AI assistant
Festi — Earnings Release 2022
Feb 8, 2023
2195_rns_2023-02-08_33598a83-3bbd-496e-9936-acc682728442.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
FESTI
EBITDA 2.293 millj. kr. á 4F og 10.020 millj. kr. fyrir 12M 2022
Helstu niðurstöður
- Vörusala nam 31.744 millj. kr. samanborið við 26.428 millj. kr. árið áður og jókst um 20,1% milli ára.
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.871 millj. kr. Framlegðarstig nam 21,6% og lækkar um 3,1 p.p. mestmegnis vegna hækkunar á hrávöruverðum á heimsmarkaði milli ára.
- Viðbótarkostnaður vegna nýs kjarasamnings á vinnumarkaði frá 1. nóvember sl. nam um 200 millj. kr. á fjórðungnum.
- EBITDA nam 2.293 millj. kr. samanborið við 2.809 millj. kr. á 4F 2021, sem jafngildir 18,4% lækkun milli ára en lækkunin er 9,5% ef tekið er tillit til sölu hagnaðar fasteigna 276 millj. kr. sem var á 4F 2021.
- Icelandic Food Company ehf., 45% eignarhluti keyptur, verður dótturfélag í 100% eigu frá 1. janúar 2023.
- Eigið fé í lok árs 2022 nam 34.460 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 36,9% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
- Á árinu 2022 skila N1, ELKO og Krónan sinni bestu EBITDA afkomu frá upphafi ef ekki er tekinn með sölu hagnaðar fasteigna hjá Krónunni á árinu 2021.
- EBITDA fyrir árið 2022 nam 10.020 millj. kr. sem er í takt við miðgildi afkomuspár félagsins ef tekið er tillit til viðbótar kostnaðar nýs kjarasamnings frá 1. nóvember sl. sem var ekki inni í áætlunum.
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||||||||
| Vöru- og þjónustusala | 31.744 | 26.428 | 5.316 | 20,1% | 121.398 | 98.736 | 22.662 | 23,0% |
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | 6.871 | 6.522 | 349 | 5,4% | 26.994 | 24.646 | 2.348 | 9,5% |
| Aðrar rekstrartekjur | 673 | 724 | -51 | -7,1% | 2.386 | 2.316 | 70 | 3,0% |
| EBITDA | 2.293 | 2.809 | -516 | -18,4% | 10.020 | 10.118 | -98 | -1,0% |
| EBIT | 1.529 | 2.156 | -627 | -29,1% | 6.707 | 7.660 | -953 | -12,4% |
| EBT | 835 | 1.712 | -877 | -51,2% | 4.936 | 6.161 | -1.226 | -19,9% |
| Hagnaður tímabilsins | 708 | 1.354 | -646 | -47,7% | 4.082 | 4.972 | -890 | -17,9% |
| Efnahagsreikningur | 31.12.2022 | 31.12.2021 | Breyt. | % Breyt. | ||||
| Birgðir | 13.086 | 9.545 | 3.540 | 37,1% | ||||
| Viðskiptakröfur | 5.960 | 4.757 | 1.203 | 25,3% | ||||
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 30.014 | 27.312 | 2.702 | 9,9% | ||||
| Handbært fé | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 27.902 | 23.309 | 4.593 | 19,7% | ||||
| Sjóðstreymi | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
| Handbært fé frá rektí | 1.830 | 888 | 942 | 106,1% | 4.607 | 8.292 | -3.685 | -44,4% |
| Fjárfestingarhreýlingar | -1.361 | 2.199 | -3.560 | -161,9% | -4.764 | 2.104 | -6.867 | -326,5% |
| Fjármögnunarhreýlingar | 475 | -3.341 | 3.816 | -114,2% | -1.807 | -8.989 | 7.181 | -79,9% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Framlegð af vörusölu | 21,6% | 24,7% | -3,0% | -12,3% | 22,2% | 25,0% | -2,7% | -10,9% |
| EBITDA/framlegð | 33,4% | 43,1% | -9,7% | -22,5% | 37,1% | 41,1% | -3,9% | -9,6% |
| Eiginfjárhlutfall | 36,9% | 39,4% | -2,5% | -6,4% | 36,9% | 35,7% | 1,2% | 3,4% |
| Laun/framlegð | 54,4% | 47,1% | 7,3% | 15,4% | 49,8% | 47,3% | 2,5% | 5,4% |
| Fjárfestingar | 1.439 | 846 | 593 | 70,1% | 5.774 | 2.381 | 3.393 | 142,5% |
| Veltuhráði birgða | 7,6 | 8,2 | -0,6 | -7,3% | 7,6 | 8,2 | -0,6 | -7,3% |
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
FESTI
Rekstur 4. ársfjórðungs 2022
Rekstur félagsins var góður á fjórða ársfjórðungi og í takt við áællanir félagsins. Vörusala jókst um 20,1% milli ára en mikil aukning var í dagvörusölu og sölu á öðrum vörum. Heilt yfir var magnaukning á flestum sviðum rekstrar en gríðarleg hækkun hrávöruverða hafði sem fyrr áhrif á framlegðarstig sem lækkaði um 3,1 p.p. milli ára. Afkoma N1 var 301 millj. kr. verri en árið áður. Framlegð eldsneytis lækkar á fjórðungnum milli ára en einnig er neikvæður mismunur í hagnaði olíuvarna að fjárhæð 124 millj. kr. að skýra mismuninn. Afkoma ELKO var svipuð milli ára á fjórðungnum og afkoma Krónunnar var 86 millj. kr betri en árið áður. EBITDA félagsins nam 2.293 millj. kr. sem er 516 millj. kr. verri afkoma en í sama fjórðungi árið áður.
Tekjur 4. ársfjórðungs 2022
- Tekjur af vöru- og þjónustusölu námu 31.744 millj. kr. sem er um 20,1% aukning milli ára.
- Tekjur af dagvörusölu námu 15.286 millj. kr. sem er aukning um 17,9% milli ára.
- Tekjur af eldsneytis- og rafmagnssölu jukust um 2.263 millj. kr. milli ára eða 36,7%.
- Tekjur af raftækjasölu námu 4.995 millj. kr. sem er 4,4% aukning milli ára.
- Tekjur af annarri vöru- og þjónustusölu námu 3.039 millj. kr. sem er aukning um 20,8% milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vöru- og þjónustusala | ||||||||
| Dagvörur | 15.286 | 12.970 | 2.316 | 17,9% | 56.852 | 51.861 | 4.991 | 9,6% |
| Eldsneyti og rafmagn | 8.423 | 6.160 | 2.263 | 36,7% | 38.564 | 23.798 | 14.766 | 62,0% |
| Raftæki | 4.995 | 4.783 | 213 | 4,4% | 16.761 | 15.326 | 1.435 | 9,4% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 3.039 | 2.516 | 524 | 20,8% | 9.221 | 7.751 | 1.470 | 19,0% |
| Samtals vöru- og þjónustusala | 31.744 | 26.428 | 5.316 | 20,1% | 121.398 | 98.736 | 22.662 | 23,0% |
| Aðrar rekstrartekjur | 673 | 724 | -51 | -7,1% | 2.386 | 2.316 | 70 | 3,0% |
| Tekjur samtals | 32.417 | 27.152 | 5.265 | 19,4% | 123.785 | 101.052 | 22.732 | 22,5% |
Tekjur af dagvörusölu jukust um 17,9% milli ára en verslunum Krónunnar fjölgaði um tvær verslanir frá fyrra ári með opnun nýrrar verslunar í Borgartúni í maí sl. og ný verslun Krónunnar á Akureyri opnaði í desember. Pá opnaði Krónan nýja stærri verslun í Skeifunni í byrjun júlí en lokaði minni verslun í sama hverfi á sama tíma. Tekjur af eldsneyti og rafmagni hækkuðu um 36,7% milli ára en hækkun á heimsmarkaðsverði eldsneytis nam á bilinu 18-60% milli vörutegunda. Selt magn nam um 41,8 millj. lítra og jókst lítillega milli ára. Tekjur af raftækjasölu jukust um 4,4% milli ára sem skýrist helst af aukningu í vefverslun og verslun á Keflavíkurflugvelli. Tekjur af öðrum vörum og þjónustu aukast um 20,8% milli ára en N1 opnaði nýtt verkstæði fyrir bifreiðabjónustu sína í Klettagörðum í september sl. sem hefur farið mjög vel af stað.
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
FESTI
Framlegð af vöru- og þjónustusölu á 4. ársfjórðungi 2022
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.871 millj. kr. sem er 5,4% aukning milli ára.
- Framlegð af dagvörusölu nam 3.367 millj. kr. sem er aukning um 13,5% milli ára.
- Framlegð af eldsneytis- og rafmagnssölu nam 1.017 millj. kr. sem er 233 millj. kr. lægri en árið áður. Framlegðarstig nam 12,1% og lækkar um 8,2 p.p. milli ára.
- Framlegð af raftækjasölu nam 1.279 millj. kr. sem er aukning um 1,1% milli ára.
- Framlegð af öðrum vörum og þjónustu nam 1.208 millj. kr. sem er aukning um 16,2% milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | ||||||||
| Dagvörur | 3.367 | 2.967 | 400 | 13,5% | 13.213 | 12.334 | 879 | 7,1% |
| Eldsneyti og rafmagn | 1.017 | 1.251 | -233 | -18,7% | 5.711 | 5.234 | 478 | 9,1% |
| Raftæki | 1.279 | 1.264 | 14 | 1,1% | 4.318 | 3.985 | 333 | 8,4% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 1.208 | 1.040 | 168 | 16,2% | 3.751 | 3.093 | 658 | 21,3% |
| Samtals framlegð af vöru- og þjónustusölu | 6.871 | 6.522 | 349 | 5,4% | 26.994 | 24.646 | 2.348 | 9,5% |
Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.871 millj. kr. samanborið við 6.522 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2021 sem er 5,4% hækkun milli ára. Framlegð af dagvörusölu nam 3.367 millj. kr. sem er 13,5% aukning á milli ára. Framlegð af eldsneyti og rafmagni nam 1.017 millj. kr. sem er um 233 millj. kr. samdráttur milli ára. Framlegðarstig eldsneytis lækkar úr 20,3% í 12,1% eða 8,2 p.p. Neikvæður mismunur í hagnaði af eldsneytisvörunum nemur 124 millj. kr. milli ára en einnig er lægri framlegð per krónu á seldan líter milli ára, sérstaklega í sölu á bensíni. Framlegð af raftækjasölu nam 1.279 millj. kr. sem er 1,1% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu nam 1.208 millj. kr. sem er aukning um 16,2% milli ára.
Rekstrarkostnaður 4. ársfjórðungs 2022
- Rekstrarkostnaður á 4F 2022 var 5.250 millj. kr. og hækkar um 814 millj. kr. frá 4F 2021 eða um 18,3%.
- Launa- og starfsmannakostnaður hækkar um 663 millj. kr. milli ára eða um 21,6%.
- Annar rekstrarkostnaður hækkar um 151 millj. kr. milli ára eða um 11,1%
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 3.735 | 3.072 | 663 | 21,6% | 13.456 | 11.659 | 1.797 | 15,4% |
| Annar rekstrarkostnaður | ||||||||
| Rekstarkostnaður fasteigna | 446 | 396 | 50 | 12,5% | 1.751 | 1.519 | 232 | 15,3% |
| Viðhaldskostnaður | 275 | 254 | 21 | 8,3% | 964 | 908 | 56 | 6,2% |
| Sölu og markaðskostnaður | 413 | 329 | 85 | 25,7% | 1.523 | 1.217 | 306 | 25,1% |
| Samskiptakostnaður | 204 | 203 | 2 | 0,9% | 808 | 699 | 109 | 15,6% |
| Skrifstofu og stjörnunarkostnaður | 164 | 142 | 22 | 15,4% | 455 | 417 | 38 | 9,1% |
| Vátrygginga og fjónakostnaður | 6 | 8 | -2 | -25,1% | 150 | 201 | -51 | -25,4% |
| Niðurfærsla krafna og tapaðar kröfur | -53 | -47 | -6 | 13,2% | -15 | -11 | -4 | 41,0% |
| Annar kostnaður | 61 | 81 | -20 | -24,5% | 268 | 235 | 34 | 14,3% |
| Samtals annar rekstrarkostnaður | 1.515 | 1.364 | 151 | 11,1% | 5.905 | 5.186 | 719 | 13,9% |
| Samtals rekstrarkostnaður | 5.250 | 4.437 | 814 | 18,3% | 19.361 | 16.844 | 2.516 | 14,9% |
Laun og annar starfsmannakostnaður á 4F 2022 nam 3.735 millj. kr. samanborið við 3.072 millj. kr. á sama tíma árið áður sem er 21,6% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda nam 1.284 á fjórðungnum sem er fjölgun um 129
FESTI
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
stöðugildi milli ára. Þrjár samningsbundnar launahækkanir tóku gildi á milli tímabilanna eða í janúar 2022, apríl 2022 og í nóvember 2022 sem höfðu 315 millj. kr. áhrif til hækkunar milli ára. Þá nam viðbótarkostnaður vegna aukinna stöðugilda 321 millj. kr. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu á hækkun launa og annars starfsmannakostnaðar í millj. kr. milli ára:
| Laun og launatengd gjöld samtals 4F 2021 | 3.072 |
|---|---|
| Stöðugildi - breyting | 321 |
| Samningsbundnar launahækkanir | 248 |
| Orlofsskuldbinding | 67 |
| Starfsmannakostnaður | 27 |
| Laun og launatengd gjöld samtals 4F 2022 | 3.735 |
Annar rekstrarkostnaður var 1.515 millj. kr. samanborið við 1.364 m.kr. á 4F 2021, sem er hækkun um 11,1% milli ára. Aukningin stafar að mestu vegna sölutengds kostnaðar eins og kostnaði við færsluhirðingu og veltutengdrar húsaleigu.
Fjármagnsliðir 4. ársfjórðungs 2022
- Nettó fjármagnskostnaður og áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 693 millj. kr. samanborið við 443 millj. kr. frá árinu áður. Aukningin er því 250 millj. kr. milli ára.
- Fjármagnstekjur námu 28 millj. kr. og eru óbreyttar milli ára.
- Fjármagnsgjöld námu 678 millj. kr. og hækkuðu um 158 millj. kr. milli ára.
- Áhrif hlutdeildarfélaga námu 69 millj. kr. og hækkuðu um 61 millj. kr. milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 28 | 28 | 0 | -0,9% | 178 | 90 | 88 | 97,9% |
| Fjármagnsgjöld | -678 | -519 | -158 | 30,5% | -2.408 | -1.957 | -451 | 23,0% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 69 | 8 | 61 | 793,2% | 453 | 301 | 153 | 50,8% |
| Samtals | -693 | -443 | -250 | 56,3% | -1.772 | -1.499 | -272 | 18,2% |
Fjármagnstekjur nema 28 millj. kr. sem er svipað og á fyrra ári. Fjármagnsgjöld nema 678 millj. kr. og hækka um 158 millj. kr. milli ára mestmegnis vegna áhrifa af hækkunum stýrisvaxta Seðlabankans milli ára. Áhrif hlutdeildarfélaga nema 69 millj. kr. og hækka um 61 millj. kr. milli ára.
Efnahagur og fjárhagsleg staða í lok 4. ársfjórðungs 2022
- Heildar eignir námu 93.373 millj. kr. í lok árs 2022 og hafa aukist um 7.401 millj. kr. á árinu.
- Fastafjármunir námu 71.450 millj. kr. og hafa aukist um 4.673 millj. kr. á árinu.
- Veltufjármunir námu 21.923 millj. kr. og hafa aukist um 2.728 millj. kr. á árinu.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,9% í lok árs 2022 samanborið við 39,4% í árslok 2021.
- Handbært fé nam 2.112 millj. kr. í lok árs 2022 sem er lækkun um 1.891 millj. kr. frá áramótum.
FESTI
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
| Milljónir króna | 31.12.2022 | 31.12.2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 14.862 | 14.668 | 194 | 1,3% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.517 | 4.744 | -228 | -4,8% |
| Rekstrarfjármunir | 34.815 | 32.544 | 2.271 | 7,0% |
| Leigueignir | 8.012 | 6.155 | 1.857 | 30,2% |
| Fjárfestingarfasteignir | 6.479 | 6.100 | 378 | 6,2% |
| Birgðir | 13.086 | 9.545 | 3.540 | 37,1% |
| Viðskiptakröfur | 5.960 | 4.757 | 1.203 | 25,3% |
| Handbært fé | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% |
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 30.014 | 27.312 | 2.702 | 9,9% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 27.902 | 23.309 | 4.593 | 19,7% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 36.328 | 29.731 | 6.597 | 22,2% |
| Eignfjárhlutfall | 36,9% | 39,4% | -2,5 p.p. | -6,4% |
| Veltuhráði vörubirgða | 7,6 | 8,2 | -0,6 | -7,3% |
Viðskiptavild nam 14.862 millj. kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.517 millj. kr. í lok 4F 2022. Rekstrarfjármunir námu 34.815 millj. kr. og hækka um 2.271 millj. kr. frá áramótum. Fjárfestingarfasteignir 6.479 millj. kr. og hækka um 378 millj. kr. frá áramótum.
Vörubirgðir hækka um 3.540 millj. kr. vegna hækunar hrávöruverða og opnun nýrra verslana á árinu. Fjárbinding í eldsneytisbirgðum eykst um 1.780 millj. kr. eða 70% en magn í lítrum um 8%. Viðskiptakröfur hækka um 1.203 millj. kr. frá áramótum í takt við hækun heimsmarkaðsverða og aukna veltu.
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga námu samtals 27.902 millj. kr. sem er hækun um 4.593 millj. kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,9% í lok árs 2022 samanborið við 39,4% í lok árs 2021. Lausafjárstaða félagsins er góð og efnahagsreikningur félagsins sterkur.
Sjóðstreymi 4. ársfjórðungs 2022
- Handbært fé frá rekstri á 4F 2022 var 1.830 millj. kr. samanborið við 888 millj. kr. á 4F 2021.
- Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 1.361 millj. kr. en voru jákvæðar um 2.199 millj. kr. á 4F 2021.
- Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 475 millj. kr. en voru neikvæðar um 3.341 millj. kr. á 4F 2021.
| Milljónir króna | 4F 2022 | 4F 2021 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2022 | 12M 2021 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé í byrjun tímabils | 1.144 | 4.245 | -3.101 | -73,0% | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% |
| Handbært fé frá rekstri | 1.830 | 888 | 942 | 106,1% | 4.607 | 8.292 | -3.685 | -44,4% |
| Fjárfestingarhreyfingar | -1.361 | 2.199 | -3.560 | -161,9% | -4.764 | 2.104 | -6.867 | -326,5% |
| Fjármögnunarhreyfingar | 475 | -3.341 | 3.816 | -114,2% | -1.807 | -8.989 | 7.181 | -79,9% |
| Gengismunur af handbærú fé | 24 | 12 | 12 | 105,4% | 74 | 33 | 41 | 123,0% |
| Breyting á handbærú fé | 968 | -242 | 1.210 | -499,4% | -1.891 | 1.440 | -3.330 | -231,3% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% | 2.112 | 4.003 | -1.891 | -47,2% |
FESTI
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
Handbært fé frá rekstri á 4F 2022 nam 1.830 millj. kr. sem er aukning um 942 millj. kr. milli ára. Fjárfestingar námu 1.439 millj. kr. sem er aukning um 593 millj. kr. milli ára. Nýtt langtímalán var tekið á fjórðungnum að fjárhæð 3.960 millj. kr. til að fjármagna fjárfestingar ársins og styrkja lausafjárstöðu. Afborganir af vaxtaberandi lánum námu um 3.300 millj. kr. og af leiguskuldum 186 millj. kr. Handbært fé jókst um 968 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2022 og nam 2.112 millj. kr. í lok árs 2022.
EBITDA spá
EBITDA spá félagsins fyrir árið 2023 nemur 9.750 - 10.250 millj. kr.
Eftirfarandi utanaðkomandi þættir geta haft mikil áhrif á rekstur félagsins:
- Áhrif kjaradeilna á vinnumarkaði
- Áhrif innrásar Rússá í Úkrainu á vöruframboð
- Miklar breytingar á heimsmarkaðsverði á hrávöru og gengi ISK
- Mikil verðbólga á alþjóðamörkuðum þar með talið á Íslandi
- Óvissa um fjölda ferðamanna til Íslands og ferðalög Íslendinga til útlanda
Eiginfjárhlutfall félagsins er 36,9% í lok fjórðungsins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Horfur í rekstrinum eru ágætar og er félagið vel stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.
Hluthafar
- Markaðsvirði félagsins í lok árs 2022 nam 56,9 milljörðum króna.
- Hluthafar félagsins voru 1.269 í lok árs 2022.
Vefstreymi fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 9. febrúar 2023
Vefstreymi fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 9. febrúar þar sem Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi og staðgengill forstjóra, mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum. Fundurinn hefst kl. 08:30.
Skráning á fundinn fer fram hér: https://vimeo.com/webinars/events/01df3ef7-1a92-444a-b812-e9138603c7ac
Þáttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallpráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að lokinni kynningu.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar
- febrúar 2023 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2022
FESTI
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur 2023: 22. mars 2023
- 1F 2023: 3. maí 2023
- 2F 2023: 26. júlí 2023
- 3F 2023: 25. október 2023
- 4F 2023: 7. febrúar 2024
- Aðalfundur 2024: 20. mars 2024
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og staðgengill forstjóra ([email protected]).