Earnings Release • Apr 29, 2025
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer
SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025
Góður taktur í grunnrekstri en neikvæð afkoma fjárfestinga litar niðurstöður
Afkoma 1F 2025 hjá samstæðu Skaga hf.
Helstu lykiltölur 1F 2025
Haraldur I. Þórðarson, forstjóri
„Það var áfram jákvæð þróun í grunnrekstri Skaga á fyrsta fjórðungi ársins og frekari skref voru tekin í samþættingu á milli rekstrareininga í samstæðunni. Verðlækkanir skráðra hlutabréfa drógu niður afkomu fjárfestinga og krefjandi markaðsaðstæður höfðu því töluverð áhrif á rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu.
Tryggingarekstur VÍS er í góðum farvegi og iðgjaldavöxtur er áfram sterkur. Kostnaðarhlutfall lækkar enn og afkoma af tryggingarekstri batnar nokkuð á milli ára þrátt fyrir að árstíðarbundinn tjónaþungi hafi í för með sér neikvæða afkomu af vátryggingasamningum.
Afkoma fjárfestingasafns VÍS litaðist talsvert af erfiðum aðstæðum og miklum sveiflum á eignamörkuðum, sér í lagi vegna verðlækkana á skráðum hlutabréfum á tímabilinu. Virk stýring safnsins skilaði þó árangri umfram viðmið en safnið lækkaði um 1,1% til samanburðar við 1,6% lækkun viðmiðunarvísitölu. Á fjórðungnum var dregið nokkuð úr vægi skráðra hlutabréfa og aukið á vægi skuldabréfa.
Starfsemi Fossa fjárfestingarbanka heldur áfram að vaxa og reglulegar tekjur af bankastarfsemi, s.s. vaxtamunur og samningsbundnar þóknanatekjur, og aðrir vaxandi tekjustraumar spiluðu stórt hlutverk á fyrsta ársfjórðungi.
Sameining SIV eignastýringar og ÍV sjóða undir nafni Íslenskra verðbréfa kláraðist formlega undir lok fyrsta ársfjórðungs. Sameinað félag Íslenskra verðbréfa telur nú 15 starfsmenn í Reykjavík og á Akureyri sem stýra eignasöfnum og sjóðum fyrir stofnanafjárfesta, fagfjárfesta og einstaklinga. Fjölbreytt sjóðaframboð félagsins, sem telur 25 sjóði og þar af 16 sjóði fyrir almenna fjárfesta, er nú aðgengilegt viðskiptavinum innan samstæðunnar sem og nýjum viðskiptavinum í gegnum heimasíðu félagsins www.iv.is. Nú þegar sameiningu félaganna er lokið má búast við að samlegðaráhrif komi fram strax á öðrum ársfjórðungi.
Afkoma af fjármálastarfsemi samstæðu Skaga fyrir skatta var neikvæð um 34 milljónir á tímabilinu og litast að hluta af kostnaði í tengslum við sameiningu Fossa og Íslenskra verðbréfa annars vegar og SIV og ÍV sjóða hins vegar.
Áhrifa aukinnar óvissu í alþjóðamálum gætir enn á fjármálamörkuðum en neikvæð afkoma á fyrsta ársfjórðungi, skýrist að mestu af neikvæðri afkomu af fjárfestingum og árstíðarbundnum tjónaþunga í tryggingastarfsemi. Á fjórðungnum er afkoma af vátryggingastarfsemi umfram áætlun og vöxtur í fjármálastarfsemi er í takti við markmið. Rekstrarhorfur fyrir árið eru því óbreyttar.“
Rekstrarhorfur 2025
Horfur fyrir rekstrarárið 2025, sem við kynntum í uppgjöri þriðja ársfjórðungs 2024 eru1:
Kynningarfundur
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl, klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Haraldur Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum á fjárfestasíðu félagsins. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni fundarins.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga. Netfang: [email protected]
1 Upplýst verður um afkomuhorfur í trygginga- og fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynntar eru.
2 Hreinar fjármálatekjur eru allar tekjur í fjármálastarfsemi, þ.m.t. hreinar vaxta- og þóknanatekjur, fjármunatekjur og aðrar tekjur.
3 Um er að ræða áætlaða ávöxtun fjárfestingareigna VÍS. Ekki verður upplýst um frávik frá áætlaðri ávöxtun fjárfestingareigna. Félagið birtir upplýsingar um stærstu eignir í fjárfestingarstarfsemi í fjárfestakynningum ársfjórðungslega.

Viðhengi:
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.