Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Earnings Release 2021

Apr 23, 2021

2195_rns_2021-04-23_39887dfb-aa65-49e1-9865-a4a4880bff3d.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Festi hf: Uppfærð afkomuspá í aðdraganda árshlutauppgjörs 1F 2021

Festi hf: Uppfærð afkomuspá í aðdraganda árshlutauppgjörs 1F 2021

Samkvæmt drögum að árshlutareikningi fyrsta ársfjórðungs 2021 þá nemur EBITDA félagsins 1.505 millj. kr. samanborið við 1.021 millj. kr. árið áður sem er aukning um 484 millj. kr. milli ára. Áhrif COVID-19 heimsfaraldursins á rekstur félagsins hófust á fyrsta ársfjórðungi 2020 og hafði þar umtalsverð neikvæð fjárhagsleg áhrif.

Rekstur fyrsta ársfjórðungs 2021 gekk umfram áætlanir hjá ELKO, Krónunni og N1 þrátt fyrir samkomutakmarkanir stjórnvalda. Nú er fram komin áætlun stjórnvalda um framhald bólusetninga þar sem gert er ráð fyrir að um mitt sumar náist hjarðónæmi og gera má ráð fyrir að í kjölfar þess fari lífið að færast í eðlilegt horf að nýju.

Í ljósi betri afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2021 og áætlana stjórnvalda um framhald bólusetninga þá er EBITDA spá félagsins hækkuð um 400 millj. kr. eða í 7.900 - 8.300 millj. kr. Það skal þó áréttað að rekstur Festi er sveiflukenndur og árstíðabundinn en stærsti hluti EBITDA fellur til á 2 og 3. ársfjórðungi ársins. 

Árshlutareikningur 1. ársfjórðungs 2021 verður birtur 28. apríl næstkomandi og verður kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa haldinn rafrænt fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 8:30.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri, ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri, ([email protected])