Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi AGM Information 2023

Mar 17, 2023

2195_rns_2023-03-17_54545e92-b11f-4096-891f-5ff8011b1268.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Festi hf.: Aðalfundur 22. mars 2023 - endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar.

Festi hf.: Aðalfundur 22. mars 2023 - endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar.

Aðalfundur Festi hf. verður haldinn miðvikudaginn 22. mars 2023 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14, Kópavogi.

Tillaga til ályktunar hefur borist frá Gildi lífeyrissjóði. Ályktunartillagan verður tekin fyrir á aðalfundinum undir dagskrárliðnum önnur mál. Um efni hennar vísast til meðfylgjandi skjals þar sem gerð er grein fyrir tillögunni.

Að öðru leyti er um óbreytta dagskrá og tillögur að ræða frá fyrri tilkynningu félagsins sem birt var þann 28. febrúar 2023. Vakin er athygli á að undir 6. dagskrárlið fundarins mun tilnefningarnefnd kynna skýrslu sína jafnframt því sem tillögur nefndarinnar sem lúta að breytingum á starfsreglum hennar verða lagðar fyrir fundinn og þær bornar undir atkvæði hluthafa. Um endanlega dagskrá og tillögur er að öðru leyti vísað til meðfylgjandi viðhengis.

Framboðsfrestur til stjórnar rann út kl. 10:00 föstudaginn 17. mars 2023. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  1. Guðjón Reynisson.
  2. Hjörleifur Pálsson.
  3. Magnús Júlíusson.
  4. Margrét Guðmundsdóttir.
  5. Sigurlína Ingvarsdóttir.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Þar sem önnur önnur framboð til stjórnar bárust ekki innan framboðsfrests verður stjórn félagsins sjálfkjörin á aðalfundinum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur má nálgast á heimasíðu félagsins https://www.festi.is/cc/adalfundur-2023 og í skýrslu tilnefningarnefndar.

Fundargögn og allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins https://www.festi.is/cc/adalfundur-2023.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ([email protected]).

Viðhengi: