Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Skagi hf Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Mar 24, 2025

2206_rns_2025-03-24_b567fb09-60ad-479a-87e9-09831f17a67b.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

SKAGI

Framboð til setu í tilnefninganefnd á aðalfundi Skaga hf. 27. mars 2025

Í framboði til tilnefningarnefndar Vátryggingafélags Íslands hf. á aðalfundi félagsins þann 27. mars 2025 eru eftirfarandi einstaklingar:

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson

Fæðingarár: 1964

Menntun: MA í vinnumarkaðsfræði. Warwick Business School. University of Warwick (1995). BA í stjórnmálafræði. Háskóli Íslands (1993).

Aðalstarf: Prófessor við viðskiptafræðideild HÍ.

Starfsreynsla: Lektor og síðar dósent við viðskiptafræðideild HÍ, stjórnendabjálfi og ráðgjafi hjá Gallup Ísland, sérfræðingur í kjaramáladeild og fræðslustjóri hjá VR, ráðningarstjóri og ráðgjafi í starfsmannamálum hjá Hagvangi hf.

Önnur stjórnarseta: Formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur (2013-2021).

Hlutafjáreign í Skaga og óhæði: Gylfi á enga hluti í Skaga og telst óháður félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila Skaga.

Magnús Bjarnason

Fæðingarár: 1963

Menntun: MBA, B.Sc. viðskiptafræði.

Aðalstarf: MAR Advisors, ráðgjöf tengd fjárfestingum í sjávarútvegi og innviðum.

Starfsreynsla: Framkvæmdastjóri Glacier Partners, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingabanka fyrir Ameríku og Asíu hjá Glitni banka (2005-2010), starfsmaður í ýmsum embættum hjá Utanríkisbjónustunni (1997-2005).

Önnur stjórnarseta: Jurt ehf., Clippers ehf., Iceland Venture Studios, American Scandinavian Foundation.

Hlutafjáreign í Skaga og óhæði: Magnús á enga hluti í Skaga og telst óháður félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila Skaga.


Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Fæðingarár: 1969

Menntun: MBA, University of San Diego, Kalifornia (1996). BS í auglýsingafræði með auka áherslu á markaðsfræði (1994).

Aðalstarf: Framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf.

Starfsreynsla: Associate Partner hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Valcon (2019-2020), VP Global Strategic Planning & HR hjá Alvogen (2015-2019), framkvæmdastjóri þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum (2010-2015), forstöðumaður sölu, einstaklingssvið hjá Símanum (2007-2010), markaðsstjóri hjá Globus (2004-2007), framkvæmdastjóri mannauðssviðs (2002-2004), framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar (2001-2004) IMG (Capacent), starfsmannastjóri hjá Norðurljósum (1999-2001), ráðningastjóri hjá ráðningaþjónustu Gallup (nú Capacent) (1997-1999) og ráðgjafi í starfsmannaþjónustu Gallup (nú Capacent) (janúar-október 1997).

Önnur stjórnarseta: Hagar hf. (stjórnarmaður), Íslandssjóðir (stjórnarmaður), formaður tilnefningarnefndar Símans hf.

Hlutafjáreign í Skaga og óhæði: Jensína á enga hluti í Skaga og telst óháð félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila Skaga.

Samkvæmt samþykktum félagsins skipa þrír aðilar tilnefningarnefnd þess og er því ljóst að sjálfkjörrið er í tilnefningarnefnd félagsins.