AGM Information • Nov 22, 2024
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Afboðun félagsfundar SS 6.desember 2024
Afboðun félagsfundar SS 6. desember 2024
Stjórn Sláturfélags Suðurlands afboðar félagsfund sem halda átti 6. desember 2024 klukkan 15:00 í félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli.
Stjórn SS samþykkti á stjórnarfundi 20. september síðastliðinn að leggja fyrir félagsfund 6. desember n.k. tillögu til breytinga á 3. gr. samþykkta félagsins sem fæli í sér ,,að starfa sem framleiðendafélag skv. 5. gr. laga nr. 99/1993, með síðari breytingum, að því er varðar afurðadeild félagsins.”
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp 18. þessa mánaðar í máli nr. E-4202/2024, Innnes ehf. gegn Samkeppniseftirlitinu, er komist að þeirri niðurstöðu að nýlegar undanþágur frá samkeppnislögum, sem heimila kjötafurðastöðvum (framleiðendafélögum) að sameinast og hafa tiltekið samráð sín á milli, stríði gegn stjórnarskrá Íslands og hafi því ekki lagagildi.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hefur því skapast réttaróvissa um lagagildi umræddrar undanþágu sem heimilar eru framleiðendafélögum með lögum nr. 30/2024. Ekki liggur fyrir hvort dómi Héraðsdóms Reykjavíkur verði áfrýjað til æðra dómsstigs. Af þeim sökum hefur stjórn SS fallið frá því að halda félagsfund 6. desember n.k. þar sem leggja átti til breytingu á 3. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 22. nóvember 2024.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.