Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Festi AGM Information 2023

Aug 23, 2023

2195_rns_2023-08-23_5380da7b-a594-4815-9887-34afb4fdfc0b.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hluthafafundur Festi hf.

  1. ágúst 2023

FESTI


FESTI

Dagskrá

  1. Ávarp varaformanns stjórnar.
  2. Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
  3. Kynning forstjóra vegna kaupsamnings um allt hlutafé Lyfju hf.
  4. Tillaga um heimild stjórnar til hækkunar á hlutafé félagsins í tengslum við kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf. og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
  5. Aðrar tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
  6. Önnur mál löglega borin upp.

FESTI

1. Ávarp varaformanns stjórnar Festi

Sigurlína Ingvarsdóttir
Varaformaður stjórnar Festi


Hlutverk Festi er að stýra fjárfestingum, styðja við verðmætasköpun og skapa ný tækifæri

Nokkur lykilskref í vegferð Festi til aukins vaxtar

img-0.jpeg


Framtíðarsýn Festi

Við erum leiðandi, traust og sjálfbær

img-1.jpeg

FESTI

Við aukum virði, ánægju og lífsgæði


FESTI

2. Lækkun hlutafjár

img-2.jpeg


TESTI

Tillaga um lækkun hlutafjár vegna eigin hluta

Tillaga stjórnar Festi hf. um lækkun hlutafjár er svohljóðandi:

  • „Hluthafafundur Festi hf., haldinn 23. ágúst 2023, samþykkir að lækkka hlutafé félagsins úr kr. 312.500.000 að nafnverði í kr. 304.500.000 að nafnverði, einvörðungu til lækkunar eigin hluta á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með um kr. 8.000.000 að nafnverði. Lækkunin tekur einvörðungu til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2022 á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.“

Hljóti tillagan samþykki hluthafafundar verður fjárhæð hlutafjár í samþykktum félagsins breytt til samræmis, þannig að 4. gr. í samþykktum félagsins orðist eftirleiðis svo:

  • „Hlutafé félagsins er 304.500.000 – krónur þrjúhundruðogfjórarmilljónirogfimmhundruðpúsund 00/100 – að nafnverði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna eða margfeldi þeirrar fjárhæðar. Engar hömlur eru settar við ráðstöfun hluthafa á hlutabréfum í félaginu.“

TESTI

Tillaga um lækkun hlutafjár vegna eigin hluta

Til grundvallar tillögunni liggja eftirfarandi skjöl fyrir fundinum:

  1. Yfirlýsing stjórnar Festi vegna lækkunar hlutafjár, dags. 31. júlí 2023, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
  2. Yfirlýsing Deloitte ehf. vegna lækkunar hlutafjár, dags. 31. júlí 2023, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Greinargerð:

Stjórn Festi hf. leggur fyrir hluthafafund haldinn þann 23. ágúst 2023 tillögu um að hlutafé félagsins verði fært niður um kr. 8.000.000 að nafnverði. Um er að ræða eigin hluti sem félagið keypti samkvæmt endurkaupaáætlunum á grundvelli heimildar aðalfundar sem haldinn var 22. mars 2022, sem lið til að lækka hlutafé félagsins og stuðla að betri fjármagnsskipan samkvæmt ákvörðun stjórnar. Verði tillagan samþykkt þá lækkar nafnverð hlutafjár félagsins úr kr. 312.500.000 í kr. 304.500.000. Nafnverð hlutafjár samkvæmt 4. gr. í samþykktum félagsins breytist til samræmis. Lækkunin verður framkvæmd þegar lögmæt skilyrði eru uppfyllt.


FESTI

3. Kynning vegna kaupanna á Lyfju hf.

Ásta S. Fjeldsted
Forstjóri Festi


FESTI CLYFJA

Tilgangur Festi er m.a. að eiga og reka fyrirtæki sem eru leiðandi á sínum mörkuðum...

img-3.jpeg


FESTI CLYFJA

... og koma breiðu úrvali nauðsynjavara og þjónustu á hagstæðu verði til viðskiptavina um land allt

img-4.jpeg

img-5.jpeg


FESTI BYFJA

Samningur um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf. styður þá stefnu

  • Festi hf. og SID ehf. undirrituðu 13. júlí samning um kaup Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf.
  • Heildarvirði Lyfju metið á 7,8 ma.kr. í samningnum en endanlegt kaupverð ræðst af skuldastöðu Lyfju við afhendingu ásamt gengi hlutabréfa í Festi á þeim tíma.
  • Greiðsla fer fram með 10 milljónum hluta í Festi, um 1,8 ma.kr. miðað við markaðsverð á kaupsamningsdegi og greiðslu 6 milljarða króna með handbæru fé að frádregnum nettó vaxtaberandi skuldum Lyfju. Nettó vaxtaberandi skuldir Lyfju eru nú um 1,2 ma.kr. og er ný fjármögnun vegna kaupa því áætluð 4,8 ma.kr.
  • Viðskiptin eru háð því að hluthafafundur Festi samþykki hlutafjárhækkun vegna kaupanna – ásamt samþykki Samkeppniseftirlitsins.

img-6.jpeg
Frá undirritun samnings um kaup Festi á Lyfju


FESTI CLYFJA

...og byr Festi enn frekar undir samfélagsbreytingar

img-7.jpeg
1. Heilsubyltingin

img-8.jpeg
2. Fólksfjölgun og breytt aldurssamsetning

img-9.jpeg
3. Pægindamenningin (e. Convenience culture)


FESTI CLYFJA

img-10.jpeg

#1 Aukin vitund um heilsu og velliðan

img-11.jpeg

Heilsa

img-12.jpeg

Hreyfing

img-13.jpeg

Næring

img-14.jpeg

Útlit

img-15.jpeg

Svefn

img-16.jpeg

Núvitund

  1. Heilsubyltingin

FESTI GLYFJA

#2 Fólksfjölgun og breytt aldurssamsetning

img-17.jpeg
2. Fólksfjölgun og breytt aldurssamsetning

img-18.jpeg
Fólksfjölgun 2003-2073 (bús.)

img-19.jpeg
Aldurssamsetning


FESTI CLYFJA

img-20.jpeg

  1. Pægindamenningin
    (e. Convenience culture)

#3 Aukin pægindi og tafarlaus pjónusta

  • Allt á einum stað
  • Með einum smelli
  • Heim að dyrum
  • Sérfræðingar til taks
  • Öll heimsins gæði
  • Engin bið

FESTI
CYFJA

... og með Lyfju er Festi að snerta fleiri mikilvæga flokka í neyslu heimila

img-21.jpeg

img-22.jpeg


FESTI
STJYFJA

Skýr fordæmi árangurs samruna smásala og lyfsala

Stærstu smásalar heims hafa aukið áherslu á lyf og heilsuvörur ásamt því að bjóða upp á fjarheilbrigðisþjónustu

img-23.jpeg
Verslanir

img-24.jpeg
Walmart Pharmacy

img-25.jpeg
COSTCO PHARMACY

img-26.jpeg
APOTEK ICA

img-27.jpeg
Netsala

img-28.jpeg
Introducing Same Day Prescription Delivery Costco LEAINI WORK 3

img-29.jpeg

img-30.jpeg
SOLO

img-31.jpeg
Fjarheilbrigðis-þjónusta (e. Telehealth)

img-32.jpeg

img-33.jpeg
monar.org/air/air-time-en/bar


FESTI
LYFJA

Lyfja er leiðandi á íslenskum lyfja- og heilsuvörumarkaði

Um Lyfju

🏃 Stofnað 1996
🏃🏻 Fjöldi starfsfólks ~370
🏀 Rekstrartekjur ~14 ma.kr.
🏃 EBITDA framlegð ~1 ma.kr.
🏁🏁 Fjöldi verslana 46

Lyfja er fyrsta apótekið sem neytendur hugsa um hvað varðar:
- Staðsetningu (49%)
- Góða ráðgjöf og þekkingu starfsfólks (42%)
- Betra vörurval (35%)
- Betri þjónustu (32%)

(Gallup mælingar 2022)

img-34.jpeg
Lyfja valið markaðsfyrirtæki ársins 2022

img-35.jpeg

img-36.jpeg

img-37.jpeg
Sofran Lyfja, Stafnæringa, Bælden, Hældenstøtt, Bælden

img-38.jpeg

img-39.jpeg
ÖNDUM AÐEINS BETUR
Rjörgren Pati leidin vaktur i gngnum öndumavællingar á Perakseeballku Lyfju 29. november kl. 11

19


FESTI CLYFJA

Í samruna felast fjölbreytt tækifæri til bættrar þjónustu og aukinnar arðsemi

img-40.jpeg

img-41.jpeg

img-42.jpeg

img-43.jpeg

img-44.jpeg


FESTI BYLYA

Festi gerir ráð fyrir að samruni geti skilað 200-400 m.kr. árlegum samlegðaráhrifum

img-45.jpeg

Skýr samlegð í rekstri stoðeininga

img-46.jpeg

Aukin sala per fm, samnýting verslanahúsnæðis, bílalúgur

img-47.jpeg

Aukin skalahagkvæmni netverslunar, fjölbreyttara võruúrval

img-48.jpeg

Frekari útvíkkun í heilsutengdri þjónustu, samanber bólusetningar, heilsufarsskoðun, Lyfja Heyrn, o.fl.

21


Næstu skref snúa að samskiptum við Samkeppniseftirlitið

  1. júlí
  2. ágúst
  3. ágúst
    Byrjun september...
    ...byrjun næst árs 2024

Kaup-samningur undirritaður.
Hluthafafundur boðaður.
Hluthafafundur Festi.
Stjórn sækir um heimild til hækkunar hlutafjár vegna viðskiptanna.
Samrunatilkynning send til Samkeppniseftirlitsins.

Afstaða Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.
Afhending félagsins fer fram.

img-49.jpeg


img-50.jpeg

4. Heimild til hækkunar hlutafjár

FESTI


TESTI

Tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár

Tillaga stjórnar Festi hf. um heimild til hækkunar hlutafjár er svohljóðandi:

  • „Hluthafafundur Festi hf., haldinn 23. ágúst 2023, samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út nýtt hlutafé í félaginu að nafnverði allt að kr. 10.000.000. Heimild stjórnar skal aðeins nýtt til þess að efna skuldbindingar félagsins um greiðslu hluta kaupverðs samkvæmt samningi á milli Festi hf. og SID ehf., dags. 13. júlí 2023, um kaup Festi hf. á öllum hlutum í Lyfju hf. Forgangsréttur hluthafa samkvæmt 1. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins gildir ekki um hið nýja hlutafé og falla hluthafar því frá áskriftarrétti sínum að hlutafjáraukningunni í samræmi við ákvæði 3. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Nýútgefnir hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu að gættum þeim takmörkunum sem leiða af kvöðum um sölubann samkvæmt kaupsamningnum. Nýútgefnir hlutir veita réttindi frá skráningardegi hlutafjárhækkunar. Heimildin er veitt til 15. maí 2024. Stjórn félagsins skal vera heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við nýtingu heimildarinnar. Heimild þessi skal fellð úr samþykktum þegar hún hefur verið nýtt.“

Hljóti tillagan samþykki hluthafafundar skal hún tekin upp í samþykktir félagsins sem nýtt ákvæði 5. mgr. 5. gr.


FESTI

Tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár

Til grundvallar tillögunni liggja eftirfarandi skjöl fyrir fundinum:

  1. Skýrsla stjórnar Festi vegna tillögu um heimild til hækkunar hlutafjár, dags. 31. júlí 2023, sbr. b. lið 2. mgr. 33. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
  2. Sérfræðiskýrsla Deloitte ehf., dags. 31. júlí 2023, í samræmi við 1. mgr. 37. gr., sbr. 6. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
  3. Umsögn Deloitte ehf., dags. 31. júlí 2023, sbr. c. lið 2. mgr. 33. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Greinargerð:

Stjórn Festi hf. óskar eftir heimild hluthafafundar til að hækka hlutafé í félaginu með útgáfu nýrra hluta að nafnverði kr. 10.000.000 í því skyni að efna kaupsamning, dags. 13. júlí 2023, á milli félagsins og SID ehf. um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf. Samkvæmt því gerir tillaga stjórnar ráð fyrir að hluthafar falli frá forgangsrétti sínum samkvæmt 1. mgr. 5. gr. samþykka félagsins, sbr. einnig 3. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar skal gilda til 15. maí 2024 til samræmis við ákvæði tilgreinds kaupsamnings um lokadag til að uppfylla skilyrði hans (e. long stop date), en samningurinn er meðal annars háður skilyrði um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Nýútgefnir hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu, að því undanskildu þó að Kaski ehf. og Þarabakka ehf. er óheimilt samkvæmt kaupsamningnum, án skriflegs samþykki Festi hf., að láta þá hluti sem þeir fá, eða kunna að fá í Festi hf. framselda frá SID ehf., af hendi í sex mánuði frá efndadegi (við afhendingu).

Að beiðni stjórnar félagsins hefur Deloitte ehf. útbúið sérfræðiskýrslu í samræmi við viðeigandi ákvæði laga nr. 2/1995 um hlutafélög sem hefur að geyma lýsingu á mati viðkomandi löggilts endurskoðanda á verði hluta í Lyfju hf., upplýsingar um aðferðina sem notuð var við matið, tilgreiningu á því hvernig ganggaldið var ákvarðað til samræmis við gengi hlutabréfa í Festi hf. og loks yfirlýsingu um að verðgildi hlutanna í Lyfju hf. svari að minnsta kosti til hins umsamda endurgjalds í formi hluta í Festi hf. Sérfræðiskýrslan, ásamt öðrum viðeigandi gögnum, fylgir með fundarboði til hluthafafundarins.


FESTI

5. Aðrar tillögur um breytingar á samþykktum

img-51.jpeg


TESTI

Tillaga um breytingu á 3. gr. samþykta félagsins

i. Stjórn leggur til að 3. gr. samþykta félagsins verði eftirleiðis svohljóðandi:

  • „Tilgangur félagsins er að eiga og reka fyrirtæki sem eru leiðandi á sínum mörkuðum, þar á meðal en ekki takmarkað við sölu á mat- og drykkjarvöru, orku, raftækjum, lyfjum og heilbrigðistengdri þjónustu. Þá er tilgangur félagsins kaup, sala, eignarhald og rekstur fasteigna, kaup, sala og eignarhald á verðbréfum ásamt lánastarfsemi tengdri rekstrinum og öðrum skyldum rekstri.“

Greinargerð:

Í núgildandi 3. gr. samþykta félagsins er kveðið á um að tilgangur þess sé að eiga og reka fyrirtæki sem eru leiðandi á sínum mörkuðum, t.d. um sölu á eldsneyti og matvörum, kaup, sala og eignarhald og rekstur fasteigna, kaup, sala og eignarhald á verðbréfum, ásamt lánastarfsemi tengdri rekstrinum og öðrum skyldum rekstri. Stjórn leggur til að orðalagi greinarinnar verði breytt og það uppfært til samræmis við núverandi rekstur innan samstæðu félagsins sem og að teknu tilliti til fyrirhugaðra kaupa á öllu hlutafé í Lyfju hf.


TESTI

Tillaga um breytingu á 8. mgr. 11. gr. samþykta félagsins

ii. Stjórn leggur til að 8. mgr. 11. gr. samþykta félagsins verði eftirleiðis svohljóðandi:

  • „Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að hluthafar geti tekið þátt í fundarstörfum hluthafafunda með rafrænum hætti, hvort sem er með þeim hætti að hluthafafundurinn verði rafrænn að öllu leyti eða að hluta. Ákveði stjórn að nýta þessa heimild skal um það sérstaklega getið í fundarboði og leiðbeiningar varðandi þátttöku veittar.“

Greinargerð:

Tillaga stjórnar felur í sér að tekið verði sérstaklega fram í 8. mgr. 11. gr. samþykta félagsins að stjórn sé heimilt að ákveða að hluthafar geti tekið þátt í fundarstörfum hluthafafunda með rafrænum hætti, hvort sem er með þeim hætti að hluthafafundurinn verði rafrænn að öllu leyti eða að hluta. Það að hluthafar geti tekið þátt í hluthafafundum með rafrænum hætti felur í sér að þeir geta tekið þátt í fundarstörfum, þar með talið greitt atkvæði, án þess að vera á fundarstað og er því lagt til að sú tilvísun í gildandi ákvæði falli á brott.


TESTI

Tillaga um breytingu á 9. mgr. 11. gr. samþykta félagsins

iii. Stjórn leggur til að 9. mgr. 11. gr. samþykta félagsins verði eftirleiðis svohljóðandi:

  • „Skal hluthafi sem hyggst nýta sér rafræna þátttöku tilkynna skrifstofu félagsins þar um með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur dögum fyrir boðaðan hluthafafund. Tilkynningunni skulu fylgja skriflegar spurningar er varða dagskrá fundarins eða framlögð skjöl, óski þeir svara á fundinum.“

Greinargerð:

Tillaga stjórnar felur í sér að hluthafi sem hyggst nýta sér rafræna þátttöku á hluthafafundi skuli tilkynna skrifstofu félagsins þar um eigi síðar en tveimur dögum fyrir boðaðan hluthafafund í stað 10 daga líkt og kveðið er á um í núgildandi 9. mgr. 11. gr. samþykktanna.


FESTI

Tillaga um breytingu á 1. mgr. 13. gr. samþykka félagsins

ív. Stjórn leggur til að 1. mgr. 13. gr. samþykka félagsins verði eftirleiðis svohljóðandi:

  • „Til hluthafafunda skal boðað með rafrænum hætti til að tryggja skjótan aðgang að upplýsingunum á jafnréttisgrundvelli. Skylt er að nota trausta miðla er tryggja virka útbreiðslu upplýsinga til almennings á Evrópska efnahagssvæðinu. Til hluthafafundar skal boða minnst þremur vikum fyrir fund og til aðalfundar minnst þremur vikum fyrir fund og lengst sex vikum fyrir fund. Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef réttilega er til hans boðað. Skal mæting miðast við afhenta atkvæðaseðla.“

Greinargerð:

Annars vegar er lögð til breyting á 1. mgr. 13. gr. samþykka félagsins varðandi boðun hluthafafunda, en í núgildandi ákvæði er kveðið á um að boða skuli til hluthafafundar með tilkynningu til hvers hluthafa eða með auglýsingu í dagblaði. Tillaga stjórnar að breytingu er í samræmi við efni 88. gr. b. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og felur í sér að boða skuli til hluthafafundar með rafrænum hætti til að tryggja skjótan aðgang að upplýsingunum á jafnréttisgrundvelli.

Hins vegar er lagt til að kveðið verði á um í greininni að til hluthafafundar skuli boða minnst þremur vikum fyrir fund og til aðalfundar minnst þremur vikum fyrir fund og lengst sex vikum fyrir fund. Tekur tillagan mið af gildandi ákvæði 1. mgr. 88. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.


TESTI

Tillaga um nýja 2. mgr. 13. gr. í samþykktir félagsins

v. Stjórn leggur til að eftirfarandi málsgrein komi inn í 2. mgr. 13. gr. samþykkta félagsins og að gildandi ákvæði 2. mgr. 13. gr. verði eftirleiðis í 3. mgr. 13. gr. samþykktanna:

  • „Stjórn getur ákvæðið að hluthafi skuli tilkynna félaginu þátttöku sína á hluthafafundi innan tiltekins frests fyrir fundinn, sem skal þó eigi vera lengri en tveir dagar. Fundarboð skal innihalda upplýsingar um skráningardag. Atkvæðisréttur á fundinum fer eftir fjölda hluta á því tímamarki þegar skráningarfresti lýkur.“

Greinargerð:

Tillaga stjórnar tekur mið af 5. mgr. 80. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög en markmið með henni er að einfalda og veita svigrúm við undirbúning fyrir hluthafafundi félagsins.


FESTI

Tillaga um breytingu á 2. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins

vi. Stjórn leggur til að 2. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins verði eftirleiðis svohljóðandi:

  • „Tryggt skal við stjórnarkjör að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Náist ekki viðhlítandi niðurstaða um kynjahlutföll við stjórnarkjör þá er stjórnarkjörið ógilt. Þar til lögmæt kosning hefur farið fram með viðhlítandi kynjahlutfallsniðurstöðu þá situr áfram eldri stjórn, eftir því sem við á. Endurtaka skal stjórnarkjör, að því marki sem nauðsynlegt er, á sama hluthafafundi, þegar upplýsingar um ófullnægjandi niðurstöður stjórnarkjörs liggja fyrir. Áður en stjórnarkjörið er endurtekið, að því marki sem nauðsynlegt er, þá skal gert fundarhlé og heimilt að tilnefna fleiri frambjóðendur til stjórnar af því kyni sem hallar á við fyrri kosninguna. Við endurtekið stjórnarkjör skulu þeir tveir einstaklingar af hvoru kyni sem flest atkvæði fá í stjórnarkjöri teljast réttkjörnir og einnig sá er næstur þeim kemur að atkvæðamagni, ef nauðsynlegt var að endurtaka stjórnarkjör.“

Greinargerð:

Tillaga stjórnar lýtur að því að aðlaga orðalag 2. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins að efni samþykktanna að öðru leyti. Er því lagt til að tilvísanir til „aðalstjórnar“ og „varastjórnar“ félagsins falli á brott og greinin aðlöguð samkvæmt því.


TESTI

Tillaga um að 5. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins falli á brott

vii. Stjórn leggur til að eftirfarandi ákvæði 5. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins falli á brott:

  • „Félagsstjórn skal setja sér starfsreglur í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög. Í starfsreglum skal m.a. mælt fyrir um verkaskiptingu stjórnar, boðun stjórnarfunda og tilhögun á boðun varamanna, samskipti og meðferð upplýsinga, mat á hæfi stjórnarmanna við ákvarðanatöku, skipan undirnefnda og annað það sem rétt er að festa í reglur til að stuðla að farsælu starfi stjórnar.“

Greinargerð:

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 22. mars 2022 var samþykkt ítarlegra ákvæði um sama efni sem er nú að finna í 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins. Eftir þá samþykkt hefur 5. mgr. 18. gr. samþykktanna ekki lengur sjálfstætt gildi að áliti stjórnar og er því lagt til að málsgreinin falli á brott.


6. Önnur mål

FESTI


FESTI

Takk fyrir


Fyrirvarar

  • Allar upplýsingar í kynningunni byggja á heimildum sem Festi hf. telur áreiðanlegar við birtingu hennar, en ekki er hægt að tryggja að þær séu óskeikular.
  • Allar upplýsingar í kynningunni eru í eigu Festi hf. Ekki er heimilt að afrita, breyta eða dreifa á nokkurn hátt upplýsingum úr kynningunni, hvorki að hluta til né í heild.
  • Pessi kynning er aðeins ætluð til upplýsingagjafar en ekki sem hluti af eða grunnur að ákvarðanatöku viðtakenda. Viðtakendum ber ekki að túlka upplýsingar í kynningu þessari sem loforð eða leiðbeiningar. Festi hf. ber ekki að veita viðtakendum kynningar þessarar frekari upplýsingar um félagið eða gera breytingar eða leiðréttingar á henni ef upplýsingar sem liggja til grundvallar breytast.
  • Framtíðarhorfur félagsins eru háðar fjölda áhættu- og óvissupátta sem geta haft bau áhrif að raunverulegur árangur í framtíðinni verði umtalsvert frábrugðinn því sem greint er frá í þessari kynningu. Þar má nefna ytri þætti á borð við gengi gjaldmiðla, heimsmarkaðsverð á eldsneyti, framboð á fjármagni, gildistöku nýrra laga og áhrif eftirlitsaðila ásamt öðru.
  • Festi hf. tekur fram að viðtakendur kynningarinnar eiga ekki að treysta á staðhæfingar í henni í framtíðinni þar sem þær eiga eingöngu við á útgáfudegi kynningarinnar. Allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins eru fullgildar í heild sinni með tilliti til þessara fyrirvara.
  • Með móttöku þessarar kynningar staðfestir viðkomandi að hann sé bundinn af framangreindum fyrirvörum og takmörkunum.

img-0.jpeg