AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Sláturfélag Suðurlands svf.

Earnings Release Feb 17, 2022

8575_rns_2022-02-17_1f6620e7-759c-41cd-b2c0-dff7ab4e2a32.html

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2021

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2021

Reykjavík, 17. febrúar 2022.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2021

        Rekstrartekjur ársins 13.023 m.kr. en 11.352 m.kr. árið 2020

        234 m.kr. hagnaður á árinu á móti 259 m.kr. tapi árið áður

        EBITDA afkoma var 1.026 m.kr. en 363 m.kr. árið 2020

        Eigið fé 5.350 m.kr. og eiginfjárhlutfall 50%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2021 var 234 m.kr. Árið áður var 259 m.kr. tap.   Betri markaðsaðstæður og aðgerðir sem gripið var til skýra bætta afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 5.350 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 50%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 13.023 m.kr. árið 2021, en 11.352 m.kr. árið áður og hækka því um 15%. Aðrar tekjur voru 135 m.kr. en 79 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 6.316 m.kr. en 5.335 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 3.605 m.kr. og hækkaði um tæpt 1%, annar rekstrarkostnaður var 2.211 m.kr. og hækkaði um rúm 2%. Afskriftir lækkuðu um tæpt 1%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 545 m.kr., en 123 m.kr. rekstrartap árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.026 m.kr. en var 363 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 260 m.kr., en voru 208 m.kr. árið áður. Gengistap var 4 m.kr. samanborið við 7 m.kr. gengishagnað árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 8 m.kr.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 59 m.kr. en tekjufærður 68 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 234 m.kr. en 259 m.kr. tap árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 956 m.kr. árið 2021 samanborið við 361 m.kr. árið 2020. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2021 voru 10.631 m.kr. og eiginfjárhlutfall 50%.   Veltufjárhlutfall var 2,4 árið 2021, en 1,8 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 362 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 419 m.kr. árið áður. Seldar voru eignir fyrir 131 m.kr. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 44 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 226 m.kr. og bifreiðum 92 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2021 var ekki greiddur arður af B-deild stofnsjóðs og ekki reiknaðir vextir á A-deild stofnsjóðs.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2022 þann 25. ágúst 2022.

Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 18. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 4,84%, alls 26,7 m.kr. eða 0,1484 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 21,0 m.kr.

Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 50% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,4. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 2.536 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 86 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 564 m.kr. og góður aðgangur að skammtímafjármögnun sé þess þörf.

Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 1.672 m.kr. eða um 15% vegna betri markaðsaðstæðna og aðgerða til að auka tekjur. Staðan á veitingamarkaði batnaði auk þess sem samstæðan styrkti stöðu sína á smásölumarkaði. Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 493 m.kr.

Framleiðsla kjöts á landsvísu dróst saman um 0,3% á árinu 2021 en sala jókst um 2,4%. Áhyggjuefni er áætlaður samdráttur í kindakjötsframleiðslu á komandi árum en afkoma bænda í greininni er slæm og brýnt að hún verði bætt. Hækkanir á hrávörumarkaði hafa verið mjög miklar einkum á áburði og öðrum rekstrarvörum bænda. Verði stuðningur við greinina ekki aukinn með sértækum aðgerðum og hækkun á afurðaverði til lengri tíma getur það haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.

Kjötiðnaður félagsins stendur vel. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst verulega milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi aðila á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2022                        18. mars 2022

Janúar – júní 2022 uppgjör        25. ágúst 2022

Júlí – desember 2022 uppgjör    16. febrúar 2023

Aðalfundur 2023                        17. mars 2023

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – [email protected]

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – [email protected]

Viðhengi:

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.