Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Earnings Release 2022

May 4, 2022

2195_rns_2022-05-04_211de3a7-8deb-45a1-81bb-3c3a696e6d41.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2022

Festi hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2022

Helstu niðurstöður

  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 5.734 millj. kr.  Framlegðarstig nam 23,3% og lækkar um 1,3 p.p. milli ára.
  • EBITDA nam 1.749 millj. kr. samanborið við 1.505 millj. kr. á 1F 2021, sem jafngildir 16,2% hækkun milli ára.
  • Hækkun hrávöruverðs í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og aukin verðbólga áhyggjuefni.
  • Eigið fé í lok 1F 2022 nam 31.879 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 36,6% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru 25.035 millj. kr. í lok 1F 2022 samanborið við 23.309 millj. kr. í lok árs 2021.
  • EBITDA spá félagsins fyrir árið 2022 er hækkuð um 400 millj. kr. og er nú 9.400 - 9.800 millj. kr. 

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:

„Árið fer vel af stað og erum við ánægð með rekstrarárangurinn á fyrsta ársfjórðungi. Væntingar okkar stóðu til þess að afleiðingar heimsfaraldursins á aðfangakeðjuna síðustu 2 árin, myndu ganga til baka á þessu ári. Fyrsti stríðsreksturinn í Evrópu frá árinu 1945 breytti þeirri mynd algjörlega. Ljóst er að innrás Rússa í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á verð á hrávörumörkuðum og aukið óvissu í aðfangakeðjunni enn frekar. Við munum áfram kappkosta að þjónusta okkar viðskiptavini sem best og leita leiða til að auka hagkvæmni og þannig vinna gegn þeim verðhækkunum á aðföngum sem nú ganga yfir.“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Viðhengi: