Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi AGM Information 2025

Jan 6, 2025

2195_rns_2025-01-06_3494a2d2-334b-4946-9080-1f4c8f98223a.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Tilkynning frá tilnefningarnefnd Festi hf.

Festi hf.: Tilkynning frá tilnefningarnefnd Festi hf.

Tilnefningarnefnd Festi hf. auglýsir hér með eftir tilnefningum eða áhuga á framboði til stjórnar Festi vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður 5. mars næstkomandi samkvæmt fjárhagsdagatali Festi.

Nefndin er ráðgefandi og er hlutverk hennar að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins á aðalfundi. Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist féla ginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma. Við gerð tillögu um kosningu stjórnarmanna í Festi skal tilnefningarnefndin horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar.

Stjórnarmenn þurfa jafnframt að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi.

Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi vegna sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið dags. 30. júlí 2018. Geta áhugasamir um framboð kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga.

Þess er óskað að tilnefningum eða upplýsingum um áhuga á framboði sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði ásamt ítarlegri ferilskrá fyrir 20. janúar 2025 á netfangið [email protected].

Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar félagsins áður en almennur framboðsfrestur rennur út. Um frest til að skila framboðum gilda ákvæði samþykkta Festi og laga um hlutafélög (tíu sólarhringir fyrir upphaf aðalfundar).

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2025 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 17. janúar nk. með tölvupósti á netfangið [email protected].

Nálgast má gögnin á www.festi.is/vidburdir/adalfundur-festi-2025.