AI assistant
Festi — Earnings Release 2021
Feb 9, 2022
2195_rns_2022-02-09_f4a9fe1b-2516-44e4-9e15-9907f166a4b6.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
FESTI
Hagnaður 1.354 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2021
Helstu niðurstöður
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.522 millj. kr. samanborið við 5.372 millj. kr. á 4F 2020, sem samsvarar 21,4% hækkun milli ára.
- EBITDA nam 2.809 millj. kr. samanborið við 1.746 millj. kr. á 4F 2020, sem jafngildir 60,8% hækkun.
- Framlegð af vörusölu var 24,7% á 4F 2021 en framlegðin var 23,4% í sama fjórðungi árið áður.
- Hagnaður af sölu eigna nam 276 millj. kr. á 4F 2021.
- Hagnaður á 4F 2021 nam 1.354 millj. kr. samanborið við 526 millj. kr. á 4F 2020.
- Eigið fé í lok árs 2021 nam 33.910 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 39,4% samanborið við 35,7% í lok árs 2020.
- Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru 23.309 millj. kr. í lok ársins samanborið við 29.986 millj. kr. í lok 2020 sem er lækkun um 6.677 millj. kr. á milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||||||||
| Vöru- og þjónustusala | 26.428 | 22.937 | 3.491 | 15,2% | 98.736 | 86.260 | 12.476 | 14,5% |
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | 6.522 | 5.372 | 1.150 | 21,4% | 24.646 | 20.684 | 3.962 | 19,2% |
| Aðrar rekstrartekjur | 724 | 473 | 251 | 53,0% | 2.316 | 1.658 | 658 | 39,7% |
| EBITDA | 2.809 | 1.746 | 1.062 | 60,8% | 10.118 | 7.057 | 3.061 | 43,4% |
| EBIT | 2.156 | 1.135 | 1.020 | 89,9% | 7.660 | 4.429 | 3.232 | 73,0% |
| EBT | 1.712 | 642 | 1.070 | 166,7% | 6.161 | 2.778 | 3.383 | 121,8% |
| Hagnaður timabilsins | 1.354 | 526 | 828 | 157,5% | 4.972 | 2.266 | 2.706 | 119,4% |
| Efnahagsreikningur | 31.12.2021 | 31.12.2020 | Breyt. | % Breyt. | ||||
| Birgðir | 9.545 | 7.668 | 1.877 | 24,5% | ||||
| Viðskiptakröfur | 4.757 | 4.924 | -166 | -3,4% | ||||
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 27.312 | 32.549 | -5.237 | -16,1% | ||||
| Handbært fé | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 23.309 | 29.986 | -6.677 | -22,3% | ||||
| Sjóðstreymi | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
| Handbært fé frá rektí | 888 | 18 | 870 | 4854,7% | 8.292 | 4.387 | 3.905 | 89,0% |
| Fjárfestingarhrefingar | 2.199 | -979 | 3.178 | -324,7% | 2.104 | -3.414 | 5.517 | -161,6% |
| Fjármögnunarhrefingar | -3.341 | -1.455 | -1.886 | 129,7% | -8.989 | -3.800 | -5.189 | 136,5% |
| Handbært fé í lok timabils | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Framlegð af vörusölu | 24,7% | 23,4% | 1,3% | 5,4% | 25,0% | 24,0% | 1,0% | 4,1% |
| EBITDA/framlegð | 43,1% | 32,5% | 10,6% | 32,5% | 41,1% | 34,1% | 6,9% | 20,3% |
| Eiginfjárhlutfall | 39,4% | 35,7% | 3,7% | 10,4% | 39,4% | 35,7% | 3,7% | 10,5% |
| Laun/framlegð | 47,1% | 54,6% | -7,5% | -13,7% | 47,3% | 50,9% | -3,6% | -7,0% |
| Fjárfestingar | 846 | 1.258 | -412 | -32,8% | 2.381 | 3.842 | -1.461 | -38,0% |
| Veltuhraði birgða | 8,2 | 8,6 | -0,4 | -4,7% | 8,2 | 8,6 | -0,4 | -4,7% |
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
FESTI
Rekstur fjórða ársfjórðungs 2021
Rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi gekk vel. Rekstur N1, Krónunnar og ELKO var mun betri en á sama fjórðungi árið áður og í takt við væntingar stjórnenda. EBITDA félagsins nam 2.809 millj. kr. sem er 1.062 millj. kr. betri afkoma en í sama fjórðungi árið áður. EBITDA afkoma ársins 2021 nam 10.118 millj. kr sem er í takt við uppfærða EBIDTA spá frá 29. október 2021 sem gerði ráð fyrir að EBITDA afkoma ársins yrði á bilinu 9.800 – 10.200 millj. kr.
