Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Earnings Release 2023

May 3, 2023

2195_rns_2023-05-03_f835e863-f913-424d-8349-7157b3b8aac3.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2023

Festi hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2023

Helstu niðurstöður

  • Vörusala nam 29.484 millj. kr. samanborið við 24.572 millj. kr. árið áður og jókst um 20,0% milli ára.
  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.227 millj. kr. og jókst 493 millj. kr. eða 8,6% á milli ára.
  • Framlegðarstig nam 21,1% og lækkar um 2,2 p.p. og um 0,5 p.p. frá síðasta ársfjórðungi.  Áframhaldandi þrýstingur á framlegðarstig í öllum vöruflokkum.
  • Laun og starfsmannakostnaður eykst um 22,2% milli ára en stöðugildum fjölgar um 12,2% milli ára vegna opnunar nýrra verslana á síðasta ári.
  • EBITDA nam 1.401 millj. kr. samanborið við 1.749 millj. kr. á 1F 2022, sem jafngildir 19,9% lækkun milli ára.
  • Eigið fé í lok 1F 2023 nam 32.905 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 34,9% samanborið við 36,9% í árslok 2022.
  • EBITDA afkomuspá fyrir árið er óbreytt og nemur 9.750 – 10.250 millj. kr.

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi: 

Kröftugur tekjuvöxtur en rekstrarniðurstaðan litast af áhrifum verðbólgu

„Rekstur félagsins var ágætur á fyrsta ársfjórðungi og í takt við áætlanir félagsins en rekstrarumhverfi smásölu hefur sjaldan verið eins krefjandi og nú. Vörusala jókst um 20,0% miðað við sama tímabil og í fyrra og nam 29.484 millj. kr. Framlegð af vöru- og þjónustusölu jókst um 8,6% og var magnaukning á flestum sviðum rekstrar nema í sölu eldsneytis til stórnotenda milli ára. Áframhaldandi hækkun á aðföngum hafði sem fyrr áhrif á framlegðarstig sem lækkaði um 2,2 p.p. milli ára eða 0,5 p.p. milli ársfjórðunga.

Félagið er í miklum vexti með nýjum verslunum og þjónustu um land allt sem útskýrir að hluta aukningu stöðugilda sem nemur 12,2% milli ára. N1 leiðir breytingar í orkuskiptum á landsvísu með uppsetningu á 30 hraðhleðslustöðvum víðs vegar um landið á næstu mánuðum.  Krónan stendur vaktina nú sem endranær, veitir harða samkeppni og leitar allra leiða til að sporna gegn verðhækkunum á vörum til neytenda sem halda áfram að berast frá birgjum. ELKO heldur áfram sókn sinni á raftækjamarkaði með 14% vexti milli ára. 

Horfur í rekstrinum eru ágætar. Við sjáum fram á sterkt ferðamannasumar með áframhaldandi arðbærum vexti og auknu kostnaðaraðhaldi. EBITDA spá félagsins fyrir árið 2023 er óbreytt eða 9.750 – 10.250 millj. kr.“, segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi. 

Viðhengi: