AI assistant
Festi — Earnings Release 2020
Feb 24, 2021
2195_rns_2021-02-24_cf0c3c55-3745-42ba-a641-7c03fedbc61c.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
FESTI
Hagnaður 526 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2020
Helstu niðurstöður
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu í 4F 2020 var 5.288 m.kr. samanborið við 5.273 m.kr. í 4F 2019, sem samsvarar 0,3% hækkun milli ára.
- EBITDA nam 1.746 m.kr. á 4F 2020 samanborið við 1.766 m.kr. 4F 2019, sem jafngildir 1,1% lækkun.
- Áhrifa COVID-19 samkomutakmarkana sem komu til á 4F 2020 höfðu umtalsverð áhrif á reksturinn.
- Framlegð af vörusölu var 22,8% á 4F 2020 en framlegðin var 24,8% á 4F 2019
- Framlegð af vörusölu á árinu var 24% samanborið við 23,8% árið 2019
- Kostnaður vegna COVID19 var 153 m.kr. á 4F 2020 og 394 m.kr. á árinu 2020.
- Eigið fé í lok árs 2020 var 29.784 m.kr. og eiginfjárhlutfall 35,7% samanborið við 35,3% í lok árs 2019.
- Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindingar var 29.986 m.kr. í lok 2020 samanborið við 28.011 m.kr. í lok 2019.
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||||||||
| Vöru- og þjónustusala | 23.222 | 21.279 | 1.943 | 9,1% | 86.260 | 84.991 | 1.268 | 1,5% |
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | 5.288 | 5.273 | 15 | 0,3% | 20.684 | 20.196 | 488 | 2,4% |
| Aðrar rekstrartekjur | 708 | 428 | 280 | 65,5% | 1.658 | 1.851 | -193 | -10,4% |
| EBITDA | 1.746 | 1.766 | -20 | -1,1% | 7.057 | 7.605 | -549 | -7,2% |
| EBIT | 1.135 | 1.301 | -165 | -12,7% | 4.429 | 5.198 | -770 | -14,8% |
| EBT | 642 | 840 | -198 | -23,5% | 2.778 | 3.371 | -593 | -17,6% |
| Hagnaður tímabilsins | 526 | 715 | -189 | -26,4% | 2.266 | 2.796 | -529 | -18,9% |
| Efnahagsreikningur | ||||||||
| Birgðir | 7.668 | 7.678 | -10 | -0,1% | ||||
| Viðskiptakröfur | 4.924 | 3.756 | 1.167 | 31,1% | ||||
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 32.549 | 33.380 | -832 | -2,5% | ||||
| Handbært fé | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 29.986 | 28.011 | 1.974 | 7,0% | ||||
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé frá rektí | 18 | 1.279 | -1.261 | -98,6% | 4.387 | 5.556 | -1.170 | -21,1% |
| Fjárfestingarhrefingar | -979 | -865 | -113 | 13,1% | -3.414 | 478 | -3.891 | -814,6% |
| Fjármögnunarhrefingar | -1.455 | -1.888 | 433 | -22,9% | -3.800 | -4.961 | 1.161 | -23,4% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Framlegð af vörusölu | 22,8% | 24,8% | -2,0% | -8,1% | 24,0% | 23,8% | 0,2% | 0,9% |
| EBITDA/framlegð | 33,0% | 33,5% | -0,5% | -1,4% | 34,1% | 37,7% | -3,5% | -9,4% |
| Eiginfjárhlutfall | 35,7% | 35,3% | 0,4% | 1,2% | ||||
| Laun/framlegð | 55,5% | 51,3% | 4,2% | 8,2% | 50,9% | 49,3% | 1,6% | 3,2% |
| Arðsemi eigin fjár | 7,8% | 10,2% | -2,4% | -24,0% | ||||
| Fjárfestingar | 1.258 | 761 | 497 | 65,2% | 3.842 | 2.258 | 1.585 | 70,2% |
| Veltuhraði birgða | 8,8 | 8,6 | 0 | 2,3% | 8,6 | 8,6 | 0 | 0,0% |
FESTI
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
Rekstur fjórða ársfjórðungs
Rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi gekk ágætlega þrátt fyrir umtalsverð áhrif COVID-19 heimsfaraldursins á fjórðunginn. EBITDA félagsins var 1.746 m. kr. og lækkáði um 1,1% milli ára. Samkomutakmarkanir stjórnvalda í tengslum við COVID-19 faraldurinn hafði tölverð efnahagsleg áhrif á rekstur allra félaga samstæðunnar en ólík starfssemi þeirra dró úr heildaráhrifunum á rekstur félagsins. Rekstur ELKO var umfram væntingar en rekstur N1 og Krónunnar lítillega undir væntingum vegna áhrifa COVID-19 og kostnaði honum tengdum. Heildarniðurstaðan er að EBITDA er 2% undir EBITDA spá sem var birt í 4. nóvember 2020.
Tekjur
- Tekjur af võru- og þjónustusölu nám 23.222 m.kr. í 4F 2020 samanborið við 21.279 m.kr. í 4F 2019, sem samsvarar 9,1% hækkun.
- Fjölbreytt viðskiptamódel. Aukning í dagvöru- og raftækjasölu.
- Mikil aukning í Snjallverslun Krónunnar og vefverslun ELKO.
- Flokkun tiltekinna rekstrartekná og rekstrargjalda fyrir árið 2019 hefur verið breytt til að samræma flokkun innan samstæðunnar
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vöru- og þjónustusala | ||||||||
| Dagvörur | 12.996 | 10.156 | 2.840 | 28,0% | 47.680 | 41.205 | 6.475 | 15,7% |
| Eldsneyti og rafmagn | 3.998 | 5.789 | -1.790 | -30,9% | 18.639 | 26.085 | -7.446 | -28,5% |
| Raftæki | 4.091 | 3.291 | 800 | 24,3% | 12.941 | 10.911 | 2.030 | 18,6% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 2.137 | 2.044 | 93 | 4,6% | 7.000 | 6.790 | 210 | 3,1% |
| Samtals võru- og þjónustusala | 23.222 | 21.279 | 1.943 | 9,1% | 86.260 | 84.991 | 1.268 | 1,5% |
| Aðrar rekstrartekjur | 708 | 428 | 280 | 65,5% | 1.658 | 1.851 | -193 | -10,4% |
| Tekjur samtals | 23.929 | 21.707 | 2.222 | 10,2% | 87.918 | 86.842 | 1.076 | 1,2% |
Á fjórðungnum hækkuðu tekjur af dagvörusölu 28,0% og tekjur af raftækjasölu um 24,3% milli ára. Tekjur af eldsneyti og rafmagni lækkuðu um 30,9% en selt magn bifreiðaeldsneytis lækkáði um 24%. Lægri tekjur af sölu eldsneytis skýrist einnig að lægra eldsneytisverði á heimsmarkaði sem lækkáði um 35,2% að meðaltali milli ára. Tekjur af öðrum vörum og þjónustu hækkuðu um 4,6% milli ára.
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð af võru- og þjónustusölu | ||||||||
| Dagvörur | 2.516 | 2.265 | 251 | 11,1% | 10.616 | 9.727 | 889 | 9,1% |
| Eldsneyti og rafmagn | 795 | 1.311 | -516 | -39,4% | 3.997 | 5.249 | -1.252 | -23,9% |
| Raftæki | 943 | 845 | 99 | 11,7% | 3.141 | 2.561 | 580 | 22,7% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 1.034 | 852 | 182 | 21,4% | 2.930 | 2.659 | 272 | 10,2% |
| Samtals framlegð af võru- og þjónustusölu | 5.288 | 5.273 | 15 | 0,3% | 20.684 | 20.196 | 488 | 2,4% |
Framlegð af võru- og þjónustusölu var 5.288 m.kr. samanborið við 5.273 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2019, sem er 0,3% hækkun milli ára. Framlegð af dagvörusölu var 2.516 m.kr. sem er 11,1% aukning á milli ára. Framlegð af raftækjasölu var 943 m.kr. sem er 11,7% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu var 1.034 m.kr. sem er
FESTI
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
aukning um 21,4% milli ára. Framlegð af eldsneyti og rafmagni var 795 m.kr. sem er um 39,4% lækkun á milli ára.
Flokkun tiltekinna rekstrartekna og rekstrargjalda hefur verið breytt til að samræma flokkun milli félaganna í samstæðunni. Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt til samræmis við nýja flokkun en breytingin hefur engin áhrif á afkomu samstæðunnar, eignir, skuldir, eigið fé eða sjóðsstreymi.
Rekstrarkostnaður
- Rekstrarkostnaður í 4F 2020 var 4.249 m.kr. samanborið við 3.934 m.kr. á 4F 2019.
- Aukinn kostnaður vegna COVID-19 áhrifa var 152 m.kr. í 4F 2020.
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 2.933 | 2.703 | 230 | 8,5% | 10.521 | 9.953 | 568 | 5,7% |
| Annar Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Rekstarkostnaður fasteigna | 369 | 301 | 68 | 22,4% | 1.530 | 1.538 | -7 | -0,5% |
| Viðhaldskostnaður | 164 | 109 | 55 | 50,6% | 672 | 579 | 93 | 16,1% |
| Sölu og markaðskostnaður | 441 | 425 | 16 | 3,7% | 991 | 994 | -3 | -0,4% |
| Skrifstofu og stjórnarkostnaður | 123 | 75 | 48 | 64,0% | 477 | 460 | 17 | 3,7% |
| Samskiptakostnaður | 204 | 223 | -19 | -8,7% | 653 | 593 | 60 | 10,1% |
| Vátrygginga og tjónakostnaður | 64 | 25 | 39 | 153,9% | 154 | 83 | 71 | 86,1% |
| Annar kostnaður | -55 | 59 | -115 | -193,8% | 270 | 172 | 98 | 57,3% |
| Kostnaður við kaup á Hlekk ehf. | 7 | 12 | -6 | -45,9% | 18 | 71 | -52 | -73,9% |
| Samtals annar rekstrarkostnaður | 1.317 | 1.231 | 85 | 6,9% | 4.765 | 4.489 | 276 | 6,2% |
| Samtals Rekstrarkostnaður | 4.249 | 3.934 | 315 | 8,0% | 15.286 | 14.441 | 844 | 5,8% |
Laun og annar starfsmannakostnaður í 4F 2020 var 2.933 m.kr. samanborið við 2.703 m.kr. á 4F 2019 sem er 8,5% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda var 1.180 sem er fjölgun um 92 milli ára sem skýrist af 2 nýjum verslunum Krónunnar og nýrri verslun ELKO á Akureyri. Þá er einnig viðbótarmönnun í verslunum vegna COVID-19 en kostnaðurinn nam 107 m.kr. á fjórðungnum. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu á hækkun starfsmannakostnaðar í m. kr. milli ára:
| Starfsmannakostnaður samtals 4F 2019 | 2.703 |
|---|---|
| Stöðugildi - breyting | 68 |
| Samningsbundnar launahækkanir | 64 |
| Orlofsskuldbinding | -16 |
| COVID-19 áhrif | 107 |
| Annað | 7 |
| Starfsmannakostnaður samtals 4F 2020 | 2.933 |
Annar rekstarkostnaður var 1.317 m.kr. samanborið við 1.231 m.kr. á 4F 2019, sem er hækkun um 6,9% milli ára. Innfalinn er kostnaður vegna COVID-19 áhrifa í þeim kostnaði er um 45 m.kr.
FESTI
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
Fjármagnsliðir
- Nettó fjármagnskostnaður var 493 m.kr. á 4F 2020 samanborið við 461 m.kr. á 4F 2019.
- Greiddir vextir á árinu voru 1.340 m.kr. samanborið við 1.864 m.kr. á árinu 2019 sem er 28% læk kun á milli ára vegna lægra vaxtastigs.
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 24 | 94 | -70 | -74,1% | 102 | 173 | -71 | -41,1% |
| Fjármagnsgjöld | -468 | -546 | -78 | -14,2% | -2.044 | -2.353 | -309 | -13,1% |
| Gengismunur | -80 | -51 | -29 | 56,9% | 23 | 27 | -4 | -14,6% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 30 | 101 | -71 | -70,4% | 268 | 385 | -117 | -30,4% |
| Tap af sölü eignarhluta í félögum | 0 | -60 | 60 | 0,0% | 0 | -60 | 60 | 0,0% |
| Samtals | -493 | -461 | -32 | 7,0% | -1.651 | -1.828 | 177 | -9,7% |
Efnahagur og fjárhagsleg staða
- Samtals eignir voru 83.365 milljónir króna í lok 4F 2020
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 35,7%
- Handbært fé í lok árs 2020 var 2.563 m.kr.
| Milljónir króna | 31.12.2020 | 31.12.2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 14.668 | 14.070 | 598 | 4,2% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.971 | 4.650 | 321 | 6,9% |
| Rekstrafjármunir | 32.297 | 31.434 | 864 | 2,7% |
| Leigueignir | 5.420 | 3.862 | 1.557 | 40,3% |
| Fjárfestingarfasteignir | 7.467 | 7.354 | 113 | 1,5% |
| Birgðir | 7.668 | 7.678 | -10 | -0,1% |
| Viðskiptakröfur | 4.924 | 3.756 | 1.167 | 31,1% |
| Handbært fé | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% |
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 32.549 | 33.380 | -832 | -2,5% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 29.986 | 28.011 | 1.974 | 7,0% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 35.596 | 31.975 | 3.621 | 11,3% |
| Eignfjárhlutfall | 35,7% | 35,3% | 0% | 1,2% |
| Veltuhraði vörubirgða | 8,3 | 8,6 | -0,3 | -3,5% |
Viðskiptavild er 14.668 m.kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.971 m.kr. í lok 4F 2020. Rekstrafjármunir eru 32.297 m.kr. og fjárfestingarfasteignir 7.467 m.kr. í lok fjórðungs. Viðskiptakröfur aukast um 1.167 m. kr. vegna nýs samnings um uppgjör greiðslukortakrafna.
FESTI
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru samtals 29.986 milljónir króna sem er hækkun um 1.974 m.kr. frá áramótum sem skýrist af breytingu á samningi við færsluhirði. Eiginfjárhlutfall félagsins var 35,7% í lok 4F 2020 samanborið við 35,3% í lok árs 2019. Lausafjárstaða félagsins er sterk og efnahagsreikningur félagsins einnig.
Sjóðstreymi og fjárfestingar
- Handbært fé frá rekstri á 4F 2020 var 18 m.kr. samanborið við 1.279 m.kr. á 4F 2019.
- Fjárfestingar félagsins á tímabilinu voru samtals 1.258 m.kr.
| Milljónir króna | 4F 2020 | 4F 2019 | Breyt. | % Breyt. | 2020 | 2019 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé í byrjun tímabils | 4.991 | 6.839 | -1.848 | -27,0% | 5.369 | 4.267 | 1.102 | 25,8% |
| Handbært fé frá rekstri | 18 | 1.279 | -1.261 | -98,6% | 4.387 | 5.556 | -1.170 | -21,1% |
| Fjárfestingarbreyfingar | -979 | -865 | -113 | 13,1% | -3.414 | 478 | -3.891 | -814,6% |
| Fjármögnunarhreyfingar | -1.455 | -1.888 | 433 | -22,9% | -3.800 | -4.961 | 1.161 | -23,4% |
| Gengismunur af handbæru fé | -12 | 4 | -17 | -378,9% | 21 | 29 | -8 | -26,3% |
| Breyting á handbæru fé | -2.428 | -1.470 | -958 | 65,1% | -2.806 | 1.102 | -3.908 | -354,7% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% |
Handbært fé frá rekstri á 4F 2020 nam 18 m.kr. sem er lækkun um 1.261 m. kr. milli ára. Víðskiptakröfur jukust vegna breytinga á samning við færsluhirði til lækkunar á kostnaði, það hefur einskiptis neikvæð áhrif á þennan lið um rúmlega 1.100 m. kr. Fjárfestingar námu 1.258 m. kr. sem er aukning um 497 m. kr. milli ára. Krónan opnaðinýja verslun í Austurveri í Reykjavík og Norðurhellu Hafnarfirði sem og ný verslun ELKO á Akureyri á 4F 2020. Gert er ráð fyrir talsvert minni fjárfestingu á árinu 2021. Handbært fé lækkaði um 2.428 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2020.
Horfur í rekstri Festi hf. og EBITDA spá 2021
EBITDA spá Festi fyrir árið 2021 er áætluð á bilinu 7.500 – 7.900 m.kr.
Eftirfarandi þættir geta haft áhrif á rekstur félagsins
- Óvissa vegna áhrifa COVID-19 og yfirstandandi samkomubanns.
- Órói á heimsmarkaðsverði eldsneytis og gengi ISK.
- Aukið atvinnuleysi og lægri hagvöxtur.
- Íslenska hagkerfið mun verða fyrir áhrifum næstkomandi mánuði/ár.
Eiginfjárhlutfall félagsins er 35,7% í lok fjórðungsins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Horfur í rekstrinum eru góðar og félagið er í vel stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.
FESTI
- febrúar 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 4. ársfjórðungi 2020
Hluthafar
- Markaðsvirði félagsins í lok 4F 2020 nam 57,4 milljörðum króna.
- Endurkaupaáætlun fór af stað 5. október þar sem ákveðið var að kaupa allt að 1,2% af hlutafé
- Gert er ráð fyrir að fjárfestingar verði 2.800 m.kr. á árinu 2021 samanborið við 3.842 m.kr. árið 2020
- Hluthafar félagsins voru 880 í lok 4F 2020.
Kynningarfundur fimmtudaginn 25. febrúar 2021
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar 2021 og fer hann fram í gegnum fjarfundarbúnað vegna samkomubanns. Fundurinn hefst kl. 08:30 og er skráning á fundinn á
https://origo.zoom.us/webinar/register/WN_bexqqMsuQ2iimGAX_RURyw
Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu
Festi: https://festi.is/r/fjarhagsupplysingar
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur 2021: 22. mars 2021
- Árshlutauppgjör 1F 2021: 28. apríl 2021
- Árshlutauppgjör 2F 2021: 28. júlí 2021
- Árshlutauppgjör 3F 2021: 28. október 2021
- Ársuppgjör 4F 2021: 4. febrúar 2022
- Aðalfundur 2022: 22. mars 2022
Nánari upplýsingar veita Eggert Þór Kristófersson forstjóri ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]).