | 12,3% | -2,3 p.p. | -18,5% | ||||
| Sjóðstreymi | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
| Handbært fé frá rekstri | 1.933 | 1.830 | 103 | 5,7% | 9.414 | 4.607 | 4.806 | 104,3% |
| Fjárfestingarhreýfingar | -1.313 | -1.361 | 48 | -3,5% | -3.396 | -4.764 | 1.368 | -28,7% |
| Fjármögnunarhreýfingar | -1.453 | 475 | -1.928 | -406,1% | -4.705 | -1.807 | -2.898 | 160,3% |
| Handbært fé í lok tímabils | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Framlegð af vörusölu | 23,0% | 21,6% | +1,4 p.p. | 6,3% | 22,5% | 22,2% | +0,3 p.p. | 1,2% |
| Starfsmannakostnaður/framlegð | 48,8% | 54,4% | -5,6 p.p. | -10,3% | 50,3% | 49,8% | +0,5 p.p. | 1,0% |
| EBITDA/framlegð | 38,8% | 33,4% | +5,5 p.p. | 16,3% | 35,9% | 37,1% | -1,2 p.p. | -3,2% |
| Hagnaður/framlegð | 12,0% | 10,3% | +1,7 p.p. | 16,6% | 11,2% | 15,1% | -3,9 p.p. | -25,9% |
| Hagnaður á hlut | 3,2 | 2,3 | 90,0 | 39,1% | 11,3 | 13,2 | -188,4 | -14,3% |
| Handbært fé frá rekstri/framlegð | 23,8% | 26,6% | -2,8 p.p. | -10,5% | 30,7% | 17,1% | +13,6 p.p. | 79,9% |
| Fjárfestingar | 1.421 | 1.440 | -19 | -1,3% | 4.015 | 5.779 | -1.765 | -30,5% |
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
FESTI
Rekstur 4. ársfjórðungs 2023
Rekstur félagsins gekk vel á fjórða ársfjórðungi og var niðurstaðan umfram áætlanir stjórnenda. Vörusala jókst í öllum flokkum og í heildina um 11,0% milli ára. Framlegðarstig nam 23,0% og er óbreytt frá síðasta ársfjórðungi en hækkar um 1,4 p.p. frá fyrra ári. Framlegð í krónum hækkar um 18,0% milli ára en rekstrarkostnaður um 6,7% á sama tíma. EBITDA félagsins nam 3.148 millj. kr. sem er 855 millj. kr. eða 37,3% hækkun milli ára. EBITDA N1 var 303 millj. kr. betri en árið áður, EBITDA Krónunnar var 402 millj. kr. betri og EBITDA ELKO var 71 millj. kr. hærri en árið áður. Nettó fjármagnskostnaður hækkar um 193 millj. kr. eða 29,7% milli ára vegna áhrifa hækkunar stýrivaxta, en nettó vaxtaberandi skuldir félagsins lækkuðu um 2.550 millj. kr. á árinu. Hagnaður fjórða ársfjórðungs nam 975 millj. kr. sem er hækkun um 37,7% milli ára. Mikil áhersla er áfram lögð á framlegðarbætingu og leiðir til aukinnar skilvirkni og hagræðingar í rekstrinum.
Tekjur 4. ársfjórðungs 2023
- Heildartekjur námu 35.874 millj. kr. sem er aukning um 10,7% milli ára.
- Tekjur af vöru- og þjónustusölu námu 35.235 millj. kr. sem er aukning um 11,0% milli ára.
- Tekjur af dagvörusölu námu 18.029 millj. kr. sem er aukning um 17,9% milli ára.
- Tekjur af eldsneytis- og rafmagnssölu námu 8.699 millj. kr. sem er aukning um 3,3% milli ára.
- Tekjur af raftækjasölu námu 5.439 millj. kr. sem er aukning um 8,9% milli ára.
- Tekjur af annarri vöru- og þjónustusölu námu 3.068 millj. kr. sem er aukning um 0,9% milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vöru- og þjónustusala | ||||||||
| Dagvörur | 18.029 | 15.286 | 2.743 | 17,9% | 69.178 | 56.852 | 12.326 | 21,7% |
| Eldsneyti og rafmagn | 8.699 | 8.423 | 276 | 3,3% | 38.849 | 38.564 | 285 | 0,7% |
| Raftæki | 5.439 | 4.995 | 444 | 8,9% | 18.061 | 16.761 | 1.300 | 7,8% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 3.068 | 3.039 | 28 | 0,9% | 10.163 | 9.221 | 942 | 10,2% |
| Samtals vöru- og þjónustusala | 35.235 | 31.744 | 3.490 | 11,0% | 136.251 | 121.398 | 14.853 | 12,2% |
| Aðrar rekstrartekjur | 639 | 673 | -33 | -4,9% | 2.189 | 2.386 | -197 | -8,3% |
| Tekjur samtals | 35.874 | 32.417 | 3.457 | 10,7% | 138.440 | 123.785 | 14.655 | 11,8% |
Tekjur af dagvörusölu jukust um 17,9% milli ára en verslunum Krónunnar fjölgaði um eina milli ára með opnun nýrrar verslunar á Akureyri í desember 2022. Tekjur af eldsneyti og rafmagni jukust um 3,3% milli ára en lækkun á heimsmarkaðsverði eldsneytis nam á bilinu 9 - 19%, eftir vörutegundum, á milli ára. Selt magn nam um 44,1 millj. lítra sem er 5,6% aukning milli ára. Tekjur af raftækjasölu jukust um 8,9% milli ára og tekjur af annarri vöru og þjónustusölu aukast um 0,9% milli ára.
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
FESTI
Framlegð af vöru- og þjónustusölu á 4. ársfjórðungi 2023
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 8.109 millj. kr. sem er 18,0% aukning milli ára. Framlegðarstig nam 23,0% og er öbreytt frá síðasta ársfjórðungi en hækkar um 1,4 p.p. frá fyrra ári.
- Framlegð af dagvörusölu nam 4.056 millj. kr. sem er aukning um 20,5% milli ára. Framlegðarstig nam 22,5% sem er lækkun um 0,7 p.p. frá síðasta fjórðungi en hækkun um 0,5 p.p. milli ára.
- Framlegð af eldsneytis- og rafmagnssölu nam 1.214 millj. kr. sem er 197 millj. kr. aukning frá árinu áður. Framlegðarstig nam 14,0% og lækkar um 5,5 p.p. frá síðasta fjórðungi en hækkar um 1,9 p.p. milli ára.
- Framlegð af raftækjasölu nam 1.453 millj. kr. sem er aukning um 13,6% milli ára. Framlegðarstig nam 26,7% sem er aukning um 1,0 p.p. frá síðasta fjórðungi og aukning um 1,1 p.p. milli ára.
- Framlegð af annarri vöru og þjónustusölu nam 1.386 millj. kr. sem er aukning um 14,7% milli ára. Framlegðarstig nam 45,2% sem er hækkun um 12,1 p.p. frá síðasta fjórðungi og 5,4 p.p. frá árinu áður.
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | ||||||||
| Dagvörur | 4.056 | 3.367 | 689 | 20,5% | 15.799 | 13.213 | 2.585 | 19,6% |
| Eldsneyti og rafmagn | 1.214 | 1.017 | 197 | 19,3% | 6.273 | 5.711 | 562 | 9,8% |
| Raftæki | 1.453 | 1.279 | 174 | 13,6% | 4.609 | 4.318 | 291 | 6,7% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 1.386 | 1.208 | 178 | 14,7% | 3.986 | 3.751 | 235 | 6,3% |
| Samtals framlegð af vöru- og þjónustusölu | 8.109 | 6.871 | 1.238 | 18,0% | 30.667 | 26.994 | 3.673 | 13,6% |
Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 8.109 millj. kr. samanborið við 6.871 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2022 sem er 18% hækkun milli ára. Framlegð af dagvörusölu nam 4.056 millj. kr. sem er 20,5% aukning á milli ára. Framlegð af eldsneyti og rafmagni nam 1.214 millj. kr. sem er aukning um 197 millj. kr. milli ára. Eldsneytisverð á heimsmarkaði lækkaði mismunandi eftir tegundum á bilinu 15 – 22% á fjórðungnum en hækkaði um 2% í flugbensíni en lækkaði um 4 – 6% í öðrum tegundum á sama tíma árið áður. Framlegð af raftækjasölu nam 1.453 millj. kr. sem er 13,6% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu nam 1.386 millj. kr. sem er 14,7% aukning milli ára. Framlegðarstig nam 45,2% sem er hækkun um 5,4 p.p. frá árinu áður.
Rekstrarkostnaður 4. ársfjórðungs 2023
- Rekstrarkostnaður á 4F 2023 var 5.600 millj. kr. og hækkar um 349 millj. kr. milli ára eða um 6,7%.
- Launa- og starfsmannakostnaður hækkar um 219 millj. kr. eða 5,9% milli ára.
- Fjöldi stöðugilda nam 1.336 á fjórðungnum sem er fjölgun um 4,0% milli ára.
- Annar rekstrarkostnaður hækkar um 131 millj. kr. eða um 8,6% milli ára.
FESTI
7. febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 3.954 | 3.735 | 219 | 5,9% | 15.440 | 13.456 | 1.984 | 14,7% |
| Annar rekstrarkostnaður | ||||||||
| Rekstarkostnaður fasteigna | 478 | 446 | 32 | 7,2% | 2.008 | 1.751 | 258 | 14,7% |
| Viðhaldskostnaður | 250 | 275 | -24 | -8,8% | 1.027 | 964 | 62 | 6,4% |
| Sölu og markaðskostnaður | 432 | 413 | 18 | 4,4% | 1.545 | 1.523 | 22 | 1,5% |
| Skrifstofu og stjórnunarkostnaður | 174 | 164 | 10 | 6,1% | 528 | 455 | 73 | 16,0% |
| Samskiptakostnaður | 235 | 204 | 31 | 15,2% | 883 | 808 | 75 | 9,2% |
| Vátrygginga og tjónakostnaður | 33 | 6 | 27 | 474,6% | 103 | 150 | -47 | -31,2% |
| Annar kostnaður | 44 | 8 | 37 | 470,8% | 306 | 253 | 53 | 20,8% |
| Samtals annar rekstrarkostnaður | 1.646 | 1.515 | 131 | 8,6% | 6.400 | 5.905 | 495 | 8,4% |
| Samtals rekstrarkostnaður | 5.600 | 5.250 | 349 | 6,7% | 21.840 | 19.361 | 2.480 | 12,8% |
Laun og annar starfsmannakostnaður á 4F 2023 nam 3.954 millj. kr. samanborið við 3.735 millj. kr. á sama tíma árið áður sem er 5,9% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda nam 1.336 á fjörðungnum sem er fjölgun um 52 stöðugildi eða 4,0% milli ára. Samningsbundnar launahækkanir höfðu 84 millj. kr. áhrif til hækkunar milli ára og aukning stöðugilda 140 millj. kr. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu á hækkun launa og annars starfsmannakostnaðar í millj. kr. milli ára:
| Laun og starfsmannakostnaður samtals 4F 2022 | 3.735 |
|---|---|
| Stöðugildi - breyting | 140 |
| Samningsbundnar launahækkanir | 84 |
| Orlofsskuldbinding | -21 |
| Aðrar breytingar | 16 |
| Laun og starfsmannakostnaður samtals 4F 2023 | 3.954 |
Annar rekstrarkostnaður nam 1.646 millj. kr. samanborið við 1.515 m.kr. á 4F 2022, sem er hækkun um 8,6% milli ára. Rekstrarkostnaður fasteigna hækkar um 7,2% vegna fjölgunar verslana, áhrifa veltutengdrar húsaleigu og áhrifa verðbölgu á samningsbundna liði eins og ræstingu, sorphirðu ofl. Áhrif verðbölgu og aukinnar sölu gætir á alla kostnaðarliði en góður árangur hefur náðst í lækkun alls rekstrarkostnaðar í því umhverfi sem nú ríkir eins og sést í kostnaðarsamanburðinum milli ára.
Fjármagnsliðir 4. ársfjörðungs 2023
- Nettó fjármagnskostnaður og áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 865 millj. kr. samanborið við 693 millj. kr. frá árinu áður. Aukningin er því 172 millj. kr. milli ára.
