Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Earnings Release 2022

Jul 27, 2022

2195_rns_2022-07-27_8bdfc9ca-c073-4eaf-83ea-54337112daa9.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Afkoma á 2. ársfjórðungi 2022

Festi hf.: Afkoma á 2. ársfjórðungi 2022

Helstu niðurstöður

  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 7.325 millj. kr.  Framlegðarstig nam 24,5% og lækkar um 0,6 p.p. milli ára.
  • EBITDA nam 2.911 millj. kr. samanborið við 2.458 millj. kr. á 2F 2021, sem jafngildir 18,4% hækkun milli ára.
  • Hækkun hrávöruverðs í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og aukin verðbólga áframhaldandi áhyggjuefni.
  • Eigið fé í lok 2F 2022 nam 32.984 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 36,2% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru 27.513 millj. kr. í lok 2F 2022 samanborið við 23.309 millj. kr. í lok árs 2021.
  • EBITDA spá félagsins fyrir árið 2022 er hækkuð um 400 millj. kr. og er nú 9.800 - 10.200 millj. kr. 

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:

„Reksturinn á öðrum ársfjórðungi gekk vel og umfram áætlanir okkar. N1 eykur veltu sína og afkomu verulega á milli ára með fjölgun erlendra ferðamanna og auknum umsvifum hjá stórum viðskiptavinum félagsins. Rekstur ELKO og Krónunnar var einnig góður á öðrum ársfjórðungi. Hækkun á eldsneyti og matvöru eykur fjárbindingu í birgðum verulega miðað við sama fjórðung í fyrra, sem er afleiðing stríðsreksturs í Úkraínu og alþjóðlegrar verðbólgu. Vegna betri reksturs og mati stjórnenda á horfum út árið þá hækkum við EBITDA spá ársins 2022 um 400 milljónir króna eða í 9.800 – 10.200 millj. kr.“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Viðhengi: