Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Capital/Financing Update 2026

Apr 21, 2026

2195_rns_2026-04-21_fd646390-1e3c-4002-addb-cc8c29730a69.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi: Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Festi: Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Festi hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, FESTI261106 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 8,338% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 27. apríl 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.festi.is/skuldabrefogvixlar

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).