Tekjur fjórða ársfjórðungs
- Vöru- og þjónustusala nam 26.428 millj. kr. í 4F 2021 samanborið við 22.937 millj. kr. í 4F 2020, sem samsvarar 15,2% hækkun milli ára.
- Sala á dagvörum nam 12.970 millj. kr. og hækkar um 2,5% milli ára.
- Eldsneytis- og rafmagnssala nam 6.160 millj. kr. og hækkar um 54,1% á milli ára.
- Sala af raftækjum nam 4.783 millj. kr. á fjórðungnum sem er 15,2% aukning á milli ára.
- Sala á öðrum vörum nam 2.516 millj. kr. sem er 17,7% aukning milli ára.
- Flokkun tiltekinna rekstrarteknna og rekstrargjalda fyrir árið 2020 hefur verið breytt til að samræma flokkun innan samstæðunnar. Áhrifin eru eingöngu innan hvers fjórðungs innan ársins 2020 en hefur engin áhrif á tölur fyrir allt árið.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vöru- og þjónustusala | ||||||||
| Dagvörur | 12.970 | 12.652 | 318 | 2,5% | 51.861 | 47.680 | 4.181 | 8,8% |
| Eldsneyti og rafmagn | 6.160 | 3.998 | 2.162 | 54,1% | 23.798 | 18.639 | 5.159 | 27,7% |
| Raftæki | 4.783 | 4.150 | 633 | 15,2% | 15.326 | 12.941 | 2.385 | 18,4% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 2.516 | 2.137 | 379 | 17,7% | 7.751 | 7.000 | 751 | 10,7% |
| Samtals vöru-og þjónustusala | 26.428 | 22.937 | 3.491 | 15,2% | 98.736 | 86.260 | 12.476 | 14,5% |
| Aðrar rekstrartekjur | 724 | 473 | 251 | 53,0% | 2.316 | 1.658 | 658 | 39,7% |
| Tekjur samtals | 27.152 | 23.858 | 3.294 | 13,8% | 101.052 | 87.918 | 13.134 | 14,9% |
Sala á dagvörum jókst um 318 millj. kr. milli ára en bæði Krónan og N1 eiga sinn hlut í þeirri aukningu. Sala á eldsneyti og rafmagni eykst um 2.162 millj. kr. milli ára en eldneytisverð á heimsmarkaði hækkaði að meðaltali um 90% milli ára. Sala á raftækjum hækkaði um 633 millj. kr. eða 15,2% og sala á öðrum vörum um 379 millj. kr.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | ||||||||
| Dagvörur | 2.699 | 2.540 | 159 | 6,3% | 12.334 | 10.616 | 1.719 | 16,2% |
| Eldsneyti og rafmagn | 1.251 | 795 | 456 | 57,4% | 5.234 | 3.997 | 1.237 | 30,9% |
| Raftæki | 1.264 | 1.003 | 261 | 26,0% | 3.985 | 3.141 | 844 | 26,9% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 1.307 | 1.034 | 273 | 26,4% | 3.093 | 2.930 | 163 | 5,6% |
| Samtals framlegð af vöru- og þjónustusölu | 6.522 | 5.372 | 1.150 | 21,4% | 24.646 | 20.684 | 3.962 | 19,2% |
Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.522 millj. kr. samanborið við 5.372 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2020 sem er 21,4% hækkun milli ára. Framlegð af dagvörusölu nam 2.699 millj. kr. sem er 6,3% aukning á milli ára.
FESTI
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
Framlegð af eldsneyti og rafmagni nam 1.251 millj. kr. sem er um 57,4% aukning milli ára. Jákvæð áhrif vegna uppgöra á varnarsamningum eldsneytis nema 142 millj. kr. milli ára.
Framlegð af raftækjasölu nam 1.264 millj. kr. sem er 26,0% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu var 1.307 millj. kr. sem er aukning um 26,4% milli ára.
Flokkun tiltekinna rekstrartekna og rekstrargjalda fyrir árið 2020 hefur verið breytt til að samræma flokkun innan samstæðunnar. Áhrifin eru eingöngu innan fjórðunga ársins 2020 þar sem vörusala og kostnaðarverð seldra vara hækka um sömu fjárhæð og framlegð flyst milli dagvöru og annara vöru og þjónustu. Breytingin hefur engin á ársreikning ársins 2021 eða samanburðartölur og hefur engin áhrif á afkomu samstæðunnar, eignir, skuldir, eigið fé eða sjöðstreymi.
Rekstrarkostnaður fjórða ársfjórðungs
- Rekstrarkostnaður á 4F 2021 nam 4.437 millj. kr. og hækkar um 338 millj. kr. frá 4F 2020 sem er 8,3% hækkun á milli ára.
- Launakostnaður hækkar um 139 millj. kr. milli fjórðunga eða 4,8%.
- Annar rekstrarkostnaður hækkar um 199 millj. kr. milli fjórðunga eða 17,1%.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 3.072 | 2.933 | 139 | 4,8% | 11.659 | 10.521 | 1.138 | 10,8% |
| Annar rekstrarkostnaður | ||||||||
| Rekstarkostnaður fasteigna | 396 | 369 | 27 | 7,4% | 1.519 | 1.530 | -11 | -0,8% |
| Viðhaldskostnaður | 254 | 164 | 90 | 54,7% | 908 | 672 | 237 | 35,2% |
| Sölu og markaðskostnaður | 329 | 290 | 39 | 13,4% | 1.217 | 991 | 227 | 22,9% |
| Samskiptakostnaður | 203 | 204 | -1 | -0,7% | 699 | 653 | 46 | 7,1% |
| Skrifstofu og stjórnarkostnaður | 142 | 123 | 19 | 15,4% | 417 | 477 | -60 | -12,5% |
| Vátrygginga og tjónakostnaður | 8 | 24 | -16 | -68,2% | 201 | 154 | 47 | 30,3% |
| Niðurfærsla krafna og tapaðar kröfur | -26 | -12 | -14 | 116,2% | 11 | 53 | -42 | -79,8% |
| Annar kostnaður | 59 | 3 | 56 | 1601,1% | 213 | 235 | -22 | -9,3% |
| Samtals annar rekstrarkostnaður | 1.364 | 1.166 | 199 | 17,1% | 5.186 | 4.765 | 421 | 8,8% |
| Samtals rekstrarkostnaður | 4.437 | 4.098 | 338 | 8,3% | 16.844 | 15.286 | 1.559 | 10,2% |
Laun og annar starfsmannakostnaður á 4F 2021 nam 3.072 millj. kr. samanborið við 2.933 millj. kr. á 4F 2020 sem er 4,8% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda nam 1.155 á fjórðungnum og lækkaði um 14 stöðugildi milli ára. Aukinn starfsmannakostnaður kemur inn á fjórðunginn milli ára. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu breytingu starfsmannakostnaðar í millj. kr. milli ára:
| Starfsmannakostnaður samtals 4F 2020 | 2,933 |
|---|---|
| Stöðugildi - breyting | -26 |
| Samningsbundnar launahækkanir | 88 |
| Orlofsskuldbinding | 6 |
| Annað | 72 |
| Starfsmannakostnaður samtals 4F 2021 | 3,072 |
FESTI
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
Annar rekstrarkostnaður nam 1.364 millj. kr. samanborið við 1.166 millj. kr. á 4F 2020, sem er hækkun um 199 millj. kr. eða 17,1% milli ára. Viðhaldskostnaður hækkar um 90 millj. kr. en kostnaðurinn var óvenju lágur í fyrra á sama fjórðungi vegna áhrifa COVID. Sölu og markaðskostnaður eykst um 39 millj. kr. í takt við aukna sölu og meira markaðsstarfs.
