Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi Board/Management Information 2019

Dec 23, 2019

2195_rns_2019-12-23_5a85df58-3e39-4257-afb1-add5b0db39b9.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Festi hf.: Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Magnús Kr. Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi hf.

Magnús er viðskiptafræðingur, cand.oecon, frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Hann starfaði hjá KPMG 1994 til 1999 en þá réð hann sig sem forstöðumaður reikningshalds hjá Flugleiðum. Magnús var framkvæmdastjóri Fjárvakurs ehf. dótturfélags Icelandair Group hf. frá 2003 fram á mitt ár 2019. Hann mun hefja störf hjá Festi hf. í janúar og taka þá jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

„Það er mikill fengur fyrir Festi hf. að fá Magnús til starfa. Hann hefur umfangsmikla stjórnunarreynslu og þekkir vel til þeirra verkefna sem unnin eru á fjármálasviði Festi hf.  Ég er sannfærður um að hann muni reynast góður liðsmaður í því verkefni að takast á við þær áskoranir sem félagið stendur frammi fyrir á hverjum tíma,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf.