Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Capital/Financing Update 2026

Mar 16, 2026

2195_rns_2026-03-16_cd7250fa-2c02-458f-b7d9-68fcc6a41110.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Útgáfa á víxlum

Festi hf.: Útgáfa á víxlum

Festi hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, FESTI260922 fyrir 1.020 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,875% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 23. mars 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verða teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlanna og töku víxlana til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.festi.is/skuldabrefogvixlar

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).