Fjármagnsliðir á fjórða ársfjórðungi
- Nettó fjármagnskostnaður nam 443 millj. kr. samanborið við 493 millj. kr. á sama fjórðungi árið áður.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 28 | 24 | 3 | 14,0% | 90 | 102 | -12 | -12,0% |
| Fjármagnsgjöld | -519 | -468 | -51 | 10,9% | -1.957 | -2.044 | 87 | -4,3% |
| Gengismunur | 40 | -80 | 120 | -150,4% | 67 | 23 | 44 | 187,6% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 8 | 30 | -22 | -74,1% | 301 | 268 | 33 | 12,3% |
| Samtals | -443 | -493 | 50 | -10,1% | -1.499 | -1.651 | 152 | -9,2% |
Efnahagur og fjárhagsleg staða í árslok
- Samtals eignir námu 85.972 millj. kr. í lok ársins 2021 og hafa hækkað um 2.607 millj. kr. frá áramótum.
- Fasteignir félagsins voru hækkaðar í árslok um 2.027 millj. kr. vegna gangvirðisendurmats á fasteignum í eigin rekstri
- Eiginfjárhlutfall félagsins nam 39,4% í lok árs 2021 samanborið við 35,7% í lok árs 2020.
- Handbært fé nam 4.003 millj. kr. í lok árs 2021 sem er hækkun um 1.440 millj. kr. á árinu.
| Milljónir króna | 31.12.2021 | 31.12.2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 14.668 | 14.668 | 0 | 0,0% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.744 | 4.971 | -227 | -4,6% |
| Rekstrarfjármunir | 32.544 | 32.297 | 247 | 0,8% |
| Leigueignir | 6.155 | 5.420 | 736 | 13,6% |
| Fjárfestingarfasteignir | 6.100 | 7.467 | -1.367 | -18,3% |
| Birgðir | 9.545 | 7.668 | 1.877 | 24,5% |
| Viðskiptakröfur | 4.757 | 4.924 | -166 | -3,4% |
| Handbært fé | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% |
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 27.312 | 32.549 | -5.237 | -16,1% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 23.309 | 29.986 | -6.677 | -22,3% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 29.731 | 35.596 | -5.865 | -16,5% |
| Eignfjárhlutfall | 39,4% | 35,7% | 3,7% | 10,4% |
| Veltuhraði vörubirgða | 8,2 | 8,6 | -0,4 | -4,7% |
FESTI
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
Viðskiptavild nam 14.668 m.kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.744 millj. kr. í lok ársins. Rekstarfjármunir námu 32.554 millj. kr. og fjárfestingarfasteignir 6.100 millj. kr. Gangvirðisendurmat fasteigna í eigin rekstri nam 2.027 millj. kr. til hækkunar á rekstrarfjármunum og á móti til hækkunar á eigin fé 1.621 millj. kr. og til hækkunar á tekjuskattskuldbindingu 406 millj. kr. Birgðir félagsins hækka um 1.877 millj. kr. milli ára, þar af eldsneytisbirgðir um 1.534 millj. kr. sem skýrist af mestu leyti af hækkun eldsneytisverðs milli ára.
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru samtals 23.309 milljónir króna sem er lækkun um 6.677 millj. kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall félagsins nam 39,4% í lok árs 2021 samanborið við 35,7% í lok árs 2020. Lausafjárstaða félagsins er sterk og efnahagsreikningur félagsins einnig.
Sjóðstreymi og fjárfestingar á fjórða ársfjórðungi
- Handbært fé frá rekstri á 4F 2021 nam 888 millj. kr. samanborið við 18 millj. kr. á 4F 2020.
- Fjárfestingahreyfingar jákvæðar um 2.199 millj. kr., aukning um 3.178 millj. kr. milli ára.
- Fjármögnunarhreýfingar neikvæðar um 3.341 millj. kr., aukning um 1.886 millj. kr. milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2021 | 4F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 12M 2021 | 12M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé í byrjun timabils | 4.245 | 4.991 | -746 | -14,9% | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% |
| Handbært fé frá rekstri | 888 | 18 | 870 | 4854,7% | 8.292 | 4.387 | 3.905 | 89,0% |
| Fjárfestingarhreyfingar | 2.199 | -979 | 3.178 | -324,7% | 2.104 | -3.414 | 5.517 | -161,6% |
| Fjármögnunarhreýfingar | -3.341 | -1.455 | -1.886 | 129,7% | -8.989 | -3.800 | -5.189 | 136,5% |
| Gengismunur af handbæru fé | 12 | -12 | 24 | -196,9% | 33 | 21 | 12 | 55,3% |
| Breyting á handbæru fé | -242 | -2.428 | 2.186 | -90,0% | 1.440 | -2.806 | 4.246 | -151,3% |
| Handbært fé í lok timabils | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% | 4.003 | 2.563 | 1.440 | 56,2% |
Handbært fé frá rekstri á 4F 2021 nam 888 millj. kr. sem er hækkun um 870 millj. kr. milli ára. Félagið gerði nýjan samning við færsluhirði á fjórðungnum þar sem uppgjör á greiðslukortakröfum til félagsins var stytt. Jákvæð áhrif sjóðsflæðis á fjórðunginn nema um 400 millj. kr. Fjárfestingar á fjórðungnum námu 846 millj. kr. en sala eigna um 1.405 millj. kr. Eigin bréf voru keypt fyrir 669 millj. kr. og afborganir af vaxtaberandi lánum námu 2.544 millj. kr. á fjórðungnum. Handbært fé lækkáði um 242 millj. kr. á fjórða ársfjórðungi 2021.
Horfur í rekstri Festi hf. og EBITDA spá 2022
EBITDA spá Festi fyrir árið 2022 er áættuð á bilinu 9.000 – 9.400 millj. kr.
Eftirfarandi þættir geta haft áhrif á rekstur félagsins:
- Hækkun á innfluttum vörum og hnökrar í aðfangakeðju á heimsmarkaði
- Órói á heimsmarkaðsverði eldsneytis og gengi ISK
- Óvissa vegna áhrifa COVID-19
Eiginfjárhlutfall félagsins er 39,4 % í lok ársins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Festi hefur skýra stefnu um fjármagnsskipan og mun t.d. við eignasölu koma fjármunum til hluthafa með kaupum á eigin bréfum, arðgreiðslum og/eða lækkun hlutafjár.
- feb. 2022 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2021
FESTI
Hluthafar
- Markaðsvirði félagsins í lok árs 2021 nam 73,1 milljörðum króna.
- Hluthafar félagsins voru 1.037 í lok árs 2021.
Kynningarfundur fimmtudaginn 10. febrúar 2022
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 10. febrúar 2022 í höfuðstöðvum Festi að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi 3. hæð. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri, mun kynna uppgjórið og svara spurningum ásamt Magnúsi Kr. Ingasyni, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs.
Fundurinn hefst kl. 08:30. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasiðu
Festi: https://festi.is/r/fjarhagsupplysingar og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur 2022: 22. mars 2022
- 1F 2022: 4. mai 2022
- 2F 2022: 27. júli 2022
- 3F 2022: 28. október 2022
- 4F 2022: 8. febrúar 2023
- Aðalfundur 2023: 22. mars 2023
Nánari upplýsingar veita Eggert Þór Kristófersson forstjóri, ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason framkvæmdarstjóri fjármálasviðs, ([email protected]).