AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Sláturfélag Suðurlands svf.

Earnings Release Mar 17, 2023

8575_rns_2023-03-17_5611a58d-6e89-4ee0-a872-8c6f20a16b66.html

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 17. mars 2023

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 17. mars 2023

Sláturfélag Suðurlands svf

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf.

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 17. mars 2023 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð.

1. Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2022.

2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykkt

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 19,34% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 9,34% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 34.826.376,- eða 0,1934 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 7,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 27.537.844,- Arðleysisdagur er 20. mars og arðréttindadagur er 21. mars. Greiðsludagur arðs er 29. mars n.k.

3. Kosning stjórnar

Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

Aðalmenn:

Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449

Guðrún S. Magnúsdóttir, kt. 270875-5729

Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, kt. 260864-5489

Sverrir Gíslason, kt. 060469-4319

Þorsteinn Logi Einarsson, kt. 221082-5169

Til vara:

Áslaug Finnsdóttir, kt. 090863-2669

Eiríkur Jónsson, kt. 140465-5429

Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119

Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299

Magðalena Karlotta Jónsdóttir, kt. 010865-3449

4. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda

Löggiltur endurskoðandi:

Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

Skoðunarmenn:

Aðalmenn:

Finnur Pétursson, kt. 260662-2609

Jónas Erlendsson, kt. 230263-7369

Varaskoðunarmenn:

Ingibjörg Harðardóttir, kt. 020371-4639

Ragnar Lárusson, kt. 141057-4569

5. Laun stjórnar og skoðunarmanna

Stjórnarformaður kr. 1.633.000,- á ári.

Meðstjórnendur kr. 815.000,- á ári.

Skoðunarmenn kr. 215.000,- á ári.

Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 215.000,- á ári.

6. Aðrar tillögur

Tillaga um merkingu kjötvara: Aðalfundur samþykkti að vísa til stjórnar.

Tillaga um ráðningu sölu- og markaðsstjóra:   Aðalfundur samþykkti að vísa til stjórnar.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.