- Fjármagnstekjur námu 88 millj. kr. og hækka um 61 millj. kr. milli ára.
- Fjármagnsgjöld námu 931 millj. kr. og hækka um 254 millj. kr. milli ára.
- Gengismunur var neikvæður um 10 millj. kr. og er jákvæð breyting 102 millj. kr. milli ára.
- Áhrif hlutdeildarfélaga var neikvæð um 12 millj. kr. og lækka um 81 millj. kr. milli ára.
FESTI
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 88 | 28 | 61 | 219,9% | 244 | 178 | 66 | 37,2% |
| Fjármagnsgjöld | -931 | -678 | -254 | 37,5% | -3.544 | -2.408 | -1.137 | 47,2% |
| Gengismunur | -10 | -112 | 102 | -91,2% | -34 | 5 | -39 | -843,3% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | -12 | 69 | -81 | -117,8% | 418 | 453 | -35 | -7,8% |
| Samtals | -865 | -693 | -172 | 24,8% | -2.917 | -1.772 | -1.145 | 64,6% |
Fjármagnstekjur nema 88 millj. kr. og hækka um 61 millj. kr. milli ára. Fjármagnsgjöld nema 931 millj. kr. og hækka um 254 millj. kr. milli ára vegna áhrifa af hækkunum stýrivæta Seðlabankans milli ára. Gengismunur var neikvæður um 10 millj. kr. en var neikvæður um 112 millj. kr. á sama tíma árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga eru neikvæð um 12 millj. kr. en voru jákvæð um 69 millj. kr á sama tíma árið áður.
Efnahagur og fjárhagsleg staða í lok 4. ársfjórðungs 2023
- Heildar eignir námu 96.032 millj. kr. í lok árs 2023 og hafa aukist um 2.659 millj. kr. á árinu.
- Fastafjármunir námu 72.405 millj. kr. og hafa aukist um 954 millj. kr. á árinu.
- Veltufjármunir námu 23.627 millj. kr. og hafa aukist um 1.705 millj. kr. á árinu.
- Nettó vaxtaberandi skuldir námu 33.778 millj. kr. og hafa lækkað um 2.550 millj. kr. frá áramótum.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 37,3% í lok árs 2023 samanborið við 36,9% í árslok 2022.
- Handbært fé nam 3.362 millj. kr. í lok árs 2023 sem er hækkun um 1.250 millj. kr. frá áramótum.
| Milljónir króna | 31.12.2023 | 31.12.2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 14.842 | 14.862 | -20 | -0,1% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.260 | 4.517 | -257 | -5,7% |
| Rekstrarfjármunir | 35.779 | 34.815 | 964 | 2,8% |
| Leigueignir | 8.097 | 8.012 | 84 | 1,1% |
| Fjárfestingarfasteignir | 6.647 | 6.479 | 168 | 2,6% |
| Birgðir | 13.557 | 13.086 | 471 | 3,6% |
| Viðskiptakröfur | 5.985 | 5.960 | 25 | 0,4% |
| Handbært fé | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% |
| Vaxtaberandi skuldir | 37.140 | 38.440 | -1.300 | -3,4% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 33.778 | 36.328 | -2.550 | -7,0% |
| Eignfjárhlutfall | 37,3% | 36,9% | +0,4 p.p. | 1,1% |
| Veltuhraði vörubirgða | 7,6 | 7,6 | 0,0 | 0,0% |
Viðskiptavild nam 14.842 millj. kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.260 millj. kr. í lok árs 2023. Rekstrarfjármunir námu 35.779 millj. kr. og hækka um 964 millj. kr frá áramótum. Fjárfestingarfasteignir nema 6.647 millj. kr. og hækka um 168 millj. kr. frá áramótum.
Vörubirgðir hækka um 471 millj. kr. frá áramótum. Viðskiptakröfur aukast um 25 millj. kr., aðrar skammtímakröfur lækka um 41 millj. kr. og handbært fé hækkar um 1.250 millj. kr. frá áramótum.
Nettó vaxtaberandi skuldir námu samtals 33.778 millj. kr. sem er lækkun um 2.550 millj. kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 37,3% í lok árs 2023 samanborið við 36,9% í lok árs 2022. Lausafjárstaða félagsins er góð og efnahagsreikningur félagsins sterkur.
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
FESTI
Sjóðstreymi 4. ársfjórðungs 2023
- Handbært fé frá rekstri nam 1.933 millj. kr. eða 23,8% af framlegð, samanborið við 1.830 millj. kr. árið áður.
- Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 1.313 millj. kr. sem er lækkun um 48 millj. kr. frá árinu áður.
- Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 1.453 millj. kr. sem er hækkun um 1.928 millj. kr. frá árinu áður.
| Milljónir króna | 4F 2023 | 4F 2022 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2023 | 12M 2022 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé í byrjun tímabils | 4.232 | 1.144 | 3.087 | 269,8% | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% |
| Handbært fé frá rekstri | 1.933 | 1.830 | 103 | 5,7% | 9.414 | 4.607 | 4.806 | 104,3% |
| Fjárfestingarhreýfingar | -1.313 | -1.361 | 48 | -3,5% | -3.396 | -4.764 | 1.368 | -28,7% |
| Fjármögnunarhreýfingar | -1.453 | 475 | -1.928 | -406,1% | -4.705 | -1.807 | -2.898 | 160,3% |
| Gengismunur af handbæru fé | -37 | 24 | -61 | -253,8% | -63 | 74 | -136 | -185,1% |
| Breyting á handbæru fé | -832 | 944 | -1.776 | -188,2% | 1.313 | -1.964 | 3.277 | -166,8% |
| Handbært fé í lok tímabils | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% | 3.362 | 2.112 | 1.250 | 59,2% |
Handbært fé frá rekstri á 4F 2023 nam 1.933 millj. kr. sem er aukning um 103 millj. kr. milli ára. Fjárfestingar námu 1.313 millj. kr. sem er 48 millj. kr. lægri en árið áður. Keyptir eigin hlutir námu 310 millj. kr. og afborganir af lánum og leiguskuldum námu 1.143 millj. kr. Breyting á handbæru fé var neikvæð um 832 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2023 og nam handbært fé í lok ársins 3.362 millj. kr.
Horfur í rekstri Festi hf., EBITDA og CAPEX áætlun 2024
EBITDA spá félagsins fyrir árið 2024 nemur 11.200 – 11.600 millj. kr.
CAPEX spá félagsins fyrir árið 2024 nemur 4.400 – 4.800 millj. kr.
Eftirfarandi utanaðkomandi þættir geta haft mikil áhrif á rekstur félagsins:
- Áhrif innrásar Rússa í Úkrainu og stríðsástands í Mið-Austurlöndum á vöruframboð.
- Miklar breytingar á heimsmarkaðsverði á hrávöru og gengi ISK.
- Mikil verðbólga á alþjóðamörkuðum þar með talið á Íslandi.
- Óvissa um fjölda ferðamanna til Íslands og ferðalög Íslendinga til útlanda.
Eiginfjárhlutfall félagsins er 37,3 % í lok fjórðungsins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Horfur í rekstrinum eru ágætar og er félagið vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.
Hluthafar
- Markaðsvirði félagsins í lok árs 2023 nam 61,8 milljörðum króna og hækkar um 12,6% frá síðasta fjórðungi.
- Hluthafar félagsins voru 1.191 í lok árs 2023 og fækkar um 24 frá síðasta fjórðungi.
- Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður 3 kr. á hlut vegna ársins 2023 eða samtals 904 millj. kr., sem er 26,3% af hagnaði ársins.
- febrúar 2024 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4F og 12M 2023
FESTI
Kynningarfundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 8. febrúar 2024
Opinn kynningarfundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 8. febrúar 2024 þar sem Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Festi munu kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum. Fundurinn hefst kl. 08:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, 3. hæð.
Skráning á vefstreymi fer fram hér: https://www.festi.is/cc/uppgjor-4f-2023
Þáttakendur sem fylgjast með rafrænt geta sent inn spurningar á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar.
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur 2024: 6. mars 2024
- 1F 2024: 29. apríl 2024
- 2F 2024: 31. júlí 2024
- 3F 2024: 30. október 2024
- 4F 2024: 5. febrúar 2025
- Aðalfundur 2025: 5. mars 2025
Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs ([email protected]).