Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Board/Management Information 2024

Jun 27, 2024

2195_rns_2024-06-27_820c0585-7ea1-4fc6-a92e-93df9302eb12.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Breyting á framkvæmdastjórn Festi

Festi hf.: Breyting á framkvæmdastjórn Festi


Festi og Ýmir Örn Finnbogason hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri N1 frá deginum í dag en hann stígur um leið út úr framkvæmdastjórn Festi. Ýmir Örn hefur starfað sem framkvæmdastjóri N1 frá júní 2023. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, mun gegna starfi framkvæmdastjóra N1, þar til nýr aðili verður ráðinn en starfið verður auglýst laust til umsóknar á næstu vikum.

„Við þökkum Ými fyrir gott samstarf og samfylgdina síðastliðið ár og óskum honum velfarnaðar í nýjum verkefnum,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.

„Síðasta ár hefur verið mjög viðburðarríkt og gaman að hafa fengið að kynnast þessu öfluga félagi sem N1 er. Ég vil þakka öllu starfsfólki félagsins fyrir frábært samstarf,“ segir Ýmir Örn Finnbogason.