AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Sláturfélag Suðurlands svf.

AGM Information Feb 17, 2022

8575_rns_2022-02-17_f23a77c9-f85b-4e4e-9044-14be28ef3907.html

AGM Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 18. mars 2022

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 18. mars 2022

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 18. mars 2022 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.

Dagskrá:

1.        Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.        

2.        Skýrsla stjórnar félagsins.

3.        Starfsemi félagsins á liðnu ári.

4.        Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.

5.        Skýrsla skoðunarmanna.

6.        Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

7.        Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.

8.        Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.

9.        Kosin stjórn félagsins.

10.      Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.

11.       Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.

12.      Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.

Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 4,84% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 26.723.031,- eða 0,1484 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 6,0% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 21.004.050,- Arðleysisdagur er 21. mars og arðréttindadagur er 22. mars. Greiðsludagur arðs er 27. apríl n.k.

Reykjavík, 17. febrúar 2022.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Viðhengi:

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.